Morgunblaðið - 15.05.1980, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MAÍ1980
31
Auk þessara grundvallaratriða í
stefnumótun Sjálfstæðisflokksins
var kveðið á um það að tilgreina
ætti veiðihlutfall Færeyinga. Það
er heldur ekki gert í Óslóar-
samkomulaginu.
Landgrunnið
I leiðara Morgunblaðsins 14.
maí er reynt að hugga sig við
lélega útkomu með því að fjalla
um þá nefnd sem gera á tillögur
um landgrunnsskiptinguna. Þrjú
grundvallaratriði virðast hins
vegar hafa farið fram hjá leiðara-
höfundi. Nauðsynlegt er að full-
trúar Sjálfstæðisflokksins og aðr-
ir sem hafa reynst dyggir baráttu-
menn í landgrunnskröfum íslend-
inga geri sér skýra grein fyrir því,
að í samkomulaginu sem meiri-
hluti íslensku samninganefndar-
innar gerði í Ósló eru m.a. þrjú
ákvæði, sem stefna landgrunns-
skiptingunni í hættu hvað ísland
snertir.
Fyrsta atriðið er, að í tekstan-
um er talað um svæðið milli
íslands og Jan-Mayen en ekki
svæðið frá efnahagslögsögu
íslands til Jan-Mayen. Þessi
svæðisskipting er önnur en sú sem
tilgreind er í þeim greinum samn-
ingsins, þar sem fjallað er um
loðnuveiðarnar. I landgrunns-
skiptingunni á því að taka tillit til
þess hluta landgrunnsins sem nú
þegar er innan íslensku efna-
hagslögsögunnar en ekki fjalla
eingöngu um svæðið frá núverandi
efnahagslögsögu íslendinga til
Jan-Mayen. Þegar menn velta á
milli sín hugsanlegri hlutfalls-
skiptingu þá ber að hafa það í
huga, að sá þáttur landgrunnsins
sem Islendingar eiga nú þegar
fullan og ótvíræðan rétt til, verður
reiknaður inn í hlutfallið. Mér
hefur fundist að í opinberri um-
fjöllun hafi menn ekki nægilega
áttað sig á því, að það er munur á
svæðisafmörkuninni í fiskveiði-
greinum samkomulagsins og í
landgrunnsgreinum samkomu-
lagsins.
Annað atriðið er, að nefndin,
sem fjalla á um skiptingu land-
grunnsins þarf að skila samhljóða
niðurstöðu. Fulltrúi Noregs 1
nefndinni getur því beitt neitun-
arvaldi og komið þannig í veg
fyrir að nefndin skili tillögum sem
mark verður tekið á. Það er því
lítil huggun að nefna fræga menn,
eins og Elliot Richardson, sem
oddamann í nefndina þegar full-
trúi Noregs, sem gæti verið úr
hópi þeirra embættismanna sem
reynst hafa íslendingum svo
fjandsamlegir í þessu máli, hefur
samkvæmt samkomulaginu af-
dráttarlausan neitunarvaldsrétt í
nefndinni.
Þriðja atriðið er, að ríkisstjórn
Noregs yrði óbundin af niðurstöðu
nefndarinnar, jafnvel þótt hún
yrði samhljóða. Nefndin mun
væntanlega skila af sér, ef hún
nær samhljóða niðurstöðu, í að-
draganda kosninga í Noregi. Við
þau skilyrði verður erfitt fyrir
norsk stjórnvöld að láta af hendi
stóran hluta landgrunnsins við
Jan-Mayen. Meirihluti íslensku
samninganefndarinnar hefur nú
lagt til samning, sem felur í sér í
öllum grundvallaratriðum viður-
kenningu á yfirráðarétti Norð-
manna á öllu Jan-Mayen-svæðinu.
Við slík skilyrði er líklegt að
stjórnmálaöfl í Noregi telji að
ríkisstjórn á hverjum tíma eigi að
halda til streitu fullri efnahags-
lögsögu við Jan-Mayen, enda
reyndist það bréf sem Knut Fryd-
enlund lofaði að skrifa utanríkis-
ráðherra íslands alls ekki hafa í
sér þær tryggingar, sem íslenska
samninganefndin bjóst við. í því
er eingöngu talað um frestun á
efnahagslögsöguútfærslu út þetta
ár. íslenska samninganefndin
var svikin um það fyrirheit að
útfærsla efnahagslögsögunnar
væri háð því að náðst hefðu
samningar um skiptingu land-
grunnsins.
Alvara — eða
grínflokkur í
utanríkismálum
Ég hef hér rakið meginatriðin í
þeirri stefnu sem Sjálfstæðis-
flokkurinn setti fram á sínum
tíma. Á grundvelli þessarar stefnu
lagði ég fram í landhelgisnefnd í
ágústmánuði 1979 tillögur um
stefnumótun Islendinga, sem full-
trúi Sjálfstæðisflokksins lýsti
samþykki sínu við. Þessar sameig-
inlegu tillögur Sjálfstæðisflokks-
ins og Alþýðubandalagsins urðu
síðan grundvöllur að kröfugerð
íslendinga gagnvart Norðmönn-
um.
