Morgunblaðið - 26.08.1980, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1980 19
Hreinn og Óskar vörpuðu
báðir yfir 20 metra!
_ Á meðfylgjandi mynd Kristins
ólafssonar fagnar Sigurður Hall-
dórssun þriðja marki ÍA gegn
KR, en félagar hans samgleðjast.
enda í A-sigur i höfn. Heil umferð
fór fram i 1. deildarkeppninni
um helgina og er nánar sagt frá
úrslitum á blaðsiðum 21, 22 og
23.
jtliM lumblnúi^_
iiiTgniifl
Einn með
11 rétta
ENSKA deildarkeppnin i
knattspyrnu hófst laugardag-
inn 16. ágúst og er nú lokið
þremur umferðum. Að venju
hefst getraunastarfsemin með
leikjum i 3. umferðinni og
fyrstu getraunaleikirnir fóru
fram sl. laugardag. Vegna
sumarleyfa eru félögin misjafn-
lega vel undir það búin að fara i
gang með dreifingu og sölu
getraunaseðla. en umsetningin
í fyrstu leikvikunni var rúm-
lega tvöfalt meiri en á sömu
viku i fyrra.
Engar breytingar hafa verið
gerðar á gerð getraunaseðl-
anna en verðið pr. röð hefur
verið hækkað úr kr. 50 í kr. 75
svo að 8 raða seðill kostar nú
kr. 600, 16 raða seðill kr. 1200
og 36 raða seðill kr. 2700.
í 1. leikviku kom fram einn
seðill með 11 réttum og var
vinningur fyrir hann kr.
1.317.000 en 3 seðlar voru með
10 rétta leiki, og vinningur
fyrir hvern kr. 188.100.-
ÓSKAR Jakobsson og
Qreinn Halldórsson náðu
báðir ágætum árangri á
Akureyrarmótinu í frjáls-
um íþróttum. Þeir vörpuðu
báðir kúlunni yfir 20 metra
og er það í fyrsta skipti sem
þeir gera það báðir á sama
mótinu. Hreinn sigraði með
kasti upp á 20,19 metra, en
lengsta kast Óskars var
20,01 metrar. Þá náðu þeir
óskar og Erlendur Valdem-
arsson góðum árangri i
kringlukasti. Kastaði Óskar
lengst 60,96 metra, en Er-
lendur 59,50 metra. Stafa-
logn var meðan keppnin fór
fram, árangurinn því góð-
ur.
Steindór Tryggvason úr
KA setti Akureyrarmet í
3000 metra hlaupi, tími hans
var 8:48,2 mínútur. Steindór
sigraði í hlaupinu. Aðal-
steinn Bernharðsson sigraði
í 110 metra grindahlaupi á
15,4 sekúndum, Hjörtur
Gíslason sigraði í 100 metra
hlaupi á 11,2 sekúndum og
Aðalsteinn Bernharðsson
bar sigur úr býtum í 400
metra hlaupinu á 49,6 sek-
úndum.
sor/gg.
• Hreinn
Óskar
Pétur og Arnór gerðu það gott
ARNÓR Guðjohnsen og Pétur
Pétursson hafa gert það gott að
undanförnu. Pétur skoraði bæði
mörkin, er Feyenoord sigraði
Spörtu 2—1 í fyrsta leik hol-
lensku meistarakeppninnar i
knattspyrnu. Pétur á við meiðsl
i hné að stríða og getur ekkert
æft. Samt lét hann sig ekki
muna um að skora tvivegis.
Englendingurinn Dave Loggie
skoraði eina mark Spörtu.
Annars var fátt um óvænt úrslit
í hollensku knattspyrnunni. Aj-
ax vann öruggan sigur gegn Go
Ahead Eagles, 4—2, þrátt fyrir
að í liðið vantaði sex fastamenn.
Tveir 17 ára unglingar í liði
Ajax, Frank Rijkaart og Wim
Kijeft, skoruðu þrjú af mörkum
liðsins, en Henning Jensen
fjórða markið. Kurt Welzl (2),
Kristian Nygaard og Peter Tol
skoruðu mörk Alkmaar, sem
sigraði Nac Breda 4—1, og Piet
Wildschut, Willy Van Der Kuyl-
• Pétur skoraði tvlvegls.
en og Adria Koster skoruðu
mörk PSV í sigurleik gegn Den
Haag.
