Morgunblaðið - 15.05.1980, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MAÍ1980
Missir Kolbeinseyjar minnkar efna-
hagslögsöguna um 9.400 f erkílómetra
„VIÐ höfum allan fyrirvara
varðandi Kolboinscy, sem við
toljum hafa vorið part af
islonzkri ofnahaKslögsöKu frá
upphafi uk Krunnlínupunktur
hefur hún alltaf vorið.“ sa>?ði
Ilannes Ilafstoin skrifstoíustjúri
í utanríkisráðunoytinu í samtali
við Mbl. í Kær. Hannos satfði
allar þjúðir noma Danir hafa
viðurkcnnt Kolboinsoy som
grunnlínupunkt í islenzku
ofnahaKslöKsöKunni. síðast við-
urkenndu Brotar hana moð
samninjíum.
Mbl. spurði Hannes um könn-
unarviðræður þær, sem hann hef-
ur ásamt fleirum átt við danska
embættismenn varðandi fyrir-
hujíaða útfærslu við A-Grænland.
„Við kynntum þeim áhuga okkar á
fiskverndarmálum á þessu
svæði,“ sagði Hannes, „og óskuð-
um eftir samstarfi.
Viðbrögð þeirra voru mjög
jákvæð. Þeir hafa áhuga á sam-
vinnu danskra og íslenzkra fiski-
fræðinga, sem þeir vita að hafa
meiri þekkingu á þessu en aðrir.
Þessar viðræður voru eingöngu
könnunar- og kynningarviðræð-
ur.“
★ ★ ★
„Kolbeinsey hofur smám sam-
an verið að mulna niður og við
höfum ailtaf álitið, að eitthvað
ætti að gcra til að halda þossum
punkti ofansjávar,“ sagði Pétur
Sigurðsson forstjúri Landhelgis-
gæzlunnar í samtali við Mbl. í
gær. „Það hefur þó ekkert verið
gert.“ ★ * *
Gunnar Bergsteinsson for-
stöðumaður Sjúmælinga íslands
sagði, að þar væru ekki til neinar
nákvæmar samanburðarmælingar
á Kolbeinsey. „Það hefur oft
komið til tals að gera eitthvað til
að tryggja Kolbeinsey í sessi,"
sagði Gunnar. „Fyrir einum 15
árum var sett þar upp radarend-
urvarpsmerki, en það brotnaði
niður og hvarf strax á fyrsta ári.“
★ ★ ★
„Að mínu áliti er það ekkert
nema tímaspursmál, hvenær Kol-
beinsey hverfur í hafið. Það getur
tekið hálfan, einn til tvo manns-
aldra, en klettadrangurinn er
mjög laus í sér og minnkar
stöðugt, einkum þegar um ágang
hafíss er að ræða,“ sagði Sigurð-
ur b. Arnason skipherra í sam-
tali við Mbl. í gær, en Sigurður
stjórnaði mælingaleiðangri til
Kolbeinseyjar fyrir fjórum, fimm
árum, og í fyrradag flaug hann
yfir Kolbeinsey í flugvél Land-
helgisgæzlunnar.
Sigurður sagði, að hann minnti
að mælingarnar hefðu leitt í ljós,
að Kolbeinsey hefði verið 8 til 9
metrar á hæð og eitthvað í
kringum 35 sinnum 45 metrar.
„Mér sýndist í gær, að ekki hefðu
orðið neinar stórkostlegar breyt-
ingar, þannig að þessar tölur geta
staðizt nokkurn veginn," sagði
Sigurður. „Það hefur verið lítill
hafís síðan og mér virðist Kol-
beinsey standa svona nokkurn
veginn af sér ágang sjávarins.
En hafísinn fer illa með hana.
Ég hef komið yfir hana í flugvél
þannig að hún var alveg hulin ís.
Þrýstingurinn ýtti ísnum yfir
hana og það rétt grillti í dökkan
klettinn milli jaka. Einnig hef ég
komið þannig að henni að sjór
gengur óbrotinn yfir hana.“
Sigurður sagði, að hann hefði
ekki séð betur i gær en að
steinstöpullinn, sem settur var
undir radarendurvarpsmerkið á
sínum tíma, stæði enn og kvaðst
hann telja hann eitthvað um
metra á kant og 1,5 til 2 metra á
hæð.
