Morgunblaðið - 26.06.1980, Side 48
Sími á ritstjóm og skrifstotu:
10100
Síminn á atgreiðslunni er
83033
|^t>r^ttní>Iní>tí>
FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ1980
Hækkun gasolíu
kostar útgerðina
5.2 milljarða kr.
KOMI til framkvæmda 41 krónu hækkun á Kasolíu eins ok
VerðlaKsráð hefur lajít til við ríkisstjórnina. þýðir það 5.2 milljarða
útgjaldaaukningu fyrir fiskiskipafiotann á ári, að þvi er Morgunblað-
ið fékk upplýst hjá Kristjáni RaKnarssyni, formanni LÍÚ i Kær. Hann
saKði. að í mörKum tilvikum dyKði fiskverðshækkun frá siðustu
mánaðamótum ekki fyrir þessari hækkun olíuverðs. sem væri
yfirvofandi ok væri það m.a. vegna þess, að um þetta leyti árs væri
mikið veitt af ódýrari fiskteKundum.
— Ég hef orðið var við meira
en nokkru sinni áður að nú í
þorskveiðibanni áforma menn
að leggja skipum sínum í stór:
um stíl, sagði Kristján. — í
mörgum tilfellum hefst ekki
fyrir kostnaði og þar er olían
langsamlega stærsti liðurinn.
Með svona verði er ekki hægt að
reka skipin nema þegar afla-
brögð eru eins og þau gerast
bezt.
— Komi þessi hækkun til
framkvæmda verður gasoiía hér
á landi 40—50% hærri heldur en
í nágrannalöndunum. Þetta yrði
okkur mjög alvarlegt áfall og
sérstaklega þegar það er haft í
huga, að olíugjaldið er nú 2.5%,
en var 12% í fyrrasumar. Það er
ekki spurning um, að það þurfi
að vera mun hærra, en það nú
er, sagði Kristján Ragnarsson.
• Pétur Pétursson skorar jöfnunarmark íslands í landsleiknum gegn Finnum í
gærkvöldi. Sjá nánar um leikinn á blaðsiðu 46. Ljó.sm. Knstján.
Muskie Ólafur
Slitnað hefur upp
viðræðum ASI og
SLITNAÐ hefur upp úr samningaviðræöum milli Alþýðusam-
bands íslands og Vinnuveitendasambands íslands. Gerðist þetta
í gærmorgun, en sáttafundur hófst klukkan 08. f fyrradag hafði
samningaráð VSÍ lagt fram þá kröfu, að ASÍ samþykkti að
ganga út frá hlutfallslegum verðbótum við áframhald við-
ræðna, en samninganefnd ASÍ hafnaði því þegar í stað. í
gærmorgun reyndi sáttanefnd rikisins að telja fulltrúa VSÍ
ofan af þessari kröfu, en þeim varð ekki haggað. Síðdegis í gær
sat hin fjölmenna samninganefnd ASÍ á fundi. sem frestað var
til klukkan 15 i dag og var staða samningamálanna ekki
útrædd.
Nato-fundur i Ankara:
Fundur Ólafs
og Muskie
líklegur
ÓLAFUR Jóhannesson utanrík-
isráðherra situr nú fund utan-
rikisráðherra Atlantshafs-
handaiaKsiandanna. sem hald-
inn er í Ankara í Tyrklandi.
Liklegt er taiið að ólafur muni
eÍKa sérstaka fundi með Ed-
mund Muskie, utanrikisráð-
herra Bandarikjanna, ok Carr-
inKton lávarði. utanrfkisráð-
herra Ðreta. en fundurinn i
Ankara er fyrsta tækifæri ólafs
til að hitta ýmsa utanrikisráð-
herra NATO-landa eftir að hann
tók við embætti utanrikisráð-
herra.
í fréttatilkynningu frá Vinnu-
veitendasambandinu, sem Morg-
unblaðinu barst í gær segir, að
samningaráð VSÍ telji að ekki sé
unnt að halda áfram umræðum
um samræmdan launastiga í til-
lögum að kjarnasamningi nema
fyrir liggi samkomulag um hlut-
fallslegar verðbætur, enda telur
VSI útilokað að samræma launa-
stiga nema með hlutfallslegri vísi-
tölu. Síðan segir: „Verðbótakerfi
af því tagi, sem viðræðunefnd ASI
heldur fast við eyðileggur á mjög
skömmum tíma samræmdan
launastiga. Óhjákvæmilegt var
því, áður en lengra var haldið, að
fá skýr svör við því, hvort ASÍ
samþykkti hlutfallslegar verðbæt-
ur.
Það knúði ennfremur á að úr
þessu yrði skorið, að ríkisstjórnin
hefur fyrir skömmu gert að tillögu
sinni í samningum við BSRB
Sumaríþróttahátíð ÍSÍ:
Reiknað er með tíu þúsund
þátttakendum í hópgöngunni
SUMARÍÞRÓTTAHÁTÍÐ ÍSÍ
verður sett í dag. Er hér um
umfangsmikla iþróttahátið að
ræða. en keppt verður m.a. í 17
íþróttagreinum. Fyrsta atriði
hátiðarinnar var reyndar lands-
leikur íslands og Finnlands i
knattspyrnu i gærkvöldi, en
förmleg setning fer fram í dag.
