Morgunblaðið - 09.05.1980, Page 32
Síminn
' á afgreiöslunni er
83033
Jflorflrtnblabií*
Síminn á ritstjórn
og skrifstofu:
10100
Islenzkt ál mun
flytja orku frá
Hrauneyjafossi
ALLAR líkur bcnda til þess
að íslenzkt ál muni þegar
fram iíða stundir flytja raf-
magn frá Hrauneyjafossvirkj-
un til orkukaupenda.
Að sögn Jóhanns Más Maríus-
sonar yfirverkfræðings Lands-
virkjunar verður á næstunni
gengið til samninga við sænskt
og finnskt fyrirtæki um að
framleiða leiðara eða víra í
Hrauneyjafosslínuna, en leiðar-
arnir eru gerðir úr sérstakri
álblöndu. Hafa fyrirtækin óskað
eftir því að kaupa ál hjá Álver-
inu í Straumsvík og mun það
selja fyrirtækjunum 1100 tonn
af áli í leiðarana. Álverið seldi
fyrir nokkrum árum ál í leiðara
Búrfellslínu II.
Fyrirtækin sem hér um ræðir,
Gránges Metalverken i Svíþjóð
og Nokia í Finnlandi, munu ef
samningar takast á grundvelli
tilboðs þeirra framleiða leiðara í
alla Hrauneyjafosslínuna. Hún
verður um 140 kílómetra löng
frá Hrauneyj afossvirkj un að
Brennimel í Borgarfirði. Línan
verður lögð á næsta ári en
byrjað hefur verið á undirstöð-
um fyrir möstur.
FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 1980
Kálfurinn sem liggur hjá móður sinni er sólarhrings gamall. Hann er fyrsta afkvæmi kýrinnar og tákn þess að
vorið er að koma og jörðin að vakna til lífsins á ný.
Álverið og járnblendið:
Vorboði í heiminn borinn
Ljósm. Mbl. RAX.
Álverið:
Allri fram-
leiðslu þessa
árs þegar
ráðstafað
ÁLMARKAÐURINN hefur verið
mjög traustur að undanförnu og
mjög mikil eftirspurn, eftir áli.
Hefur allri framleiðslu Álversins í
Straumsvík á þessu ári þegar
verið ráðstafað, að sögn Ragnars
Halldórssonar forstjóra félagsins.
I vetur hefur verið framleitt í
Álverinu eins og mögulegt hefur
verið en vegna orkuskömmtunar
varð að draga úr framleiðslu sem
nam 5000 tonnum. Álinu hefur
verið afskipað svo til jafnharðan.
Nýlega hækkaði ál talsvert á
heimsmarkaði eða úr 1600 dollur-
um tonnið í 1750 doliara. Er það
9,4% hækkun.
Frumvarp
um saltverk-
smiðju lagt
fyrir Alþingi
í haust?
IÐNAÐARRÁÐUNEYTIÐ
fékk fyrir nokkru skýrslu frá
undirbúningsfélagi, sem
stofnað var ti! þess að vinna
að stofnun sjóefnaverksmiðju
á Suðurnesjum. Skýrslan er
kölluð „frumáætlun" og er til
skoðunar í nefnd, sem Bragi
Sigurjónsson skipaði til þess
jð skoða og kanna tillögur,
sem kæmu. í skýrslunni er
•'i um allt að 60 þúsund
tonna saltverksmiðju og sagði
Hjörleifur Guttormsson, iðn-
aðarráðherra, að möguleiki
væri á að fara í minni áfanga,
t.d. 30 þúsund tonn. Ráðherra
kvað það hafa verið ráðgert,
að leggja fram á Alþingi fyrir
þinglausnir kynningarfrum-
varp um þessa verksmiðju, en
nýlega hefði verið horfið frá
því, málið yrði unnið betur í
sumar og frumvarpið lagt
fyrir þingið í haust.
„Þegar verður búið að meta
þessar tillögur og fá nánari
greiningu á viðbrögðum mark-
aðarins á þeirri tilraunafram-
leiðslu, sem í gangi eru, verða
teknar ákvaðanir um frekari
stig í málinu." Kvað Hjörleif-
ur ekki komið að þeirri ákvarð-
anatöku, enda þyrfti löggjaf-
inn að koma inn í það mál. í
sumar kvað hann líklegt að
tilraunaframleiðslu yrði hald-
ið áfram og hefur þá komið til
tais að stíga milliskref og
auka framleiðsluna upp í 4
þúsund tonn. Ekki væri þó
ljóst, hvort ástæða væri til
þess.
Heildarframleiðslutap vegna raf-
magnsskömmtunar 4,9 milljarðar
FRAMLEIÐSLUTAP íslenzka ál-
félagsins vegna rafmagns-
skömmtunarinnar í vetur var um
5000 tonn og hjá íslenzka járn-
blendifélaginu 3-3.500 tonn.
Brúttóframleiðsluverðmæti 5000
tonna af áli er um 4 milljarðar
króna og framangreinds fram-
leiðslumagns járnblendiverk-
smiðjunnar um 900 milljónir
króna. en fastur kostnaður ál-
versins er um 40%, eða 1,6
milljarður króna og nettómissir
járnblendisins nemur um 400
milljónum króna. Þessar upplýs-
ingar fékk Morgunblaðið hjá
forstjórum fyrirtækjanna, Ragn-
ari Halldórssyni og Jóni Sigurðs-
syni.
Vegna vatnsskorts á hálendinu
varð Landsvirkjun að grípa til
skömmtunar til fjögurra aðila;
álversins, járnblendiverksmiðj-
unnar, Áburðarverksmiðjunnar og
Keflavíkurflugvallar. Skömmtun-
in hófst 15. september og stóð til
17. apríl sl. og varð mest 37 MW.
Runólfur Þórðarson verk-
smiðjustjóri Áburðarverksmiðj-
unnar sagði, að frá 15. september
til áramóta hefði verksmiðjan
orðið að flytja inn 790 tonn af
ammoníaki aukalega vegna raf-
magnsskömmtunar og væri það
magn um 10% af ammoníaksárs-
framleiðslu verksmiðjunnar. Töl-
ur frá þessu ári sagði Runólfur
ekki liggja fyrir, né heldur hversu
mikið innflutningurinn hefði
kostað umfram það sem eigin
framleiðsla hefði kostað.