Morgunblaðið - 15.05.1980, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MAÍ1980
„Islenzk kona“
800 ára afmælis Snorra Sturlusonar minnst
Gefa Norræna hús-
inu „íslenzka konu“
TVEIR norskir bræður frá Berg-
en, Arild Ilaaland og Wilhelm
Haaland, hafa ákveðið að gefa
Norræna húsinu í Reykjavík,
höggmyndina „íslcnzk koha“ cft-
ir hinn fræga norska mynd-
höggvara Arnold Haukeland í
tilefni 800 ára afmælis Snorra
Sturlusonar.
Erik Söderholm, forstjóri Nor-
ræna hússins, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að verkið hefði
verið þegið með þökkum og væri
það væntanlegt í október n.k. Ekki
væri ennþá búið að ákveða hvar í
húsinu verkinu yrði komið fyrir.
Það er listasafn Oslóar sem á
frummyndina, en Haukeland mun
gera afsteypu af henni, sem fer til
Islands.
Björn Bjarnason
cand. mag. 75 ára
Vinir Björns Bjarnasonar mag-
isters og félagar vissu að prelúd-
íur Rachmaninoffs og etýður
Chopins voru honum hugstæðari
en lærdómsbækur Ottós Jespersen
og leskaflar Jóns Ófeigssonar þótt
hann gjörþekkti efni þeirra. Þeir
horfðu því til þess með nokkrum
kvíða er Björn, að loknu lær-
dómsprófi, ákvað að helga sig
kennslustörfum.
Setti trega að vinum Björns, að
hljóðnuðum söng um „stúdentsár-
in æskuglöð", er þeir hugleiddu að
baldin ungmenni á skólabekkjum
ættu eftir að buga Björn með
geispum og geipi er hann hyrfi úr
hópi félaganna í herleiðingu og
stílakompur framhaldsskóla.
Sannarlega höfðu stúdentsárin
fært Birni og félögum hans fjöl-
breyttar gleðistundir. Á námsár-
um sínum í Kaupmannahöfn eign-
aðist Björn góða félaga í hópi
gáfumanna er stunduðu nám og
batt við þá vináttu. Meðal náinna
vina má nefna Jón Blöndal hag-
fræðing. Hann lést langt um aldur
fram, harmdauði þeim er þekktu.
Frú Viktoría, ekkja Jóns, geymir
bréf frá stúdentsárum þeirra
Björns er lýsir lífsgleði þeirra ára
og áhyggjulevsi. Jón ritar um för
stúdenta til Óslóar í tilefni hundr-
að ára afmælis norska skáldsins
Björnstjerne Björnson. Fríður
flokkur Hafnarstúdenta heimsótti
Norðmenn í samfagnaðarskyni er
þeir efndu til fjölbreyttra há-
tíðarhalda. í bréfi sínu ritar Jón
svofelld tíðindi:
„Eitt kvöldið var háður kapp-
leikur í knattspyrnu. Vakti hann
geysilegan fögnuð. Annars vegar
voru Danir og hins vegar allar
hinar þjóðirnar. Við sigruðum
með 3:1 og undu Danir því hið
versta sem vonlegt var. Mark-
maður okkar var Björn Bjarnason.
Sá sem tilkynnti hverjir tækju
þátt í kappleiknum sagði að mark-
ið væri 11 metrar á breidd svo
boltinn gæti vel komist fram hjá.
Það gekk nú samt ekki. Á eftir var
Björn krýndur lárviðarkransi og
borinn á gullstól um völlinn og
hrópað ferfalt húrra fyrir honum
sem bezta markmanni . Norður-
landa."
Fyrir þann sem búið hefir í
næsta nágrenni við Royal Albert
Hall og Konunglega leikhúsið og
verið þar tíður gestur þarf skap-
festu og einbeitni til þess að
hverfa heim og velja sér ævistarf í
næsta nágrenni við Fiskhöllina og
Fjalaköttinn og segja: Hér vil ég
una ævi minnar daga.
Byron lávarður ritaði á sínum
tíma um bandingjann í Chion. Er
það fagurt og mikið verk, frelsis-
óður um ungan mann er mátti una
því hlutskipti og sitja í hlekkjum í
kastala við Genfarvatn. Björn
magister hefir sjálfur lýst því að
hann hafi kviðið svo fyrstu
kennslustund sinni, að líkast væri
því að hann væri á leið til aftöku
eða í dýflissu.
