Morgunblaðið - 15.05.1980, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MAÍ1980
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 13-14
FRÁ MÁNUDEGI
WlJJAintOfUH'UU
hefðu ráðið ferðinni hjá æðstu
stjórn Bandaríkjanna hefði þessi
björgunarleiðangur til að frelsa
gíslana í Iran ekki haft eins
sorglegan endi og raun varð á.
Nú eru viðsjár miklar víða um
heim og ljótleikinn blasir við
sjónum manna næstum því hvert
sem litið er, og öll mannréttindi
eru fótum troðin og ofbeldi og
yfirgangur hvarvetna hafður í
frammi þar sem því verður við
komið til að koma hinum miklu
sósíalísku myrkraverkum komm-
únista í framkvæmd með illu eða
góðu. Um réttlæti og mannúð er
ekkert hugsað. Tilgangurinn helg-
ar meðalið, segja hin sósíalísku
öfl.
Já, þetta segir víða til sín. Nú
nýverið hefir t.d. það gerst að 46
rithöfundar krefjast afsagnar
stjórnar launasjóðs rithöfunda,
telja hann hlutdrægan úr hófi
fram, þar sé Alþýðubandalags-
mönnum hampað og hossað til
hæstu úthlutunar úr launasjóðn-
um, mjög umfram verðleika. Nú er
það vitað mál og augljóst öllum er
lesa vilja, að margir hinna yngri
rithöfunda á íslandi kokgleypa af
lífi og sál hinn rússneska áróður,
sem veður hvarvetna uppi í lönd-
um og álfum hins sósíalíska heims
á þessum síðustu og verstu dögum
þar sem dauðastefnan eða öðru
nafni helstefnan virðist ráða
ríkjum, sem vonandi verður ekki
til langframa. Til þess að sú spá
megi rætast og verða að veruleika
þarf mannkynið vissulega að
breyta sínum lífsstíl og hverfa frá
helstefnu þeirri, er nú um stundir
hefur verið mestu ráðandi hjá
okkur jarðarbúum.
• Varnir lands-
ins og öryggi
Að lokum nokkur orð um
varnir landsins og öryggi. Utan-
ríkisráðherra hefur nýlega gefið
Alþingi skýrslu um utanríkismál
og er fylgt þar sömu stefnu og
verið hefur nú hin síðari ár og ber
að fagna því. Ég hygg að 90—95%
landsmanna séu fylgjandi vörnum
landsins, þau 5—10% sem þar
standa utan við virðast fljótt á
litið mjög óraunsær ofstækishóp-
ur, mótsnúinn öllum vörnum
landsins yfirleitt. Frelsisóður
þessa sérviskuhóps er hlutleysi og
aftur hlutleysi og óvarið land. Sjá
allir heilskyggnir menn fánýti
þeirrar heimskulegu kenningar.
Opið og óvarið skal landið vera,
svo að hvaða byssubófi sem er geti
gert hér stórskaða, án þess að
landsmenn geti hindrað það á
nokkurn hátt. Líklega þyrfti nýtt
Tyrkjarán til að opna augu þess-
ara óraunsæju sérviskukarla og
kvenna.
Reykjavík, 5. maí 1980,
Þorkell Hjaltason.
Þessir hringdu . . .
• Stjörnur á
bæði kynin
Soffía Eygló Jónsdóttir
hringdi:
Hvers vegna fá ekki karlmenn
stjörnu fyrir að búa í óvígðri
sambúð eins og konur í íbúaskrá
Hagstofunnar? Þessari spurningu
beini ég til Jafnréttisráðs.
íbúaskrá Hagstofunnar auð-
kennir hjúskaparstétt manna með
tölustaf. Gift fólk er auðkennt
með tölustafnum 3, einhleypt fólk
með tölustafnum 1, en kona í
óvígðri sambúð er auðkennd með
stjörnu, en karl sem býr í óvígðri
sambúð fær enga stjörnu. Ég vil
ekki láta hafa stjörnuna af karlin-
um, því það þarf tvo til að búa á
þann hátt. E.t.v. er einhver skýr-
ing á málinu, en mér er tjáð að
þannig eigi þetta að vera.
SKÁK
Umsjón: Margeir Pétursson
Hvítur mátar í þriðja leik
Staðan kom upp í skák tveggja
sovézkra skákmanna í sveita-
keppni fyrir stuttu síðan. Sav-
chenko hafði hvítt gegn Aljtman
og lék að bragði:
22. Rd6+! - Bxd6, 23. Dxg6+
(eða 23. Bxg6+) og svartur gafst
upp, enda mát í næsta leik.
• Hvað er list?
Þrír sjónvarpsáhorfendur
höfðu samband við Velvakanda
mánudag og þriðjudag og báðu
þáttinn að koma á framfæri van-
þóknun þeirra til sjónvarpsins
vegna sýningar á verðlaunakvik-
myndinni „Faðir og húsbóndi" sl.
laugardagskvöld.
Viðkomandi sögðust ekki skilja
slíkt val og báðu um að aðvaranir
kæmu fram í auglýstri dagskrá,
þar sem börn og unglingar horfðu
iðulega á kvikmyndir á laugar-
dagskvöldum. Þá bað einn þessara
aðila yfirmenn sjónvarpsins að
gera grein fyrir hver stæði að vali
kvikmynda og hvert mat þeirra
væri á list — þar sem myndin
hefði verið auglýst sem verðlauna-
kvikmynd.
• Hvenær lauk
seinni heims-
styrjöldinni?
2882— 8209 hringdi:
Við erum hér tvær vinkonur
sem greinir á um, hvenær síðari
heimsstyrjöldinni lauk. Önnur
segir að henni hafi lokið 5. maí
1945 og Evrópudagurinn sé hald-
inn hátíðlegur af því tilefni. Hin
segir dagsetninguna 8. maí vera
hina einu réttu. Getur þú hjálpað
okkur Velvakandi góður til að
leysa úr þessu máli?
Velvakandi sneri sér til dr. Þórs
Whitehead sagnfræðings og stað-
festi hann, að styrjöldinni í Evr-
ópu hefði opinberlega lokið á
miðnætti 8. maí 1945.
HÖGNI HREKKVÍSI
nþm efr mM&yn? ao hiæctJa óvona
MJÖÍr.."
heimilistæki hf
TÆKNIDEILD — SÆTÚNI 8 — SÍMI 24000
BRUNA-
VIÐVÖRUNARKERFIN
frá AUTR0NICA
• Henta bæöi fyrir minni og stærri
byggingar.
• Traust og örugg.
• Samþykkt af brunamálastofnun.
• Hagstætt verö.
• Góö þjónusta.
heimilistæki hf
TÆKNIDEILD — SÆTÚNI 8 — SlMI 24001
iKjt wnaio tuuuimu t tOb