Lokeren hefur gengið vel að
undanförnu og Arnór ekki misst
úr leik. Um helgina mætti liðið
Cercle Brugge í úrslitaleik mik-
ils 10-liða móts sem fram fer
jafnan í Belgíu rétt fyrir keppn-
istímabilið. Er keppt í tveimur
fimm liða riðlum.
Með Lokeren í
riðli voru 1. deildar liðin Gent og
Beveren, auk 2. deildar félag-
anna St. Nicklaus og Alst. í
tvöfaldri umferð sigraði Lokeren
í öllum leikjum sínum og var
markatalan 26—3. Arnór lék á
als oddi, skoraði a.m.k. 6—7
mörk og lagði önnur upp. 1
úrslitaleiknum sigraði Lokeren
Cercle 2—0. Arnór lék mjög vel
og lagði upp bæði mörk Lokeren,
sem þeir Lato og Lubanski
skoruðu.
Nokkru fyrir þessa keppni tók
Lokeren þátt í 4ra liða móti í
Frakklandi. Léku þar m.a. St.
Etienne og Banik Ostrava. Lok-
eren hafnaði í þriðja sæti eftir
2—1 sigur gegn Ostrava. Arnór
• Arnór sýnir góða leikl.
skoraði bæði mörkin gegn Tékk-
unum, þriðja markið gegn St.
Etienne í 1—5 tapleik, og var
markhæsti leikmaður keppninn-
ar...
Hætta við
sundþing
VEGNA ýmissa erfiðleika
verður ekki hægt að halda
sundþing um leið og Aldurs-
flokkameistaramótið á Sel-
fossi verður haldið.
Sundþingið verður haldið
helgina cftir, eða dagana
6.-7. á Hótel Esju að öllu
forfallalausu.
íslandsmet í
4x200 metra
hlaupi kvenna
SVEIT Breiðabliks setti nýtt
íslandsmet I 4x200 metra
boðhlaupi kvenna i bikar-
keppni FRÍ nú um helgina.
Tími sveitarinnar var 1.51.6
min. Sveitina skipuðu þær
Hrönn Guðmundsdóttir,
Linda Bentsdóttir, Helga D.
Árnadóttir og Ragna Ölafs-
dóttir. Sveit ÍR setti nýtt
sveinamet i 4x200m boð-
hiaupi á sama móti, hljóp á
1.44.1. Sveitina skipuðu þeir
Hafliði Maggason, Jóhann
M. Jóhannsson, Gunnar
Birgisson og Hermundur
Sigmundsson.
- JE
Trausti
sýknaður
HÉRAÐSDÓMUR kom sam
an i Hafnarfirði um helgina
og tók fyrir kærumál
FH-inga á hendur Fram
fyrir að nota Trausta Har-
aldsson bakvörð i undan-
úrslitaleik bikarkeppninnar
á dögunum. en þar sigraði
Fram 1—0 og tryggði sér
sæti i úrslitaleiknum.
Héraðsdómurinn kvað upp
einróma úrskurð þess eðlis,
að Trausti hafi verið löglegur
í umræddum leik. FH-ingar
áfrýja vafalaust ef þeir eru
þá ekki búnir að því. Frekar
verður að teljast ólíklegt að
þessu verði hnekkt úr því sem
komið er, þó best sé að
fullyrða ekkert þar um. En
þessi málalok vekja von um
að úrslitaleikurinn geti farið
fram samkvæmt áætlun, eða
á sunnudaginn.
Kastlands-
keppni á
Sikiley
ÍSLENSKA kastlandsliðið
keppir við ttali á Sikilcy
dagana 6.-7. september
næstkomandi. Á siðasta ári
leiddu liðin saman hesta
sína í grenjandi rigningu i
Reykjavik. Þeir sem keppa
fyrir ísland eru Einar Vil-
hjálmsson og Sigurður Ein-
arsson, sem keppa i spjót-
kasti, Erlendur Valdemars-
son og óskar Jakobsson i
kringlukasti og Hreinn og
óskar i kúluvarpi. Einhver
þessara kappa mun siðan
keppa i sleggjukastinu.