Morgunblaðið - 15.05.1980, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MAI1980
35
Kjartan Guðjónsson:
Þar sem kýrin mjólkar
Það nennir víst enginn lengur
að rífast út af listamannalaunum.
Þau eru nánast orðin eins og
Hallgrímskirkjuturn, staðreynd
sem ekki verður haggað. Sú var þó
tíðin að álfabrennan var árviss og
listamenn brutu flöskur og glös á
haus úthlutunarnefndar eftir
reglunni: Viljirðu uppræta mein
einokunarverslunar, skaltu fyrir
alla muni rota búðarlokuna. Eftir
var svo reykur og aska fram að
næsta báli. Listamenn eru barna-
legt fólk og nægjusamt. Það er
eins og þeir þurfi ekki annað en
boxbolta í mynd úthlutunarnefnd-
ar til að hamast á einu sinni á ári,
og að útrásin ein sé þeim á við
kjarabót. Engan hef ég heyrt, ekki
einu sinni í gamni, halda því fram
að þessi laun hafi nokkru sinni
komið menningunni að gagni,
enda má það heita sameiginlegt
markmið þings, úthlutunarnefnd-
ar og listamanna við hverja út-
hlutun, að leggja þessi ósköp niður
Hann
hratt þar
fram af t,
hestinum f' ||g
og hljóp
þar sjálfur
eftir
(Þorgils
saga
skarða).
Breiðfirðingar
Hinn árlegi dagur aldraöra Breiöfirðinga veröur í
safnaöarheimili Langholtssóknar, Sólheimum 13 í
dag og hefst meö hugvekju séra Siguröar H.
Guöjónssonar kl. 14.30.
Stjórnin
Bændur og bústjórar
MG-KÚAFÓÐURBLANDA
Höfum fyrirliggjandi magnesiumauðuga kúa-
fóðurblöndu, sem ætluð er til notkunar
hálfan mánuð áður og hálfan mánuð eftir að
kúnum er sleppt út á vorin. Þetta fóður er til
varnar krampadauða og bráðadauða.
Hæfílegur skammtur 1/2—11/2 kg á dag.
Kaupfélögin umallt land
hið bráðasta. Það er eins og
listamannalaunin séu sá afréttari
sem frestar íslenskum menning-
artimburmönnum frá ári til árs.
Einstaka maður hefur gripið til
einkaframtaksins og hafnað. Það
hefur að vísu vakið „Fjári var
þetta gott hjá þér“ — viðbrögð, en
annars engu breytt. Það tekur
enginn eftir því lengur þótt hurð
sé skellt. En hvað er þá til ráða?
Einn er sá hopur manna sem
hefur það í hendi sér að breyta
þessu fyrirkomulagi sem allir
virðast sammála um að sé ómögu-
legt, listamenn sjálfir. Trúlega
yrði Alþingi fegið ef einhver vildi
taka frá því þennan kaleik. Ég
staðhæfi að þeir listamenn sem
gefið er á garðann vilji í rauninni
engu breyta, og að sú staðhæfing
sé ekki úr lausu lofti gripin.
