Morgunblaðið - 26.06.1980, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 26.06.1980, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ1980 29 Sigríður Rósa Kristinsdóttir. Aldrei að víkja Til mín kom í vetur hin lands- fræga Regina okkar Eskfirðinga og falaðist eftir nafni á lista eins hinna karllegu frambjóðenda. Ég synjaði þeirri bón, vegna þess að ég var ekki vonlaus um að fleiri frambjóðendur kæmu fram og vildi hafa frjálsar hendur að velja, er þar að kæmi. Daginn eftir segir Regina við mig: „Nú ert þú sjálfsagt ánægð, nú er Vigdís Finnbogadóttir búin að ákveða að vera í framboði." Já, ég var ánægð. Loksins, loksins kom til leiks kona, sem ber höfuð og herðar yfir alla, hina annars mjög svo ágætu frambjóð- endur. Gamla reglan sannar sig hér. Engin kona þykir vænleg til sigurs í framboði á móti körlum, nema hún sé að minnsta kosti helmingi frambærilegri en BESTI karlinn. Konur og karlar út um land fagna framboði Vigdísar Finn- bogadóttur til forsetakjörs. Við úti á landi skynjum og skiljum þann manndóm, þrek og þor sem Vigdís sýnir með því að feta út á það einstigi, sem engin kona í veröldinni hefur áður vogað að ganga. Við ætlum að votta henni aðdáun okkar og virðingu með einlægum stuðningi. Eins er vitað um fjölda kvenna og karla á Reykjavíkursvæðinu. Þó virðist skorta nú stórlega á þann djarfhug og kjark, sem konur í Reykjavík sýndu á kvennadaginn 24. október 1974. Hvað dvelur konur? Er samstaðan þurrkuð út, þegar við loksins fáum tækifæri til að kjósa úr okkar röðum til forseta konu, sem er færust af fjórum færum í fram- boði. Sigriður R. Kristinsdóttir Ætlum við að láta dætur okkar, dætra- og sonadætur líða fyrir, að við þekktum ekki okkar vitjunar- tíma og brugðumst rangt við þessu stórkostlega tækifæri til að velja? Konur og karlar, sýnum nú í verki, að við viljum hætta að troða á rétti mæðra okkár, eiginkvenna og dætra! Við höfum tækifæri nú, óvíst hvað verður síðar. Vigdís, hjartans þakkir fyrir hlýju þína, vilja, kjark og þor, það eru eiginleikar sem íslensk þjóð þarfnast mest að finna hjá forseta sínum. Aldrei að víkja. Eskifirði 17. júní 1980. Páll Skúlason prófessor: Ekki var völ á hæfari og farsælli stjórnanda Háskóli íslands er trúlega sú stofnun íslenska ríkisins sem næst því kemst að endurspegla þjóðfé- lagið eða a.m.k. mörg helstu ein- kenni þess. Hinar ýmsu deildir og stofnanir háskólans eru mjög sundurleitar og um margt alveg sjálfstæðar; og fjölmennt starfs- liðið skiptist í hópa sem fylgir hver sínum málum fram. Af þessu spretta árekstrar, deilur, stundum illvíg átök sem ógna þeirri einingu og samheldni sem eru stofnuninni nauðsynleg til að eflast og tryggja blómlega starfsemi. Það er mál manna í háskólanum að ekki hafi verið völ á hæfari og farsælli stjórnanda en Guðlaugi Þorvaldssyni, er hann var kjörinn rektor árið 1973. Sjálfur á ég erfitt með að ímynda mér að nokkrum öðrum en honum hefði tekist betur að efla samheldni háskólans og greiða úr þeim fjölmörgu og oft ótrúlega erfiðu málum sem þar hafa risið upp á undanförnum árum. Einn er sá eiginleiki Guðlaugs sem forystumanns og stjórnanda sem ég met öðrum fremur, en það er sú umhyggja