Morgunblaðið - 08.06.1980, Side 18
5 0 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ1980
Börn á Hofs-
ósi skrifa og
teikna fyrir
Barna- og
fjölskyldu-
síðuna.
í leik og starfi á Hofsósi
bessi bátur, sem ég teiknaði heitir Hafsteinn SK 119 frá Hofsósi, en ég heiti
Rögnvaldur óli Pálmason, Austurgötu 16, Hofsósi. Ég er í skóla, sem heitir
Grunnskólinn, Hofsósi. í mínum bekk eru 12 krakkar og ég á marga vini. Ég
leik mér oft undir gamalli bryggju, sem skemmdist fyrir mörgum árum.
Óli Pálmason.
• • • *
Þessi mynd er áreiðanlega af krökkum á Hofsósi við að dorga, því að þeir
teiknuðu hana öli Pálmason og Pálmar Jóhannesson á Hofsósi.
,LÍTLA'0M
1
| /
f
99 ’- 'h. ' . 'V'
Ég heiti Þorsteinn og á heima á Litlu-Brekku, sem þið sjáið á myndinni. Við
eigum 140 kindur og 21 kú. Það eru engin hross hér. Sauðburðurinn byrjar í
byrjun maí.
Ég á tvær kindur og eru þær báðar mórauðar. Þær heita Mórilla og Spíra.
Á mynd þessari stendur: „Varð óþolinmóð, þegar hún þurfti að bíða eftir að
komast til að róla sér“. Við sjáum ekki betur en að sú óþolinmóða standi
kurteislega i röðinni þó að hún sé ólundarleg á svipinn. Gott væri, ef allir,
sem þurfa að standa i biðröð, væru kyrrir á sinum stað, træðust ekki fram
fyrir, eins og oft gerist.