Morgunblaðið - 15.05.1980, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MAÍ1980
Ólafur Ragnar Grímsson:
Ætlar Sjálfstæðisflokk-
urinn að insigla uppgjöf-
ina í Jan Mayen-málinu
Óskað skýringa á skyndilegri kúvendingu flokksins v
Sjálfstæðisflokkurinn hefur í
rúmt ár gegnt mikilvægu forystu-
hlutverki í stefnumótun íslend-
inga í Jan-Mayen-málinu. í júlí
1979 lagði flokkurinn fram ítar-
legan stefnugrundvöll sem tillögur
íslenskra stjórnvalda hafa síðan
byggst á. Þar til árdegis síðasta
laugardag voru engin merki þess
að fulltrúar flokksins hyggðust
hvika frá þessum grundvelli. En á
nokkrum klukkutímum í funda-
húsi norsku ríkisstjórnarinnar í
Ósló skipti Matthías Bjarnason
skyndilega um skoðun og hafði
samráð við Geir Hallgrímsson um
þá kúvendingu. Þessi skyndilega
stefnubreyting kom vissulega á
óvart. Hún verður alls ekki skilj-
anleg þegar litið er til þeirrar
ítarlegu og afdráttarlausu kröfu-
gerðar, sem Sjálfstæðisflokkurinn
setti fram á sínum tíma og
Alþýðubandalagiö tók undir og
síðar varð uppistaðan í stefnumót-
un þriggja íslenskra ríkisstjórna í
Jan-Mayen-málinu.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
hafa á undanförnum mánuðum, og
einnig nú síðustu daga, ítrekað
hvað eftir annað að flokkurinn
hafi haft frumkvæði í Jan-
Mayen-málinu. Þeir hafa síðan
ásakað fyrri ríkisstjórnir um
aumingjaskap í framgöngu þess.
Heldur er lítilmannlegt að ætla
sér nú að nota slíka ásökun um
aumingjaskap annarra sem afsök-
un fyrir eigin uppgjöf. Eg trúi því
ekki, að talsmenn Sjálfstæðis-
flokksins, sem hingað til hafa
talið sig ábyrga aðila í meðferð
utanríkismála, ætli nú að beita
svo óábyrgum málflutningi. Þess
vegna hef ég ákveðið að óska eftir
ítarlegri og málefnalegri greinar-
gerð fyrir hinni skyndilegu kú-
vendingu Sjálfstæðisflokksins í
Jan-Mayen-málinu. Slík greinar-
gerð yrði að byggjast á þeim
stefnukröfum, sem flokkurinn
setti fram á sínum tíma. Þessar
kröfur fólu í sér 5 meginatriði.
Þau verða nú rakin hér í mikil-
vægisröð.
Sameiginleg yfirráð
Norðmanna og
íslendinga
Þær tillögur, sem Matthías
Bjarnason lagði fram fyrir hönd
Sjálfstæðisflokksins í landhelgis-
nefnd í júlímánuði 1979, fólu í sér
fimm meginkröfur. Þessar kröfur
gengu mismunandi langt. í eðli
sínu fólu hugmyndir Matthíasar
Bjarnasonar og Sjálfstæðisflokks-
ins í sér skrá yfir aðalkröfur og
varakröfur. Þær verða hér raktar
á þeim grundvelli, þótt tölusetning
hugmynda Matthíasar hafi verið
önnur.
Aðalkrafan fól í sér samcigin-
leg yíirráð Norðmanna og íslend-
inga hvað snertir nýtingu hafs og
hafsbotns. Gerður yrði samningur
milli Norðmanna og Islendinga
um útfærslu efnahagslögsögu á
Jan-Mayen-svæðinu, sem fæli í sér
viðurkenningu á þessum sameig-
inlegu yfirráðum og þar með
beinum og óbeinum eignarrétti
íslendinga á Jan-Mayen og öllum
auðlindum eyjarinnar og hafsins
þar um kring. Það þarfnast ekki
nánari skýringar, að samkomulag-
ið, sem nú liggur fyrir og Alþingi
er ætlað að samþykkja innan
fáeinna daga, gengur í þveröfuga
átt. Þar er þvert á móti viður-
kenndur afdráttarlaus yfirráða-
réttur Norðmanna einna yfir öll-
um þessum þáttum. Þessi stefnu-
krafa hefur því ekki náðst fram.