sem hann sýnir öllum málum sem til hans berast, smáum ekki síður en stórum. Honum er ekki aðeins lagið að skoða mál frá mörgum hliðum í senn, heldur gerir hann það ávallt af einstakri alúð og einbeitingu. Af virðuleika, röggsemi og starfs- orku hefur Guðlaugur nóg til að bera, en hitt tel ég enn meira um vert: næman skilning hans á mönnum og málefnum. Þessi eig- inleiki hefur aflað honum þeirrar reynslu og víðsýni sem eru forseta Páll Skúlason prófessor landsins nauðsynlegast veganesti. Dr. Frosti Sigurjónsson: Víkinginn Albert til Bessastaða Þung áhersla hefir verið á það lögð í skrifum og ræðum undanfar- ið að forsetinn eigi að vera samein- ingartákn þjóðarinnar. Um það má deila en hafa menn gleymt fyrstu ljóðlínum þjóðsöngsins: Lands vors Guð er okkar sameiningar- tákn, landið, fáninn, fjöllin, fossar og lækir. Við þurfum ekki fleiri tákn. Ekki hálfguð til Bessastaða. Þar á að sitja ríkisstjóri, hefi raunar aldrei skilið þá nafnabreyt- ingu ríkisstjóri — forseti. Við tölum jú um ríkisstjórn og ríkis- ráð. Til Bessastaða þarf mann sem hefir kjark og þor og tekur af skarið í stjórnarkreppum og gefur þingmönnum mátulegt ráðrúm og tíma til þess að leika sér með fjöregg þjóðarinnar: Frelsið. Til þeirra sem sífellt klifa á háskólamenntun vil ég segja þetta: Ekki var Ólafur Thors háskóla- genginn svo dæmi sé tekið. Hann hefði sómt sér vel á Bessastöðum Dr. Frosti Sigurjónsson enda þótt hann væri pólitíkus. Ég man þá tíð er Ólafur Thors kom í opinbera heimsókn til Köln — Bonn. Þar fór lítið fyrir formsat- riðum verkin voru látin tala og karlarnir tveir Thors og Konrad Adenauer voru eins og strákar í sandkassa. Þessi heimsókn er í minnum höfð enn þann dag í dag og var íslandi til sóma. Slíka menn þarf til Bessastaða. Trúað gæti ég að í kjölfar þeirrar heimsóknar hefði kvóti íslenskrar fisksölu í Bremenhafen og Hamborg aukist um þó nokkra tugi togarafarma. Ég nefndi víkinga í upphafi greinarinnar vegna þess að ferill og athafnir Alberts minna um margt á þá, og vísa ég nú til bókarinnar, Víkingarnir, höf. m.a. Kristján Eldjárn. Albert fer í slóð þeirra, gerir strandhögg í Skot- landi og Englandi, leggur undir sig hluta af Frakklandi, á sína vísu, líkt og Göngu-Hrólfur forðum, þá til Langbarðalands áður en snúið er heim við góðan orðstír. Slíkan mann þarf til Bessastaða. Nú eru miklir umbrota og ólgu tímar bæði utan lands og innan og þó sérstaklega erlendis. Allt frá lokum heimsstyrjaldarinnar 1944 hefir ástandið farið dag versnandi og mun aldrei verra en nú, þeir ógnar atburðir geta gerst að þjóðin þurfi á miklum kjarkmanni að halda á Alftanesi, manni sem ekki guggnar á örlagastund, Víkinginn Albert Guðmundsson og frú Brynhildi til Bessastaða. Erla Hauksdóttir, Flateyri: Kjósum Pétur 29. júní göngum við íslendingar að kjörborði til að kjósa forseta Islands. Það val verður að vera vel vandað. Pétur J. Thorsteinsson er maður sem hefur alla kosti til að bera sem forseti fyrir okkar þjóð. Hann hefur ekki fæðst með silfur- skeið í munni eins og svo margir aðrir. Á námsárunum þurfti hann að vinna hörðum höndum fyrir sér til að geta haldið skólanámi áfram. Hann hefur annast marg- vísleg