Nú vita allir er þekkja til
fræðslumála að Björn var í flokki
þeirra er fremstu skólamenn
landsins sóttust eftir að fá í sveit
sína. Kenndi hann áratugum sam-
an við helstu skóla höfuðborgar-
innar og var prófdómari við æðstu
menntastofnanir. Með þessum
hætti sannaði Björn að kvíði hans
og félaganna var ástæðulaus. Með
skapfestu og sjálfsaga tókst hon-
um að verða einn fremsti kennari
landsins enda fór svo að hann undi
sér hvergi betur en í kennslustof-
um og batt vináttu við fjölda
nemenda, er hann minnist með
þökk. Þó hefir hann árlega sannað
tengsl sín við menningarmiðstöðv-
ar álfunnar með ferðum sínum
utan.
Nú þegar Almenningshlutafé-
lagið Elli og hrörnun sendir áh-
laupasveitir sínar til höfuðs Birni
er það ósk vina hans að hann
gnæfi enn sem fyrr líkt og Jörund-
arfellið yfir jafnsléttumenn
nafnnúmeraaldar.
Þeir sem ferðast hafa leiðina
Blönduós—Borgarnes—Feneyj -
ar—Flórens falla ekki í stafi þótt
þeir heyri talað um hina leiðina.
Árnaðar óskir frá Ásvallagötu
17, 4. sal.
Pétur Pétursson þulur.
Björn verður að heiman í dag.
„Ekki ástæða til sérstakr-
ar herferðar gegn rottum“
— segir Pétur Hannesson hjá gatnamálastjóra
PÉTUR Hannesson, deildar-
stjóri hjá gatnamálastjóra,
sagði að ekki væri sérstök
ástæða til þess að hefja her-
ferð gegn rottum í Reykjavík.
iÞví hefði einfaldlega verið
komið á framfæri að á nokkr-
um stöðum í borginni væri
ekki nægilega vel gengið frá
ræsum og því kæmu alltaf
öðru hvoru upp tilfelli þar
sem sæist rotta. Það er emb-
ætti gatnamálastjóra sem sér
um að útrýma rottum þegar
þeirra verður vart.
„Það er ekkert meira um
rottur nú en endranær. Við
viljum aðeins halda þessu máli
vakandi þannig að fólk láti
okkur vita þegar það verður
Hættu að greiða
í sjúkrasjóðinn
í nóvember sl.
VEGNA fréttar í Morgunblaðinu í
gær um flugmannasamningana,
sem komnir eru í hnút vegna deilu
Félags íslenzkra atvinnuflug-
manna og Flugleiða um greiðslur í
sjúkrasjóð FÍA, kom Ámundi Ól-
afsson, flugstjóri, sem sæti á í
samninganefnd félagsins, þeirri
ábendingu á framfæri, að í maí
1979, þegar lög um sjúkrasjóði
voru sett, hafi Flugleiðir hafið
greiðslur í sjúkrasjóð félagsins, en
hafi síðan hætt því í nóvember
síðastliðnum án þess að tilkynna
það félaginu. Hins vegar hafi
Flugleiðir samkvæmt samningum
greitt í félagssjóð FÍA allt frá því
er um slíkar greiðslur var samið á
árinu 1978 og gera það enn.
vart við rotturnar. Málið hefur
svo verið blásið óeðlilega mik-
ið upp í fjölmiðlum að undan-
förnu. Til þess að koma alveg í
veg fyrir rottur í bænum er
nauðsynlegt að allir sem einn
leggist á eitt og gangi al-
mennilega frá ræsum, þar á
meðal húseigendur," sagði
Pétur ennfremur.
Klausturhólar:
Málverkaupp-
boð í dag
KLAUSTURHÓLAR, listmunaupp-
boð Guðmundar Axelssonar, efna
til 68. uppboðs fyrirtækisins að
Hótel Sögu í dag kl. 15.00. Á
uppboðinu verða seld myndverk
eftir listamenn frá ýmsum timabil-
um í íslenzkri listasögu, allt frá
hinum elztu, svo sem Jóni Stefáns-
syni, Kjarval og Kristinu Jónsdótt-
ur til Alfreðs Flóka, Gunnars
Gunnarssonar og þaðan af yngri
listamanna.
Myndirnar eru unnar með marg-
víslegum hætti. Þarna verða túss-
teikningar eftir Tryggva Magnússon,
blekteikningar eftir Einar Bald-
vinsson, keramik eftir Bat Josef,
silkiþrykk eftir Erró, vatnslita-
myndir eftir marga málara, þ.á m.
gömul mynd eftir Sverri Haralds-
son, svartkrítarmyndir eftir Alfreð
Flóka og olíumálverk stór og smá
eftir Jón Engilberts, Jóhannes
Kjarval, Svein Þórarinsson og
marga fleiri.