Dr. Ármann Snæv-
arr heiðursdoktor
LAGADEILD Helsingforshá-
skúla samþykkti í síðasta mán-
uði að sæma dr. Ármann
Snævarr hæstaréttardúmara
og fyrrverandi háskúlarektor
doktorsnafnbút í lögfræði í
heiðursskyni. Doktorskjöri
verður lýst á Háskúlahátíð í
Helsingfors 6. september n.k.
Ekki talið árvisst að loðnan
gangi á svæðið við Jan Mayen
LÍTIÐ er vitað um loðnugöngur til
Jan Mayen tvo síðustu áratugina og
af síðustu 13 árum er aðeins vitað
með vissu. að loðnan hefur gengið á
Jan Mayen-svæðið þrjú þessara ára.
Hins vegar er talið að loðnan gangi
yfirleitt á sumrin út úr íslenzku
fiskveiðilandhelginni og inn í þá
landhelgi. sem Danir hafa nú til-
kynnt fyrir hönd Grænlendinga
norðan 67. gráðu.
Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræð-
ingur sagði í gær, að árið 1967 hefði
fundist töluvert af loðnu við Jan
Mayen. Síðastliðin tvö sumur hafa
Norðmenn, íslendingar og Færey-
ingar síðan veitt loðnu við Jan
Mayen. — Hvað gerzt hefur fyrir
1967 og síðan frá 1968 fram til 1978
getur enginn sagt um með vissu,
sagði Hjálmar Vilhjálmsson. — Þó
voru Normenn búnir að athuga með
loðnu á þessu svæði tvö sumur áður
en þeir byrjuðu veiðar þarna 1978,
en án þess að verða nokkurs varir.
Þarna norður eftir hefur verið farið
af og til í mörg herrahs ár, en alltaf
á vorin eða snemma sumars, þannig
að ekki er hægt að fullyrða neitt um
loðnugöngur þau ár.
— Mín skoðun er sú, að loðnu-
göngur á Jan Mayen-svæðið séu ekki
árvissar. Það er erfitt að segja neitt
ákveðið um þetta, til þess vantar
meiri rannsóknir, en það getur farið
eftir aðstæðum í sjónum hverju
sinni hvort loðnan gengur norður
eða ekki. Þannig get ég ímyndað mér
að lítil fæða á heimaslóðinni í
fyrrasumar hafi orsakað það, að
loðnan gekk þá norður á bóginn,
sagði Hjálmar Vilhjálmsson.
Aðspurður um loðnugöngur á því
svæði norðan 67. gráðu, sem fellur
undir fyrirhugaða lögsögu Græn-
lendinga eftir útfærsluna, sagði
Hjálmar að þangað teldi hann loðn-
una ganga meira og minna á hverju
ári. Sú loðna væri yfirleitt smærri
en sú sem fengist hefði við Jan
Mayen tvö síðastliðin ár. Samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins veiddu
íslendingar rúm 100 þúsund tonn af
loðnu á því svæði, sem fellur nú
undir lögsögu Dana, árið 1979, en um
45 þúsund tonn á síðasta ári.
Þess má geta að loðnuaflann við
Jan Mayen fengu skipin í ágústmán-
uði 1979, en í september 1978.
Síðastliðið haust sendu Norðmenn
tvö skip í tilraunaskyni til loðnu-
veiða á svæðinu við Grænland og
fengu bæði skipin fullfermi. Krist-
ján Ragnarsson, form. LÍU, sagði í
gær, að hann hefði enga tryggingu
fyrir því að óbrayttu, að aðrar þjóðir
veiddu ekki loðnu á þessum slóðum.
Hins vegar væri mikil fjarlægð á
þessi mið fyrir þjóðir Efnahags-
bandalagsins og einnig væri erfitt að
vera með verksmiðjuskip þarna
vegna íss.
