Morgunblaðið - 26.06.1980, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ1980
21
Jónas E. Svafár
Frambióðendur
í stað greinar um forsetakosningar hefur skáldið
Jónas E. Svafár sent Morgunblaðinu ljóð það sem
hér fer á eftir.
í skjaldamerki lýðveldisins
eru þrjár furðuverur
og einn kven-maður
knattspyrnuveður sjómannadagsins
mætir listahátíð landsliðsins
„fram skal þá kalla frá fjöru til fjalla"
sáttasemjari hóf störf sín fljótt
„því austan kaldinn á oss blés“
og sætti þjóðhátíðardag og fyrsta des
rauðsokka kom upp um miðja nótt
á kvenréttindadegi sofðu rótt
„nú andar suðrið sæla“
jónsmessunnar sólarlag
sendiherranum verði í hag
„ó guð vors lands“
frá Hagvangi
Athugasemd
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi athuKasemd frá fyrir-
tækinu IlaKvangi hf:
„Vegna fréttagreinar í Morgun-
blaðinu í gær um forsetakjör og
skoðanakönnun dagblaðsins Vísis
undir fyrirsögninni „Hæpið að nota
sama úrtakið" vill Hagvangur h.f.
taka eftirfarandi fram:
Af fyrirsögn og framsetningu
greinarinnar virðast ýmsir lesendur
álíta, að Hagvangur væri að dæma
skoðanakönnun dagblaðsins Vísis
ómerka. Hér er um algera rangtúlk-
un að ræða.
Skoðanakannanir eru gerðar með
ýmsum hætti og hafa aðferðirnar
hver sína kosti og galla. I greininni
er aðeins eitt atriði tekið út og gert
að aðalatriði. Hagvangur hf. telur
þetta miður, því að eins og fram kom
í umræddri frétt hefur Hagvangur
hf. ekki kynnt sér hvernig staðið var
að könnun Vísis og vill því á engan
hátt taka afstöðu til hennar.
IlaKvangur hf.“
Baskar
hræða
ferðamenn
Alicante. Spáni. 25. júní. AP.
MARGAR sprengjur. sem aðskiln-
aðarsinnar Baska höfðu komið
fyrir, sprungu í dag á ferða-
mannastöðum á Miðjarðarhafs-
strönd Spánar og olli það mikilii
skelfingu meðal ferðafólks. eink-
um þó vegna þess. að hermdar-
verkamennirnir gáfu í skyn. að
mörgum fleiri sprengjum hefði
verið komið fyrir sem gætu
sprungið á hverri stundu.
Mörg hundruð manna, sem voru í
sumarleyfi, voru flutt frá hótelum,
veitingastöðum og baðströndum
eftir að aðskilnaðarsinnarnir höfðu
tilkynnt um, að sprengjur kynnu að
springa á 12 stöðum þó að þær yrðu
aðeins 4 í raun. Fimmta sprengjan
fannst og gerði lögreglan hana
óvirka.
Viðræður um fram-
tíð Nýju-Suðureyja
London. 25. júní. AP.
PAUL Dijoud, sá ráðherra
frönsku stjórnarinnar, sem fer
með málefni nýlendanna, kom til
Lundúna i dag til viðræðna við
breska ráðamenn um framtíð
Nýju-Suðureyja, en þar hefur ver-
ið mjög ókyrrt að undanförnu eins
og kunnugt er af fréttum.
Veður
Akureyri 10 skýjaó
Amsterdam 18 skýjaó
Aþena 35 heióskirt
Barcelona 21 skýjaó
Berlín 17 rigning
BrUssel 17 skýjað
Chicago 28 skýjaó
Feneyjar 22 léttskýjaó
Frankfurt 17 rigning
Færeyjar 11 skýjað
Genf 16 skýjaó
Helsinki 16 rigning
Jóhannesarborg 16 heiðskírt
Kaupmannahöfn 18 skýjað
Las Palmas 22 skýjaó
Lissabon 24 skýjaó
London 16 skýjaó
Los Angeles 29 heióskírt
Madríd 28 heiðskírt
Malaga 33 heióskírt
Mallorca 29 léttskýjaó
Miami 31 rigring
Moskva 27 skýjað
New York 32 skýjaó
Ósló 18 skýjaö
París 17 skýjað
Reykjavík 12 skýjað
Rio de Janeiro 27 heiðskírt
Rómaborg 30 heiðskírt
Sanfransisco 18 skýjað
Stokkhólmur 19 heiöskírt
Tókýó 31 heiöskírt
Vancouver 20 heióskírt
Vínarborg 21 rigning
1972 — írski lýðveldisherinn lýsir
yfir vopnahléi á Norður-írlandi
1970 — Alexander Dubcek rekinn úr
tékkneska kommúnistaflokknum.
