Morgunblaðið - 29.07.1980, Qupperneq 42
*
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 1980
Baráttuleik lauk
með jafntefli
LIÐ Hauka ok ísfirðinKa skildu
jöfn 1 —1, á lauKardaK. er liðin
mættust á Kaplakrikavellinum í
Hafnarfiröi. Ba-öi þessi liö hafa
alla burði til þess að hlanda sér i
toppbaráttuna í 2. deild i ár. En
þau eru nú skammt á eftir efstu
liðum deildarinnar. Leikurinn á
lauKardaK var mikill baráttuleik-
ur ok einkenndist knattspyrnan
nokkuð af þvi hversu harður
malarvöllurinn var. Lið ísfirð-
inKa var öllu betra liðið á vellin-
um ok átti að fá meira út úr leik
sinum en úrslitin seKja til um.
Fyrri hálfleikur liðanna var
Haukar—
ÍBÍ
frekar þófkenndur en þó brá fyrir
góðum köflum. Ekki tókst þó
leikmönnum að skora þrátt fyrir
að sæmileg tækifæri sköpuðust.
í síðari hálfleiknum færðist
meira fjör í leikinn. Lið ÍBÍ kom
ákveðið til leiks, og sótti mun
meira. Það voru þó Haukar sem
skoruðu fyrsta markið. Einn varn-
armanna ísfirðinga slæmdi hendi
í boltann inn í teig og réttilega var
dæmt víti. Ólafur Jóhannesson
skoraði af yfirvegun og öryggi úr
sprynunni. ísfirðingar gáfust ekki
upp þrátt fyrir mótlætið, sóttu í
sig veðrið, pressuðu stíft og, upp-
skáru loks mark á 82. mínútu. Það
var besti leikmaður þeirra, Andr-
és Kristjánsson, sem skoraði með
hælspyrnu eftir nokkurt þóf inn í
vítateignum. Þrátt fyrir mikla
pressu í lokin tókst liði IBI ekki að
ná báðum stigunum í leiknum.
- þr.
Markverðir streyma til Fram
FRAMARAR hafa heldur betur
fengið liðsauka fyrir komandi
handknattleiksvertíð. Tveir
kunnir markverðir hafa ákveðið
að leika með liðinu eftir því sem
Mbl. kemst næst.
Eru það Þórir
Flosason sem lék með ÍR á
síðasta keppnistimahili við goðan
orðstýr og Sigmar Þröstur
Óskarsson. unglingalandsliðsm-
arkvörður. sem leikið hefur allan
sinn skamma feril með Þór i
Vestmannaeyjum. Sigmar hygg-
ur að sögn á nám í Reykjavik og
mörg félög lögðu net sín fyrir
hann, enda snjall markvorður.
Markvarslan var helsti höfuð-
verkur Fram á síðasta keppnist-
ímabili, en fróðlegt verður nú að
sjá hvort Framarar ná umtals-
verðum árangri. En einn kemur þá
annar fer, Andrés Bridde fer að
öllum líkindum til Vestmanna-
eyja, þattil Þórs á nýjan leik, en
þar er Andrés heimavankur.
Koma markvarðanna tveggja ætti
hins vegar að bæta upp brotthvarf
Andrésar og vel það.
íslandsmótið í golfi er hafið
ÍSLANDSMÓT í golfi 1980, það
39. í röðinni. fer fram í Grafar-
hoiti i umsjón Golfklúbhs Reykja-
vikur. dagana 28. júlí til 2. ágúst.
Þátttakendur eru 259 frá 14
golfklúbbum viðs vegar að af
landinu. og hefur aldrei áður
verið eins mikil þátttaka.
Dagskrá mótsins er i aðalatrið-
um þannig, að 1. daginn er keppt
i Öldungaflokki með og án for-
gjafar. en í þeim flokki eru
einungis lciknar 18 holur. Auk
þess hefst á mánudegi keppni i 1.
flokki kvenna.
Á þriðjudegi fer fram sveita-
keppni og taka þátt i henni
sveitir frá 6 golfklúbhum. Þá
hefja einnig keppni 3. og 2.
flokkur karla. I flokkunum
(nema Öldungaflokki) eru leikn-
ar 72 holur á 4 dögum (16 holur á
dag). Meistaraflokkur karla og
kvenna og 1. flokkur karla hefja
keppni á miðvikudegi. Á mið-
vikudegi, fimmtudegi og föstu-
degi verða þannig um 225 kylí-
ingar ræstir út til keppni á dag.
Þessa daga hefst keppnin kl. 7 að
morgni og reiknað með að sið-
ustu kylfingar komi inn um
22.30.
