Morgunblaðið - 26.06.1980, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 1980
5
Frystihús á
Akranesi loka
öll á sama tíma
Fjöldasumarleyfi koma niður á mörgum
öðrum en starfsfólki frystihúsa
ENN fjölKar þeim frystihúsum, sem tilkynnt hafa um timahundna
stöðvun rekstrar oj? sumarleyfi stærsta hluta starfsliösins á sama
tima. ÞannÍK hafa frystihúsin fjö«ur á Akranesi nú ákveðið stöðvun
um miðjan næsta mánuð. en ekki er ákveðið hve lengi þau loka. Flest
skip Akurnesinga fara í árlega „klössun" síðari hluta næsta mánaðar.
Morgunblaðið gerði í gær til-
raun til að gera úttekt á stöðunni í
frystihúsunum og frá Vestmanna-
eyjum vestur um til Siglufjarðar
hefur þegar verið tekin ákvörðun
um stöðvun. Á þessu svæði eru
hús, sem sennilega munu ekki loka
þrátt fyrir erfiðleika, en önnur
hyggjast tilkynna um stöðvun
næstu daga. Áðstæður eru mjög
ólíkar á hinum ýmsu stöðum og
jafnvel breytilegar hjá húsum á
sama stað.
í þeirri töflu, sem hér fylgir, er
að finna upplýsingar um mörg
Vinnslustóðin. Vestmannaeyjum
Fiskiðjan, Vestmannaeyjum
tsfélag Vestmannaeyja
tsstöðin i Garði
Fiskverkun Jóns ErlinKssonar. SandKerði
Hraðfrystihús Keflavikur
Ba'jarútKerð Ilafnarfjarðar
Hraðfrystistöð Reykjavikur
Frystihús tsbjarnarins, Reykjavik
Ilaraldur Böðvarsson, Akranesi
HeimaskaKÍ. Akranesi
Haförn. Akranesi
Þórður Óskarsson, Akranesi
Frystihús á ísafirði, Súðavik ok Hnifsdal
Hjálmur hf. Flateyri
Þormóður rammi. SÍKlufirði
tsafold. SÍKlufirði
frystihús, sem tilkynnt hafa um
stöðvun, en sjálfsagt vantar nokk-
uð á, að tafla þessi sé tæmandi.
Eigi að síður sýnir hún stöðuna og
auk fólksins í frystihúsunum hef-
ur stöðvun rekstrar þar áhrif á
margar aðrar atvinnugreinar. I
töflunni kemur þó ekki fram að
dregið hefur verið úr vinnu mjög
víða og á fæstum stöðum er unnin
nema dagvinna. Þá hafa erfiðleik-
ar frystihúsanna mjög komið
niður á skólafólki og sjálfsagt
fram yfir það, sem fram kemur í
þessari töflu.
um 200 manns — frá um 26. júli
— uppsagnir og/eða sumarleyfi.
um 200 manns — frá um 26. júli
— uppsagnir og/eða sumarleyfi.
um 190 manns — frá um 26. júli
— uppsagnir og/eða sumarleyfi.
um 65 manns — 11. júlí —11. ágúst
— sumarleyfi.
um 10 manns — 11. júlí —11. ágúst
— sumarleyfi.
um 120 manns — frá 19. júli
— sumarleyfi.
um 200 manns — frá 27. júli
— sumarl. ok uppsagnir skólafólks.
um 50 manns — frá 14. júli
— sumarl. ok uppsaKnir skólafólks.
— uppsaKnir skólafólks.
um 100 manns — frá miðjum júli
— sumarleyfi.
um 60 manns — frá miðjum júli
— sumarleyfi.
um 60 manns — frá miðjum júli
— sumarleyfi.
um 50 manns — frá miðjum júli
— sumarleyfi.
600-700 manns — 20. júlí til 18. áK.
— sumarleyfi.
um 140 manns — frá 14. júli
— sumarleyfi.
um 150 manns — frá 1. júli
— sumarleyfi.
30—40 manns — frá júnilokum
— sumarleyfi.
Reynir Jónasson
aðstoðarbankastjóri
Útvegsbankans
Á FUNDI bankaráðs Útvegs-
bankans 23. júní var Reynir
Jónasson ráðinn aðstoðar-
bankastjóri frá og með 1. júlí
n.k. Reynir hefur gegnt starfi
skrifstofustjóra undanfarin 12
ár en hóf störf í bankanum í
byrjun árs 1956, segir í frétt
frá Útvegsbankanum. Eigin-
kona Reynis er Elín Þórhalls-
dóttir og eiga þau 3 syni.
Reynir Jónasson
„Opið hús64 í
Norræna húsinu
SUMARSTARFSEMI Norrænna
hússins verður með svipuðum ha'tti
ok undanfarin sumur. Frá og með
fimmtudeKÍnum 26. júní fram til 7.
