Morgunblaðið - 26.06.1980, Síða 13

Morgunblaðið - 26.06.1980, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 1980 13 Guðmar Magnússon, bæjarfulltrúi: Seltirningar kjósa um fleira en forsetaefni Næstkomandi sunnudag ganga Seltirningar að kjörborðinu til þess að greiða atkvæði um það hvort opnuð verði áfengisútsala hér í bænum. Af þessu tilefni hljóta menn að skoða hug sinn vandlega og meta kostina og gallana, sem af þessu leiðir. Þegar málið var afgreitt í bæjarstjórn Seltjarnarness greiddi ég einn atkvæði gegn tillögu um atkvæða- greiðsluna og þess vegna þykir mér rétt að gera opinberlega grein fyrir þeim ástæðum, sem lágu að baki þessari afstöðu minni. Það fer ekki fram hjá neinum, að þau vandamál, sem af aukinni áfengisneyslu leiðir hafa sett mörk sín á íslenskt þjóðfélag. Fáar fjölskyldur hafa sloppið Brlflge Umsjóni ARNÓR RAGNARSSON Sumarspila- mennskaní Domus Medica Enn fjöigar þátttakendum á sumarspilakvöldunum. Sl. fimmtu- dag mættu 62 pör til keppni og var spilað í fjórum riðlum. Urslit í A-riðli: Gísli Tryggvason — Guðlaugur Nielsen Sigríður Ingibergsdóttir — Jóhann Guðlaugsson Karl Sigurhjartarson — Sigfús Sigurhjartarson Úrslit i B-riðli: Björn Halldórsson — Magnús Ólafsson Stígur Herlufsen — Vilhjálmur Einarsson Guðmundur Sigursteinsson — Gunnlaugur Karlsson Úrslit í C-riðli: Jóhann Jónsson — Stefán Guðjohnsen Aðalsteinn Jörgensen — Stefán Pálsson Sævar Þorbjörnsson — Valur Sigurðsson Úrslit í D-riðli: Gísli Steingrímsson — Sigurður Steingrímsson Haukur Ingason — Runólfur Pálsson ólafur Valgeirsson — Ragna Ólafsdóttir Meðalskor í A B og C-riðli 210 og 156 í D-riðli. Keppnisstjóri var Ólafur Lár- usson. Næst verður spilað á fimmtudaginn kemur og hefst keppnin kl. 19.30. Sumarkeppni Ásanna í Kópavogi Þriðja keppniskvöldið var mánudag og urðu úrslit þessi: Böðvar Magnússon — Sigfinnur Snorrason Sigurður B. Þorsteinsson — Gísli Hafliðason Bragi Hauksson — Sigriður Kristjánsd. Aðalsteinn Jörgensen — Ásgeir P. Ásbjörnsson Högni Torfason — Steingrímur Jónasson Næst verður spilað á mánudag- inn kemur. 257 253 244 235 231 231 262 245 241 209 207 174 sl. 270 259 235 232 229 óskaddaðar. Öll þekkjum við ágætt fólk, sem hefur orðið áfeng- inu að bráð og beðið af því óbætanlegt tjón. Áfengisvanda- málið er alþjóðlegt og vaxandi. Það er talið ógna nútíma þjóðfé- lagsháttum svo alvarlega, að Al- þjóðaheilbrigðisstofnun Samein- uðu Þjóðanna (WHO) hefur talið sig knúna til þess að taka málið til umfjöllunar og hefur afgreitt það með langri og ítarlegri skýrslu. Sem ráð í varnarbaráttu er meðal annars hvatt til þess að útsölu- stöðum verði ekki fjölgað, heldur fækkað frá því sem nú er. Það er með öðrum orðum skoðun WHO að því fleiri sem útsölustaðirnir eru, því meiri neysla. Ég hef heyrt þá skoðun að áfengisútsala sá jafn sjálfsögð og mjólkurbúð og þá væntanlega til þess að gera áfengi sem aðgengi- legast fyrir alla. Nú hafa rann- sóknir hér á landi sýnt, að í þeim kaupstöðum þar sem áfengisút- sala er fyrir hendi, þar er oftar drukkið og þar er ofdrykkja al- gengari. Þetta er svo alvarleg niðurstaða að ég treysti mér ekki til að bera ábyrgð á því að aukið verði við vandann, með því að opna útsölu hér á Seltjarnarnesi, þvert ofan í áskorun WHO og niðurstöður rannsókna. Menn hafa talið að bærinn fengi nokkrar tekjur af landsútsvari ef áfengisútsala verði opnuð hér á Nesinu. Ef miðað er við nýjustu töiur yfir tekjur bæjarfélaga af landsútsvari tengdu áfengisútsöl- um, sem eru frá