Morgunblaðið - 15.04.1980, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. APRIL 1980
47
Brezkur gesta-
prófessor rekinn
frá Tékkóslóvakíu
London. 14. apr. AP.
ANTHONY Kcnny, brezkur
gestapróíessor í Tékkóslóvakíu,
hefur verið rekinn úr landi í
Tékkóslóvakíu, eftir að hann
var handtekinn ásamt 25 Tékkó-
slóvökum sem hlýddu á fyrir-
lestur hans í Prag um siðfræði 1
verkum Aristótelesar.
Handtakan var gerð á heimili
heimspekingsins Juliusar Tom-
ins á laugardagskvöld, en Tomin
hefur nokkuð látið að sér kveða
innan samtaka andófsmanna í
Tékkóslóvakíu.
Tveir aðrir Bretar, kennari og
ungur stúdent, voru fyrir nokkru
reknir frá Tékkóslóvakíu eftir að
lögreglan réðst inn þar sem
fyrirlestur var haldinn að frum-
kvæði Tomins.
Moskvu. Mexíkóborg, 14. apríl. AP.
SOVÉZKI stórmeistarinn Lev
Polugaevsky bar sigurorð af
landa sínum Mikhail Tal í
áskorendaeinvígi þeirra í borg-
inni Alma Ata í Sovétríkjunum.
Hlaut Polugaevsky alls 5‘/2
vinning en Tal 2'/2. í næstu
umferð teflir Polugaevsky við
landflótta Sovétmann, Viktor
Korchnoi. Ekki hefur verið
ákveðið hvar sú keppni fer fram,
en henni verður að vera lokið
fyrir 1. ágúst næstkomandi.
Ungverjinn Lajos Portisch og
Sovétmaðurinn Boris Spassky
gerðu í gær jafntefli í sjöttu
umferð áskorendaeinvígis þeirra
sem háð er í Mexíkóborg. Staðan
í einvíginu er sú, að Portisch
hefur hlotið 3‘/2 vinning, en
Spassky 2'/2.
ERLENT
EKKI MEÐ — F. Don Miller (t.h.), framkvæmdastjóri bandarisku ólympíunefndarinnar, les ályktun sem
nefndin samþykkti þess efnis að Bandarikjamenn muni ekki taka þátt i ólympíuleikunum i Moskvu i
sumar. Til vinstri er Robert Kane, forseti bandarisku ólympiunefndarinnar.
Bandarískir íþróttamenn fara ekki til Moskvu:
Fara vestrænar ólympíunefndir
að fordæmi þeirrar bandarisku?
Þjóðarat-
kvæði um
þúsundkall?
Peterborough, Englandi 14. apr. AP.
ROBERT Renphrey, strætis-
vagnastjóri í Peterborough á
Englandi, tilkynnti i dag að
hann ætlaði að efna til þjóð-
aratkvæðagreiðslu um það
hvort hann ætti að greiða
verklýðsfélagi sinu eins
punds sekt.
Renphrey skrifaði til dag-
blaðs í bænum og ásakaði
starfsmenn verklýðsfélagsins
um að hvetja til skyndiverk-
falla án lögmæts umboðs. Var
honum gefinn vikufrestur til
að greiða sektina, ella yrði
hann látinn víkja úr starfi.
Hann sagði að þjóðarat-
kvæði þetta — sem að vísu er
óljóst hvernig hann ætlar að
koma í framkvæmd — snerist
því ekki síður um það hvort
menn hefðu málfrelsi eður ei.
Colorado Springs, London,
Moskvu, 14. apríl. AP.
VIÐBRÖGÐ við þeirri ákvörðun banda-
rísku ólympíunefndarinnar að senda ekki
íþróttamenn á Ólympíuleikana í Moskvu
hafa verið á ýmsan veg, en frekar er hallast
að því að ákvörðunin hvetji ólympíunefndir
Sagði annar tveggja fulltrúa
Bandaríkjanna í alþjóða ólympíu-
nefndinni, Douglas F. Roby, að ef
helztu ríki Vestur-Evrópu færu að
dæmi Bandaríkjamanna og hættu
við þátttöku í leikunum í Moskvu,
mundi IOC aflýsa leikunum. Sagði
Roby, að ef Bretar, Frakkar,
V-Þjóðverjar, Astralir, Nýsjálend-
ingar og Kanadamenn aflýstu
þátttöku færu leikarnir ekki fram.
