Morgunblaðið - 26.06.1980, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ1980
K. Jónsson & Co Akureyri:
Rekstrarstöðvun
er yf irvof andi
Akureyrarbær skipar nefnd að
beiðni fyrirtækisins
„ÞAÐ voru ekki skiptar skoðanir um það í bæjarstjórn-
inni að kanna málið, en ég skal ekkert segja um
skoðanir bæjarfulltrúa, ef reynir á,“ sagði Helgi M.
Bergs, bæjarstjóri á Akureyri í samtali við Mbl. í gær,
en á bæjarstjórnarfundi í fyrradag var kosin 5 manna
nefnd til að kanna, hvað og hvort Akureyrarbær geti
gert eitthvað til að rétta við hag fyrirtækisins K.
Jónsson & Co, sem sendi bæjarstjórninni bréf með ósk
um að bærinn hafi frumkvæði að slikri könnun og sagði
Helgi, að í bréfinu væri málið sagt knýjandi, þar sem
rekstrarstöðvun vofði yfir fyrirtækinu.
Viðskiptabanki K. Jónsson &
Co, sem er Landsbankinn, mun
nú hafa sett fram ákveðnar
kröfur um að nýir aðilar komi inn
í rekstur fyrirtækisins. Viðræður
fóru fram á sínum tíma milli
forráðamanna K. Jónsson & Co
og Kaupfélags Eyfirðinga, en þær
leiddu ekki til niðurstöðu. Einnig
skrifuðu forráðamenn K. Jónsson
& Co Framkvæmdasjóði íslands
bréf og buðu eignaðaraðild að
fyrirtækinu, en engin afstaða
hefur verið tekin til þess boðs.
Helgi Bergs bæjarstjóri á Ak-
ureyri sagði að bæjarstjórnin
hefði átt viðræður við forráða-
menn K. Jónsson & Co. „Við
höfum reynt að fylgjast með því,
hvernig leystist úr þeim tjónum,
sem fyrirtækið varð fyrir; fyrst
vegna gaffalbitanna og svo vegna
rækjunnar," sagði Helgi. „En með
þessu bréfi fyrirtækisins, þar
sem beðið er um frumkvæði
bæjarfélagsins til að leysa mál
fyrirtækisins, er þetta orðið nýtt
mál fyrir bæjarstjórninni."
I nefndina voru kjörnir bæjar-
fulltrúarnir Ingólfur Árnason,
Sigurður J. Sigurðsson, Sigurður
Óli Brynjólfsson og Þorvaldur
Jónsson og Páll Hlöðversson,
formaður atvinnumálanefndar
Akureyrar.
Rússarnir komnir
á kolmunnamiðin
austur af Langanesi
ÞRETTAN rússnesk kolmunnaveiðiskip voru kom-
in á miðin út af Langanesi í fyrradag. Flugvél
Landhelgisgæzlunnar flaug þá yfir miðin út af
norðausturlandi og 10-15 sjómílur utan 200
mílnanna austur af Langanesi sáust 13 rússnesk
skip að kolmunnaveiðum. Um 10. júlí í fyrra taldi
sovézki veiðiflotinn á þessum slóðum um 100 skip
og þá var meðfylgjandi mynd tekin. Ljósm. Tómas
Helgason.
Sigurður Hafstein
Samband ísl. sparisjóða:
Sigurður Hafstein ráð-
inn framkvæmdastjóri
SIGURÐUR Hafstein hrl. hefur
verið ráðinn framkvæmdastjóri
Sambands isl. sparisjóða. Baldvin
Tryggvason, formaður sparisjóða-
sambandsins skýrði frá þessu á
aðalfundi þess á Laugarvatni um
siðustu helgi. Sigurður Hafstein
mun hefja störf hjá sambandinu
þegar starfsaðstaða verður fyrir
hendi á Skólavörðustíg 11, væntan-
lega i ágústmánuði n.k. Baldvin
Tryggvason sagði i samtali við
Morgunblaðið i gær, að þessari
ákvörðun hefði verið einróma
fagnað ó aðalfundinum og Sigurð-
ur Hafstein boðinn velkominn til
starfa.
Sigurður Hafstein hefur verið
framkvæmdastjóri Sjálfstæðis-
flokksins síðan í ársbyrjun 1972 og
rak þar áður lögmannsstofu með
Eyjólfi Konráð Jónssyni, Hirti
Torfasyni og fleirum. Sigurður Haf-
stein varð stúdent frá menntaskól-
anum í Reykjavík 1960 og lauk
lögfræðiprófi frá Háskóla Islands
1967. Hæstaréttarlögmaður varð
hann 1974.
Eiginkona Sigurðar er Andrea
Sigurðardóttir og eiga þau þrjú
börn.
Gunnar Guðbjartsson:
Fóðurbætisskatt-
urinn skynsamlegur
Mildar framkvæmd kvótakerfisins
„VIÐ TELJUM að þessi fóðurbætisskattur sé út af fyrir
sig skynsamlegur, því með þeim tekjum, sem hann gefur
má minnka verðskerðingu á framleiðslu minni búanna.
Með þessu er framkvæmd kvótakerfisins milduð og það
kemur ekki eins hart niður og útlit var fyrir,“ sagði
Gunnar Guðbjartsson, formaður Stéttarsambands
bænda, er hann var spurður álits á nýsettum bráða-
birgðalögum um fóðurbætisskatt og rýmkun kvótakerf-
isins.
