Morgunblaðið - 15.05.1980, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 15.05.1980, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MAÍ1980 41 Fyrrum fegurðar- drottning í póli- tíkina + Hún er ekkert billeg þessi snotra kona, sem hefur ákveðið að gefa sig að stjórnmálum í heimalandi sínu, Banda- ríkjunum. Hún heitir Bess Myerson og var kjörin „fegurðardrottn- ing“ þar vestra fyrir 35 árum, árið 1945. Hún hefur starfað að málefnum neytendasam- takanna í New York. Hún tilkynnti um daginn að hún myndi gefa kost á sér til framboðs sem fulltrúi demókrata í öld- ungadeildinni fyrir New York-fylki. Repúblikan- inn og hinn kunni amer- íski stjórnmálamaður Jacob Javits er núver- andi öldungadeildar- maður New York-fylkis. Páfi bann- ar honum þing- mennsku + Fyrir nokkru lét Jó- hannes Páll páfi það boð út ganga að meðal þeirra starfa í opinberri þjón- ustu, sem kaþólskir prest- ar mættu ekki taka að sér, væri þingmennska. í kjölfar þeirrar ákvörð- unar hans tilkynnti eini kaþólski presturinn, sem situr á Bandaríkjaþingi, sr. Robert Drinan frá Massa- chusetts, að hann myndi hætta þingmennsku, en hann hefur átt sæti á Bandaríkjaþingi frá árinu 1970. Hann er 59 ára gam- all og er jesúíti frá Nýja- Englandi. Hann fékk að vita um fyrirmæli páfans í lok aprílmánaðar og nokkrum dögum síðar tilk. hann ákvörðun sína. Kvaðst hann að sjálfsögðu fara að orðum hans heilag- leika páfans, en sér væri það vissulega ekki sárs- aukalaust. Sr. Robert Drin- an mun ekki hætta þing- mennsku fyrr en yfirstand- andi kjörtímabili lýkur, í nóvembermánuði næst- komandi. Aftöku- sveit sá um hana + I>essi kona. sem var 62ja ára gömul var fyrir nokkr- um dögum dregin fyrir aftökusveit byltingastjórn- arinnar í íran og skotin. Hún hét Farokhrou Parsa. Var hún fyrsta konan sem kjörin var á þing þar í landi, en auk þess sem hún var þingmaður, átti hún sæti i ríkisstjórn landsins á valdatímabili íranskeisara, á árunum 1968 til 1974 og var þá menntamálaráð- herra landsins. Hún og eiginmaður henn- ar, sem var í hernum, voru handtekin í febrúarmánuði. — Engar spurnir eru af manninum, en að morgni 8. maí var hún tekin af lífi í Evin-fangelsinu í Teheran. — Henni var meðal annars gefið að sök hverskonar spilling og að hafa ýtt undir heimsveldismenningu og vændi. Parsa fyrrum ráð- herra er fyrsta konan sem byltingardómstóllinn í íran hefur dæmt til dauða vegna afskipta af stjórnmálum. fclk í fréttum Muskie og frú + bá höfum við fengið mynd af handarísku utanrikisráðherra- hjónunum, Edmund Muskie og konu hans, en hún heitir Jane, fædd Gray, og giftust þau árið 1948. Þau eiga fimm börn, þrjár dætur og tvo syni. — Edmund Muskie er lögfræðingur frá Cornell-háskóla í íþöku og var ríkisstjóri i Maine-fylki á árunum 1955—59, en var kosinn á Banda- rikjaþing 59. Utanrikisráðherr- ann er mikill áhugamaður um ljósmyndun og iðkar hana ásamt garðyrkju i fristundum sinum. Ódýrir kjólar Kvöld- og dagkjólar í nýju afar fjölbreyttu úrvali. Allar stæröir. Vinnukjólar í úrvali. Opið föstudag til kl. 7 e.h. og á laugardag 10—12 f.h. Verksmiðjusalan Brautarholti 22. Inngangur frá Nóatúni. Oll hreinlætistæki í baÖherbergiÓ arma Byggingavörur hf. Hellisgötu 16 Hafnarfiröi, sími 53140 Camptourist-tjaldvagn Sá eini, sem viö þekkjum, sem þolir íslenzka vegi. vegna þess aó: Hann er byggöur á stálgrind með fjööur, dempurum, stórum dekkjum, enda má hlaöa vagninn aukalega 220 kg. I vagninum •lálfum «ru 5—8 mfnplán. Innlfallö I nrðinu, nm «r 1.280.000.-, «r farljald, 2 Innrl l|»ld, yfirbralöaia yflr vagnlnn, •Idhútkrókur mvð •Idavál, gnkúl, þrýsfi|afnara, •kúffum, borúl, atólum og flairu, t.d. raftvngi tyrlr billnn. Vagnlnn «r m)bg fljótlogt aö ntja upp, Danlr ngja 72 nkúndur, #n vlö ugjum 3—5 mlnútur. Þannig að öllu aamanlögöu höldum við að þatta sé: STERKASTI, BEZT BÚNI OG OOYRASTI VAGNINN. Gísli Jónsson & Co. Hf. Sundaborg 41. Simi 86644.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.