Morgunblaðið - 15.05.1980, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MAÍ1980
7
Aö hlaupa frá
eigin samsæri
í viðtali við Ólaf Ragnar
Grímsson í Þjóðviljanum
á þriðjudag um sam-
komulagið um Jan Mayen
lætur hann að þv( líggja,
að það byggist á ein-
hverju samsæri. Hann
segir: „Og sjálfum finnst
mér sannarlega, að þeír
atburðir sem gerðust á
lokastigi þessara samn-
inga lykti af einhverri
slíkri „æðri forsjá.““ Fyrr
í samtalinu gefur Olafur
til kynna, að hagsmunir
Atlantshafsbandaiagsins
hafi verið inni í myndinni.
í Morgunblaðinu á þriðju-
dag skýrði Sighvatur
Björgvinsson frá því, að
verkalýðsforingjar frá
Noregi og íslandi heföu
setið á fundum um Jan
Mayen-máliö og látið boö
frá sér ganga til norsku
ríkisstjórnarinnar, þegar
allt virtist komið í óefni.
Er helst á Sighvati að
skilja, að norski varnarm-
álaráöherrann hafi verið
milligöngumaður fyrir
verkalýðsforingjana og
skýrt þeim frá því að
norska stjórnin ætlaði
ekki að sigla samningun-
um í strand.
Karl Steinar Guðnason,
varaformaður Verka-
mannasambands islands,
staðfestir þessa frásögn
Sighvats t' Alþýðublaðinu
í gær, en með honum
voru Snorri Jónsson, for-
seti ASÍ, Ásmundur Stef-
ánsson, framkvæmda-
stjóri ASÍ, og Óskar Hall-
grímsson í viðræöunum
viö norsku verkalýðsfor-
ingjana. Þá vitum við
hverjir tóku þátt í
„NATO-samsærinu“ hans
Ólafs Ragnars og er á-
nægjulegt, aö „samsær-
ismennirnir" skuli vera
flokksbræður hans. í hinu
forna Rómaríki þótti ekki
stórmannlegt að hlaupa á
brott frá eigin samsæri
svo sæi í iljar mönnum
eins og Ólafi Ragnari nú.
Málflutningur Alþýðu-
bandalagsforkólfanna í
þessu máli hefur veriö
álíka klaufalegur og þetta
hvar sem drepið er niður.
í Morgunblaðinu í gær
segir Ragnar Arnalds
fjármálaráðherra: „Þetta
mál er því fyrir utan
ríkisstjórnina, enda er
málið borið fram á þingi
af utanríkisráðherra." Sér
er nú hver formfestanl En
hvernig væri, að
fjármálaráðherra læsi
þingskjalið og ályktun-
artillöguna, sem utan-
ríkisráðherra lagði fram.
Þar er farið fram á „heim-
ild fyrir ríkisstjórnina“ til
að staðfesta samkomul-
agið.
A aö vinna
meö „þjóö-
níöingum“?
Alþýðublaðiö fjailar um
frammistööu Ólafs Ragn-
ars og Alþýðubandalags-
ins í Jan Mayen-málinu í
forystugrein í gær og
segir m.a.:
„Það er ríkisstjórn
íslands sem gerir þennan
samning við Norðmenn.
Samningurinn er gerður
undir forystu utanríkis-
og sjávarútvegsráöherra
með fulltingi forsætisráð-
herra. Engu aö síður er
Ijóst, að ríkisstjórnin get-
ur ekki fengiö samning-
inn staðfestan með til-
styrk stjórnarliöa. Til
þess þarf hún að leita til
stjórnarandstöðunnar.
En ekki bara það. Einn
stjórnarflokkurinn, Al-
þýðubandalagið ber sam-
starfsaðilum sínum í
ríkisstjórn það á brýn, aö
þeir gangi erinda erlends
valds í lífshagsmunamál-
um þjóðarinnar. Þeir eru
sagðir hafa, á síðustu
stundu, „horfiö frá öllum
okkar kröfum". Uppgjöf
þeirra er skýrð sem þý-
lyndi við erlent vald.
Þeim er, undir rós líkt viö
Quisling, sem sveik þjóð
sína á örlagastundu,
vegna undirgefni við er-
lent vald. Öllu lengra
verður ekki gengið í land-
ráöabrigzlum.
í ákafa sínum við aö slá
sjálfa sig til riddara sem
þjóðfrelsishetjur — um
leiö og komið er
landráðastimpli á alla
aðra — gleyma þjóðfrels-
ishetjur Alþýðubandal-
agsins aðeins einni lítilli
spurningu, sem
óhjákvæmilega hlýtur að
vakna: Hvernig geta
þvílíkar þjóðfrelsishetjur
varið það fyrir samvizku
sinni aö samneyta
þvílíkum þjóðníðingum?
Hvernig getur þjóðfrels-
ishreyfing hinna forklár-
uðu varið það fyrir fylgis-
mönnum sínum, aö ætla
að sitja áfram í ríkisstjórn
með þjóðníðingunum,
eins og ekkert hafi í
skorizt? Ætlar þjóöfrels-
ishreyfingin að láta bjóða
sér það, að stjórnarand-
staðan — sem aö sjálf-
sögðu er líka samsafn
þjóðníðinga — komi
„kvialingunum“ í ríkis-
stjórninni til hjálpar?"
