Morgunblaðið - 26.08.1980, Side 1
44 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTT ABL AÐI
191. tbl. 68. árg. ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Pólska stjórnin lætur undan:
Yiðræður við verka-
menn hef jast í dag
Leszek Walesa, leiðtogi
verkfallsmanna í Gdansk.
ávarpar verkamenn í
Lenín-skipasmiðastöðinni
í Gdansk um helgina. Wal-
esa sagði í ræðu sinni, að
verkföllunum mundi ekki
linna fyrr en gengið hefði
verið að kröfum verka-
manna. (Simamynd AP)
Símasambandi komið á við Gdansk
Gdansk. Varsjá. 25. áKÚst. AP.
PÓLSKIR verkfallsmenn hafa ákveðið að taka að nýju upp
viðræður við fulltrúa ríkisstjórnarinnar, þar sem stjórnin
hefur fallizt á að koma á eðiilegu síma- og fjarskiptasam-
bandi við Gdansk og aðrar borgir, þar sem vinna hefur legið
niðri. Lech Badowski, einn leiðtoga verkfallsmanna, til-
kynnti í kvöld, að viðræðurnar myndu hefjast á þriðju-
dagsmorgun.
Afganistan:
Frelsissveitirnar
í sig veðrið
Pólska ríkisstjórnin hafði fyrr
í dag lýst því yfir, að hún mundi
ekki ganga til viðræðna við
verkfallsmenn fyrr en þeir féllu
frá kröfu sinni um að símasam-
bandi yrði komið á við verkfalls-
svæðið.
Leiðtogar verkfallsmanna virt-
ust í kvöld undrandi á því, að
stjórnin hefði látið undan og
virtist afstaða þeirra til samn-
inga sveigjanlegri en fyrr. „Aðal-
krafa okkar er um frjáls verka-
lýðsfélög. Ef hún næst fram, er
hægt að láta undan á örfáum
öðrum sviðum, en aðeins ör-
fáum,“ sagði Walesa, leiðtogi
verkfallsmanna, í kvöld. „Við
erum ekki að bíða eftir að ná
fram aukaatriðum, heldur mik-
ilvægum hlutum. Við verðum hér
í fimm ár, ef nauðsyn krefur,"
bætti Walesa við.
Ríkisstjórnin hefur fallizt á að
útvarpa fyrstu 20 mínútunum á
hverjum samningafundi fulltrúa
hennar og verkfallsmanna og
seint í kvöld sendi útvarpsstöðin
í Gdansk út segulbandsupptöku
af fyrsta fundi þessara aðila, en
hann var haldinn á laugardag.
Verkfallsmenn á tali i Lenin-
skipasmiðastöðinni i Gdansk.
Ii<>ndon. 25. ánÚNt. AP.
ÍRANSSTJORN hefur fyrirskip-
að hermönnum sinum við landa-
mæri íraks að vera við öllu
búnir, að þvi er Pars, hin
opinbera fréttastofa írans,
skýrði frá i dag. Þessi fyrirskip-
un kemur i kjölfar þriggja árása
herflokka frá írak inn i íran i
siðustu viku. í frétt Pars segir
að tveir íranir hafi látið lifið í
átökum við hermenn frá írak i
Yfirvöld hafa einnig lofað því,
að brátt muni verða unnt að
hringja til útlanda frá Gdansk og
Anna Walentinovic, sem staðið
hefur framarlega í röðum verk-
fallsmanna, sagði í kvöld, að
eðlilegt símasamband virtist
vera komið á milli Gdansk og
Varsjár.
Mieczyslaw Jagielski, fyrsti
varaforsætisráðherra Póllands,
er kominn til Gdansk á ný til
viðræðna við verkfallsmenn, en
hann hélt til Varsjár um helgina,
þegar ákveðið var að gera veiga-
miklar breytingar á ríkisstjórn-
inni og stjórn kommúnista-
flokksins.
Dagblöð í Póllandi sögðu í dag
frá ræðu Giereks um helgina, þar
sem hann greindi frá breytingum
á stjórninni og annarri viðleitni
stjórnarinnar til að koma til
móts við kröfur verkfallsmanna.
Leiðtogar verkfallsmanna voru
nefndir með nafni í blöðunum í
fyrsta sinni í dag.
Blöð í Júgóslavíu fóru í dag
vinsamlegum orðum um aðgerðir
stjórnar Giereks, en blöð í öðrum
löndum Austur-Evrópu greindu
lítt eða ekki frá þeim. Tass,
fréttastofan sovézka, sagði Babi-
uch, forsætisráðherra Póllands,
hafa hætt störfum „að eigin ósk“.
Sjá nánari fréttir frá
Póllandi á bls. 27 i Mbl. i
dag.
Zimbabwe í Sam-
einuðu þjóðirnar
New York, 25. ágúst. AP.
ZIMBABWE, áður Rhodesía, fékk
í dag aðild að Sameinuðu þjóðun-
um og verður 153. ríkið í samtök-
unum. Robert Mugabe forsætis-
ráðherra fór í dag fyrir sendi-
nefnd landsins hjá S.Þ. og er gert
ráð fyrir að hann ávarpi allsherj-
arþingið á þriðjudag.
siðustu viku og fimm hafi særzt.