Vissulega á það rétt á sér að
telja að í samningum náist ekki
allar kröfur fram. Hinu verður þó
ekki trúað, að Sjálfstæðisflokkur-
inn hafi á sínum tíma gert sér leik
að því að setja fram röð af
tillögum, aðaltillögum og varatil-
lögum, sem engan möguleika
hefðu á að hljóta framgang og
viðurkenningu Norðmanna. í með-
ferð utanríkismála hafa menn
jafnan reynt að vanda betur
tillögugerðina en í því umróti
efnahagsmálaumræðunnar sem
tíðkast hefur hér á landi á undan-
förnum árum. Þegar settar eru
fram tillögur í utanríkismálum
verða þær að byggjast á fullvissu
um að þjóðin hafi bæði rétt og
einnig aðstöðu til þess að knýja
fram fullgilda viðurkenningu á
einhverjum af þeim kröfum sem
settar eru á oddinn.
Þegar öllum kröfunum er hafn-
að blasir hins vegar við að annað
hvort hafa þeir sem fallast á slíka
uppgjöf bilað á síðustu stundu eða
tillögugerð þeirra í upphafi hefur
ekki verið byggð á þeirri alvöru,
sem að jafnaði þarf að einkenna
meðferð utanríkismála. Sjálfstæð-
isflokkurinn hefur löngum viljað
láta taka sig alvarlega á sviði
utanríkismála. Því verður varla
trúað nú að hann muni með því að
innsigla uppgjöfina í Jan-Mayen-
málinu staðfesta þær grunsemdir
sem sumir hafa haft síðustu daga,
að hann hafi breyst í grínflokk í
utanríkismálum, grínflokk sem
setji í upphafi fram harðar og
afdráttarlausar kröfur en hlaupi
síðan frá þeim.
Staðfesti Sjálfstæðisflokkurinn
uppgjöfina í Jan-Mayen-málinu er
hann að gefa ríkisstjórnum ann-
arra landa það til kynna, að það
þurfi i framtíðinni ekki að taka
neitt mark á tillögugerð Sjálf-
stæðisflokksins, jafnvel þótt hún
feli í sér aðalkröfur og varakröfur,
vegna þess að fulltrúar flokksins
munu, þegar til samninga kemur,
hlaupa frá öllu saman. Þeir séu
bara grínkallar í utanríkispólitík.
Er kjaradómur hlutlaus?
- spyr Félag há-
skólamenntaðra
hjúkrunarfræðinga
Morgunblaðinu hefur borizt eft-
irfarandi fréttatilkynning frá
Félagi háskólamenntaðra hjúkr-
__t_*•
unariræomga:
Kjaradómur hefur nú kveðið
upp úrskurð um kjaramál há-
skólamenntaðra hjúkrunarfræð-
inga. Niðurstaða dómsins er sú, að
gamli sérkjarasamningurinn gildi
áfram í meginatriðum. Sam-
kvæmt því er byrjunarlaunaflokk-
ur BS-hjúkrunarfræðinga 103
(Bandalags Háskólamanna). Mun
það vera lægst skipaði launaflokk-
ur innan BHM.
Hvað ræður gerðum kjara-
dóms? Skákar hann í því skjólinu
að um er að ræða kvennastétt,
þegar hann dæmir BS hjúkrunar-
fræðingum laun, langtum lægri en
hópa innan BHM, er sama starfs-
mat hafa?
Félag háskólamenntaðra
hjúkrunarfræðinga mótmælir
harðlega þessum dómi. Kjara-
dómur, sem starfa skal hlutlaust,
sýnir forkastanleg vinnubrögð
þegar hann svo augljóslega tekur
einkum mið af kröfum annars
aðilans, þ.e. ríkissjóðs.
Eðlilega vaknar því spurningin:
Geta launþegar vænst réttlætis af
slikum dómi?
BMW gϚingurinn
BMW sameinar kosti sportbíls og þægindi einkabíls,
kraftmikill, öruggur, stöðugur í akstri, bjartur og
rúmgóður, með þægilegum sætum.
KRISTINN GUÐNASON HF.
BMW er meira en samkeppnisfær í verði, auk þess sem
þú eignast betri bíl en verðið segir til um.
BMW - ÁNÆGJA í AKSTRI
SUÐURLANDSBRAUT 20, SIMI 86633
"AKUREYRARUMBOÐ: BÍLAVERKSTÆÐI BJARNHÉÐINS GÍSLASONAR SÍMI96-22499
Ben-ti íhandhægum umbúðum.
Prófaðu þig áfram . Finndu þitt bragð.
Salmiak-lakkrís, salt lakkrís, mentol-
eucalyptus eða hreinn lakkrís.
Kosta ekki meira
en venjulegar hálstöflur!
(32 í pakka)