Á laugardeginum 2. ágúst
hefst keppnin kl. 8 i 1. flokki
karla, en siðan verða Meistar-
aflokkarnir ræstir út til kl. 14.30
og er reiknað með að beztu
kylfingar i hvorum flokki fyrir
sig komi inn um kl. 16.00 i
Meistaraflokki kvenna og um kl.
18.00 i Meistaraflokki karla. ís-
landsmeistarar í golfi 1979 urðu
þau Hannes Eyvindsson og Jó-
hanna Ingólfsdóttir, bæði frá
Golfklúbbi Reykjavikur.
Sigurvegarar 1979:
Meistaraflokkur karla: Högg
Hannes Eyvindsson GR Meistaraflokkur kvenna: 298
Jóhanna Ingólfsd. GR 1. flokkur karla: 363
Guðni Ó. Jónsson GL 1. flokkur kvenna: 327
Jónína Pálsdóttir GA 2. flokkur karla: 418
Friðþjófur Helgas. NK 3. flokkur karla: 328
Sigurður Hólm GK Öldungaflokkur: 387
Gestur Magnússon GA Sveitakeppni: sveit Golfklúbbs Rvík. Stúlknameistari 1979: 83/72
Steinunn Sæmundsdóttir GR Stúlknameistari 1980: Steinunn Sæmundsdóttir Telpnameistari 1979: Þórdís Geirsdóttir GK Telpnameistari 1980: Þórdís Geirsdóttir GK Unglingameistari 1970 (piltameistari): Hilmar Björgvinsson GS
Unglingameistari 1980
(piltameistari):
Sveinn Sigurbergsson GK
Drengjameistari 1970:
Jón Þ. Gunnarsson GA
Drengjameistari 1980:
Héðinn Sigurðsson GK
Að þessu sinni eru allir beztu
kylfingar okkar með í baráttunni
um titlana, nema Jóhanna Ing-
ólfsdóttir, sem ekki getur komið
því við vegna starfa sinna. Meðal
keppendanna eru t.d. ungu menn-
irnir, sem tóku þátt í Evrópu-
meistaramóti unglinga, sem lauk í
Dusseldorf á sunnudeginum 27.
júlí.
Aðstaða fyrir keppendur er
mjög góð í Grafarholti og er meðal
annars mikill viðbúnaður í eldhúsi
skálans til að seðja allan þann
fjölda sem heimsækja mun Graf-
arholtsvöllinn meðan á mótinu
stendur.
Evrópumeistaramót unglinga
1980 verður haldið á Grafarholts-
velli íágústmánuði að ári og hafa
miklar framkvæmdir staðið yfir
til þess að gera völlinn sem bezt úr
garði, til þess að hýsa þetta fyrsta
Evrópumót, sem haldið er á ís-
landi.
Mikið undirbúningsstarf vegna
Landsmótsins 1979 hefur hvílt á
herðum fárra manna, en móts-
stjóri er Gunnar Torfason.
Óvænt
KA tapaði mjög óvænt fyrir
Þrótti austur á Norðfirði um
helgina og er það annað tap KA
á þessu keppnistímabili. Sigur
Þróttar var eftir atvikum sann-
gjarn, en liðið lék oft mjög vel,
einkum i siðari hálfleik er hvcrt
færið rak annað. Lokatölur
urðu 2—1 fyrir Þrótt, en KA
var þó engu að síður yfir í
hálfleik, 1-0.
KA var frískara liðið framan
af og á 15. mínútu uppskar liðið
fyrsta mark leiksins. Elmar
Geirsson skoraði þá laglega eftir
að hafa snúið af sér nokkra
varnarmenn Þróttar. Smám
saman náði Þróttur betri tökum
á leiknum, en það var þó ekki
tapKA
fyrr en í seinni hálfleik að liðið
fór fyrst að sýna veruiega
klærnar. Fljótlega skoraði Val-
þór Þorgeirsson, hann fylgdi vel
eftir góðu skoti sem markvörður
KA varði en hélt ekki.
Stórsókn Þróttar fylgdi í
kjölfar marksins. Hörður
Rafnsson skaut í þverslá og
Njáll Eiðsson átti skalla í stöng
áður en að sigurmarkið skaut
loks upp kollinum. Sigurbergur
Sigsteinsson þjálfari liðsins
skokkaði þá af venju inn í
vítateig mótherjanna er horn-
spyrna var dæmd. Var knöttur-
inn gefinn vel fyrir og Sigur-
bergur stökk upp og skallaði í
netið. VK/gg.