1968 — Bandaríski fáninn dreginn
niður á Iwo Jima og sá japanski
dreginn að húni 23 árum eftir
fánahyllingu bandarískra land-
gönguliða.
1963 — John F. Kennedy forseta
ákaft fagnað í Vestur-Berlín
1960 — Madagaskar lýsir yfir sjálf-
stæði sem Malagasy-lýðveldið —
Brezka Somaiiland fær sjálfstæði.
1945 — Stofnskrá SÞ undirrituð í
San Francisco.
1941 — Finnar segja Rússum stríð á
hendur.
1937 — Hertoginn af Windsor
kvænist frú Wallis Simpson.
1917 — Bandaríski leiðangursher-
inn kemur til Frakklands.
1858 — Stríði Breta og Kínverja
lýkur með Tientsin-sáttmála.
1857 — Fjöldamorð í Cawnpore á
Indlandi.
1830 — Vilhjálmur IV ^ezt að
ríkjum í Bretlandi.
1812 — Pólska þingið lýsir yfir
sjálfstæði Póllands, en Napoleon
Bonaparte neitar að samþykkja
ákvörðunina.
1714 — Spánverjar og Hollendingar
undirrita Utreecht-friðinn.
1549 — Sjálfstæði Niðurlanda lýst
yfir.
1541 — Spænski landkönnuðurinn
Francisco Pizarro veginn í Lima,
Perú.
Afmæli. George Morland, brezkur
listmálari (1763—1804) — William
Thomson Kelvin barón, brezkur eðl-
isfræðingur (1824—1907).
Andlát. 1827 Samuel Crompton,
uppfinningamaður. — 1830 Georg IV
Bretakonungur.
Innlent. 1930 Alþingishát.íðin sett —
1823 Eldgos hefjast í Eyjafjallajökli
— 1827 d. dr. Gísli Brynjólfsson —
1849 d. Þorgrímur Thomasson
gullsmiður — 1889 d. Jón alþm.
Sigurðsson frá Gautl. — 1898 d. Arni
Gíslason sýslumaður — 1854, 1873
Þingvallafundir — 1905 Fregnmiðar
með fyrstu Marconi-skeytum festir
upp — 1921 Kristján X heimsækir
ísland — 1928 Boranir eftir heitu
vatni hefjast í Reykjavík — 1944 d.
Guðmundur Friðjónsson skáld —
1945 „Esja“ kemur með 300 íslend-
inga frá Norðurlöndum — 1944 f.
Svavar Gestsson.
Orð dagsins. Sameinuðu þjóðirnar
voru ekki settar á laggirnar til að
koma okkur til himnaríkis heldur til
að bjarga okkur frá helvíti —
Winston Churchill (1874—1965).
Veljum
Nú bjóðum við sólarhrings gistingu fyrir
tvö í'2ja manna herbergi. Inmlalf
kvöldverður, morguwerður af Wað-
borði og hádegisverður asamt gistmgu.
Allt þetta kostar
aöeins
w- 39.000-
fyrir tvo
Grillveizla
í Valhöll í kvöld
Nú bjóöum viö gestum okkar aö
steikja sjálfum.
Þiö veljið ykkur T-bein, mörbráö eöa
rétti á teini og viö aðstoðum ykkur viö
eldunina.
Veizlan hefst kl. 20 og grillið verður
opiö til kl. 23.00.
Halli og Laddi veröa kokkar kvöldsins og
leikin veröa lög sem allir kunna og geta
sundiö meö.
Komiö viö í Valhöli