Sameiginleg
fiskveiðilögsaga
í tillögum Sjálfstæðisflokksins
stendur: „Norðmenn og Islend-
ingar lýsi yfir að þeir hafi komið
sér saman um sameiginlega fisk-
veiðilögsögu umhverfis Jan-
Mayen utan 12 sjómíina land-
helgi". Sú fiskveiðilögsaga, sem
Islendingum er nú ætlað að viður-
kenna á Alþingi, er fiskveiðilög-
saga Norðmanna einna og felur
samkomulagið í sér að þeir muni
innan fjögurra ára vera alger-
lega óbundnir af öllu samkomu-
lagi um hlutfall loðnuveiða á
svæðinu og hafa þar með algeran
yfirráðarétt yfir öllum fiskistofn-
um.
Jöfn nýting á
auðlindum hafs
og hafsbotns
Sá tillöguliður sem Sjálfstæð-
ismenn í landhelgisnefnd töldu að
leggja ætti höfuðáherslu á, fengist
ekki viðurkenning á sameigin-
legum yfirráðum eða sameigin-
legri fiskveiðilögsögu, væri hin
ófrávíkjanlega krafa. að þjóðirn-
ar hefðu algerlega jaínan rétt til
að nýta allar auðlindir hafs og
hafsbotns. Þessi hugmynd er orð-
uð svo í tillögum Sjálfstæðis-
flokksins: „Norðmenn lýsi yfir
efnahagslögsögu á Jan-Mayen-
svæðinu utan 200 sjómílna fisk-
veiðilögsögu Islands. Island viður-
kenni þessa útfærslu, enda verði
jafnhliða gerðir samningar um að
Norðmenn og Islendingar eigi rétt
til að nýta að jöfnu auðlindir hafs
og hafsbotns utan 12 sjómílna
efnahaslögsögu Jan-Mayen.“ Það
kom greinilega fram í viðræðum
við Norðmenn, að þeir gætu á
engan hátt viðurkennt slíkan jafn-
réttisgrundvöll milli landanna,
enda ber samkomulagið sem gert
var í Ósló það með sér, að
Norðmenn hafa náð fram þeim
þætti málsins. Þeir hafa algeran
yfirráðarétt yfir nýtingunni.
Þótt fram eigi að fara ákveðin
skipting á landgrunninu, þá er sú
skipting ekki bundin við Jan-
Mayen-svæðið heldur á að ná frá
ströndum ísiands til Jan-Mayen
og taka þar með tillit til núver-
andi efnahagslögsögu íslendinga.
Hvað snertir auðlindir hafsins,
fiskistofnanna, fá íslendingar
enga tryggingu fyrir veiðum á
kolmunna, síld og öðrum fiski-
tegundum en aðeins tímabundið
samkomulag um loðnu. Þessi
grundvallarstefna hefur því á eng-
an hátt náð fram.
Veiðar að jöfnu á
aflanum
Sú tillaga Sjálfstæðisflokksins
sem skemmst gekk í landhelgis-
nefnd á sínum tíma fól í sér, að
ekki væri gengið frá öðru en
viðurkenningu á jöfnum rétti til
veiða á afla en efnahagslögsagan
yrði látin bíða. Þessi tillaga var
orðuð á þann veg: „Norðmenn lýsi
yfir fiskveiðilögsögu á Jan-
Mayen-svæðinu utan 200 sjómílna
fiskveiðilögsögu íslands. ísland
viðurkenni þessa útfærslu, enda
verði jafnhliða gerður samningur
um að Norðmenn og Islendingar
veiði að jöfnu þann afla sem
veiddur er utan 12 sjómílna fisk-
veiðilögsögu Jan-Mayen.“
Þessi krafa sem gekk skemmst
í upphaflegum tillögum Sjálfstæð-
isflokksins er sú eina sem gerð er
að umtalsefni í leiðara Morgun-
blaðsins þriðjudaginn 13. maí
síðastl. Reynir leiðarahöfundur að
túlka samkomulagið í Ósló á þann
veg að „rúmist innan þeirra
marka sem þarna eru sett, þótt
tryggilegar hefði mátt ganga frá
ýmsum atriðum og fyrir utan þau,
sem áður eru nefnd, m.a. rétti
Islendinga til veiða á öðrum fiski-
tegundum en loðnu“. Greinilega
koma fram hjá leiðarahöfundi
miklar efasemdir um að þessi
skemmsta krafa Sjálfstæðis-
flokksins í Jan-Mayen-málinu
hafi náð fram að ganga. Sá efi er
vissulega réttur. íslendingar fá
enga viðurkenningu á veiðihlut-
falli sínu hvað snertir aðrar veiðar
en loðnu, t.d. á kolmunna og síld.
