Morgunblaðið - 26.08.1980, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1980
Markalaust jafn
tefli á Eskifirði
Austri
- Fylkir:
AUSTRI og Fylkir gerðu jafn-
tefli i 2. deildinni á Eskifirði á
laugardaginn. Ekkert mark var
skorað i leiknum og var jafn-
teflið i fuilu samræmi við gang
leiksins. Austri á varla mogu-
leika á að forðast fall úr þvi
sem komið er, en vissulega
hefur liðið rétt úr kútnum að
undanfornu. Fyikir siglir hins
vegar lygnan sjó um miðja
deildina enn einu sinni.
Tækifæri þessa leiks voru ekki
mörg, en Austri fékk þó besta
tækifæri leiksins um miðjan
fyrri hálfleikinn. Snorrí gaf góða
stungusendingu á Bjarna Krist-
jánsson, sem þegar tók á rás að
marki Fylkis. Öllum á óvart
dæmdi dómarinn rangstöðu á
Bjarna, hefur greinilega ekki
tekið eftir bakverðinum, sem
lónaði milli Bjarna og Fylkis-
marksins. Þarna var gott færi
tekið af Eskfirðingum og það
gert án þess, að línuvörðurinn
sæi nokkuð athugavert við þessa
sóknarlotu.
í síðari hálfleiknum þurfti
Benedikt Johannsson tvivegis að
taka á honum stóra sínum. Fyrst
er Ásgeir Ólafsson átti skot af
stuttu færi að Austramarkinu og
síðar er Eiður Björnsson átti
skot, sem Benedikt náði að blaka
í stöng.
Hilmar Sighvatsson var yfir-
burðamaður í liði Fylkis, en hjá
Austra bar mest á Halldóri
Árnasyni og Friðrik Þorvalds-
syni, en hvorugur þessara leik-
manna hefur mikið leikið með
liðinu í sumar. Steindór Gunn-
arsson frá Akureyri dæmdi leik-
inn vel, að undanskildum rang-
stöðudómnum, sem áður hefur
verið minnst á. _ áíj
Þróttarar
eiga von
VölsungurfiQ
- Þróttur: ** **
ÞRÓTTUR frá Neskaupstað á
allt i einu möguleika á sæti í 1.
deild. eftir að hafa unnið stór-
sigur á Völsungi í 2. deildar-
keppninni á Húsavik um helg-
ina. Völsungur er á hinn bóginn
i iðandi falihættu. Lokatölur
leiksins urðu 3—0 fyrir Þrótt,
eftir að staðan hafði verið jöfn,
0—0. Athyglisverður leikur er
á dagskrá um næstu helgi. Þá
eigast við á Neskaupstað Þrótt-
ur og Þór og mun sá leikur að
öllum likindum ráða úrsiitum
hvort að Þór kemst í 1. deild,
eða að Þróttarar skjótist fram
fyrir þá.
Þróttur var allan tímann
sterkari aðilinn á Húsavík. Ekk-
ert var þó skorað fyrr en á 70.
mínútu, er Valþór Þorgeirssyni
tókst að brjóta ísinn. Fimm
mínútum síðar bætti Njáll
Eiðsson góðu marki við og var
þar með allur vindur úr Völs-
ungi. Þróttarar létu þó ekki þar
við sitja, Valþór var enn marka-
gráðugur og bætti öðru marki
sínu og þriðja marki Þróttar við
6 mínútum fyrir leikslok.
AIK og Örgryte efst
VERIÐ getur að íslendingum í
„allsvcnskan“ fjölgi á næsta
keppnistimahili. þrátt fyrir það
að Landskrona með Árna Stef-
ánsson i broddi fylkingar falli
liklega niður i 2. deild. „íslend-
ingaféiögin“ AIK og örgryte
tróna nefnilega nú í efstu sæt-
um sinna deiida, þ.e. norður- og
suðurhluta 2. deildar, og eiga
bæði mikla möguleika á að
komast upp í 1. deild.
Crslit helstu leikja i 18.
umferð (af 26):
Norðurdeildin: AIK -
Brommapojkarna 4—0, Forward
- Gefle 1-0.
Leikmenn AIK sýndu stjörnu-
leik á móti BP, einkum í síðari
hálfleik. Rúmlega 6000
áhorfendur fylgdust með leikn-
um, en búist er við allt að 15000
manns á næsta leik AIK, 1. sept.,
gegn Vasalund, sem er í öðru
sæti.
Suðurdeildin: Grimsás — Háck-
en 4—1, Nyköping — Örgryte
2—3, Jönköping — Kristianstad
1-0.
Grimsás heldur áfram að
koma á óvart. Liðið sem var i
neðsta sæti að Ioknum 5 umferð-
um hefur nú leikið 9 leiki án
taps, og er komið í 5. sæti, aðeins
tveim stigum á eftir forystulið-
unum (en reyndar bara fjórum
stigum frá »fallsæti“). Eiríkur
Þorsteinsson fær góða dóma
fyrir frammistöðuna gegn
Gautaborgarliðinu Hácken og er
sagður hafa gert eitt af mörkum
Grimsás. Eiríkur átti gott skot,
en knötturinn snerti einn sam-
herja hans á leiðinni í netið, og
vildi Eiríkur af alkunnu litillæti
að sá yrði skráður fyrir mark-
inu.
