Morgunblaðið - 26.06.1980, Side 46

Morgunblaðið - 26.06.1980, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 1980 V* PEUC • Pétur Pétursson skorar jöfnunarmark íslands gejín Finnum. Það er ekki á hverjum degi sem ísland skorar mark og því við hæfi að birta stóra mynd af atburðinum. u<5*m. Mbi. Krtóján. Pétri tókst ísland náði ÍSLENSKA landsliðinu í knattspyrnu tókst að ná jafntefli 1 —1, á móti frekar slöku landsliðið Finniands á Laugardalsveliinum i gærkveldi. Mark íslands skoraði Pétur Pétursson þegar sex minútur voru til leiksloka. Fékk hann )?óða stungusendingu frá Árna Sveinssyni og tókst að skora af stuttu færi og jafna ieikinn. Pétur naut góðrar aðstoðar frá Arnóri sem varnaði einum finnska varnarmanninum að komast á milli. Segja má að þetta mark hafi beinlínis hjargað heiðri íslenska liðsins í ieiknum. Liðið iék alls ekki vel, og alia leikgleði og baráttuvilja vantaði. Ef eitthvað var, þá var finnska liðið sterkari aðiiinn. Engu að siður verður það að teljast tii tiðinda að knattspyrnulandsliðið nái jafntefli i leik. Síðast gerðist það 3. sept. árið 1978, en þá gerði ísland jafntefli við landslið Bandarikjanna. Og jafnframt gladdi það hina fjölmörgu áhorfendur að fá nú loks að sjá mark hjá islenska landsliðinu. Siðasta mark sem liðið skoraði var á móti Sviss 9. júní 1979. að skora og jafntefli Daufur fyrri hálf- leikur Það var fátt sem gladdi augað í fyrri hálfleiknum. Lengst af var um miðjuþóf að ræða hjá liðunum. íslenska liðið sótti öllu meira framan af en enginn broddur var í sóknarleik þess. Finnska liðinu gekk mun betur að Ieika saman úti á vellinum en það sama var uppi á teningnum hjá framlínumönnum þeirra, þeir höfðu ekki lagá því að skapa hættu við markið. Tvö bestu tækifæri íslenska liðsins í fyrri hálfleik voru er Teitur komst einn í gegn eftir að hafa fengið góða sendingu frá Arnóri. En hann missti boltann of langt frá sér, og Finnar bægðu hættunni frá. Á 42. mínútu átti STAÐAN FIMM umferðum er nú lokið í 2. deild íslandsmótsins i knatt- ’I spyrnu og er staðan nú þessi: ■ Þór 5 4 0 1 12:3 8 ■ KA 5 3 11 10:4 7 2 ÍBÍ 5 3 11 12:9 7 ' Haukar 5 3 11 11:10 7 ^ Völsungur 5 3 0 2 6:5 6 ^ Fylkir 5 2 12 9:4 5 ^ Þróttur 5 2 0 3 8:12 4 m Ármann 5 113 6:10 3 ™ Selfoss 5 113 6:12 3 } Austri 5 0 0 5 4:13 0 svo Sigurður Halldórsson góðan skalla rétt yfir þverslána eftir vel framkvæmda aukaspyrnu. tækifæri finnska liðsins eru varla umtalsverð, þó voru þeir mjög nærri því að skora á síðustu ÞAÐ var frekar lítið varið í þennan leik og fátt sem gladdi augað“ sagði Teitur Þórðarson, sem lék sinn fyrsta landsleik f. ir ísland síðan síðasta sumar. er hann lék með gegn Q 'iss. Teitur varð að yfirgefa leikvöll- inn seint i leiknum vegna tognun- ar. „Það vantaði ekki leikgleði í liðið eða baráttu. það vantaði hreinlega samæfingu. Það cr erf- itt að ætlast til þess að gerðir séu stórir hlutir, þegar margir nýir menn eru i liðinu og það kemur °kki saman fyrr en rétí fyrir »eik. Hins vegar tel é„ uð við hefðum unnið þetta finnska lið á góðum degi“ sagði Teitur enn fremur. Mbl. spurði Teit hvort að hann væri ánægður með eigin frammi- ísland — Finnland ■■ mínútunni. Fastur skallabolti fór rétt framhjá stönginni. Hafði Bjarni markvörður þá misst bolt- ann yfir sig og einn finnski leikmaðurinn var óvaldaður en mistókst að skora. Finnar skora á fyrstu mínútu síðari hálfleiksins Það var rætt um það meðal áhorfenda í hálfleik að íslenska liðið tæki við sér í þeim síðari. En þar brugðust spár manna. Liðið stöðu, hann svaraði: — Eins og ég sagði, þá gerðist ekki nokkur skapaður hlutur hjá okkur í fram- línunni leikur liðsins var allt of tilviljanakenndur. Það er alltaf verið að reyna þessar