Og um Ólaf Ragnar
segir Alþýðubiaðið.
„Stjórnmálamaður sem
gerir samstarfsaðilum
sínum upp hvatir land-
ráðamannsins, hvenær
sem á reynir í samning-
um viö önnur ríki, verður
ekki meiri maður fyrir
vikiö. Stjórnmálaflokkur,
sem vílar ekki fyrir sér að
koma landráöastimpli á
samstarfsflokka sína í
ríkisstjórn, en lætur síðan
eins og ekkert hafi í
skorizt, og heldur áfram
stjórnaraðild með bros á
vör, er ekki samstarfs-
hæfur. Hann stenzt ekki
þær lágmarkskröfur, sem
endanlega verður að gera
um drenglyndi og ær-
legheit í samskiptum
manna í milli.“
Hvítasunnu
kappreiðar
Fáks
veröa haldnar á annan hvítasunnudag, 26. maí á
Víðivöllum og hefjast kl. 14.00.
Keppnisgreinar:
800 m stökk. Lágmarkstími 66,0 sek.
800 m brokk. Lágmarkstími 1,55 sek.
350 m stökk. Lágmarkstími 27,5 sek.
250 m stökk unghrossa. Lágmarkstími 21,0 sek.
250 m skeiö. Lágmarkstími 26,0 sek.
Ennfremur fer fram gæöingakeppni í A og B flokki og
verða þeir dæmdir, laugardaginn 24. maí.
Dómar byrja kl. 13.30. Einnig fer fram keppni
unglinga í tveimur aldursflokkum 13—15 ára og 12
ára og yngri.
Skráning fer fram á skrifstofu félagsins og lýkur
mánudaginn 19. maí kl. 18.00. Sími 30178.
Fáksfélagar
Munið hópferöina á hestum í Heiömörk n.k.
laugardag. Lagt af staö frá efri hesthúsum á
Víöivöllum kl. 15.00.
Skráningargjald happreiöahesta er 1000 kr.
Hestamannafélagið Fákur.
Hagbeit
Hestar, sem ekki veröa notaðir í sumar veröa teknir í
hagbeit aö Ragnheiöarstööum. Bíll fer frá efri
hesthúsum Fáks, sunnudaginn 18. maí kl. 10 f.h.
Ath. áríðandi er að hafa samband viö skrifstofu Fáks,
föstudaginn 16. maí varöandi uppgjör og merkingu
hrossanna.
Hestamannafélagið Fákur.
B90
tölvukostir framtíðarínnar
Átölvu æm þessari byggjast aukin afköst
og minni kostnaöur
Bandaríska fyrirtækið BURROUGHS hefur
framleitt reikni- og skrifstofuvélar í meira en 90 ár
og er nú annar stærsti framleiðandi
gagnavinnsluvéla í heiminum. Leiðandi afl í fram-
þróun tölvutækninnar, sem einkennist af síauknum
afköstum og víðara verksviði.
B90 tölvan er ein af mörgum nýjungum frá
Burroughs sem markar tímamót.
Til dæmis rúma segulskífur hennar meira upp-
lýsingamagn en áður þekktist, þ. e. 3 milljón stafi.
Heildardiskarými geymir 46.8 milljón stafi.
Minnisrými getur verið allt
að 512.000 stafir.
Verksviö B90 má víkka með
því að tengja hana
viðbótarbúnaði eða öðrum
tölvum.
Vinnsluhraði er 2-5 sinnum meiri en í eldri gerð-
um. Þó er B90 auðveld í notkun. Stjómkerfið er
tengt skermi og styður notandann og leiðbeinir
honum skref fyrir skref.
Með B90 bjóðum við stöðluð forrit fyrir margs
konar viðskipti og verkefni, hvort sem þau tengjast
iðnaði, fiskvinnslu, verslun eða stjómsýslu. Einnig
veitum við trausta viðhaldsþjónustu a vél- og hug-
búnaði svo og nauðsynlega skólun á starfsfólki not-
enda.
Burroughá reikni- og skrifstofuvélar hafa verið í
notkun hér á landi í meira en 40 ár.
Fyrir 10 ámm tóku framsýn íslensk fyrirtæki,
verktakar og stofnanir aö fá sér Burroughs tölvur.
Nú viljum við ræða við enn fleiri framsýna stjórn-
endur um framtíðaráætlanir þeirra.
Laugavegi 168
Reýkjavík Simi 27333
Kjötborðið okkar
vinsæla er eins og
venjulega fullt af
gómsætu kjöti og
kjötvörum.
Svartfugl á aðeins
750 „
FramhryggurO ACA
Verðkr, fciV/vU
Smásteik O ACA
Verökr. LbUJU
IKarbonaði O OOOl
Verðkr fciOOU|
l
Opiö til kl. 8 á föstudögum og til hádegis á
laugardögum. Helgarsalan opin öll kvöld til kl.
23.30. Sími 40590.
VCMUHL
Þverbrekku 8, Kópavogi — Símar 42040 og 44140.