Brezka stjórnin hefur lýst sig
andvíga þátttöku brezkra íþrótta-
manna í leikunum, en brezka
ólympíunefndin samþykkti með
nokkrum meirihluta að taka þátt í
leikunum. Ríkisstjórn Frakklands
hefur tekið þá afstöðu að bíða með
ákvörðun þar til að ríki Efnahags-
bandalagsins (EBE) hafi mótað
sameiginlega afstöðu. Hans-
Dietrich Genscher, utanríkisráð-
herra V-Þýzkalands, sagði í dag að
stjórnin í Bonn mundi leggja til
við þýzku ólympíunefndina að
vestur-þýzkir íþróttamenn tækju
ekki þátt í leikunum í Moskvu, og
Helmut Schmidt kanslari sagði
um helgina að vestur-þýzkir
íþróttamenn tækju ekki þátt með-
an sovézkt herlið væri í Afganist-
an. Stjórnir Astralíu, Nýja Sjá-
lands og Kanada hafa allar for-
dæmt innrás Sovétríkjanna í Af-
ganistan og lagt til að íþrótta-
menn taki ekki þátt í leikunum í
Moskvu.
Killanin lávarður forseti IOC
sagði í dag að framkvæmdastjórn
IOC yrði að „endurskoða stöðu
leikanna í Moskvu í ljósi síðustu
atburða" á fundi sinum í Laus-
anne Sviss 21,—23. apríl næst-
komandi. í tilkynningu Killanins
var ekki minnst á afstöðu banda-
rísku ólympíunefndarinnar.
Búist er við því að Iþróttasam-
band Noregs samþykki á ársfundi
sínum um næstu helgi að norskir
íþróttamenn taki ekki þátt í Ól-
Verkbanninu var
afstýrt í Svíþjóð
Frá fréttaritara MorKunblaðsins,
^ Sigrúnu Gisladóttur, í Stokkhólmi í gær.
Á SÍÐUSTU stundu tókst að
afstýra yfirvofandi verkbanni
sem atvinnurekendur (SAF)
höfðu boðað að kæmi til fram-
kvæmda síðastliðið sunnudags-
kvöld og samþykkti þá LO
(launþegasamtökin) að aflétta
yfirvinnubanni sínu.
Það var loforð um 15 aura
tímakaupshækkun sem bjargaði
vinnufriðnum um stundarsakir.
Samningarnir eiga enn langt í
land og sáttaumleitunum verður
haldið áfram. Fékk LO því til
leiðar komið að 15 aurarnir
verða reiknaðir fimm mánuði
aftur í tímann, það er að segja
frá 1. nóvember 1979.
LO krefst rúmlega 11% hækk-
unar á grunnkaup, en umsamdir
15 aurar (sem eru um V2 %)
ráðstafa hin einstöku aðildar-
samtök LO fyrir sérkröfur
sínar, til dæmis stytting vinnu-
tíma og yfirvinnufrí.
Þeir leggja áherzlu á að yfir-
vinnubanni sé einungis aflétt
um stundarsakir. Ef þróun mála
verði neikvæð geti komið til
yfirvinnubanns á ný.
Það eru ekki bara LO og SAF
sem ógna vinnufriðnum þessa
dagana. Nú hafa opinberir
starfsmenn boðað skyndiverk-
föll frá og með 25. apríl, ef ekki
komizt betri skriður á samn-
ingaviðræður þeirra. í dag bauð
ríkissáttanefnd þeim sömu
hækkun fyrir sérkröfur og LO
samþykkti, en því höfnuðu opin-
berir starfsmenn.
Skyndiverkföll ríkis- og bæj-
arstarfsmanna mundu fyrst og
fremst valda verulegri röskun á
samgöngum, starfsemi útvarps,
sjónvarps, skóla og heilbrigðis-
þjónustu.
annarra vestrænna ríkja og ýmsar stjórnir,
til að falla frá þátttöku í leikunum.
