Morgunblaðið - 09.05.1980, Side 7

Morgunblaðið - 09.05.1980, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. MAÍ1980 7 I Morgunblaðiö I kaupkröfu- I blaö? I I I Sá pólitíski „skúlptur", sem ástundaöur er í leið- urum Tímans, er í ætt við „hreyfilist". Þar má líta hinar furðulegustu mynd- breytingar. Einn daginn er Morgunblaðið — í túlk- un Tímans — harðsvírað atvinnurekendablað, og sú „staðhæfing“ sýnd lesendum blaðsins gegn um stækkunargler, sem sértrúarritið Þjóðviljinn gæti verið fullsæmdur af. Hinn daginn er Mogginn kaupkröfublað — í túlkun Tímans — sem gengur þvert á „staðreyndir at- vinnulífsins'* í framm- úrstefnubaráttu fyrir hina lægst launuðu. Rétt er að skoöa þennan „hreyfi- skúlptur“ Tímans smá- vegis. Mergur málsins Morgunblaðið hefur ítrekað haldið því fram að leiðin til bættra lífskjara og atvinnuöryggis sé að auka framleiðni, verð- mætasköpun og þjóðar- tekjur. Öðru vísi verði hvorki atvinnuöryggi vax- andi þjóðar né sambæri- leg lífskjör og nágranna- þjóðir búa við tryggt. Heldur ekki fyrirbyggður sá landflótti, sem felst í brottflutningi 9000 ís- lendínga af landi burt á sl. 4 árum. Til þess að ná þessu markmiði fram- leiðni og þjóðartekna þarf að tryggja atvinnu- vegunum vaxtarmögu- leika; aöstööu til eigin- fjármyndunar, er staðið geti undir eðlilegri stækkun og tæknivæð- ingu atvinnufyrirtækja, þann veg að verömæta- sköpun á hvern þjóðfé- lagsþegn vaxi, sem er óhjákvæmilegur undan- fari raunhæfra lífskjara- bóta. Þetta gerist hins- vegar ekki með þeirri skattastefnu, sem nálg- ast eignaupptöku í at- vinnurekstrinum, og hamlar öllum framförum. Hún verður aldrei hvati til vaxtar í þjóðarbúskapn- gróðurmoldar, sem viröa þarf. Þeir, sem í alvöru vilja tryggja atvinnuör- yggi og bætt lífskjör, mega ekki loka augum fyrir þessum kjarna málsins. Viöskiptakjör, þjóöartekur og skattar Versnandi viðskipta- kjör þjóðarinnar út á við og allt að því stöönun í þjóðartekjum gefa ekki svigrúm til umtalsverðra kjarabóta. Viö þessar að- stæður heldur Morgun- blaðið því fram að ríkis- valdið heföi átt aö draga úr eyöslu og umsvifum, þar á meöal skattheimtu, sem væri eina færa leiðin við ríkjandi aðstæður til að skerða ekki um of ráðstöfunartekjur fólks og rekstarstöðu atvinnu- vega. i staö þess stóreyk- ur ríkisvaldiö hvers konar kjararýrandi skattheimtu: tekjuskatt, útsvör, sölu- skatt (sem hækkar vöru- verö), benzíngjald o.fl. Allir þessir skattar rýra um. IAftolAlngamar af ásaslni rlklsvaldsins í IffeyrtssJóAI landsmanna: „FYRIRSJÁANLEGT GJALD ÞROT — FÓLK MUN EKKI FÁ ÞANN LÍFEYRI, SEM ÞAÐ ÆTTI AD FÁ” — sesir Pétur Blöndal hjá LffeyrissjöAI verilunarmanna í annan stað hefur Morgunblaðið lagt höfuð- þunga á eflingu innlends orkubúskapar, samhliða iðju og iðnaði, vegna þeirra takmarkana á nýt- ingarþoli fiskistofna og ráðstöfunartekjur al- mennings. Enginn launa- maöur trúir því, sem sértrúarritið Þjóðviljinn reynir að læða inn í huga lesenda sinna, að kaup- gíldí launa vaxi við hækk- un tekjuskatts, benzín- gjalds og útsvars, eða að verðbólga lækki við hækkun söluskatts og gengislækkun. Svo and- lega blankur maður er ekki til að hann falli á jafn léttu „gáfnaprófi". Ríkið er stærsti at- vinnurekandinn í landinu. Fjárhagsforsjá þess er fyrrverandi formaður Al- þýðubandalagsins. Hann gengur nú á kaupmátt launa og kjarastöðu al- mennings í skattheimtu, með stuðningi Fram- sóknar, „svartasta aft- urhaldsins í landinu". Á þetta hefur Morgunblaðið bent mönnunum, sem sögöu að „kosningar væru kjarabarátta" og öll hin slagorðin, sem nú hafa orðið sér til skamm- ar. Aö bíta höfuöiö af