Morgunblaðið - 19.07.1980, Qupperneq 1
40 SÍÐUR
160. tbl. 67. árg.
LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
3 menn ætluðu að
myrða Bakhtiar
Frá hinni róstusömu kvennaráðstefnu í Höfn. Hér sést leiðtogi „innrásarliðsins" frá Bólivíu. Domitilia
Barrios de Chungare, en hún sat á annarri kvennaráðstefnu í bortnnni. Hún hefur margsinnis átt i
útistöðum við stjórnvöld í Bóiiviu fyrir að reyna að skipuleggja þar kvennasamtök, sem hefðu jafnrétti á
stefnuskránni.
Allt í uppnámi á
kvennaráðstefnu
Mið- og suður- amerískar konur
réðust inn í ráðstefnusalinn
Kaupmannahofn. 18. júli. AP.
HÓPUR KVENNA frá Bolivíu og fleiri löndum Suður- og Mið-Amer-
íku lentu i ryskingum við dönsku lögregluna i dag er þær mótmæltu
byltingunni í Bólivíu á Kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Gengu
konurnar, um 60 talsins, fylktu liði að byggingunni sem ráðstefnan er
í og réðust inn í ráðstefnusalinn. Þær sögðust vilja benda bólivisku
sendinefndini og forseta ráðstefnunnar. Lise Östergaard. á það sem
gerðist nú í Bóliviu. Þar hefði herinn steypt löglega kjörinni stjórn af
stóli. Var konunum gefinn 5 minútna frestur til að yfirgefa salinn. Er
hann rann út kom lögregla á staðinn og ýtti þeim út úr salnum og
varð að draga nokkrar þeirra út. Sumar kvennanna grétu og virtust
særðar og varð ein að láta binda um handlegg sinn.
París 18. júli AP.
ÞRÍR menn reyndu í dag að ráða
Shaphur Bakhitar. fyrrv. forsætis-
ráðherra írans, af dögum, en
hann slapp óskaddaður með öllu.
Mennirnir þrír munu allir vera
Arabár. Þeir komust inn í húsið
þar sem Bakhtiar býr undir því
yfirskini, að þeir væru blaða-
menn. Síðan hringdu þeir bjöll-
unni á íbúð Bakthiars og þegar
lokið var upp hófu þeir skothríð
og ætluðu sér að ryðjast inn i
íbúðina. Lögreglumaður sem kom
til dyra var skotinn til bana og
grannkona Bakthiars, sem bjó í
íbúðinni á móti. og opnaði til að
vita hvað gengi á. var sömuleiðis
skotin og lézt stuttu siðar.
Gullið
lækkar enn
London. 18. júli. AP.
GULL lækkaði i verði á ýmsum
gjaldeyrismörkuðum i Evrópu i
dag og i London lækkaði gullúns-
an til dæmis um 16.50 dollara og i
Zurich um 21 dollar og nemur
lækkunin þar á einni viku samtals
sextiu dollurum.
Sérfræðingar í London og Ziirich
töldu sig ekki geta sagt um ástæð-
una fyrir þessari lækkun. Gullúns-
an í London var í kvöld seld á 608
dollara, en 671 dollar sl. föstudag. í
Ziirich á 606 dollara en var 668.50
sl. föstudag.
67 lifðu af
brotlendingu
Exeter, Knjílandi, 19. júlí. AP.
SEXTÍU og tveir farþegar og
fimm manna áhöfn sluppu lif-
andi, þegar flugvél þeirra frá
Alidair, brezku leiguflugfélagi,
brotlenti i sex milna fjarlægð
frá flugvellinum í Exeter. Segir
lögrcglan. að það sé krafta-
verk, að fólkið skyldi sleppa svo
vel og aðeins þrír farþegar fá
skrámur.
Farþegarnir höfðu verið í leyfi
í Santander á Norður-Spáni.
Þeir áttu að koma sjóleiðina
heim, en vegna bilunar í skipinu,
var ákveðið að leigja flugvél til
að flytja þá.
Um orsök slyssins var ekki
vitað að svo komnu, en margt
bendir til að velin hafi verið
orðin eldsneytislaus.
Þegar mennirnir sáu að þeim
myndi ekki takast að komast inn í
íbúðina ætluðu þeir að leggja á
flótta og skjóta sér leið út úr
húsinu. Tveir lögreglumenn komu á
móti þeim og skutu Arabarnir á þá,
og særðu annan. Hinum særða
lögreglumanni tókst þó að hleypa
af skoti og hitti einn Arabanna í
andlitið og gáfust mennirnir síðan
upp.
Talsmaður lögreglunnar sagði að
ákveðið hefði verið að herða örygg-
isgæzlu um Bakthiar, 48 klst. áður
eftir að ítrekaðar líflátshótanir
hefðu verið tilkynntar frá Teheran.
Hópur sem nefnir sig „Útverði
Islam" kveðst hafa dæmt Bakhtiar
til dauða en ekki er ljóst, hvort
mennirnir þrír voru úr þeim sam-
tökum.
Bakthiar sagði í viðtali við
franska útvarpið, að hér hefðu
greinilega verið atvinnumorðingjar
á ferðinni og sjálfsagt á snærum
þeirrar óábyrgu stjórnar sem nú
ríkti í ólánsömu landi hans.
Franska stjórnin hefur fordæmt
tilraunina harðlega og sagði hana
sérdeilis viðbjóðslega og allt yrði
gert sem hægt er til að rannsaka
málið niður í kjölinn.
