Morgunblaðið - 23.04.1980, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 1980
17
Söngsveitin Fílharmónia á æfingu í Háskólabíói í gær. Ljósm. Ól. K.M
WBT ♦ 'Mv
mr v
9 < Jm
■ML oCi §H| 0 H
I (Sfclw5 *
iJJVV’iji Lp pí 1*
Söngsveitin Fílharmónía 20 ára:
Heldur tvenna hátíðar-
tónleika í Háskólabíói
Stjórnandi hátidartónlcikanna er sir Charles Groves.
í TILEFNI af 20 ára afmæli
Söngsveitarinnar Fílharm-
óníu verða tvennir hátíðar-
tónleikar í Háskólabíói, hinir
fyrri fimmtudaginn 24. apríl
kl. 20:30 og þeir síðari laugar-
dag 26. apríl kl. 14:30. Auk
Fílharmóníunnar koma fram
á tónleikunum einsöngvar-
arnir Sieglinde Kahmann og
Guðmundur Jónsson og Sin-
fóníuhljómsveit íslands.
Stjórnandi er enski hljóm-
sveitarstjórinn sir Charles
Groves, en á efnisskrá er
verkið Þýzk sálumessa eftir
Johannes Brahms.
Hinn 24. apríl 1959 var
stofnað félag í Reykjavík, sem
hafði að markmiði að stofna
söngsveit til að flytja stór
kórverk. Hlaut hún nafnið
Fílharmónía og næsta vor
voru haldnir þrennir tónleikar
fyrir fullu húsi og var flutt
Carmina Burana eftir Carl
Orff og var Þjóðleikhúskórinn
fenginn í lið með söngsveit-
inni. Dr. Róbert A. Ottósson
var söngstjóri. í frétt um
afmælistónleikana segir m.a.:
A tuttugu ára ferli hefur
Söngsveitin Fílharmónía flutt
mörg helztu stórverk kórbók-
menntanna: Þrjár sálumessur
eftir Brahms, Mozart og Verdi,
Missa Solemnis, C-dúr messu,
9. sinfóníu og kórfantasíu eftir
Beethoven, Messías eftir
Hándel, Sköpunina eftir
Haydn, Magnificat eftir Bach,
Sálmasinfóníu eftir Strav-
insky o.fl. og íslenzk verk, m.a.
eftir Pál Isólfsson, Jón Þórar-
insson, Björgvin Guðmundsson
og Sigursvein D. Kristinsson.
Þá hefur hún sungið inn á
tvær hljómplötur.
Meistari og faðir Söngsveit-
arinnar var dr. Róbert A.
Ottósson. Hann stjórnaði
henni frá stofnun og þar til
hann féll frá 10. mars 1974,
langt um aldur fram. Fannst
þá kórfélögum sem þeir hefðu
misst náinn vin eins og einn
þeirra komst að orði.
Eftir fall dr. Róberts stjórn-
uðu söngsveitinni þeir Jón
Þórarinsson, Garðar Cortes,
Jón Ásgeirsson og Karsten
Andersen. Haustið 1976 var
Marteinn H. Friðriksson ráð-
inn stjórnandi Söngsyeitarinn-
ar og hefur hann stjórnað
henni á þrennum tónleikum,
en einnig æft hana fyrir aðra
stjórnendur: Pál P. Pálsson,
Jean-Pierre Jacquillat, Gilbert
Levine og nú síðast Sir Charles
Groves.
Ymsir undirleikarar hafa
aðstoðað Söngsveitina á æf-
ingum, en Agnes Löve hefur
gegnt því hlutverki samfleytt
síðan 1974.
Náin samvinna hefur verið
með kórnum og Sinfóníu-
hljómsveit íslands enda
Söngsveitin aldrei haldið
hljómleika öðruvísi en með
Sinfóníuhljómsveitinni. Þegar
Carmina Burana var flutt
fyrir 20 árum voru 50 manns í
Söngsveitinni Fílharmóníu.
Flest varð söngfólkið, þegar 9.
sinfónía Beethovens var flutt í
•annað sinn í desember 1970,
156 manns. Nú eru þátttakend-
ur í kórnum 122.
I fyrstu stjórn Söngsveitar-
innar voru Aðalheiður Guð-
mundsdóttir formaður, Sigur-
laug Bjarnadóttir ritari og
Lúðvíg Albertsson gjaldkeri. I
núverandi stjórn eru: Guð-
mundur Örn Ragnarsson
formaður, Pétur Haraldsson
varaformaður, Jóhanna Ög-
mundsdóttir gjaldkeri,
Bryndís Brynjúlfsdóttir ritari
og Gunnar Böðvarsson með-
stjórnandi.
Einsöngvarar á tónleikunum á morgun og laugardag eru Guðmundur Jónsson og Sieglinde Kahmann.
Þrír listamenn
sýna í Þýzkalandi
HINN 18. apríl var opnuð í
bænum Wipperíiirth í Þýzka-
landi sýning á verkum eftir þrjá
islenzka listamenn. þá Einar Há-
konarson, Baltasar og Leif
Breiðfjörð. Sýningin er í Haus
der Familie f bænum, sem er í
útjaðri Kölnar. Haus der Familie
er eins konar menningarmiðstöð
bæjarins, þar eru haldnar nokkr-
ar listsýningar ár hvert, svo og
hljómleikar og bókmenntakynn-
ingar og sömuleiðis er það félags-
leg þjónustumiðstöð fyrir bæjar-
búa.
Það var fyrir forgöngu Rose-
marie Washtler sem er bæjarfull-
trúi í Wipperfiirth og hefur komið
til Islands að þessari sýningu var
komið á laggirnar. Verður sýning-
in opin fram yfir mánaðamótin.
Við opnunina voru allir helztu
framámenn bæjarfélagsins og
menningarfólk og voru listamönn-
unum afhent heiðursmerki bæjar-
ins, flutt ávörp og skálað í kampa-
víni.
Á sýningunni eru samtals 53
verk, Einar Hákonarson sýnir þar
einvörðungu málverk, Baltasar
grafikmyndir og Leifur glermynd-
ir og skissur að glermyndum.
Myndin var tekin við
athöfn þá sem var haldin
þegar sýning þremenn-
inganna var opnuð. Frá
vinstri er Leifur Breið-
fjörð, Rosemarie Washtl-
er, Einar Ilákonarson og
Baltasar.