ágúst verða kvölddagskrár í fyrir-
lestrarsal hússins og eru þær fyrst
og fremst sniðnar með það í huga.
að þar fari fram kynning á íslandi.
landi ok þjóð. menningu og sögu
o.s.frv.
Meðal þeirra sem koma fram á
„Opnu húsi“ má nefna þá Hörð
Ágústsson listmálara, prófessor Jón-
as Kristjánsson, Harald Ólafsson
lektor, Björn Rúriksson og Sigurð
Þórarinsson prófessor.
Opið hús hefst kl. 20.30 og mun
vera leitast við að hafa dagskrá sem
fjölbreytilegasta. Sýndar verða kvik-
myndir eftir íslenska höfunda og má
þar nefna Ósvald Knudsen. Fyrir-
lestrar og myndskýringar eru fluttar
á einhverju hinna Norðurlandamál-
anna vegna hinna norrænu ferða-
manna, sem dagskrárnar eru sniðnar
fyrir.
— Ljósm.: ÓI.K.M.
Sendinefnd frá Kína
Hérlendis er stödd þessa dagana sendi-
nefnd frá Alþýðulýðveldinu Kína til að
kynna sér sjávarútveg og fiskiðnað á
íslandi. Sendinefndin hefur m.a. heimsótt
Útgerðarfélag Akureyringa h.f., ísbjörn-
inn h.f. og Bæjarútgerð Reykjavíkur.
Forráðamenn þessara fyrirtækja og Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna fræddu þá um
starfsemi frystihúsanna í landinu og
sýndu þeim framleiðsluvörur. I gær skoð-
uðu Kínverjarnir auk þess hinn nýja
skuttogara BÚR, Jón Baídvinsson og var
myndin tekin af þeim við það tækifæri. Þá
skoðuðu þeir einnig saltfisk- og skreiðar-
verkun BÚR.
Jafnan
fyrirliggjandi
í miklu úrvali
RAFMAGNSm HANDVERKFÆRI
1437 H
Heimilisborvél
Mótor: 320 wött
Patróna: 10 mm
Stiglaus hraðabreytir í rofa: 0-2600 sn./mín.
Höggborun: 0-36000 högg/min.
1417 H.
Heimilisborvél
Mótor: 420 wött
Patróna: 13mm
Stiglaus hraðabreytir í fora og tvær fastar
hraðastillingar: 0-900 eða 0-2600 sn./min.
Við SKIL heimilisborvélar fæst gott úrval hagnýtra fylgihluta,
svo sem hjólsög, stingsög, smergel, pússikubbur og
limgerðisklippur. Alla þessa fylgihluti má tengja
við borvélina með einkar auðveldum hætti, svonefndri jjgs
SNAP/LOCK aðferð, sem er einkaleyfisvernduð
uppfinning SKIL verksmiðjanna. Auk ofan-
greindra fylgihluta eru á boðstólum
hjólsagarborð, láréttir og lóðréttir
borstandar, skrúfstykki, borar,
vlrburstar, skrúfjárn og
ýmislegt fleira sem eykur
stórlega á notagildi SKIL
heimilisborvéla. Eigum
einnig fyrirliggjandi
margar fleiri gerðir
og stærðir af SKIL
rafmagnshandverkfærum.
ÞEIR, SEM VILJA VÖNDUÐ VERKFÆRI VELJA SKIL
Einkaumboð á Islandl fyrir Skil rafmagnshandverkfæri.
FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8, SIMI 84670
Komið og skoðið, hringið eða
skrifið eftir nánari
upplýsingum. Athugið hvort
SKIL heimilisborvél og
fylgihlutir eru ekki
hagnýt gjöf til heimilis ykkar
eða vina ykkar.
AÐRIR UTSÖLUSTAÐIR.
REYKJAVIK:
SIS Byggingavórudeild.
Suðurlandsbraut 32.
Verslunin Brynja. Laugavegi 29.
HAFNARFJÖRÐUR:
Rafbuðin. Alfaskeiði 31..
KEFLAVIK:
Stapafell h/f.
ÞINGEYRI:
Kaupfelag Dyrfirðinga
ISAFJÖRÐUR:
Straumur h/f.
HÓLMAVIK:
Kaupfelag Steingrimsfjarðar.
BLÖNDUÓS:
Xaupfelag Hunvetninga
SIGLUFJÖROUR:
Rafbær h/f.
AKUREYRI:
Verslunin Raforka
Handverk, Strandgötu 23.
HUSAVIK:
Kaupfelag Þingeyinga
VOPNAFJÖRÐUR:
Kaupfelag Vopnfirðinga
EGILSTAÐIR:
Verslunin Skogar
SEYÐISFJÖRÐUR:
Stalbuðin
NESKAUPSSTAÐUR:
Eirikur Asmundsson
HÖFN:
Kaupfelag Austur-Skaftfellinga
VIK:
Kaupféiag Skaftfellinga