Það sem kannski vekur mesta
athygli á þessu uppboði eru hinar
mörgu myndir eftir þá málara, sem
fyrstir á eftir brautryðjendunum
þremur lögðu út á atvinnubraut
listarinnar. Má þar til nefna mynd
eftir Þorvald Skúlason, pastelmynd
eftir Kristin Pétursson, stóra Þing-
vallamynd eftir Jón Engilberts og
litkrítarmynd eftir sama, sem unnin
er upp úr stríðinu. Það er einnig
sjaldgæft að boðnar séu upp myndir
eftir Jóhann Briem og þarna eru líka
nokkrar æði gamlar myndir eftir
Gunnlaug Blöndal, teikningar eftir
Tryggva Magnússon, koparþrykk
eftir Guðmund frá Miðdal, nokkrar
olíumyndir eftir Eyjólf Eyfells.
Aðalnúmer uppboðsins, voldug
mynd af Heklu eftir Jón Stefánsson,
er lokanúmerið að þessu sinni. Það
er nú orðið mjög fátítt að meirihátt-
ar verk eftir þennan góða málara
komi fram.
Bjartur fer
á morgun
Neskaupstað 14. maí.
BJARTUR heldur væntanlega
héðan á morgun áleiðis til Irlands
og síðan Grænhöfðaeyja, en brott-
för skipsins varð að seinka. Upp-
haflega var ráðgert að skipið færi
síðastliðinn laugardag, en ýmis-
legt smálegt kom í ljós í slippnum
hér, og varð því að fresta brottför
skipsins.
— Ásgeir.
Þjóðhátíðarsjóöur:
Fé veitt til endurbygg-
ingar Bryde-pakkhúss
„BRYDE-pakkhúsið er gamalt
hús sem stendur við Vesturgötu
6,“ sagði Einar Ingi Halldórsson,
bæjarstjóri í Ilafnarfirði, í sam-
tali við Mbl., cn bæjarsjóður
Hafnarfjarðar hefur fengið 3ja
m.kr. fjárveitingu úr þjóðhátíð-
arsjóði til að gera við húsið.
„Húsið er af myndarlegri gerð
og það stendur til að endur-
byggja það og að þar verði
minjasafn í framtíðinni. Húsið er
ekki i góðu ásigkomulagi og það
mun kosta mikið fé að gera við
það. Nú er verið að vinna að gerð
kostnaðaráætlunar vegna við-
gerðarinnar á húsinu, en niður-
stöðutölur liggja ekki fyrir,“
sagði Einar Ingi Halldórsson.
Morgunblaðið leitaði til Gísla
Sigurðssonar minjavarðar Hafn-
arfjarðar og innti hann eftir sögu
hússins. „Húsið byggði fyrirtæki í
KaupmannahOfn, Knudson og
Son, en það rak verslun í Hafnar-
firði. Fyrirtækið tók við verslun
Bjarna Sívertsens árið 1834, en
Bjarni lést í júlímánuði árið
áður,“ sagði Gísli. „Húsið var
byggt árið 1862 og var notað sem
geymsluhús og var geymt salt,
saltfiskur og þurrfiskur á neðstu
hæð hússins. Á miðhæðinni voru
geymdar vörur en korn á efstu
hæðinni," sagði Gísli. „Ofan á
loftinu og út í gegnum húsvegginn
var renna sem kornið var látið
fara eftir, þegar það var sett í
poka. Nú er rennan horfin, en enn
má sjá gatið í loftinu þar sem hún
var,“ sagði Gísli. „Það var siður
þegar búið var að skipa út vörum,
sem í húsinu voru, að haldin voru
svokölluð pakkhúsböll, en þau
voru fjölsótt. Þá var veitt púns í
einu horni hússins og menn fengu
púns eins og þeir gátu í sig látið.
Það var einu sinni þegar einn
karlinn hafði drukkið fullmikið og
átti að bera hann burtu, að hann
sagði: „Berið mig þangað sem
púnsið er.“ Þetta'voru lengi fleyg
orð í Hafnarfirði," sagði Gísli.
„Nú er í húsinu vísir að byggða-
safni og eru þar ýmsir sjaldgæfir
munir, en húsið á að verða
byggðasafn," sagði Gísli Sigurðs-
son.
Bryde-pakkhúsið er fyrir miðri mynd. Við hliðina á því er hús Bjarna riddara Sívertsens.
Ljósm. Mbl. RAX