skömminni Enn ekki er nóg að gert hjá skattpíningarflokkun- um. Nú vilja þeir „sölsa undir sig“ (eins og Eð- varð heföi orðað það) 40% af ráöstöfunarfé líf- eyrissjóða með þvingun- arákvæðum er setja á í lánsfjárlög. Eigendur þessara sjóða eru m.a. stéttarfélögin í landinu, sem ekki er treyst lengur til að ávaxta eigið fé, heldur svift ráðstöfunar- rétti á því. Hér er gengið á eingarétt. Von er að spurt sé, hvenær kemur röðin að öðru sparifé launafólks? Þessir urðu ávextirnir á samyrkjubúi Framsóknar og Komm- únista. I I I I I I Skákkeppni stofnana: Búnaðarbankinn sigurvegari HINNI árlegu skákkeppni stofn- ana lauk sl. mánudag og varð sveit Búnaðarbanka íslands sig- urvegari, hlaut 20% vinning. í öðru sæti varð sveit Verka- mannabústaða með 19% vinning og Útvegsbanki íslands var í þriðja sæti með 18% vinning. Sveit Búnaðarbankans skipuðu þeir Jóhann Hjartarson, núver- andi íslandsmeistari, sem tefldi á 1. borði, Bragi Kristjánsson, Leif- ur Jósteinsson, Hilmar Karlsson, Stefán Þormar Guðmundsson og Guðjón Jóhannsson. Myndin er af sigursveitinni og eru skákmenn- irnir í þeirri röð sem að framan er rakið, talið frá vinstri. Saga M.A. kemur út í sumar f SUMAR kemur út Saga Mennta- skólans á Akureyri 1880—1980 I—III. Er hún gefin út í tilefni af eitt hundrað ára afmæli skólans, sem minnst verður með hátíð bæði á Möðruvöllum í Hörgárdal og á Akureyri dagana 15. til 17. júní. Saga Menntaskólans á Akureyri 1880—1980 verður í þremur bindum. Inngang að verkinu ritar forseti íslands, dr. Kristján Eldjárn. í fyrsta bindinu er sagt frá Möðru- vallaskólanum og Gagnfræðaskól- anum á Akureyri og nær bindið yfir tímabilið 1880 til 1930. í öðru bindi er rakin saga Menntaskólans á Akureyri og í þriðja bindinu verða stúdentatal, gagnfræðingatal og kennaratal skólans í 100 ár. Verkið allt verður um 1200 blaðsíður, og þar af um 400 myndasíður með um 1000 myndum, teikningum og öðru myndefni úr sögu skólans, bæði mannamyndum, myndum af húsum og munum og myndum úr skólalíf- inu fyrr og nú. Er mjög vandað til þessa verks. Sögu Menntaskólans á Akureyri 1880—1980 rita Tryggvi Gíslason skólameistari, Steindór Steindórs- son frá Hlöðum, fyrrverandi skóla- meistari, og Gísli Jónsson mennta- skólakennari, sem er ritstjóri að verkinu. Auk þess eru í sögunni þættir úr byggingarsögu skólans, er Árni heitinn Kristjánsson mennta- skólakennari ritaði. Þórhallur Bragason skjalavörður hefur samið skrár. Tómas Ingi Olrich konrektor hefur safnað myndefni og valið. Kristján Kristjánsson hefur hannað bókina, sem prentuð er í Prentverki Odds Björnssonar á Akureyri. Saga Menntaskólans á Akureyri 1880—1980 verður fyrst aðeins seld til áskrifenda. Kostar verkið allt í áskrift 50.000 krónur. Þeir sem gerst vilja áskrifendur að Sögu Menntaskólans á Akureyri 1880— 1980 geta snúið sér til skrifstofu Menntaskólans á Akureyri fyrir 20. maí n.k. (Fréttatilkynning) Ég sendi hér meö kveðju mína og hugheilar þakkir öllum þeim, sem minntust mín og heiðruðu með ýmsum hætti í tilefni af sjötugsafmæli mínu 9. apríl s.l. Blessun fylgi ykkur um ókomin ár. Lifið heiil Á sumarmálum 1980, Baldvin Þ. Kristjánsson. wa»J | LITAVER — LITAVER — LITAVER — LITAVER — LITA Málning og málningarvörur Afsláttur Kaupir þú fyrir: Kaupir þú umfram 30—50 þús. 50 þús. veitum við 10% veitum við 15% afslátt. afslátt. Þetta er málningarafsláttur í Litaveri fyrir aiia þá, sem eru að byggja, breyta eða bæta. Líttu við í Litaveri, því það hefur ávailt borgaö *ig. LITAVER — LITAVER LITAVER - LITAVER Marks og Spencer

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.