Morgunblaðið - 15.05.1980, Síða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MAI1980
Ásgeir Böðvarsson
Æfingarnar
góð hvíld
frá náminu
„Ég byrjaði í kórnum fyrir
tveimur árum og er því frekar
nýr,“ sagði Ásgeir Böðvarsson
bassi. „Þegar ég byrjaði þá
voru 40—50 manns í kórnum,
en hann hefur stækkað síðan,
þó hafa ekki orðið veruleg
mannaskipti. Ég legg stund á
læknisfræði og það er afskap-
lega góð hvíld frá náminu að
taka þátt í æfingum," sagði
Ásgeir.
„Að vísu tekur söngurinn
mikinn tíma, en ánægjan bætir
það fyllilega upp. Einnig er það,
að í kórnum er framúrskarandi
góður andi en það er kórstjór-
anum, Jóni Stefánssyni mest að
þakka, þá er hér líka góður
félagsskapur. Það er mikið fé-
lagslíf í kórnum og við höldum
hópinn. Þetta minnir mann
eiginlega mest á menntaskóla-
andann, við hittumst oft utan
æfinga og þá hvert hjá öðru,“
sagði Ásgeir.
I kórnum fer fram góð radd-
þjálfun og annast Ólöf Harðar-
dóttir hana af stakri prýði.
Fyrir konserta eins og þennan
er ég auðvitað taugaspenntur,
en þetta verk er orðið það vel
æft að varla er ástæða til þess
nú. Af verkunum sem við flytj-
um nú þá finnst mér nútíma-
verkin skemmtileg, þau verða
skemmtilegri því oftar sem þau
eru sungin. Að vísu eru þau ekki
grípandi og fólk tekur þeim
misjafnlega.“
„Eg er ekki í söngnámi eins
og margir í kórnum, en hér fær
maður afskaplega góða þjálfun.
Auðvitað ætla ég að halda
áfram söngnum, eins lengi og ég
mögulega get vegna námsins.
Það spilar einnig inn í að Jón er
fyrirtaks stjórnandi og mjög
músíkkalskur. Hann hefur líka
geysilega góð tök á að hafa
góðan anda í kórnum, án þess
þó að missa aga,“ sagði Ásgeir
Böðvarsson.
skyni. Að vísu er þetta ekki endan-
lega ákveðið, en við förum allavega
til Vesturheims," segir Jón og brosir.
„Þá hef ég beðið eftir því í nokkur ár
að geta flutt Jóhannesarpassíuna
eftir Baeh, en það ljón hefur verið í
veginum að í einni aríunni er gert
ráð fyrir undirleik á lútu meðal
annarra hljóðfæra. Nú er hinsvegar
von á góðum lútuleikara til landsins,
Snorra Snorrasyni, en hann hefur
starfað erlendis undanfarin ár. Ég
býst því við að taka það verk á
dagskrá næsta vetur. Þá ætlum við
að flytja verk á hausti komanda þar
sem söngvarar úr kórnum koma til
með að syngja einsöng. Þá er það
draumur minn að flytja Jólaóratoríu
Bachs, en hún er ætluð til flutnings í
sex daga. Oratorían er þannig samin
að ákveðnir hlutar verksins eru
ætlaðir til söngs á ákveðnum dögum.
Signý Sæmundsdóttir
Söngurinn
veitir mér
mikla lífs-
fyllingu
„Ég er ekkert taugaspennt
fyrir þessa tónleika,“ sagði
Signý Sæmundsdóttir sópran.
„Við höfum sungið þetta pró-
gramm á tveimur tónleikum
og þetta cr orðið nokkuð ör-
uggt hjá okkur," sagði Signý.
„Ég hef verið í kórnum í
fimm ár, en byrjaði haustið ’75
og hef verið stanslaust síðan.
Mér líkar vel í kórnum, hér er
góður andi og góður félagsskap-
ur. Mér finnst líka gaman að
syngja, söngurinn er mikið
áhugamál hjá mér, enda er ég
að læra söng og er í 6. stigi en
kennari minn er Elísabet Erl-
ingsdóttir. Ég hef sungið alla
ævi og geri það vonandi áfram,
söngurinn veitir mér mikla
lífsfyllingu," sagði Signý.
„Starfsár kórsins hefst á
haustin og það er æft reglulega
2svar í viku. Það hafa verið
margir tónleikar í vetur og
mikil starfsemi. Auðvitað er
mikið að gera en maður leggur
vinnuna fram með glöðu geði og
fær ánægjuna í staðinn og hún
er vel vinnunnar virði. Það er
mikið af ungu fólki í kórnum og
hér er góður og hress andi, enda
skiptir miklu máli að andinn sé
góður. Tónleikarnir sem nú eru
að hefjast eru lokatónleikarnir
á þessu starfsári og á bak við
þetta liggur mikið starf, en ég
fæ mikla ánægju í staðinn.