Hvalvík á leið til
Nígeríu með skreið,
loðnu og þorskhausa
FLUTNINGASKIPIÐ Hvalvík
lagði í gær af stað áleiðis til Port
rOrkumálastefna stjómar-
innar birtist í afstöðunni
til Hitaveitu Reykjavíkur“
Harcourt í Nígeríu með 36 þúsund
pakka af þurrkuðum fiskafurðum,
sem Sameinaðir framleiðendur
hafa selt til Nígeríu.
Er þetta tæpur þriðjungur þess,
sem fyrirtækið hefur selt til Nígeríu
í ár, og fyrsti farmurinn sem héðan
fer. Skreiðinni var safnað saman á
stöðum frá ísafirði til Þorlákshafn-
ar og verður næsta afskipun þegar
meiri skreið verður þurrkuð og
tilbúin til útflutnings. Auk skreiðar-
innar í farmi Hvalvíkur nú eru
einnig þorskhausar og þurrkuð
loðna, en hún var þurrkuð í Hvera-
gerði og Hafnarfirði.
„RAUNVERULEG stefna ríkis-
stjúrnarinnar í orkumálum birt-
ist í afstöðu hennar til umsúknar
Hitaveitu Reykjavíkur um hækk-
un á gjaldskrá,” sagði Friðrik
Sophusson alþingismaður við um-
ræður utan dagskrár á Alþingi í
gær. „En með því að skera hækk-
unarbeiðni fyrirtækisins niður í
10% úr 58% er aukin hætta á
hitavatnsskorti á höfuðborgar-
svæðinu,“ sagði Friðrik ennfrem-
ur, „og einnig er aukin hætta á
þvi að á ný verði að kynda hús
með oliu á þessu svæði.“ Friðrik
kvaddi sér hljúðs um þetta mál
utan dagskrár. en umræðurnar
höfðu dregist í tæpa viku vegna
þcss að Túmas Árnason viðskipta-
ráðherra kvaðst ekki hafa tíma til
að kynna sér málið.
Tómas Árnason sagði hins vegar
við umræðurnar, að fjárhagur
fyrirtækisins væri mun betri en
stjórn Veitustofnana Reykjavíkur
hefði látið í veðri vaka. Af þeim
sökum hefði hækkunarbeiðnin ver-
ið skorin niður. Sagði hann hækk-
unina á gjaldskrá Hitaveitunnar
hafa orðið 113% á þessu ári ef
farið hefði verið að óskum fyrir-
tækisins, en 91% ef farið hefði
verið að tillögum iðnaðarráðuneyt-
isins.
Fyrr í umræðunum hafði Friðrik
Sophusson upplýst að iðnaðarráðu-
neytið hefði lagt til 40% hækkun,
en síðan lækkað það niður í 20%,
en ríkisstjórnin hefði verið ófáan-
leg til að fara hærra en í 10%.
Sagði Frið-
rik þetta stafa af því að Hitveita
Reykjavíkur væri ein inni í vísitöl-
unni, þar sem „vísitölufjölskyldan"
byggi í Reykjavík. Ekki væri því
verið að taka efnislega afstöðu til
stöðu viðkomandi fyrirtækis, og
sannaðist tvískinnungur ríkis-
stjórnarinnar á því, að orðalaust
hefði verið heimiluð 58% hækkun
á heimæðagjaldi. Taldi Friðrik að
hér hefðu verið gerð mistök, og
skoraði á ráðherra að taka málið
til umfjöllunar á ný í ljósi nýrra
staðreynda.
Alþingismennirnir Birgir ísl.
Gunnarsson og Guðmundur G.
Þórarinsson tóku undir gagnrýni
Friðriks á afgreiðslu.þessa máls og
töldu mjög varhugavert að halda
Hitaveitunni í fjársvelti með þess-
um hætti.
Nánar verður skýrt frá umræð-
unum í Morgunblaðinu síðar.
Þorskveiði-
takmarkanir
SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA
hélt í gær fund með hagsmunaaðilj-
um í sjávarútvegi um framhald
þorskveiðistefnu á árinu. Mun vera
fyrirhugað að kynna þær takmark-
anir á föstudág, sem beitt verður í
sumar. Samkvæmt upplýsingum
Mbl. er líklegt, að veiðitakmörkun-
um togaranna verði dreift á lengri
tíma en áður hafði verið ákveðið og
áttu að vera í þessum mánuði og
þeim næsta.