Morgunblaðið - 19.07.1980, Side 40

Morgunblaðið - 19.07.1980, Side 40
"cHaust NÝR MATSEÐILL STEIKT HEILAGFISKINAUST Opið alla dajja fra Id. 11*24 2/ wl*. V-/" ’ T| Siminn 83033 LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ1980 LÆKJARTORGSSKÁKMÓT Mjolnis. hið fjórða i röðinni fór fram i j?ær í björtu veðri. Úrslit urðu þau að Helgi ólafsson varð hlutskarpastur með 14 vinninxa af 18 mögu- le«;um, en hann tefldi fyrir l’joðviljann. Jón L. Árnason. sem tefldi fyrir Smíðajárn varð annar með 13 'k vinninK, Braid Kristjánsswn, sem tefldi fyrir Almennar trynKÍnKar hlaut 13 vinninKa, Benedikt Jónasson, sem tefldi fyrir Byko hlaut 12 'k vinning, Haukur Angantýsson, sem tefldi fyrir Kmmessis hlaut II ‘k vinning og Karl borsteins, sem tefldi fyrir Morgunblaðið hlaut 10 'k vinning. Keppend- ur voru alls 19. Góð verðlaun voru veitt og hiaut sigurveg- arinn t.d. 200 þúsund krónur. Upp úr slitnar milli ASÍ og VSÍ: ASÍ og Sambandið hef ja sérviðræður VIÐRÆÐUSLIT urðu milli Alþýðusambands íslands og Vinnuveitenda- samhands íslands á sáttafundi í gær. er upplýst var að ASÍ hefði óskað eftir sérviðræðum við Vinnumálasamband samvinnufélaga og hefur fyrsti fundurinn í þeim verið boðaður klukkan 14 á þriðjudag. I fréttatilkynn- ingu, sem VSÍ scndi frá sér í gær, segir, að samningaráð Vinnuveitenda- sambandsins liti svo á. að viðræðunefnd ASÍ hafi með fyrirvaralausri ósk um sérviðræður við VMSS rofið samningaviðræðurnar og þar með hindrað frekara sáttastarf milli ASÍ og VSÍ. Á viðræðufundi ASÍ og VMSS lagði formaður þess, Hallgrímur Sigurðsson, fram tillögu um að öllum samningum yrði frestað um eitt ár með ákveðnum forsendum. Á meðan yrði samræmdur samningur og reynt að komast að niðurstöðu um hvað hann kostaði og rcynt að koma honum á í áföngum. reyndist hann of dýr. Flugleiðir selja 2 Boeing-þotur Endanlegir samningar í næstu viku SAMNINGAR hafa að undan- förnu staðið yfir milli Flug- leiða ok jÚKÓsiavneska fluKfé- laKsins. Air Adria, um kaup JÚKÓslavanna á báðum Roeing 727-100 vélum FIuKleiða, þ.e. elztu vélum félaKsins. Sam- kvæmt upplýsinKum Mbl. munu þessir samnintcar fara fyrir stjórnir beguja fyrirtækj- anna i næsta viku ok þá ákveð- ið endanlega hvort af sölu verður. Flugleiðir hafa á undanförnum mánuðum reynt að selja aðra vélina, en ekki gengið, þrátt fyrir að ýmsir aðilar, m.a. frá Mexíkó og Suður-Ameríku hafi skoðað þær. Samkvæmt upplýsingum Mbl. hefur mikill fjöldi véla af þessari gerð komið á sölumarkað- inn á undanförnum mánuðum, en júgóslavneska fyrirtækið hefur áhuga á vélum Flugleiða vegna þess, að á þeim eru sérstakar vöruflutningadyr, sem eru alla jafna ekki á vélum af þessari gerð. Ef af sölu vélanna verður, mun það raska áætlun Flugleiða veru- lega, þannig að félagið yrði að fá eina vél aftur inn í flotann, hvort sem um kaup eða leigu yrði að ræða, en ákvarðanir hafa enn ekki verið teknar um það. Er Mbl. bar þetta undir Sigurð Helgason, forstjóra Flugleiða sagðist hann ekki kannast við neina fyrirhugaða sölu á vélum félagsins. — „við höfum verið að reyna að selja eina vél, en ekki tekist og það er ekkert nýtt í þessu máli,“ sagði Sigurður Helgason ennfremur. Eftir að samningar ríkisins við BSRB náðust ekki, en ráðherrar höfðu metið, að þeir væru á loka- stigi, beindu menn meir sjónum sínum til ASÍ og vinnuveitenda til þess að freista þess að ná samkomu- lagi þar. Munu ráðherrar hafa átt viðræðufundi við aðila til þess að reyna að þrýsta á að samkomulag tækist. Á sáttafundinum í gær upplýsti svo formaður Vinnumála- sambands samvinnufélaganna, að hann hefði setið þrjá viðræðufundi með ASÍ og að hann teldi tillögur VSÍ um kjarnasamning óraunhæf- ar. Að þessum upplýsingum fengn- um lýstu fulltrúar VSÍ yfir því að þeir drægju sig út úr samningavið; ræðunum á meðan sérviðræður ASI og VMSS færu fram. Á fundinum kom ennfremur fram að þessar viðræður hefðu ekki verið með vitund sáttanefndarinnar. Þegar afstaða VSÍ lá fyrir, óskuðu fulltrúar ASÍ eftir sameiginlegum fundi með VSÍ, þar sem þeir neituðu að hafa átt viðræðufundi við Vinnu- málasambandið, hvorki formlega fundi né einkasamtöl. Hins vegar kvað Snorri Jónsson samninganefnd ASI hafa formlega ákveðið, að óska eftir viðræðufundi með VMSS á þriðjudag. Var þá afstöðu VSÍ ekki breytt og óskuðu VSÍ-menn eftir að formaður Vinnumálasambandsins viki af lokuðum fundum vinnuveit- enda á sáttafundinum. Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambands ís- lands, sem sæti á í samninganefnd ASI, sagði í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gær að engar viðræður hefðu átt sér stað milli ASI og VMSS, en hann kvaðst gera sér grein fyrir því, að menn ættu erfitt með að trúa sér eftir yfirlýs- ingu Hallgríms Sigurðssonar á sátta- fundi í gær, sem hann raunar hefði síðar dregið til baka. Kvað Guð- mundur Hallgrím hljóta að vera að rugla þar saman fundi, sem hann muni hafa átt með ráðherrum Framsóknarflokksins og Alþýðu- bandalagsins, en um það kvaðst hann þó ekki vita gjörla. Hann kvað Hallgrím Sigurðsson hafa lýst því yfir, að krafa ASÍ um 5% grunn- kaupshækkun væri ekki ósanngjörn og líkur bentu til að VMSS gæti hugsað sér að veita hinum lægst- launuðu slíka grunnkaupshækkun. Þó kvað hann það ekki hafa komið fram í viðræðum við Hallgrím, að VMSS mæti ýmsar réttindakröfur innan þessara 5 prósenta. Sjá viðtöl á bls. 3 og fréttatil- kynningu Vinnuveitendasambands íslands á bls. 5. 40% verndartollur á innflutt sælgæti SAMSTARFSHÓPUR frá iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti hefur að undanförnu unnið að tillögum til rikisstjórnarinnar um aðgerðir til aðstoðar innlendum sælgætisiðn- aði, sem hefur átt mjög erfitt uppdráttar eftir að sælgætisinn- flutningur var gefinn frjáls á þessu ári. Tillögur hópsins liggja nú fyrir og samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins, er þar meðal annars gert ráð fyrir því, að sérstakur verndartollur verði lagður á allt innflutt sælgæti. í fyrstu verði tollurinn 40%, en síðan lækki hann niður í 20% einhvern tima á næsta ári og loks verði hann afnuminn um ári eftir það. Þessi verndartollur er fyrst og fremst hugsaður til að aðstoða innlenda sælgætisframleiðendur til að aðlagast þeim breyttu aðstæð- um sem sköpuðust með frjálsum innflutningi. Verndartollar af þessu tagi eru óleyfilegir samkvæmt lögum og reglum EFTA, Fríverzlunarsam- taka Evrópu, sem íslendingar eru aðilar að. Hins vegar má búast við því, að þeim rökum verði breytt í samskiptum við EFTA, að hér sé aðeins um tímabundnar aðgerðir til að hjálpa framleiðendunum til að aðlagast samkeppninni, enda verði gjaldið afnumið eftir ákveð- inn tíma. Hjörleifur Guttormsson, iðnað- arráðherra, vildi ekki tjá sig um innihald tillagnanna, en sagði, að formleg afstaða til þeirra yrði væntanlega tekin í næstu viku. Ríkisút- varpið vill rúm- lega 30% hækkun HÆKKUNARBEIÐNIR streyma nú inn frá opinberum fyrirtækjum og stofnunum enda eiga ha kkanir. ef leyfðar verða, að taka gildi siðustu 10 daga þessa mánaðar. svo þær komi inn í útreikning visitöl- unnar 1. september, Samkvsfemt uppiýsingum, sem Mbl. hefur aflað sér, hefur Ríkisútvarpið óskað eftir rúm- lega 30% hækkun afnotagjalda. Þess ber að geta að útvarpið sækir aðeins um hækkanir tvisvar á ári enda eru gjalddag- ar afnotagjalda tveir, 1. marz og 1. september. Áður hefur verið skýrt frá því að Hitaveita Reykjavíkur hefur óskað eftir 60% hækkun og Landsvirkjun 55% hækkun. Almenningsraf- veitur, sem selja rafmagn í smásölu, hafa farið fram á hlutfallslega sömu hækkun og Landsvirkjun en jafnan er við það miðað að þær fái rúmlega 40% af þeirri hækkun, sem heimiluð er á rafmagni í heild- sölu. Þá hafa hitaveitur víðs vegar um landið óskað eftir að fá að hækka gjaldskrár sínar. Önnur ríkisfyrirtæki halda sig við þá línu, sem ríkisstjórn- in hefur markað og hafa beðið um 9% hækkun. Má í því sambandi nefna Póst og síma og hafnir víðs vegar um landið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.