Morgunblaðið - 15.05.1980, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MAI1980
11
Skógræktar-
félag Eyfirð-
inga 50 ára
Akuroyri. 11. maí.
ELSTA skógræktarfélag landsins, Skógræktarfélag Ey-
firðinga, varð 50 ára í dag, og í því tilefni var haldinn
hátíðafundur í félagsheimilinu Galtalæk. Raunar hét
félagið í fyrstu Skógræktarfélag íslands og hét svo fyrstu
2 árin, en nafninu var breytt í Skógræktarfélag
Eyfirðinga 1932, enda höfðu landssamtök með eldra
nafninu verið stofnuð í júní 1930.
Stofnfundur félagsins var hald-
inn sunnudaginn 11. maí 1930, og
var fundarboðandi og helsti
hvatamaður að félagsstofnuninni
Jón Rögnvaldsson garðyrkjufræð-
ingur í Fífilgerði. Aðrir fundar-
menn voru: Bergsteinn Kolbeins-
son, bóndi, Steingrímur Jónsson,
sýslumaður, Jónas Þór, verk-
smiðjustjóri, Axel Schiöth,
bakarameistari, Margrethe
Schiöth, kona hans, Guðrún
Björnsdóttir frá Veðramóti, garð-
yrkjukona, Vilhjálmur Þór, kaup-
félagsstjóri, Svanbjörn Frí-
mannsson, bankaritari, Kristján
Sigurðsson, kaupmaður, Kristján
Rögnvaldsson, múrari, og Jón
Steingrímsson, bæjarfógetafull-
trúi.
Nú eru aðeins tveir stofnend-
anna á lífi, og var annar þeirra
staddur á hátíðafundinum, Krist-
jáns Rögnvaldsson, bróðir Jóns,
sem var nokkurs konar faðir
félagsins og fyrsti formaður þess.
Starf Skógræktarfélags Eyfirð-
inga hefir alltaf verið öflugt, og af
skógarreitum þess má nefna
Garðsárgil, Vaglareit á Þelamörk,
Leyningshóla, Vaðlaskóg (sem nú
er veruleg hætta á, að verði að
mestu leyti lagður undir vega-
gerð), Brekkurnar á Akureyri,
Miðhálsstaði í Öxnadal, plöntu-
uppeldisstöðina í Kjarna og
Kjarnaskóg, sem gerður var að
útivistarsvæði Akureyringa 1972.
Forystumenn félagsins hafa verið
ötulir og athafnasamir, og má þar
m.a. nefna Ármann Dalmannsson
(d. 197 Guðmund Karl Pétursson,
Tryggva Þorsteinsson og Ólaf
Thorarensen auk þeirra, sem fyrr
voru taldir, enda má segja, að
svipur og yfirbragð Eyjafjarðar sé
að taka miklum breytingum vegna
starfs félagsmanna.
Hátíðafundinum í dag stjórnaði
Tómas Ingi Olrich, konrektor, en
Ingólfur Ármannsson, formaður
félagsins, flutti ávarp, Oddur
Gunnarsson, ritari félagsins, rakti
sögu þess í máli og myndum,
Hallgrímur Indriðason, fram-
kvæmdastjóri féiagsins, skýrði frá
framtíðaráformum þess, og Jó-
hann Pálsson, forstöðumaður
Hallgrímur Indriðason framkvæmdastjóri, Kristján Rögnvaldsson. einn stofnenda, og Ingólfur
Ármannsson formaður Skógræktarfélags Eyfirðinga.
Lystigarðs Akureyrar, flutti er-
indi.
Á fundinum fór fram undirritun
leigusamnings milli skólanefndar
Þelamerkurskóla, sem hefir jörð-
ina Laugaland á leigu, og stjórnar
Skógræktarfélags Eyfirðinga um
leigu til 99 ára á 80—100 hektara
landi í Laugalandsheiði, þar sem
skógræktarfélagið hyggst koma
upp sýsluskógi á næstu árum og
áratugum. Er hér um mjög stórt
og viðamikið verkefni að ræða. Af
þess hálfu rituðu undir Ingólfur
Ármannsson, formaður, og Oddur
Gunnarsson, ritari, en af' hálfu
skólanefndar Stefán Halldórsson,
Hlöðum, og Þórir Valgeirsson,
Auðbrekku.
Eftir að viðstaddir höfðu þegið
veglegar kaffiveitingar, var orðið
gefið laust. Fyrstur tók til máls
Jónas Jónsson, búnaðarmálastjóri
pg formaður Skógræktarfélags
íslands, og flutti árnaðaróskir frá
féiaginu. Jónas færði Sk. Eyf.
stóran, útskorinn skjöld úr
íslensku birki, gerðan af Halldóri
Sigurðssyni, bónda í Miðhúsum í
Egilsstaðahreppi. — Ævarr
Hjartarson flutti kveðjur Búnað-
arsambands Eyjafjarðar og af-
henti að gjöf frá því 1 milljón
króna til plöntuuppeldisstöðvar,
er kæmi að gagni eyfirskum
bændum og öðrum héraðsbúum.
— Birgir Þórðarson, Önguls-
stöðum, tilkynnti 500 þús. kr. gjöf
hreppsnefndar Öngulsstaða-
hrepps. — Sigurður Blöndal,
skógræktarstjóri, flutti kveðjur
Skógræktar ríkisins og Hákonar
Bjarnasonar, fyrrum skógræktar-
stjóra, sem átti ekki heimangengt,
og tilkynnti um gjöf Skógræktar-
innar, 15000 smáplöntur til dreif-
setningar í Kjarnalandi. — Helgi
M. Bergs, bæjarstjóri, flutti
heillaóskir bæjarstjórnar Akur-
eyrar, og loks talaði Stefán Hall-
dórsson á Hlöðum og lýsti nánar
leiguskilmálum samningsins, sem
undirritaður hafði verið, og virt-
ust þeir síst harðir eða óhagstæðir
Skógræktarfélaginu.
Stór blómakarfa barst frá bæj-
arstjórn Akureyrar, fögur súla úr
renndu birki úr Vaglaskógi ásamt
blómaskreytingum barst frá Arn-
óri Karlssyni, og heillaskeyti
komu frá skátafélögunum á Akur-
eyri, stjórn Bandalags íslenskra
skáta og Skógræktarfélagi Suð-
ur-Þingeyinga.
Sv.P.
Nú er réttl
að hafa
hraðann á
Annars áttu á hættu aö vakna upp
viö vondan draum, er þú fréttir af
tækifærinu, sem þú lézt renna þér
úr greipum.
að Hverfisgötu 56 /
(viö hliöina á Regnboganum)/J
///
HLJÓMDEILD
dtn) KARNABÆR
Á morgun
föstudaginn 16. maí kl. 9 hefst aö
Hverfisgötu, einhver stórkostlegasti mark-
aður sem sögur fara af.
Á BOÐSTÓLUM VERÐUR
Meira og betra úrval af
hljómplötum og kassettum en
þú getur ímyndaö þér. Allt á
sannkölluöu drauma veröi eöa
frá kr. 1000.