Gunnar sagði, að
erfitt
væri á þessu stigi að segja
nákvæmlega fyrir um
hversu mikið fé fóðurbæt-
isskatturinn gæfi og einnig
hver yrðu áhrif hans. Ljóst
væri þó að veruleg hækkun
yrði á innfluttum fóðurvör-
um og gæti hún orðið allt
að 144%. Þessi hækkun
bitnaði mishart á byggðar-
lögum, því sum hefðu að-
stöðu til að nota innlendar
Kristján Jóhanns-
son í tveimur loka-
söngkeppnum á Ítalíu
KRISTJÁN Jóhannsson söngvari frá
Akureyri hefur i skeyti til ættingja á
tslandi skýrt frá þvi. að hann taki nú
þátt i tveimur lokakeppnum á ítaliu;
Verdi-söngkeppninni í Bunetto og
keppni ungra Ijóöasöngvara. sem
kennd er við Mariu Callas, og fer
fram í Mílanó.
í Verdi-keppninni tóku þátt 117
söngvarar frá 32 löndum og er Krist-
ján einn tíu söngvara, sem komust í
lokakeppnina. í síðarnefndu keppn-
inni tóku þátt 340 söngvarar og fer
lokakeppnin fram í Scalaóperunni í
Mílanó 29. júní n.k.
Kristján Jóhannsson nemur nú hjá
Campogalliano, sem nú er þekktastur
sem kennari Pavarottis.
Eyjólfur ísfeld, forstjóri SH:
Bókunin breytir ekki
ákvörðunum um lokun
fóðurblöndur í meira mæli
en önnur. Sagði Gunnar, að
þar sem nánast eingöngu
væru notaðar innfluttar
fóðurblöndur yrði óhjá-
kvæmilegt að endurgreiða
bændum einhvern hluta
skattsins til að koma í veg
fyrir mismunun milli
byggðarlaga. Þá væri rætt
um hugsanlegar endur-
greiðslur á hluta skattsins
til alifugla- og svínabænda.
Óvíst væri því hversu mikið
fé yrði eftir til ráðstöfunar,
þegar endurgreiðslur á
skattinum hefði farið fram.
£>
„ÞAÐ sem felst í bókun
ríkisstjórnarinnar er al-
gjörlega ófullnægjandi
fyrir frystihúsin og mun
því ekki breyta ákvörðun-
um þeirra, sem þegar hafa
ákveðið lokun vegna
Verð á ánamöðkum nálgast veiðileyfin:
Ánamaðkar seldir
á 200 kr. stykkið
MIKILL SKORTUR er nú I Reykjavlk á ánamöókum og er það vegna
góðviðrisins að undanförnu. Eins og kunnugt er þá halda
ánamaðkar sig neðanjarðar þegar sólin skin og jörð er þurr, en
koma upp á yfirborðið i vætutið.
Nú þegar veiði er hafin i flestum ám, er mikil eftirspurn eftir
ánamöðkum. en að sama skapi litið framboð, vegna framangreindra
ástæðna. Þess vegna er verðið hátt og er nú 200 krónur fyrir stykkið.
Verð á möðkum fyrir eina veiðiferð er farið að nálgast verðið á
veiðileyfunum. sem flestum þykir nógu hátt. Ákalla veiðimenn nú
æðri máttarvöld ákaft og biðja um rigningu, á meðan aðrir
Reykvikingar njóta veðurbliðunnar.
sumarleyfa,“ sagði Eyjólf-
ur ísfeld Eyjólfsson, for-
stjóri Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna í sam-
tali við Morgunblaðið í
gær, er hann var spurður
álits á bókun ríkisstjórn-
arinnar frá því í fyrradag,
sem leysa átti vandamál
hraðfrystiiðnaðarins.
„Skuldbreyting er mjög jákvæð
aðgerð," sagði Eyjólfur, „en því
miður er hætt við, ef marka má
fyrri reynslu, að það taki nokkra
mánuði í framkvæmd. Að öðru
leyti er það sérstaklega þrennt,
sem hægt er að gera til að létta
róðurinn við núverandi aðstæður:
í fyrsta lagi hraðara gengissig,
en verið hefur undanfarið. I öðru
lagi aukin útlán á framleiðsluna,
vegna mikilla birgða og þar af
leiðandi mjög slæmrar lausafjár-
stöðu. í þriðja lagi breyting á
viðmiðunarverði í verðjöfnunar-
sjóði, sem gerir frystihúsunum
kleyft að vinna pakkningar, sem
markaðir eru fyrir, en skila of lágu
verði til að endar nái saman í
rekstrinum, enda er hér í raun
staðið frammi fyrir dulbúinni
verðlækkun framleiðslunnar."
INNLENT
Vilhjálmur Hjálmarsson sáttasemjari:
Menn haf a ekki
enn tekizt á við
stærstu boltana
„MENN hafa gengið að þessu
verki af töluverðri kostgæfni á
báða bóga,“ sagði Vilhjálmur
Hjálmarsson, settur sáttasemjari
í kjaradeilu Bandalags starfs-
manna rikis og bæja og fjármála-
ráðherra. „Fundir hafa bæði ver-
ið tíðir og menn hafa reynt að
leita lausnar á mörgum þáttum
þeirra krafna, sem settar hafa
verið fram. Hins vegar hafa menn
ekki tekizt á við stærstu boltana.
Vilhjálmur kvað frétt, sem eftir
sér væri höfð í Tímanum í gær
vera mjög villandi og gefa alranga
mynd af því samtali, sem hann
hafi átt við blaðamann blaðsins.
Hann hafi þar átt við að erfitt
væri að halda stórum samninga-
nefndum sumarlangt við samn-
ingaborð af ástæðum, sem öllum
ætti að vera kunnar. Því kvað
hann æskilegt að menn freistuðu
þess að ná samningum, ef þess
væri kostur. „Hins vegar hef ég
ekki sett neina úrslitakosti, eins og
lesa má út úr Tímafréttinni," sagði
Vilhjálmur.