Morgunblaðið - 26.08.1980, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1980
Ungur dreng-
ur beið bana
UNGUR drengur úr Reykjavík,
Sveinbjörn Sveinbjörnsson, niu
ára, beið bana i fyrradag, er
hann hrapaði i f jallinu fyrir ofan
Kirkjubæjarklaustur.
Hann hafði farið i gönguferð
upp i fjallið ásamt fleira fólki, en
kom ekki fram þegar fólkið kom
til baka. Hann fannst fijótlega en
var þá látinn. Talið er að dreng-
urinn hafi ætlað að taka myndir
þarna i f jallinu. en misst fótanna
með fyrrgreindum afleiðingum.
Reykjafoss og Skóga-
foss settir á söluskrá
REYKJAFOSS og Skógafoss,
systurskip Eimskipafélagsins,
sem byggð voru fyrir félagið árið
1965, hafa nú verið sett á sölu-
skrá. Skipin henta ekki lengur
félaginu þar sem verulega auknir
gámaflutningar og ný flutninga-
tækni hefur gert þau tæknilega
óhentug, samkvæmt upplýsing-
um félagsins.
Skipin hafa að undanförnu verið
í siglingum til Rotterdam og
Antwerpen, aðallega með stykkja-
vöru og hráefni og afurðir fyrir
Islenzka álfélagið.
Sala á skipum sem þessum er
nokkuð ótrygg, og samkvaémt upp-
lýsingum frá Eimskipafélaginu
geta liðið nokkrir mánuðir þar til
viðunandi samningar nást.
„Trúnaðarmál, sem
fram fer á sáttafundimí ‘
segir ríkissáttasemjari
„ÞAÐ hefur ekki tíðkast og
verður ekki gert, að opinbera
bókanir og yfirlýsingar á sátta-
fundum," sagði Guðlaugur
Þorvaldsson, rikissáttasemjari,
þegar Morgunblaðið spurði um
bókun hans á sáttafundi i sið-
ustu viku. Eins og kunnugt er
af fréttum, óskuðu fulltrúar
ASl eftir því að bókunin yrði
birt opinberlega og fulltrúar
VSl samþykktu það. Bókun
rikissáttasemjara var um um-
mæli fuiitrúa VSÍ um fund
þeirra og ráðherra á miðviku-
dag. „Það þjónar engum til-
gangi og er málinu ekki tii
framdráttar að birta það sem
sagt er á sáttafundum. Það, sem
þar fer fram, á að vera trúnað-
armál," sagði Guðlaugur Þor-
vajdsson.
í gær stóðu fundir hjá sátta-
semjara með sérsamböndum
ASÍ hverju fyrir sig og á að
halda þeim fundum áfram í dag.
En seinni hluta dagsins hafa
samninganefnd ASÍ og samn-
ingaráð VSÍ verið boðuð til
fundar hjá sáttasemjara.
Vilja auknar fisk-
landanir í Cuxhaven
NÝLEGA var hér á ferð sendi-
nefnd frá þýzku borginni Cux-
haven með borgarstjórann i
broddi fylkingar. Erindið var að
ræða við borgaryfirvöld og út-
gerðarmenn um fastar og auknar
fisksölur islenzkra skipa i Cux-
haven.
Að sögn Ágústs Einarssonar
hagfræðings LIÚ vilja Þjóðverj-
arnir tryggja stöðugar landanir
íslenzkra skipa í Cuxhaven. Hann
sagði að ekki væri möguleiki að
tryggja fastar landanir þar, en
hægt væri að beina fisksölum
þangað í eins ríkum mæli og
mögulegt væri. í því sambandi
hefði verið rætt við Þjóðverjana
um ýmis atriði, sem gætu liðkað
fyrir fisksölum, svo sem niðurfell-
ingu 4% markaðsgjalds. Sagði
Ágúst að þýzka sendinefndin hefði
ætlað að ræða þessi atriði nánar
og gefa svör um þau síðar.
Maðurinn
sem lézt
MAÐURINN, sem lézt sl. föstu-
dagskvöld í umferðarslysi á Hval-
fjarðarströnd, hét Oddur Ólafs-
son, til heimilis að Heiðargerði 6 á
Akranesi. Hann var fæddur 1918
og lætur eftir sig uppkomin börn.
20þúsund manns hafa heimsótt Heimilið ’80.
— Metaðsókn hefur verið að sýningunni
Heimilið ’80, sem haldin er í Laugardals-
höll um þessar mundir. Á þeim fjórum
dögum, sem sýningin hefur verið opin
hafa liðlega 20 þúsund manns heimsótt
hana að sögn Bjarna Ólafssonar, fram-
kvæmdastjóra Kaupstefnunnar, sem
heldur sýninguna. Ólafur K. Magnússon,
ljósmyndari Mbl. tók þessa mynd af
börnum, sem greinilega kunnu að meta
tívolíleiktækin, sem á sýningunni eru.