Dýrkendur andans eru búralegri
en þeir vilja vera láta, — betri er
ein kráka í hendi en tvær í skógi. í
neðri flokki er ofurlítil von um
efri flokk, í efri flokki er von um
heiðurslaunaflokk, í heiðurslauna-
flokki er von um hlutdeild í
ódauðleikanum, eða þá bara guðs
miskunn. Það er margur fús til að
berja sér á brjóst í fjölmiðlum og
mótmæla öllu milli himins og
jarðar, einkum ef það kostar ekki
neitt. í samtökum listamanna er
tregðu- og þagnarmúr utanum
fýrirbærið listamannalaun. Mál-
inu er jafnan drepið á dreif með
æsingi út af aukaatriðum og
tittlingaskít. Því var það dag
nokkurn fyrir skömmu, að einn
vanmáttugur lagði leið sína niður
í Arnarhvol og afhenti Fjármála-
ráðuneytinu pakka og bréf svo-
hljóðandi, dagsett 13da maí 1980:
Mér hefur nýlega verið úthlutað
listamannalaunum. Þar sem ég
er haldinn einhverjum æva-
gömlum grillum um að það sé
betra en ekki að vinna fyrir
kaupi, hef ég tekið það til
bragðs að færa ráðuneytinu
þessa mynd. Það er víst þarna
sem kýrin mjólkar. Myndin
nálgast launin að verðgildi eftir
bestu vitund minni um eigið
mánaðargengi um þessar mund-
ir. Ráðuneytið getur freistað
þess að sannreyna þetta með því
að falbjóða hana ef það vill
heldur peninga í kassann. Von-
andi verður myndin færð í
kreditdálk menningarsjóðsbók-
ar Fjármálaráðuneytisrns. Það
er líkast til tómt mál að tala um
að ég fái opinbert vottorð þess
efnis að ég sé ekki ríkisins
heiðursómagi. Hver í kerfinu
skyldi svosem geta veitt slíkt
vottorð?
Kær kveðja
Kjartan Guðjónsson
Bensínnotkun 3,4% minni en 1978:
Orkusparnaðarnefnd stefnir
að 3% samdrætti á þessu ári
BENSÍNNOTKUN landsmanna
minnkaði um 3,4% á síðasta ári
miðað við árið 1978. Á síðustu 6
árum var meðaltalsaukning
benzínnotkunar kringum 7% og
miðað við að þróunin hefði orðið
óbreytt árið 1979 er i raun um
10% sparnað að ræða sem jafn-
gildir um 1,5 milljarði króna á
núgildandi verðlagi, en tölur þess-
ar koma fram í frétt frá Orku-
sparnaðarnefnd.
Til samanburðar er nefnt að
þetta sé jafnmikill
gjaldeyrissparnaður og varð vegna
aukinnar nýtingar innlendra ork-
ugjafa til húshitunar á sl. ári.
Benzínnotkun á mánuði var milli 6
og 8 þúsund tonn. Var hún t.d. 6.335
tonn í janúar sl. og 6.450 tn í
febrúar, sem er svipað og sömu
mánuði síðasta ár. Árið 1978 var
notkunin á mánuði oftast yfir 7
þúsund tonnum og komst upp í
9.486 tonn í júlí það ár og 9.533
tonn í júlí 1977, en í júlí í fyrra
voru notuð 8.996 tonn af benzíni.
Orkusparnaðarnefnd hefur sett
fram það markmið að benzínnotk-
un þessa árs verði 3% minni en á
síðasta ári og hvetur nefndin öku-
menn til að spara benzín eins og
frekast er kostur. Bendir nefndin á
að mestur sparnaður fáist með því
að minnka notkun bílsins og segir í
frétt nefndarinnar að fari sérhver
bíleigandi einu sinni í viku með
strætisvagni eða á annan hátt til
vinnu í stað bílsins, myndi þjóð-
hagslegur sparnaður nema kring-
um einum milljarði króna. Þá er í
frétt nefndarinnar minnt á að
reiðhjólaverð hafi lækkað eftir að
tollar á þeim voru felldir niður.
\n
Pétur J. Thorsteinsson
Stuöningsmenn Péturs J
Thorsteinssonar boöa til
kynningar- og skemmti-
fundar í
Sigtúni
fimmtudaginn
15. maí
kl. 3-6.
Ávörp veröa flutt:
Pétur J. Thorsteinsson,
Oddný Thorsteinsson
o.fl.
Skúli Halldórsson, tónskáld, mun leika á píanó, og
fleiri gestir munu skemmta. Bíósýning fyrir börn.
Glæsilegar kaffiveitingar.
m
Hittumst í Sigtúni á uppstigningardag.
Stuöningsmenn L
Sumar-
BINGÓ
í Sigtúni í kvöld
kl. 20.30.
Húsiö opnaö kl. 19.30.
Enginn aögangseyrir.
Fjöldi glæsilegra vinninga,
m.a. MINOLTA myndavél,
matarkörfur o.fl. o.fl.
H.F.Í.B.