Þar hafa Norðmenn allt sitt á
þurru. Loðnuhlutfallið á að renna
út innan fjögurra ára og þá hafa
Norðmenn algerlega óbundnar
hendur. Gagnstætt því að viður-
kenna jafnan rétt til veiða felur
samkomulagið í sér engan afdrátt-
arlausan rétt íslendinga til veiða á
kolmunna, síld og öðrum tegund-
um og samkomulagið um loðnu-
skiptinguna rennur út eftir 4 ár og
eru Norðmenn þá með óbundnar
hendur.
Þegar þær þrjár meginkröfur
Sjálfstæðisflokksins, sem fyrr
hafa verið raktar, er hvergi að
finna í samkomulaginu verður
óskiljanlegt að flokkurinn skuli
samt sem áður ætla að styöja það,
þegar sú krafa sem skemmst gekk
hefur heldur ekki verið uppfyllt.
Útilokun á
veiðum annarra
þjóða
Til viðbótar þeim kröfum sem
fyrr hefur verið lýst fólst í tillögu-
grundvelli Sjálfstæðisflokksins
krafa um sérstakan samning milli
Norðmanna og íslendinga, sem
„útiloki veiðar annarra þjóða
nema samþykki beggja þessara
þjóða komi til“. Hér varð veru-
leikinn enn á ný algerlega and-
stæður fyrri kröfum Sjálfstæðis-
flokksins. Norðmenn lögðu ríka
áherslu á að fá í samkomulagið
skýra og afdráttarlausa viður-
kenningu á nauðsyn þess að
hleypa öðrum þjóðum inn á Jan-
Mayen-svæðið og gengu jafnvel
svo langt, eins og fram hefur
komið í blöðum, að telja sig
óbundna af þessu samkomulagi
þegar til viðræðna við Efnahags-
bandalagið kemur. Það er því
veruleg hætta á því að samkomu-
lagið í Ósló verði aðeins til
þriggja vikna hvað veiðar snert-
ir. Um leið og Efnahagsbandalag-
ið sé komið inn í myndina, telji
Norðmenn sig lausa allra mála
hvað loðnuveiðarnar snertir.
smáauglýsíngar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Keflavík
Viölagasjóðshús
Til sölu viölagasjóöshús, minni
gerö í mjög góöu ástandi.
Eignamiölun Suöurnesja, Hafn-
argötu 57, sími 3868.
Njarövík
lönaðarhúsnæði
á 2 hæöum, 2x250 ferm. Full-
búiö. Ekkert áhvílandi. Laust
fljótlega. Teikningar á skrifstof-
unni.
Eignamiölun Suöurnesja, Hafn-
argötu 57, sími 3868.
Húsnæði óskast
Ungt par noröan af landi viö nám
í Háskóla íslands óskar eftir
2—3 herb. íbúð á Stór-Reykja-
víkursvæöinu. Þarf aö vera laus
fljótlega eöa ekki síðar en í
ágúst. Góöri umgengni heitiö og
í boöi er fyrirframgreiösla gegn
sanngjarnri leigu. Upplýsingar í
síma 19656.
Góður leigjandi
Stúlka í góöu starfi óskar eftir
lítilli íbúö í Hafnarfiröi. Reglu-
semi og góöri umgengni heitiö.
Uppl. í síma 54457.
Scania—Volvo—
Benz—Man
6 og 10 hjóla. Allar árgeröir.
Vörubílar til allra verka.
Aöal-Bílasalan, Skúlagötu 40.
símar 19181 og 15014.
