Morgunblaðið - 15.05.1980, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MAI1980
21
skiplil U®
kArshesbra^
15
skarðshnjúkar, þar tekst Pétri að
koma miklu veðurfari í gagnið.
Sérstök mynd, sem er miklu
sterkari í vitund minni að nokkr-
um dögum liðnum. Einnig má
benda á myndir eins og nr. 22, 25,
46 og 68. I öllum þessum verkum
má finna persónuleika Péturs
Friðriks Sigurðssonar.
Ekki veit ég, hve margar sýn-
ingar Pétur Friðrik hefur haldið
um sína daga, en mér er enn í
fersku minni sýning, er haldin var
á verkum hans í glugga Málarans
fyrir mörgum árum. Þá var Pétur
kornungur og undrabarn í ís-
lenskri myndlist. Hann hefur allt
frá þeim tíma málað mikið og átt
sér marga aðdáendur. Efa ég ekki,
að svo sé enn, og nú gefst tækifæri
til að sjá afrakstur síðustu ára hjá
Pétri. Sú sýning er þetta fjallar
um stendur aðeins eina viku, og
finnst mér það heldur stutt.
Valtýr Pétursson
Allt nema
nema staðar
Tungl hjól sól
allt nema nema staðar.
Texti: Martin Götuskeggi.
Myndir: Guðrún Edda
og R. Crumb.
Kápuskreyting: Höfundur.
Dedicated to A. Baader &
S. Ciesielski 1980.
í fyrra kom út safnritið Heima í
héraði. Nýr glæpur, ljóð, sögur og
myndir eftir nýja kynslóð skálda
og listamanna sem kalla mætti
utangarðsfólk í menningarefnum,
þ.e.a.s. það fer yfirleitt aðrar
leiðir í tjáningu sinni en gengur og
gerist og er í uppreisn gegn hinu
staðlaða.
Meðal þeirra höfunda í Heima í
héraði sem mest kvað að var
Martin Götuskeggi. Hann leitaðist
við að afhjúpa sinn innri mann í
ljóðum og sýndi sig beran að ofan
á myndum. í kveri sem hann
nefnir Tungl hjól sól allt nema
nema staðar heldur hann áfram
að brjóta sjálfan sig og samtíð
sína til mergjar. í ljóði sem fjallar
um sígilt yrkisefni: að hægja sér
(samanber Þórbergur) lýsir hann
því hvernig manni „detta oft í hug
skemmtilegar ímyndaðar myndir"
við þá athöfn. Hún verður „tákn
hinnar eilífu hringrásar/feitu
hlýju stórbrjóstuðu/kosmísku
móður sem hlær best“.
Eftir þessu ljóði að dæma gæti
maður haldið að Martin Götu-
Fjármálaráð-
herra skipar í
ríkisskattanefnd
HINN 31. mars sl. rann út
umsóknarfrestur um störf þeirra
tveggja manna í ríkisskatta-
nefnd er hafa skulu nefndarstörf-
in að aðalstarfi.
Um störf þessi sóttu eftirtaldir
menn:
Gunnar Jóhannsson lögfræðing-
ur, Gylfi Knudsen lögfræðingur,
Hreinn Sveinsson lögfræðingur,
Magni Guðmundsson hagfræðing-
ur, Ólafur Helgi Kjartansson lög-
fræðingur, Ólafur H. Ólafsson
viðskiptafræðingur og Sigmundur
Stefánsson lögfræðingur.
Fjármálaráðherra hefur skipað
Gunnar Jóhannsson formann
nefndarinnar og Ólaf H. Ólafsson
nefndarmann' að aðalstarfi.
Jafnframt hefur fjármálaráð-
herra skipað eftirtalda fjóra menn
til setu í ríkisskattanefnd til sex
ára og skulu nefndarstörf þeirra
vera hlutastörf:
Atla Hauksson löggiltan end-
urskoðanda, Gylfa Knudsen, lög-
fræðing, Helga V. Jónsson, hrl. og
löggiltan endurskoðanda og Skúla
Pálsson hrl.
Bðkmenntlr
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
skeggi væri fullur af lífsgleði og
nyti heldur betur lífsins. Því
virðist samt ekki að heilsa. I
ljóðinu Rifinn regnfrakki yrkir
hann um septembermorgun „sem
ekki vill fara í gang“, er „kaldur og
stirður". Síðan kemur þungt kvöld
en þá „léttir að reykja/þó illa
glói“.
I Páll púra einsamallur (fyrir-
sögnin færeysk eins og skáldið) er
sögð dapurleg saga Palla sem
„hugsar með sér/að það er auðvit-
að sjálfseyðingar-/hvötin sem
heldur mennkyninu í farinu":
Palli var aleinn í eyjum
ok lést
á morfínfcrðalagi
af gaseitrun
í kjallara einum
Lífsgleði nefnist ljóð sem fjallar
um að „velta sér upp úr lífsgleð-
inni“, írónísk meining hjá skáld-
inu. Þar er talað um sólarlausn'
morgun „án vits, án kröfu til
nokkurs" í liprum hendingum sem
boða að ég held betri tök á máli og
leik orða en áður hjá Martin
Götuskeggja. Tvö síðustu ljóð
kversins: Logandi dóttir vindsins
Myndskreyting eftir Guðrúnu
Eddu. Úr Tungl hjól sól allt nema
nema staðar eftir Martin Götu-
skeggja.
og Literatúrismi eru enn mark-
vissari hvað varðar orðalag, í þeim
er ferskur samtalstónn Logandi
dóttir vindsins lýsir hnyttilega
ástaraunum. Literatúrismi er háð-
kvæði um „bókmennLisinnað" fólk
og dræmar undirtektir þeirra sem
ekki eru með á nriunum.
í Frosti er samfélagsádeila sem
beinist gegn flokkum og leiðtogum
og áhangendum þeirra sem „horf-
ast í sólgleraugu/við raunveru-
leikann".
Þótt kver Martins Götuskeggja
bylti varla hygmyndum manna
um líf og list er það áfangi fyrir
hann sjálfan. Honum tekst nú
betur að orða það sem hann vill ,
segja, nær að tjá sig á óþvingaðan
hátt.
Myndir Guðrúnar Eddu þykja
mér prýðilegar, til dæmis skreyt-
ing við Rifinn regnfrakka og
Lífsgleði. Myndir R. Crumbs eiga
sinn þátt í að rjúfa hátíðleik
kversins í gálgahúmor sínum.
tun
rsstópt*
cxðsötu
SKEm
MUpeG
BYGGINGAVORUVERSLUN
K0PAV0GS