Austri fékk á
sig fimm mörk
ÞAÐ verður alltaf crfiðara og
erfiðara fyrir Austra að rifa sig
upp og bjarga sæti sínu í 2.
deild. Liðið sótti að þessu sinni
Imr heim og eftir tvö jafntefli i
röð og sæmilega frammistöðu i
þeim leikjum, hafa austanmenn
væntanlega trúað því að betri
timar væru framundan. En svo
var ekki á Akureyri a.m.k.. Þór
vann nefnilega yfirburðasigur,
5—0, eftir að staðan i hálfleik
hafði verið 2—0.
Gang leiksins ætti að vera
óþarfi að rekja, tölurnar tala
sínu máli um það atriði. Austra-
menn áttu varla nema tvær
umtalsverðar atlögur í leiknum.
bæði skiptin átti miðherjinn
Bjarni Kristjánsson hlut að
máli, en í báðum tilvikum rann
allt saman út í sandinn. Guð-
mundur Skarphéðinsson og
Oddur Óskarsson skoruðu mörk
Þórs í fyrri hálfleik og í þeim
síðari bættu óskar Gunnarsson,
Baldur Rafnsson og Árni Stef-
ánsson mörkum við. Besti maður
Þórs að þessu sinni var Guð-
mundur Skarphéðinsson sem var
potturinn og pannan í sóknarleik
liðsins. Auk þess sem hann
skoraði sjálfur eitt mark, átti
hann allan heiðurinn af þremur
öðrum.
IIT/gg.
Völsungar töpuðu
á heimavelli sínum
VÖLSUNGAR töpuðu á heima-
velli sínum fyrir Ármanni i 2.
deild íslandsmótsins í knatt-
spyrnu um helgina og má því
segja. að Húsavikurliðið hafi
heldur betur dalað eftir f jöruga
byrjun. Egill Steindórsson skor-
aði bæði mörk þessa leiks, bæði
fyíir Ármann.
Og bæði komu mörkin í fyrri
hálfleik, nánast á sömu mínút-
unni. Fyrra markið skrifast á
reikning Gunnars Straumland
markvarðar Völsungs, sem færði
Agli knöttinn á siifurfati í góðu
færi með lélegri markaspyrnu.
Mínútu síðar, eða varla það,
skoraði Egill svo aftur með
firnaföstu langskoti. Bætti sigur
þessi stöðu Ármanns verulega,
en liðið hefur ekki beinlínis
mokað inn stigum í sumar og er
því neðarlega í deildinni.
bs/gg.
Staðan í 2. deild
Staðan 1 2. deildinni er nú þannig eftir leiki helgarinnar:
KA 11 812 35- -9 17
Þór 11 812 25- -9 17
Haukar 11 542 22- -20 14
ísafjörður 10 442 22- -18 12
Þróttur 10 424 15- -19 10
Fylkir 10 415 17- -11 9
Yölsungur 10 325 11- -15 8
Ármann 11 245 19- -27 8
Selfoss 9 225 15- -23 6
Austri 11 038 13- -41 3
Hannes og Steinunn
sigruðu um helgina
Steinunn Sæmundsdóttir sigraði
i Lancome kvennakeppninni i
golfi sem fram fór á Nesvellinum
um helgina. Steinunn lék 36
holur með forgjöf á 161 höggi.
Sólveig Þorsteinsdóttir GR lék á
169 höggum. Þriðja varð Jakop-
ina Guðlaugsdóttir GV á 171. í
keppni með forgjöf sigarði Ás-
gerður Sverrisdóttir lék á 143
höggum, önnur varð Guðfinna
Sigurþórsdóttir GS á 14 höggum.
Þá fór fram Einherjakeppni í
golfi á Hvaleyrarholtsvelli, þar
sigraði Hannes Eyvindsson eftir
að hafa leikið bráðabana gegn
Eiríki Smith. Alls kepptu 17
kylfingar. Einherjar eru þeir sem
leikið hafa holu í höggi. Úrslit
keppninnar urðu þessi:
Hannes Eyvindsson, GR 34 pkt.
Eiríkur Smith, GK 34 pkt.
Júlíus R. Júlíusson, GK 32 pkt.
Gunnar Árnason, GR 31 pkt.
Leifur Ásmundsson, 31 pkt.
Knútur Björnsson, KG 31 pkt.
Magnús Halldórss., GK 28 pkt.
Ólafur Skúlason, GR 28pkt.
Kjartan L. Pálsson, NK 28 pkt.
Björgvin Þorsteinss., GA 27 pkt.