Loðnuveiðarnar hef jast brátt:
Loðnan stærri og
feitari en í fyrra
YFIRNEFND verðlags-
ráðs sjávarútvegsins hélt í
gær fyrsta fund sinn um
loðnuverðið. Verðlagsráð-
ið hafði áður haldið tvo
fundi en nefndarmenn
urðu ásáttir um að vísa
verðlagningunni til yfir-
nefndar.
Loðnuveiðar útaf Norð-
urlandi eru heimilar frá og
með 6. september n.k.
Norskir fiskifræðingar
hafa verið við loðnurann-
sóknir norður af landinu og
sömuleiðis hefur rann-
sóknaskipið Árni Frið-
riksson verið á þessum
slóðum við seiðarannsóknir.
Að sögn Hjálmars Vil-
hjálmssonar fiskifræðings,
leiðangursstjóra um borð í
Árna er talsvert af loðnu
útaf vestanverðu Norður-
landi, á Grænlandssundi og
allt norður að Jan Mayen
en loðnan er dreifð. Átu-
skilyrði eru góð, mun betri
en í fyrra og sagði Hjálmar
að loðnan ætti að verða
bæði stærri og feitari en í
fyrra, en þá var hún fá-
dæma rýr.
Olíuviðskipta-
nefnd lögð niður
Aðild að Alþjóðaorkustofnun enn til athugunar
TÓMAS Árnason, viðskiptaráðherra, tjáði Morgunblað-
inu í gær að enn væri ekkert að frétta af hugsanlegum
olíuviðskiptum við Saudi-Arabíu, þar sem verið væri að
kanna möguleika á að stofna til stjórnmálasambands
við landið. Ráðherra kvað útilokað annað en að
viðskipti færu fram í gegnum stjórnvöld og því yrði
stjórnmálasamband að vera fyrir hendi.
Ráðherra var ennfremur spurð-
ur um störf olíuviðskiptanefndar:
„Olíuviðskiptanefnd hefur lítið
sem ekkert starfað síðan ég tók
við embætti. Hún vann heilmikið
starf í fyrra og var samningurinn
Slökunarstefnan beið hnekki
við innrásina í Afganistan
- sagði Ólafur Jóhannesson, utanríkisráðherra, við
komu utanríkisráðherra Austur-Þýzkalands i gær
ÓLAFUR Jóhannesson,
utanríkisráðherra, ávarp-
aði í gær starfsbróður
sinn Oscar Fischer frá
Austur-Þýzkalandi, sem
kom hingað til lands í
gær í opinbera heimsókn.
Þar vék ólafur m.a. að
Afganistanmálinu og
sagði:
Undanfarin ár hefur slök-
unarstefnan sett svip sinn á
framvindu mála í Evrópu.
Hún beið hnekki við innrás-
ina í Afganistan. Því fyrr
sem hernaðaríhlutun linnir
þar, þeim mun betri skilyrði
verða fyrir framhaldi slök-
unarstefnunnar. .
Island vill
fyrir sitt leyti stuðla að því,
að hún geti haldið áfram. En
þar til duga ekki orðin ein,
heldur verða menn að sýna
vilja sinn í verki. Þar þarf að
vera um gagnkvæmni að
ræða og stefnan verður að
vera samræmd og gilda fyrir
öll ríki jafnt. Þar bera stór-
veldin mesta ábyrgð: En
smáríki geta þar einnig lagt
sitt lóð á vogarskálina.
Fischer vék í ræðu sinni að
Afganistanmálinu og sagði
þar, að því fyrr sem utanað-
komandi afskiptum yrði
hætt, þeim mun fyrr mætti
búast við lausn málsins.
við BNOC meðal annars árangur-
inn af því starfi. Nú eru olíu-
kaupamál okkar í föstum samn-
ingum, þannig að verkefni fyrir
nefndina hafa ekki verið fyrir
hendi," sagði Tómas. Morgunblað-
ið hefur fregnað eftir öðrum
leiðum, að ráðherra muni hafa
ákveðið að leggja olíuviðskipta-
nefnd niður.
Viðskiptaráðherra var jafn-
framt inntur frétta af hugsanlegri
aðild íslands að Alþjóðaorku-
stofnuninni og kvað hann skýrslu
nefndar, sem Kjartan Jóhannsson
skipaði i vetur vegna hugsanlegr-
ar aðildar, vera nú til meðferðar
hjá ráðherrum og öðrum trúnað-
armönnum, en yrði ekki birt á
næstunni. „Ég hef verið opinn
fyrir þessu máli og vil að það sé
kannað gaumgæfilega, því að
mörg atriði þurfa rækilega athug-
un, þar á meðal þær fjárhags-
skuldbindingar, sem Islendingar
tækju á sig með aðildinni. Þessi
mál er ekki búið að ræða nema
lauslega í ríkisstjórninni, þannig
að ég get ekki tjáð mig frekar á
þessu stigi, en þetta verður tekið
til umræðu með haustinu áður en
þing kemur saman,“ sagði við-
skiptaráðherra að lokum.