Örgryte náði efsta sætinu með
naumum sigri yfir botnliðinu,
Nyköping. Örn Óskarsson og
félagar voru heppnir að tapa
ekki öðru stiginu og verða að
gera betur ef þeim á að takast að
bera sigur úr býtum í hnífjafnri
suðurdeildinni.
Jönköping vann Kristianstad
1—0 eftir að Stefáni Halldórs-
syni hafði verið vikið af leikvelli
í lok fyrri hálfleiks. Heimaliðið
átti fullt í fangi með 10 leikmenn
Kristianstad í síðari hálfleik, en
sigurinn var verðskuldaður. Ár-
sæll Sveinsson, leikmaður ís-
landsmótsins 1979, er enn í
toppbaráttunni. Lið hans hefur
aðeins einu stigi minna en efstu
liðin í þessari furðulega jöfnu
deild.
Kristianstad hefur aftur á
móti gengið mjög illa undanfarið
og má ekki við því að missa
Stefán Halldórsson í leikbann
nú, þegar fallbaráttan blasir við.
Þar sem um var að ræða annan
útafrekstur Stefáns í sumar,
getur hann átt von á þriggja til
fjögurra leikja banni.
Stokkhólmi 22. ágúst 1980.
H.H.
• Hannes Eyvindsson, Gunnlaugur Jóhannesson og Konráð Bjarnason forseti GSt. Þriðji i keppninni varð
ljósmyndari Mbl. óskar Sæmundsson.
Lítt þekktur kylfingur
vann opnu keppnina
GUNNLAUGUR nokkur Jóhann-
esson, tiitölulega lítt þekktur
kylfingur, gerði sér lítið fyrir,
skaut öilum þekktustu kylfing-
um landsins aftur fyrir sig og
sigraði á opna islenska golfmót-
inu sem haldið var á Nesvellinum
um helgina. Gunnlaugur er 1.
flokks maður og fáir eða engir
reiknuðu með að hann myndi
standa uppi sem sigurvegari
Fyrst voru leiknar 18 holur og
eftir það fengu aðeins að halda
áfram þeir sem leikið höfðu á 85
höggum eða minna. Að loknum 18
holum í viðbót var skipt í tvo riðla
16 bestu kylfingunum. Fór þá
fram holukeppni og lék þá Gunn-
laugur til úrslita gegn Hannesi
Eyvindssyni Islandsmeistara.
Hannes átti ekki góðan dag og
Gunnlaugur tryggði sér góðan
sigur, sigraði Hannes 2—0.
Eiríkur áfram hjá Grimsás
EINN af þeim knattspyrnu- hér í Svíþjóð, er „gamli“ Víking-
mönnum íslenskum, sem hvað urinn Eiríkur Þorsteinsson.
lengst hefur stundað iþrótt sina Hann leikur nú sitt þriðja keppn-
l Bmr, jr
f v g&k
• Eirikur Þorsteinsson hefur staðið sig vel með Grimsás og ætlar að
vera áfram hjá félaginu um sinn.
istimabil með Grimsás, sem var í
3. deild er Eiríkur kom til
félagsins, en hefur leikið tvö
siðustu árin i 2. deild.
Talsverður tröppugangur hefur
verið á leik Grimsás þessi tvö ár.
Liðið hefur byrjað tímabilin illa
og verið meðal neðstu liða fyrri
hluta deildarkeppninnar, en kom-
ið tvíeflt til leiks að loknu sumar-
leyfi. í fyrra hlaut Grimsás flest
stig á „haustönn" sænsku 2. deild-
arinnar og í ár virðist svipað ætla
að vera uppi á tengingnum. Eirík-
ur og félagar hans hafa ekki tapað
leik í háa herrans tíð, eða frá því
að „Eiki“ var færður fram í stöðu
miðherja.
Annars hefur það skipt litlu
máli hvaða stöðu á vellinum þessi
skemmtilegi baráttumaður hefur
leikið. Hann er jafnan meðal bestu
leikmanna Grimsás, hefur t.d.
tvívegis hlotið verðlaun sem mað-
ur leiksins (matchens lirare) í
heimaleikjum félagsins. Nú í
haust rennur út samningur Eiríks
við Grimsás, en það liggur ljóst
fyrir að forráðamenn félagsins
vilja halda „víkingnum". Eru þeg-
ar hafnar viðræður um endurnýj-
un samningsins og er fréttaritari
Mbl. hafði samband við Eirík kvað
hann allar líkur benda til þess að
um semdist. Um lengd samnings-
timans er ekkert ákveðið, en
Eiríkur sagði að tveggja til
þriggja ára samningur væri lík-
legur. „Fjölskyldunni hefur liðið
mjög vel hér í Grimsás, og þar
sem ekki er hægt að segja að
ástandið á „klakanum“ beint laði
mann heim aftur, er alveg eins
gott að enda ferilinn hérna, þar
sem aðstæður eru góðar og maður
fær umbun fyrir erfiðið," sagði
Eiríkur Þorsteinsson að lokum.
Stokkhólmi í ágúst 1980.
H.H.