Morgunblaðið - 19.07.1980, Síða 22

Morgunblaðið - 19.07.1980, Síða 22
HVAÐ ER AÐ GERAST UM HELGINA? 22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1980 Klúbbur Félagsstofnunar stúdenta: Boðið upp á lifandi músik KLÚBBUR Félaífsstofnunar stúdenta hefur ikllast nokkuð fastan sess í horKarlífinu. Ok þar er nú hoðið upp á lifandi músík fimm kvöld vikunnar. í kvöld laugardag, leikur hljómsveit Eyþórs Gunnarssonar jazz-rokk. Þar eru á ferðinni nokkrir félagar úr Mazzoforte. Sunnudagskvöldið er það svo hliómsveit hins alkunna trommu- leikara Guðmundar Steingríms- sonar sem kemur gestum í stemmningu með hressri jazz- tónlist. Klúbbur F.S. hefur nokkra sér- stöðu í skemmtanalífi borgarinn- ar. Auk tónlistarinnar eru þar á boðstólunum sjávarréttir og pizz- ur, að að ógleymdum vínunum. Klúbburinn er opinn öll kvöld frá kl. 20.00 til 01.00. Skálholtshátíðin Skálholtshátíðin verður um þessa helgi. Nánar tiltekið á sunnudaginn. Messað verður í Skálholtskirkju og munu Bisk- upinn yfir íslandi, herra Sigur- björn Einarsson og séra Guð- mundur Óli Ólafsson þjóna fyrir altari en séra Jakob Jónsson dr. theol prédikar, meðhjálpari Björn Erlendsson. Skálholtskór- inn syngur, forsöngvarar: Bragi Erlendsson og Sigurður Er- lendsson. Trompetleikarar verða Jón Sigurðsson og Lárus Sveinsson. Friðrik Dónaldsson leikur á orgel og söngstjóri verður Glúmur Gylfason. Róbert A. Ottóson raddsetti eða hljóm- setti alla þætti messunnar. Hringt verður til messu kl. 13.30. Seinna um daginn, eða kl. 16.30, verður svo samkoma í kirkjunni. Hefst hún með því að Ágústa Ágústsdóttir syngur ein- söng við undirleik Hauks Gísla- sonar. Þá mun dr. Gylfi Þ. Gíslason flytja ræðu og að henni lokinni leikur Friðrik Donalds- son á organ. M.a. verk eftir Bach, S:S. Weley, og John Stan- ley. Síðan verður ritningarlestur og bæn, sem séra Heimir Steinsson rektor annast og sam- komunni lýkur með almennum söng. Ferð að Skálholti verður frá Umferðarmiðstöðinni kl. 11.00 og frá Skálholti kl. 17.50. GALLERI DJUPIÐ SUÐURGATA 7: Ný sýnintí í SUÐURGÖTUNNI verður opnuð ný sýning í dag. laugardag. kl. 4 e.h. Það er Magnús Valdimarsson sem sýnir þar verk sem flest hafa orðið til í Hollandi á síðasta vetri. Sýningin stendur yfir frá 19.07. til 1.08. Opið er virka daga kl. 6—22 og um helgar kl. 4—22. „Miðbæjarmálarí“ í DJÚPINU I Hafnarstræti var opnuð i gær sýning hóps sem nefnir sig „Miðbæjarmálarí“. Eru það þau Anna Gunnlaugs- dóttir, Tom Einar Ege og Reynir Sigurðsson. Þau hafa öll stundað nám við Myndlista- og handíða- skóla íslands um lengri eða skemmri tíma og Anna auk þess framhaldsnám í París. Á sýning- unni eru 12 olíumyndir, allar málaðar á síðustu 2 árum. Eru flestar myndanna til sölu. Sýningin er opin daglega frá kl. 11—23 og lýkur miðvikudaginn 30.07. FERÐALEIKHÚSIÐ FRÍKIRKJUVEGI: Bjartar nætur FERÐALEIKHÚSIÐ heldur áfram sýningum á „Björtum nóttum“, Ligth nigths. að Fríkirkjuvegi 11. Sýningar eru fjórar í viku fram til 31. ágúst, þ.e. á fimmtudags-, föstudags-, laugardags-, og sunnudagskvöldum, og hefjast kl. 21.00. Light nights er sýn- ing sérstaklega ætluð ensku- mælandi ferðamönnum til skemmtunar og fróðleiks. Opnunarsýningin heldur áfram í hinu nýopnaða Galleri Langbrók, en það er til húsa i Bernhöftstorfunni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.