Fimmtud. 15.5.
kl. 9: Akratjall. eggjaleit, eöa
Skarösheiöi (1053 m). Verö
7000 kr.
kl. 13: Fjöruganga viö Hvalfjörö,
steinaleit. verö 4000 kr. Farið frá
B.S.Í. benzínsölu. Vanir farar-
stjórar.
Hvítasunnuferöir:
1. Snæfellsnee, 2. Húsafell, 3.
Þórsmörk.
Utanlandsferöir:
3 Grænlandsferðir,
2 ödýrar Noregsferöir,
írlandsferö. Upplýsingar á
skrifst. Útivistar.
Aöalfundur Útivistar verður aö
Hótel Esju mánud. 19.5 kl.
20.30.
Útivist.
Pípulagnir — s: 30867.
Gróðurmold til sölu
Heímkeyrð í lóöir. Uppl. í síma
44582 og 40199.
Fimir fætur
Templarahöllinni 17. maí.
Krossinn
Almenn samkoma í dag kl. 4.30
aö Auöbrekku 34, Kópavogi.
Frjálsir vitnisburöir. Fjölbreyttur
söngur. Allir hjartanlega vel-
komnir.
Fíladelfía
Austurvegi 40A,
Selfossi
Komiö og heyrið Paul Kovac frá
Júgóslavíu uppstigningardag 15.
maí kl. 16.30.
Kvenfélag Neskirkju
Kaffisala og bazar félagsins
veröa haldin í safnaöarheimilinu
sunnudagnn 18. maí aö lokinni
guðsþjónustu í Neskirkju, sem
hefst kl. 2. Tekiö á móti kökum
og munum frá kl. 10 sama dag.
Stjórnin
Fíladelfía
Fíladelfía hefur útvarpsguös-
þjónustu sunnudaginn 18. maí
kl. 11. Bein útsending. Árni
Arinbjarnarson stýrir söng sem
er fjölbreyttur.
Predikun Einar Gíslason.
Frá Sálarrannsókna-
félaginu í Hafnarfirði
Fundur verður haldinn miöviku-
daginn 14. maí i Góötemplara-
húsinu er hefst kl. 20.30.
Dagskrá Úlfur Ragnarsson yfir-
læknir flytur erindi. Systkinin
Sigurbjört Þóröardóttir og Helgi
Þórðarson syngja tvísöng viö
undirleik Guöna Þ. Guömunds-
sonar.
Kaffiveitingar. s,jómjn
Hjálpræðisherinn
Almenn samkoma í dag, upp-
stlgningardag kl. 20.30. Allir
hjartanlega velkomnir.
Fíladelfía
Almenn samkoma í kvöld kl. 20.
Ræöumaöur Paul Kovac frá
Júgóslavíu. Skírnarathöfn verður
framkvæmd á samkomunni. Kór
kirkjunnar syngur.
Samhjálp
Samkoma fellur niöur á Hverfis-
götu 44 í kvöld.
Samhjálp
Grensáskirkja
Almenn samkoma veröur í safn-
aöarheimilinu í kvöld kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Halldór S. Gröndal
GEÐVERNDARFÉLAG ISLANDS
Farfuglar
Hvítasunna 24.-26. maí. Fariö í
Þórsmörk.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
___ ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR11796 og 19533.
1. kl. 10. Fjöruferó v/Stokkseyri
(Sölvafjara) Baugstaóaviti.
Leiöbeinandi Anna Guðmunds-
dóttir húsmæörakennari. Nauö-
synlegt aö vera í gúmmístígvél-
2. kl. 100. Ingólfsfjall — Inghóll
(551 m). Verö í báöar feröirnar
kr. 5000, gr. v/bíllnn.
3. kl. 13. Marardalur. Gengiö frá
Kolviöarhóli i' Marardal og til
baka aftur. Verö kr. 3500, gr.
v/bíllnn. Fararstjóri Halldór Sig-
urðsson. Ferðirnar eru allar far-
nar frá Umferðarmiöstööinni aö
austanveröu.
Fararstjóri Halldór Sigurösson.
16.—18. maí. Þórsmörk.
Fariö kl. 20.00 á föstudag og
komiö til baka á sunnudag. Gist
í upphituöu húsi. Nánari upplýs-
ingar á skrifstofunni.
Feröafélag íslands.