Nefndin samþykkti á fundi sínum um
helgina með 1604 atkvæðum gegn 797 að
verða við tilmælum Carters forseta að taka
ekki þátt í leikunum vegna innrásar
Sovétríkjanna í Afganistan.
ympíuleikunum í Moskvu. Sam-
bandið hefur síðasta orðið í þeim
efnum, en nýlega samþykkti
norska ólympíunefndin með 19
atkvæðum gegn 13 að senda
íþróttamenn til Moskvu. Ole Jacob
Bangstad formaður sambandsins
sagði í dag að ákvörðun banda-
rísku ólympíunefndarinnar um að
senda ekki íþróttamenn til
Moskvu yrði líklegast til að hvetja
fulltrúa á þingi sambandsins til að
samþykkja fjarveru norskra
íþróttamanna.
Þá gaf forseti japönsku
ólympíunefndarinnar í skyn í dag
að ákvörðun bandarísku nefndar-
innar hefði líklega mikil áhrif á
japönsku ólympíunefndina, sem
tekur senn afstöðu til málsins.
Einnig sagði forseti hollenzku
ólympíunefndarinnar að ákvörðun
bandarísku nefndarinnar ætti
líklegast eftir að hafa „keðju-
verkandi áhrif“ og að fleiri nefnd-
ir færu að fordæmi þeirrar banda-
rísku.
Blaðið The Daily News í New
York skýrði frá því í dag að NBC
sjónvarpsstöðin mundi ekki sjón-
varpa frá leikunum en stöðin
hafði hlotið einkarétt til þess.
Fyrir réttinn til að sjónvarpa til
Bandaríkjanna hafði stöðin greitt
um 87 milljónir dollara, og hermt
er að þegar hafi sovézku ólympíu-
nefndinni verið greiddar 67 millj-
ónir dollara af þeirri upphæð.
Sovézkir fjölmiðlar gátu í gær
um ákvörðun bandarísku ólympíu-
nefndarinnar í einni stuttri setn-
ingu, en vestrænir fréttamenn
sögðu að svo virtist sem öllum
Moskvubúum hefði í morgun verið
vel kunnugt um ákvörðun nefnd-
arinnar og að flestir hefðu látið í
ljós áhyggjur og vonbrigði. Sov-
ézkir embættismenn hefðu látið í
ljós efasemdir um framtíð leik-
anna í einkaviðtölum og að úr
sögunni væru þær vonir yfirvalda
að leikarnir í Moskvu yrðu sú
glæsta hátíð íþróttafólks sem þeir
hefðu ætlað leikunum að vera. í
blöðum í dag var því haldið fram
að bandarískir íþróttafrömuðir
hefðu verið „heilaþvegnir" af
stjórn Carters.
Stærsta blað Sviss, Blick, hvatti
til þess í ritstjórnargrein í dag að
svissneskir íþróttamenn tækju
ekki þátt í leikunum í Moskvu og
sagði að ákvörðun bandarísku
ólympíunefndarinnar í þeim efn-
um ætti að auðvelda svissnesku
nefndinni leikinn.
Veður
víða um heim
Akureyri 5 skýjaó
Amsterdam 21 sól
Aþena 18 skýjaö
Barcelona 12 alskýjaó
Brussel 22 sól
Chicago 8 snjókoma
Denpasar 32 skýjaó
Dublin 14 heióskírt
Feneyjar 15 heióskírt
Frankfurt 18 heióskírt
Genf 17 skýjaö
Helsinki 9 skýjaó
Hong Kong 19 skýjaó
Jerúsalem 16 sól
Jóhannesarborg 29 heióskírt
Kaupmannahöfn 13 sól
Las Palmas 20 skýjaó
Lissabon 15 rigning
London 22 heiðskírt
Los Angeles 30 heiðskírt
Malaga 17 mistur
Madrid 14 hólfskýjaó
Mallorca 16 miatur
Miami 27 skýjaó
Mexicoborg 23 bjart
Moskva 5 skýjaó
Nýja Delhi 36 bjart
New York 21 rigning
Ósló 9 heiðskírt
París 19 heiðskírt
Reykjavík 1 snjóél
Rio de Janeiro 33 skýjaö
Rómaborg 17 bjart
Stokkhólmur 15 sól
Tel Aviv 21 sól
Tókýó 21 rigning
Vancouver 16 skýjaö
Vínarborg 15 sól
Tal beið ósigur