langspyrnur fram völlinn, þar sem framherj- arnir eru fyrir og verða að glíma við fjölmennar varnir. Það eru aldrei reyndar stuttar sendingar og samleiksfléttur, eitthvað til að gera hlutina skemmtilegri. Teitur lék með íslenska liðinu sem gerði jafntefli 2—2, gegn Finnum á Laugardalsvellinum hér um árið. Mbl. bað um samanburð: „Það er erfitt að gera upp á milli finnska liðsins þá og nú, það er svo langt um liðið. Hins vegar lékum við vel um árið og vorum óheppnir að sigra ekki. Þetta finnska lið virðist ekki vera neitt sérstakt, þvert á móti“. var langt frá sínu besta hverju svo sem um er að kenna. Strax á fyrstu mínútu síðari hálfleiksins skoruðu Finnar. Virtanen brunaði upp vinstri kantinn og inn á miðjuna. Þar lenti hann í návígi við Trausta Haraldsson og hafði betur. Gaf hann síðan góða send- ingu inn á Ara Tissari sem var óvaldaður og hafði nægan tíma. Tissari lék inn í vítateiginn gaf sér góðan tíma, lagði knöttinn fyrir sig og skoraði örugglega framhjá Bjarna Sigurðssyni markverði sem reyndi að bjarga með út- hlaupi. Markið kom eins og köld vatns- gusa framan í áhorfendur. Þrátt fyrir að fá á sig mark, lifnaði ekkert yfir íslenska liðinu. Það var ekki fyrr en á 61. mínútu leiksins, að liðið tók smá sprett og góð sókn endaði með skallasendingu frá Pétri inn á Arnór sem skaut föstu skoti rétt framhjá stönginni. Síðustu 10 mínútur leiksins færðist smá líf í íslensku leik- mennina og pressuðu þeir þó allvel á finnska markið og fengu þrjár hornspyrnur í röð. Og svo loks sex mínútum fyrir leikslok tÓKst lið- inu að jafna metin eisn og áður sagði. Liðin Það þarf ekki að fara mörgum orðum um íslenska liðið. Leik- menn þess ollu vonbrigðum. Einna helst reyndi Karl Þórðarson að spretta úr spori, og hann ásamt Arnóri voru skástir í liðinu. Teitur og Pétur áttu erfitt uppdráttar og gerðu lítið. Teitur fór útaf vegna tognunar á 55. mínútu og Ólafur Júlíusson kom í hans stað. Janus Guðlaugsson sást ekki í leiknum og veikti það miðjuspilið verulega hversu slakur hann var. Sigurður Halldórsson og Mar- teinn léku sæmilega, en Trausti var í daufara lagi. Oskar Færseth kom inn á í stað Trausta og stóð vel fyrir sínu þann stutta tíma sem hann lék. Nýliðarnir Magnús Bergs og Bjarni Sigurðsson sluppu ágætleg frá leiknum. Magnús lék reyndar aðeins í fyrri hálfleik og kom Guðmundur Þorbjörnsson inn í hans stað og hleypti lífi í íslenska liðið. Finnska liðið lék ekki vel. Þeir náðu þó agætis samleiksköflum úti á vellinum en fátt var um fína drætti hjá þeim upp við markið. Besti maður liðsins var Kari Virtanen sem virkaði mjög traust- ur í vörninni. Dómari var Henning Lund Sörenssen og dæmdi hann með ágætum. - ÞR „Átti að síðustu „ÚR ÞVÍ sem komið var, var ég ánægður með úrslitin, en það er Ijóst að margt mátti betur fara úti á vellinum. Það er afleiðing- in af því að við höfðum Iitla sem enga möguieika á að samæfa landsliðshópinn. Að minum dómi hefði átt að klippa út siðustu umferðina i 1. deild og gefa okkur möguleika á því að samæfa liðið,“ sagði Guðni Kjartansson landsliðsþjáifari eftir lcikinn. Hann sagði meira: „Ég tek sem dæmi, að fyrsta landsliðsæfingin var haldin á fresta umferð" þriðjudaginn, svo er landsleikur á miðvikudaginn. „Það vakti athygli manna, að nokkrir at- vinnumannanna í liðinu sýndu ekki þá yfirburði umfram áhugamennina sem þeir sýndu í leiknum gegn Wales. Var að sja að þeir væru hreinlega æfingar- litlir. Mbl. spurði hvort rétt væri að velja þá í liðið við þessar aðstæður. Guðni sagði „við erum búnir að velja þennan kjarna og notum þessa menn meðan engir aðrir innanlands reynast sterkari". „Hefðum unnið á góðum degi“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.