Utvarpið í Teheran skýrði frá
því í dag, að hin nýja ríkisstjórn
landsins yrði kynnt þinginu á
næstunni, hugsanlega þegar á
þriðjudag. Þegar þingið hefur
lagt blessun sína yfir nýja ríkis-
stjórn má gera ráð fyrir að það
snúi sér að því að ræða örlög
bandarísku gíslanna, sem hafa
verið í haldi í landinu frá því í
sækja
Nýju-Delhi. 25. áffúst. AP.
FRELSISSVEITIR múhameðstrú-
armanna i Afganistan hafa hert
baráttuna við hersveitir Sovét-
manna og afganska herinn. að þvi
er fréttir frá Afganistan herma.
Skæruliðarnir hafa undanfarið
einkum haft sig i frammi i þremur
héruðum norðan Kahul og hafa
þeir drepið 30—35 stuðningsmenn
stjórnarinnar á degi hverjum, að
þvi er heimildir i Kabul herma. 1
hópi þeirra stjórnarsinna, sem
látið hafa lifið að undanförnu, er
borgarstjórinn i Charikar, um 50
kilómetrum fyrir norðan Kabul. *
Sovézkir hermenn i Afganistan
hafa nú tekið öll vopn gegn
skriðdrekum og loftvarnarbyssur
af afganska hernum, þar sem þeir
óttast að vopnin kunni að komast i
hendur skæruliða. Mikil upplausn
hefur verið í afganska hernum og
hefur hvert herfylkið á fætur öðru
nóvember sl.
íranskir byltingarmenn hafa
tekið starfsmenn brezku biskupa-
kirkjunnar í landinu höndum og
sakað þá um njósnir. Að sögn
útvarpsins í Teheran var mikið af
skjölum, skotvopnum og tækjum
gert upptækt við sama tækifæri.
Að sögn útvarpsins greiddi
Bandaríkjastjórn fyrir
njósnastarfsemi umræddra aðila.
gengið í lið með frelsissveitunum.
Vestrænar heimildir í Kabul telja
að nú séu aðeins um 30 þúsund
menn í hernum, en í fastaliði hans
voru 80 þúsund hermenn áður en
innrás Sovétríkjanna var gerð í
landið í desember.
Parls, 25. áirúst. AP.
FRANSKIR sjómenn gripu í dag á
ný til þess ráðs að loka höfnum i
Frakklandi til að leggja áherzlu á
kröfur um lægra oiiuverð og
hærra fiskverð. Lokuðu sjómenn
oliuhöfninni við Antifer skammt
frá Le Ilavre þrátt fyrir hótanir
stjórnvalda um að beita fiotanum
til að opna höfnina.
Sýnt þykir að samningaviðræður
um kröfur sjómanna, sem nýhafn-
ar eru, muni fara út um þúfur og
hafa fulltrúar sjómanna- og verka-
lýðsfélaga neitað að setjast að
samningaborði nema tryggt verði
að lögreglu- eða hervaldi verði ekki
beitt gegn sjómönnum.
Franskt varðskip kom í kvöld að
höfninni í Antifer og var búizt við
því að látið yrði til skarar skríða og
þeir fimm togarar, sem loka höfn-
inni, dregnir í burtu. Christian
Bonnet, innanríkisráðherra
Frakklands, sagði í dag, að sjó-
menn, sem hróflað hefðu við inn-
siglingarmerkjum við höfnina,
hefðu brotið lög og þeim yrði refsað.
Franska ríkisstjórnin mun á
miðvikudag ræða það ástand, sem
Miklir liðsflutningar hafa átt sér
stað á vegum sovézka hernámsliðs-
ins í Afganistan undanfarið og er
talið að um 10 þúsund menn hafi
verið fluttir í herstöð í Herat-
héraði skammt frá írönsku landa-
mærunum.
skapazt hefur við ítrekaðar lokanir
í frönskum höfnum.
Lucey vara-
forsetaefni
Andersons
WashinKton. 25. áxúst. AP.
JOHN Anderson, sem býður sig
fram utan flokka til embættis
Bandarikjaforseta, tilkynnti i
dag, að Patrick J. Lucey yrði
frambjóðandi sinn til embættis
varaforseta.
Lucey, sem er 62 ára að aldri,
er demókrati og var ríkisstjóri í
Wisconsin í nokkur ár. Jimmy
Carter gerði hann að sendiherra
Bandaríkjanna í Mexíkó eftir að
hann var kjörinn forseti, en
Lucey lét af þeim störfum fyrir
nokkru til að starfa að framboði
Edwards Kennedys öldunga-
deildarþingmanns. Anderson er
sjálfur þingmaður fyrir repúblik-
ana i fulltrúadeildinni.
íranski herinn í viðbragðs
stöðu við landamæri íraks
Höfnum í Frakk-
landi lokað á ný