Morgunblaðið - 15.05.1980, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 15.05.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MAÍ1980 5 ÞURSAFLOKKURINN HLJOMLEIKAR í ÞJÓÐLEIKHÚSINU Mánudaginn 19. maí kl. 21.00 Forsala aðgöngumiða í Fálkanum, Laugavegi 24 TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS Glæsibæ — Laugavegi 66 Sími frá skiptiborði 85055 Albert opnar kosn- ingaskrifstofur I DAG opnuðu stuðningsmenn Al- berts Guðmundssonar kosn- ingaskrifstofu á Akureyri. Kosn- ingaskrifstofan verður til húsa að Geislagötu 10, sem er gegnt Hótel Varðborg. Forstöðumaður hennar er Jón Arnfinnsson, sem jafnframt er framkvæmdastjóri fyrir stuðn- ingsmenn Alberts á Akureyri. Þá opnuðu stuðningsmenn Al- berts Guðmundssonar kosn- ingaskrifstofu í Kópavogi. Skrifstofan verður til húsa að Hamraborg 7. í framkvæmdanefnd eru m.a.: Hrefna Ingimarsdóttir, Þorvaldur Björnsson, Björn Ein- ársson, Sigurður Bragi Stefánsson og Stefán H. Stefánsson. (Úr fréttatilkynningu) Wsm Laugave^i 20. Simi frá ikiptiborái 28155. Gestaboð Skagfirðinga- félaganna SKAGFIRÐINGAFÉLÖGIN í Reykjavík verða með sitt ár- lcga gestaboð fyrir eldri Skagfirðinga í Rcykjavík og nágrenni í nývígðu félags- heimili, Drangey, Síðumúla 35, á uppstigningardag 15. þ.m. kl. 14.00. Þar verður m.a. sýnd Skaga- fjarðarkvikmyndin Skín við sólu og félagar úr Skagfirsku söngsveitinni syngja. Þeim sem þess þurfa verður veitt aðstoð til að komast í gestaboðið. Tillaga á Alþingi: Nýtt heimasmíð- að varðskip í GÆR var lögð fram á Alþingi tillaga til áskorunar á ríkisstjórn- ina þess efnis að láta nú þegar hefja undirbúning að smíði nýs varðskips fyrir Landhelgisgæzl- una. Verði stefnt að því að skipið verði smíðað hjá íslenzkri skipa- smíðastöð. í greinargerð eru færð rök að því að nauðsynlegt sé að gæzlan eigi a.m.k. fjögur stór varðskip í fullum rekstri allt árið. Eitt skip sé að jafnaði í höfn vegna leyfa skip- verja, viðhalds og lagfæringa. Athygli er vakin á því að meðal- aldur íslenzku varðskipanna sé 17 ár og tímabært að nýtt skip komi fljótlega til starfa. Á sama tíma og skipum og starfsmönnum gæzlunn- ar fækki, hafi landhelgin marg- faldast, sé nú 750 þúsund ferkíló- metrar. Ástandið á miðlínu íslands og Grænlands þurfi lítið að breyt- ast til að nauðsyn verði á mjög aukinni gæzlu. Flutningsmenn tillögunnar eru Árni Gunnarsson (A), Halldór Blöndal (S), Karvel Pálmason (A) og Valdimar Indriðason (S). Sýning á handa- vinnu aldraðra VETRARSTARFI aldraðra i Bústaðasókn lýkur um þessar mundir með sýningu á list- munum og hannyrðum sem þessi hópur hefur unnið í vetur. Að lokinni messu á uppstigningardag kl. 2 verður sýningin opnuð og verður opin til kl. 18. Árnesingakórinn kemur á sýninguna og mun skemmta gestum með söng auk þess sem boðið verður upp á kaffi. Stuðningsmenn Vigdísar halda fund á Sögu STUÐNINGSMENN Vigdísar Finnbogadóttur í komandi for- setakosningum halda fyrsta kynn- ingarfundinn í Reykjavík í Súlna- sal Hótel Sögu í dag, uppstign- ingardag, og hefst hann kl. 20.30. Vigdís mun ávarpa fundargesti og greint verður frá kosningastarf- Sigfús Erlingsson. Nyr forstöðumað- ur Flugleiða i Bandaríkjunum SIGFÚS Erlingsson viðskiptafræð- ingur hefur verið ráðinn forstöðu- maður sölusvæðis Flugleiða í Bandaríkjunum og tók hann við störfum af John J. Loughery, sem starfað hefur að söiumálum fyrir íslcnzku flugfélögin vestra síðan 1964. Sigfús Erlingsson hefur starfað hjá íslenzku flugfélögunum í 17 ár og var m.a. skrifstofustjóri í Stokkhólmi um tíma, Þá var hann um skeið yfir markaðskönnunar- deild Flugleiða og síðar fram- kvæmdastjóri markaðssviðs félags-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.