Bakhtiar, akömmu eftir atlög-
una. Síðasti forsætisráðherra
keisarastjórnarinnar i íran gerir
sigurtáknið, er hann ræðir við
blaðamenn, skömmu eftir að þrir
vopnaðir menn komust inn í hús
hans i þeim tilgangi að ráða hann
af dögum.
Er út úr salnum kom settust
konurnar við innganginn og hróp-
uðu að lögreglunni.
Formaður sendinefndar Bolivíu,
Elba Ojara de Jemio, sem þá hafði
ekki ennþá flutt ræðu sína á
ráðstefnunni, fékk leyfi til að
ávarpa hana í dag. Hún sagði að
enn einu sinni hefðu ill öfl komið
af stað borgarastyrjöld í Bolívíu.
„Við áköllum allar þjóðir að
fordæma byltinguna,“ sagði hún
og var ákaft fagnað af ráðstefnu-
gestum. Hún sagði síðan við
fréttamenn að hún ætlaði að snúa
til Bolivíu áður en ráðstefnunni
lýkur. Óstaðfestar fréttir herma
að dóttir Lidiu Gueiler forseta
Bólivíu sem nú hefur verið steypt
af stóli hafi tekið þátt í ráðstefn-
unni en sé nú farin frá
Kaupmannahöfn.
Mótmæli kvennanna í dag voru
undir forystu Homitila Barrios de
Chungara, konu námuverkamanns
í Bolivíu og sjö barna móður. Hún
tekur þátt í þeim hluta ráðstefn-
unnar sem eru fyrir samtök óháð
ríkisstjórnum. Hún hefur s.l. ár
verið upp á karít við stjórnvöld í
Bolivíu vegna tilrauna til að
skipuleggja samtök kvenna þar í
landi.
Hún sagði við fréttamenn að
bolivískar konur á ráðstefnunni
væru gramar yfir því að vera ekki
heima til að taka þátt í „barátt-
unni gegn fasismanum". Darmal-
ila fór undan göngunni að ráð-
stefnusalnum.
Lögreglan hafði sýnilega búist
við mótmælum en varð þó að kalla
út aukalið. Þrátt fyrir það fengu
konurnar sínu framgengt. Lise
Östergaard kom út og talaði við
þær, og hluta kvennanna var leyft
að hlusta á er formaður bolivísku
sendinefndarinnar flutti ávarp
sitt.
Það gerðist einnig á ráðstefn-
unni í dag að írsk kona, dr. Rona
Fields, tók hljóðnema í blaða-
mannastúku og hóf að lesa mót-
mæli gegn handtökum kvenna í
Norður-Irlandi.
Mikið hefur verið um mótmæli
og mótmælaaðgerðir á ráðstefn-
unni sem sett var 14. júlí s.l. en
henni lýkur 30. júlí n.k. Fyrsta
starfsdag ráðstefnunnar 15. júlí
gengu fulltrúar þjóða Araba og
austantjaldslanda undir forystu
flugræningjans Leilu Khaleb, úr
salnum er kona Egyptalandsfor-
seta tók til máls og aftur er
fulltrúi ísraelsku sendinefndar-
innar tók til máls í gær. Síðar í
gær gengu fulltrúar 35 þjóða,
undir forystu fulltrúa Sovétríkj-
anna, úr ráðstefnusalnum er full-
trúi Kambódíu tók til máls.
Á svifdreka yf ir Atlantshaf ið
New York 18. júll. AP.
TUTTUGU og átta ára gamall
Kaliforníubúi. Joseph Carter,
hyggst leggja af stað nk. mánu-
dag í ferð á mótorknúnum
svifdreka um Kanada, Græn-
land, ísland og Skotland. „Mig
hefur alltaf langað til að gera
eitthvað ævintýralegt,“ segir
Joseph en hann gengur undir
nafninu „Eagle Sarmont“ eða
Örn Sarmont. Hann segir nafn
þetta vera tilkomið vegna þess
að vinir hans segja hann eins
ákafan og örn og Sarmont er
nafn á fjalli i vinsælli vísinda-
skáldsögu.
Sarmont ætlar að leggja af
stað frá flugvelli nærri Far-
mingdale í New York-fylki og
fljúga þaðan að Frelsisstyttunni.
Frá Frelsisstyttunni heldur
Sarmont til Kanada og þaðan
yfir Atlantshafið til Grænlands
og íslands. Á leiðinni frá íslandi
til Skotlands gerir hann ráð
fyrir að lenda í Færeyjum. Alls
eru þetta 9.656 kílómetrar og
segist Sarmont ætla að fljúga
um 320—480 kílómetra í einu og
hvíla sig á nóttunni. Hingað til
hefur hann lengst flogið 64
kílómetra í einu.
Hópur manna mun fylgja hon-
um á bíl, bát eða lest, m.a.
vinkona hans Glaudine Chuin-
ard. Einnig mun flugvél verða til
taks ef Sarmont lendir í vand-
ræðum.
Svifdreki Sarmont ber heitið
„Andi Kaliforníu" og er vænghaf
hans 10,36 metrar. Mótorinn er
úr snjósleða en útbúinn til flugs
og getur drifið drekann um 48
kílómetra á klukkustund. Sarm-
ont verður klæddur í sérstakan
samfesting sem getur haldið
honum á floti í 22 klukkustundir.
Hann hefur einnig neyðarsendi
innan á sér til að auðvelda
björgunarmönnum leitina ef
hann hrapar.