Morgunblaðið - 08.06.1980, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ1980
39
Ný þyrla í reynsluflugi
ALBÍNA Thordarson, arkitekt'
hefur fest kaup á bandariskri
þyrlu af gerðinni Hu>?hes 300C,
sem hún hyjfgst ieigja út til
hinna ýmsu verkefna. Fer þyrl-
an nú þegar eftir helgi til
verkefna fyrir Orkustofnun á
Kirkjubæjarklaustri.
Þyrlan kostar til landsins
komin um 40 milljónir króna og
hefur flugþol miðað við hag-
kvæmasta farflugshraða, 65
hnúta, 3 klukkustundir. Flug-
menn á þyrlunni verða Benóný
Asgrímsson og Bogi Agnarsson.
Frá reynsluflugi þyrlunnar, TF—ATH, í gær. Flugmaður er Bogi
Agnarsson. — Ljósm.: Pétur P. Johnson.
Albína Thordarson, eigandi þyrlunnar ásamt Berghreini borsteinssyni flugvirkja. Ottó Tynes,
flugmanni og rekstrarstjóra og Grétari Óskarssyni, framkvæmdastjóra Loftferðaeftirlitsins. *
Flísalögn
þáttur í
múraraiðn
- segir í athugasemd
frá Múrarafélagi
Reykjavíkur
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi athugasemd frá
Múrarafélagi Reykjavíkur:
í tilefni auglýsingar í Morgun-
blaðinu 28. mái sl. frá Héðni hf.,
varðandi kynningu á meðferð og
lagningu Högnás flísa í Bygginga-
þjónustunni, Hallsveigarstíg 1,
þar sem ávarpsorð eru: ARKI-
TEKTAR, FLÍSALAGN-
INGARMENN, MÚRARAR, vill
Múrarafélag Reykjavíkur vekja
athygli alls almennings á því að
flísalögn er þáttur í múraraiðn,
sem er lögvernduð iðngrein.
Greinarmunur sá, sem auglýs-
ing þessi gerir á flísalagningar-
mönnum og múrurum er því mjög
villandi og til þess fallinn að koma
því inn hjá fólki að til sé stétt
kunnáttumanna á þessu sviði sem
ekki séu múrarar.
Flísar eru dýrt og mjög end-
ingargott byggingarefni og því
mikils um vert að vel takist til um
lagningu þeirra, en slíkt verður
aðeins tryggt með því að verkið sé
unnið af fagmanni.
Aðalfundur
samtaka
móðurmáls-
kennara
AÐALFUNDUR Samtaka móð-
urmálskennara verður haldinn í
Kennaraháskola íslands, laugar-
daginn 14. júní kl. 13.30. Auk
hinna venjulegu aðalfundarstarfa
mun Vésteinn Ólason dósent
flytja erindi um „Hlutverk bók-
menntakennslu í skólum". Samtök
þessi gefa út tímaritið Skímu, þar
sem greinar um flestar hliðar
móðurmálskennslu birtast.
Allir móðurmálskennarar eru
velkomnir á fundinn.
n A
V
fylgismanna
Alberts Guðmundssonar
og
Brynhildar Jóhannsdóttur
við forsetakjörið
verður haldinn að
Hótel Sögu
— Súlnasalnum —
mánudaginn 9. júnín.k.
kl. 20.30
Fundarstjóri:
Gerður G. Bjarklind.
Ávörp:
Alfreð Þorsteinsson fyrrverandi borgar-
fulltrúi, Jóhanna Siguröardóttir alþm., Jón
Magnússon hrl. og Guðmundur J. Guð-
mundsson alþm.
Einsöngur:
Magnús Jónsson tenór,
með undirleik
Ólafs Vignis Albertssonar.
Frú Brynhildur Jóhannsdóttir
ávarpar fundinn.
Ræöa:
Albert Guðmundsson alþm. forsetaframbjóðandi.
Hornaflokkur Kópavogs
leikur fyrir fundinn. Stjórnandi: Björn Guðjónsson.
Fundarslit og sameiginlegur söngur
„Ég vil elska mitt land“.