Morgunblaðið - 09.05.1980, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. MAÍ1980
Jan Mayen og skipting Norðurhafa
Á kortinu sjást yfirráöasvæöi í Norður-
höfum. Skyggöu svæöin eru umdeild og
eiga Norömenn aðild aö öllum deilunum.
Noröaustur af íslandi er 25 þúsund
ferkílómetra svæöi á milli miölínu og 200
mílna marka íslands, sem viö krefjumst
aö gildi. í viðræöum þeim, sem fram fara
í Oslo þessa dagana mun íslenska
sendinefndin leita eftir viðurkenningu
Norömanna á þessari kröfu og auk þess
viöurkenningu þeirra á því, aö viö höfum
yfirráöarétt yfir landgrunninu utan 200
mílnanna. Þá krefjast íslendingar einnig,
aö þeir hafi helmingarétt til fiskveiöa á
Jan Mayen svæöinu á móti Norömönn-
um.
Skyggöa svæöiö fyrir vestan Jan
Mayen sýnir annars vegar fyrirhuguö
fiskveiöimörk frá Jan Mayen eins og
Norömenn hugsa sér þau og hins vegar
fullar 200 mílur ,frá grænlensku strönd-
inni. Lögsagan hefur ekki enn veriö færö
út frá grænlensku ströndinni fremur en
frá Jan Mayen. Um þetta mál munu Danir
og Norðmenn ræöa. íslendingar hafa
áhuga á því aö fá rétt til rækjuveiða fyrir
noröan miölínuna gagnvart Grænlandi og
loönan frá íslandi heldur sig síösumar á
skyggöa svæöinu milli Jan Mayen og
Grænlands.
Noröur af Noregi, í Barentshafi, eru
dregnar margar línur, sem sýna ólík
sjónarmiö Norðmanna annars vegar og
Sovétmanna hins vegar. Sovéska sjón-
armiöiö er þaö, aö draga eigi línu frá
landamærum ríkjanna til Noröurpólsins,
kölluö lengdarbaugslína á kortinu, en
Norðmenn vilja aö miölína gildi. Enginn
árangur hefur oröiö í samningaviöræöum
þjóöanna fyrir utan, aö þau hafa komið
sér saman um svonefnt grátt svæöi, þar
sem skip frá báöum mega veiöa og er
þaö sýnt meö ferningi innan 200
mílnanna viö landamærin. Athygli vekur,
aö Sovétmönnum er heimilaö aö veiöa
vestan viö lengdarbaugslínuna sam-
kvæmt því samkomulagi.