Þetta er að vísu erfitt á meðan
það stendur yfir, en eftir á
finnur maður fyrst hve mikið
þetta hefur gefið í staðinn,"
sagði Signý.
„Það verður að minnast á
hann Jón Stefánsson, en hann
er bæði góður stjórnandi og
góður félagi og ég vona að hann
haldi áfram með kórinn og
verði með hann sem lengst,"
sagði Signý Sæmundsdóttir.
Fyrsta hlutann á að flytja á jóladag,
þann næsta á annan í jólum, en
síðasta hlutann á að flytja á þrett-
ándanum. Þetta er að vísu bara
draumur enn þá, en hann skal
rætast einhvern tímann! Einnig
væri gaman að komast einhvern
tímann yfir það að hafa flutt allar
tvö hundruð kantötur Bachs, en þær
eru að vísu ekki allar fyrir kór,
sumar eru ætlaðar fyrir einsöng,"
segir Jón.
Mikil gróska í
tónlistarlífinu
Dýrt að halda konserta? „Jú það
er dýrt, ekki síst með hljómsveit,"
segir Jón og dæsir. „Það var 1200
þúsund króna tap á konsert sem við
Gunnlaugur Snævarr
Mikið
félagslíf
innan
kórsins
„Ætli ég sé ekki sá þriðji
eða f jórði elsti í kórnum, en
ég byrjaði árið 1971,“ sagði
Gunnlaugur Snævarr tenór.
„Ég hef gaman af því að
vera í góðum hópi, og ég hef
verið formaður kórsins í
fimm ár. Ekki hef ég tölu á
öllum þeim konsertum sem
ég hef sungið með kórnum,
en þeir hafa liklega verið
6—8 á hverju ári.
Kórinn er orðinn það stór
að nú kemst ekki nema um
helmingur hans fyrir í kirkj-
unni í einu, en það kemur
ekki að sök því við skiptum
okkur niður í hópa og hver
hópur syngur einu sinni i
mánuði í kirkjunni," sagði
Gunnlaugur.
„Ég hef auðvitað gaman af
því að syngja, en einnig
spilar félagsskapurinn þar
inn í, það er mikið félagslíf
innan kórsins. Það er einnig
kostur í svona kór að meiri-
hluti hans er tónlistar-
menntaður og ég held að
góður þriðjungur kórfélag-
anna sé í söngnámi. Ég er
einn þeirra sem er að læra
söng, — er í Söngskólanum
og syng auk þess í kór
skólans.
„Annars er það eitt
skemmtilegasta í sambandi
við þennan kór, að hafa
fylgst með þróun hans og
verða vitni að því hve mikl-
um stakkaskiptum hann hef-
ur tekið, breyst úr litlum
kirkjukór í það sem hann er
nú,“ sagði Gunnlaugur
Snævarr.
héldum í haust. Við reyndum að
stilla aðgöngumiðaverðinu í hóf, en
samt kvörtuðu sumir yfir því að
miðarnir væru of dýrir! Ánnars
hefur okkur gengið þokkalega hvað
fjárhaginn varðar og við höfum
verið heppnir með aðsókn. Það hafa
margir komið og við erum ánægð
með undirtektirnar. Þá erum við
einnig með styrktarfélaga og það er
mikilvægt að fá alltaf ákveðinn
kjarna á tónleika. Annars er slæm
aðsókn ekki aðalvandamálið, heldur
það, að oft er of mikið að gerast í
tónlistarlífinu á sama tíma, kannski
tveir til þrír tónleikar sama daginn.
Annars er þetta aðallega skipulags-
legt atriði og að mínu mati er
bráðnauðsynlegt að skipuleggja það,
á hvaða dögum konsertar eru haldn-
ir og kórarnir þurfa að samræma
þetta. I vetur hefur verið mikil
Sigrún Erla Hákonardóttir
Kann
mjög vel
við mig
„Ég kann mjög vel við
mig í þessum kór, hér er
góður andi og byggist hann
að miklu leyti á stjórnand-
anum. Jóni Stefánssyni.”
sagði Sigrún .Erla Ilákonar-
dóttir alt. „Ég er að iæra
söng í Söngskólanum hjá
Ólöfu Harðardóttur, en í
kórnum hef ég sungið í sex
ár. Ég fór eiginlcga í söng-
námið í framhaldi af starf-
inu í kórnum og ég er að
Ijúka öðru ári í skólanum.