Hún hefst á því að Kristján
Eldjárn forseti Islands, tendrar
íþróttahátíðareldinn við norð-
vestur-enda Tjarnarinnar klukk-
an 18.00. Formaður hátíðarnefnd-
arinnar mun einnig flytja ávarp.
Eftir að eldurinn hefur verið
tendraður, munu 30 hlauparar
skiptast á að hlaupa með kyndil
um Reykjavík og skila honum að
lokum á Laugardalsvöllinn. Mikil
hópganga íþróttafólks mun hefj-
ast við Sunnuveg kl. 18.30 og mun
göngufólkið ljúka göngunni á
Laugardalsvellinum. Er áætlað
að allt að 10.000 manns muni taka
þátt í göngunni.
Þegar göngufólkið hefur komið
sér fyrir á leikvanginum og síð-
asti hlauparinn hefur tendrað eld
á þaki áhaldaskúrs á staðnum
hefst sjálf setningarathöfnin.
íþróttafólkið mun vera þar undir
íslandsfánum, íþróttahátíðarfán-
um og félagsfánum. Kynnir setn-
ingarathafnarinnar er Sveinn
Björnsson, en ávörp flytja þeir
Gísli Haíldórsson forseti ÍSÍ,
Tómas Árnason viðskiptaráð-
herra og Sigurjón Pétursson for-
seti borgarstjórnar. Verður
margt fólki til skemmtunar þetta
fyrsta kvöld hátíðarinnar, en hún
stendur síðan yfir til sunnudags-
kvölds og lýkur þá með dansleik
og flugeldasýningu.
verðbótakerfi, er tekur mið af
tillögum ASÍ."
Þá segir í tilkynningunni, að
ASÍ hafi með neikvæðri afstöðu
sinni stöðvað frekari samninga-
viðræður. VSÍ geti ekki fallizt á að
halda áfram viðræðum nema ASI
viðurkenni að hlutfallslegar verð-
bætur séu forsenda samræmds
launastiga og fallist á að hefja
viðræður um almenn kjaraatriði í
kjarnasamningstillögunum. Þá
ítrekar VSÍ, að við núverandi
aðstæður sé ekki hægt að gera
kjarasamninga, er auki heildar-
launakostnað.
Haukur Már Haraldsson,
blaðafulltrúi ASÍ sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að samn-
inganefndarfundinum hefði verið
frestað. Þar til nefndin kæmi
saman á ný, myndi undirnefnd
starfa. Haukur Már kvað viðræður
samningsaðila hafa snúizt um það,
sem VSI hefði óskað eftir að yrði
rætt, en hingað til hefðu mál alls
ekki snúizt um vísitölumál. Því
hefði ekki verið rætt um vísitölu-
mál og kvað hann það fyrirslátt
hjá VSÍ er þeir fullyrtu um
óeiningu innan samninganefndar
ASÍ. VSÍ hefði nú komið í veg
fyrir viðræður, ekki aðeins með
kröfu um hlutfallslegar verðbætur
heldur einnig með kröfu um að
rætt yrði um B-lið krafna VSÍ um
félagsleg atriði, þar sem þeir
gerðu kröfu um kjaralækkun, m.a.
á atriðum er bundin eru í lands-
lögum. Þessum B-lið hafi ASÍ
algjörlega verið búið að hafna.
Sjá frettatilkynningu frá VSÍ i
heild á miösiðu
Brauð hækka
í verði í dag
LANDSSAMBAND bakara-
meistara hefur ákveðið að
hækka verð á brauðum i dag
og mun hækkunin verða aug-
lýst i dag, að þvi er Mbl. hefur
eftir áreiðanlegum heimild-
um. Munu þau brauð hækka í
verði, sem heyra undir verð-
lagsyfirvöld og er ástæða
þessa sú, að bakarar eru mjög
óánægðir með hve litlar hækk-
anir þeir hafa fengið á undan-
förnum mánuðum og telja þær
of lágar. Auk þess hefur
rikisstjórnin ekki afgreitt
samþykkt verðlagsráðs frá
þvi um siðustu mánaðamót, en
þar var gert ráð fyrir 9'/2—
14% hækkun á „vísitölubrauð-
um.“
Unglingspiltur slasast
alvarlega í Landeyjum
UNGLINGSPILTUR slasaðist alvarlega, þegar hann féll aftur yfir sig
af stuðara Land-Roverjeppa og varð undir bilnum, við félagsheimilið
Njálsbúð í Vestur-Landeyjum á þriðjudagskvöld. Pilturinn var fluttur
til Reykjavikur i fylgd læknis og liggur hann nú á Gjörgæsludeild -
Borgarspitalans, en hann hlaut meðal annars alvarleg höfuðmeiðsl ug
var i gær enn meðvitundarlaus.
Tildrög slyssins voru með þeim
hætti að hópur ungmenna var
saman kominn við Njálsbúð vegna
íþróttaæfingar, sem þar fór fram.
Tveir piltar fóru þá upp á fram-
stuðara Land-Roverjeppa, sem var
á ferð en annar þeirra féll skömmu
síðar aftur yfir sig og er ekki Ijóst
hvort hann datt eða spyrnti sér frá.
Lenti pilturinn í götunni og undir
jeppanum. Pilturinn var meðvit-
undarlaus, þegar læknir kom á
staðinn og var hann eins og fyrr
sagði fluttur til Reykjavíkur.