störf í þágu okkar íslend- inga, sem við getum verið þakklát fyrir. Hann er kvæntur glæsilegri konu, Oddnýju, sem er vel mennt- uð og fjölhæf og mun sóma sér vel sem forsetafrú á Bessastöðum. íslendingar, Pétur er okkar maður, það sannar starfsferill hans fyrir okkar þjóð. Erla Hauksdóttir \nrti Stuöningsmenn Péturs j. Thorseínssonar hafa opnaö kosningaskrifstofur á eftirtöldum stööum: Akranes: ísafjöröur: Sauðórkrókur: Siglufjöröur: Akureyri: Húsavík: Egilsstaöir: Heiöarbraut 20, (93) 2245.0pið kl. 17.00—19.00. Hafnarstræti 12, (94) 4232. Opið kl. 14.00—22.00. Sjálfsbjargarhúsiö v/Sæmundargötu (95) 5700. Opið kl. 17.00—19.00 og 20.30— 22.00. Aöalgötu 25, (96) 71711. Opiö kl. 17.00— 22.00. Hafnarstræti 99—101 (Amarohúsiö).Símar (96) 25300 og 25301. Opiö kl. 14.00-22.00. Garðarsbraut 15, (96) 41738. Opiö kl. 17.00—22.00. Bláskógar 2, (97) 1587. Opiö kl. 13.00— 19.00. Selfoss: Austurveg 40, (99) 2133. Opiö 17.00— 19.00 og 20.00—22.00 nema laugard. og sunnud. kl. 14.00—18.00. Veatmannaeyjar: Skólavegi 2, (98) 1013. Opiö kl. 14.00— 21.00. Hafnarfjöröur: Sjónarhóli v/Reykjavíkurveg 22. Opiö kl. 14.00—21.00 (91) 52311. Keflavík: (Jafnframt fyrir Njarövík, Sandgeröi, Gerö- ar, Voga, Vatnsleysuströnd, Hafnir og Gindavík.) Grundarvegi 23, Njarövík (92) 2144. Opiö kl. 14.00—22.00 nema laugard. og sunnud. kl. 14.00—18.00. Eftirfarandi umboösmenn annast alla fyrirgeiösl- ur vegna forsetaframboös Péturs J. Thorsteins- sonar: Hellissandur: Grundarfjöröur: Olafsvík: Stykkishólmur. Búöardalur: Patreksfjöröur: Tálknatjöröur: Bíldudalur: Þingeyri: Flateyri: Suöureyri: Botungarvík: Súðavík: Hólmavík: Skagaströnd: Ólafsfjöröur: Dalvík: Hrísey: Þórshöfn: Kópasker: Vopnafjöröur: Seyöiafjöröur: Neskaupstaður: Eskifjörður: Reyöarfjöröur: Fáskrúösfjöröur: Breiödalsvík: Djúpivogur: Höfn Hornafiröi Hella: Sandgeröi: Garöabær: Kópavogur: Seltjarnarnes: Hafsteinn Jónsson, (95) 6631 Dóra Haraldsdóttir, (93) 8655 Guðmundur Björnsson, forstjóri, (93) 6113 Gréta Siguröardóttir, hárgr.k. (93) 8347 Rögnvalur Ingólfsson, (93) 4122 Ólafur Guöbjartsson, (94) 1129 Jón Bjarnason, (94) 2541 Siguröur Guðmundsson, símst.stj. (94) 2148 Gunnar Proppé, (94) 8125 Erla Hauksdóttir og Þóröur Júlíusson, (94) 7760 Páll Friöbertsson, (94) 6187 Kristján S. Pálsson, (94) 7209 Hálfdán Kristjánsson, (94) 6969 og 6970 Þorsteinn Þorsteinsson, (95) 3185 Pétur Ingjaldsson, (95) 4695 Guöm. Rúnar Kristjánsson (95) 4798 Guðmundur Þ. Benediktsson, (96) 62266 Kristinn Guölaugsson, (96) 61192 Björgvin Pálsson (96)61704 Gyöa Þóröardóttir, (96) 81114 Ólafur Friðriksson, (96) 52132 og 52156 Steingrímur Sæmundsson, (97) 3168 Ólafur M. Ólafsson, 197) 2235 og 2440 Hrólfur Hraundal, (97) 7535 Helgi Hálfdánarson, (97) 6272 Gísli Sigurjónsson, (97) 4113 Hans Aöalsteinsson, (97) 5167 Rafn Svan Svansson, (97) 5640 Ásbjörn Karlsson, (97) 8825 Guömundur Jónsson, Bogaslóð 12, (97) 8134 og Unnsteinn Guömundsson, Fiskhóli 9, (97) 8227 Svava Árnadóttir, (99) 5851 Nína Sveinsdóttir, (92) 7461 Guðlaug Pálsdóttir, (91) 54084 Bjarni Sigurösson, (91) 45644 og 43829 Kristinn P. Michelsen, (91) 14499

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.