Það er mjög bindandi að
syngja í kór, enda myndu
víst fáir gera það nema
vegna þess að þeir fá eitt-
hvað út úr því,“ sagði Sig-
rún.
„Ég fór upphaflega í kór-
inn vegna þess að maðurinn
minn var í skóla úti á landi
og ég hafði lítið að gera. Ein
vinkona mín dreif mig með
sér á æfingu og ég hef verið
í kórnum síðan. Frá því ég
byrjaði hefur fólkinu fjölg-
að, en nú eru um 60 skráðir í
kórinn. Við höfum farið
2svar í söngferðir til útlanda
og einnig farið í ferðir út á
land. Þá förum við á hverju
ári í æfingabúðir og ein slík
ferð er á við margar æf-
ingar. Með því móti næst
upp ákaflega góður andi
innan kórsins, enda er fé-
lagslífið mikið,“ sagði Sig-
rún Erla Hákonardóttir.
Texti: Ólafur
Jóhannsson
Myndir: Emilía
Björg Björnsdóttir
gróska í tónlistarlífinu og það hefur
verið venjan að allt hefur verið fullt,
ef ekki hafa fleiri konsertar verið
sama daginn. Þessi mikla aðsókn er
bara afleiðing þess að gæði kóranna
hér á landi hafa aukist," segir Jón.
„Þessar framfarir má fyrst og
fremst þakka Ingólfi Guðbrandssyni
og Pólyfónkórnum en hann er á
vissan hátt brautryðjandi í þessari
tegund kórsöngs. Við eigum nú þó
nokkra kóra, sem standast fyllilega
samanburð við sambærilega kóra í
Skandinavíu, en þar er að finna
bestu kóra í heimi, sérstaklega í
Svíþjóð og Finniandi," segir Jón.
Hætta? „Nei, ég ætla ekki að
hætta," segir Jón, „ég ætla að halda
áfram að æfa þennan kór, ég er
búinn að leggja allt of mikið af
sjálfum mér í hann til þess að geta
hætt.“
Siglufjörður:
Óánægja með
að Lágheiði
skuli ekki
vera opnuð
Siglufirði. 11. maí.
BÚIÐ er að ryöja Lágheiðina fyrir
nokkru en hún hefur enn ekki
verið opnuð fyrir bílaumferð.
Skilja menn hér ekki hvað Vega-
gerðin er eiginlega að hugsa cn
það er nú ekkert nýtt þegar það
fyrirtæki á í hlut. Eðlilega vill fólk
að Lágheiðin verði strax opnuð þvi
hún styttir t.d. stórlega leiðina til
Akureyrar.
Hér hefur verið afbragðsgott
veður undanfarna daga og hitinn
komist í 20 stig. Kunna menn að
vonum vel að meta góða veðrið.
Síldarverksmiðjur ríkisins cru
byrjaðar að taka við karfabeinum
frá fiskvinnslufyrirtækjunum og er
þeim ekið með vörubílum til
Krossanesverksmiðjunnar á Akur-
eyri.
- m.j.
Mjög gott at-
vinnuástand
á Bíldudal
Bíldudal. 14. maí.
SÖLVI Bjarnason. skuttogari
Tálknfirðinga, landaði um 171
tonni af ágætum fiski hér fyrir
skömmu og í dag kom hann svo
aftur með um 170—180 tonn, og er
uppistaðan í aflanum nú grálúða.
Atvinnuástand er hér því mjög
gott og auk þess hefur verið landað
miklu af hörpudiski hér að undan-
förnu.
Tíðarfar hefur verið ágætt hér að
undanförnu og mjög mikið hefur
leyst úr fjöllum. Heita má að
greiðfært sé hér um allar sveitir.
- Páll.
Stjómmálasamband
við Saudi-Arabíu?:
Svar við til-
lögu Islend-
inga hefur ekki
borist ennþá
AÐ SÖGN Hannesar Hafstein.
skrifstofustjóra utanríkisráðu-
neytisins, hefur verið send tillaga
til Saudi-Arabíu, þar sem gert er
ráð fyrir því að löndin tvö taki
upp fullt stjórnmálasamband.
Hins vegar hefðu engin svör
ennþá borizt og ekki væri vitað
hvenær það yrði. Hannes sagði að
svona mál tækju alltaf töluverðan
tíma og væri niðurstöðu því ekki
að vænta alveg á næstunni.
Leiðrétting
í ÞÆTTINUM „Svar mitt“ eftir
Billy Graham sunnudaginn 11.
maí var prentvilla, sem sneri
merkingu málsgreinar alveg við.
Rétt er málsgreinin þannig: „Sú
skoðun nýtur æ minna fylgis, að
konan hafi verið sköpuð til þess
eins að vera manninum til ánægju
og þjónustu, og er það vel.“