árinu 1979, þá er hér um svo óverulega upphæð að ræða, að 1—2 tekjuháir einstakl- ingar myndu greiða álíka há gjöld til bæjarins, eða eitt fyrirtæki með meðalveltu, sem myndi greiða mun meira i aðstöðugjöldum og þá værum við laus við aukaverkanir. En hvaða aukaverkanir? Fyrst er að telja áfengisvandamál al- mennt, aukinn drykkjuskapur og þar með áfengissýki, aukin hætta á því að unglingar komist yfir áfengi, aukin freisting fyrir þá sem eiga við áfengisvandamái að stríða, erfiðleikar og sundrung á heimilum. Þá hef ég áhyggjur af því, ef utangarðsmenn þjóðfélags- ins færu. að dragast að útsölunni og halda þar til að meira eða minna leyti. Oft hefur því miður vitnast að slíkir utangarðsmenn hafa verið unglingum undir lög- aldri hjálplegir við áfengisinn- kaup. Enn er einn þáttur málsins, sem ég bið Seltirninga að íhuga vel og vandlega, áður en þeir greiða atkvæði með útsölunni. Hann er sá, að umferðaræðar til bæjarins eru aðeins tvær, Nesveg- ur og Eiðisgrandi. Það er flestra álit, að nauðsynlegt sé að tak- marka.sem mest umferð um Nes veg vegna slysahættu. Þá stendur Eiðisgrandi einn eftir. Nú eru Reykvíkingar að hefja uppbygg- ingu Eiðisgrandasvæðisins sín megin landamerkjanna og við Seltirningar að byggja upp mið- bæjarkjarna við Eiði, en þar er áfengisútsölunni fyrirhugað hús- næði. Auk þess eru íbúðarhús i byggingu víða um bæinn, þannig að íbúum fjölgar jafnt og stöðugt. í mínum huga er gatnakerfið við Eiði svo þröngt og hefur svo litla möguleika til stækkunnar, að sú aukning umferðar á álagstímum, sem af áfengisútsölunni myndi leiða, yrði gatnakerfinu ofviða. Umferð gæti orðið það mikil að hættuástand kynni að skapast. Ég var kosinn í bæjarstjórn Seltjarnarness undir kjörorðinu „gerum góðan bæ betri“. Ég tel að yfirbragð bæjarins myndi ekki batna við það að fá hingað áfeng- isútsölu, heldur versna til muna. Við myndum eiga á hættu aukin vandamál vegna áfengisneyslu, al- gerlega að ástæðulausu. Við myndum skapa hér stóraukna óþarfa umferð á álagstímum og þar með aukna slysahættu. Af þessum ástæðum er ég and- vígur áfengisútsölu hér á Sel- tjarnarnesi. Ég skora á Seltirn- inga að ihuga málið gaumgæfilega áður en kosning fer fram. Þá er ge þess fullviss að meirihluti íbúanna segir Nei. Seltjarnarnesi 22. júní 1980. 'Þakkir' E‘ fyrrverandi nemendur og aörir fornvinir, i hjartanlega gjafir og aðra góðvild, í andi við 75 ára afmæli mitt 5. júní sl. ilessun umvefji ykkur öll. Ingibjörg Jóhannsdóttir, fri Löngumýri. VEITINGASTADURINN Brautarholti 22 — Borðpantanir 11690 3<1.IÐAR£ND| Hvað svo Gunnar? '• *'>•;: '-v' k •• V • ■/ I Iver er >að Gunnar? Ifl - t - £ i ( — ívað svo iunnar? 1 * 'Vi ■ — Verður maður ekki að panta borð Gunnar? Getum við farið Njáll? Förum, því nú er Veit- ingastaðurinn Hlíðar- endi að byrja með sumar- prógram sitt. öll fimmtudagskvöld verða brennukvöld á Hliðarenda. Hefst með borðhaldi kl. 7.30 — Logandi lambasteik og Hlíðarendakaffi í eftirrétt. Dansarar sýna ræs-dans- inn. Model 79 sýna föt frá Verðlist- anum. *>' *, v> j ; it * , i ____ Jú, svo eru það föstud., laugard. og sunnud.-kvöldin, þá leikur klassískur gítarleikari fyrir borðum. ■Vr.v* ;x!-t .%.<*;■ *'. •;r >< ^ — Sá besti Örn Arason ____________________________________________________ Nú á sunnudögum milli kl. 3 og 5.30 er kaffið hennar Bergþóru og Hallgerðar fyrir alla fjölskylduna. meira að segja Hlaðborð. Jú það er rétt Njáll í síma 11690 i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.