Morgunblaðið - 26.08.1980, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1980
21
M,
Magnús Bergs klýfur loftið og skallar i net Þróttar.
LjóHm. Krlstján.
ið inn á sem varamaður í hálfleik
og á 67. mínútu leiksins fékk hann
knöttinn rétt utan vítateigs. Hann
lék ögn naer, lék því næst á tvo
Þróttara og sendi síðan hörkuskot
í bláhorn Þróttarmarksins. Glæsi-
mark! En því miður hvatti þetta
ekki Valsmenn til frekari dáða,
þeir léku oft þokkalega saman úti
á vellinum, en allt kom fyrir ekki,
er nær dró markinu. Á síðustu
mínútunni skoraði Þróttur síðan
eina mark sitt. Magnús Bergs
braut þá á Sigurkarli Aðalsteins-
syni innan vitateigs. Dæmdi Ingi
Jónsson þegar í stað vítaspyrnu.
Daði Harðarson spyrnti, en Sig-
urður Haraldsson varði meistara-
lega. Dómarinn taldi Sigurð hins
vegar hafa hreyft sig fyrr en
löglegt þykir, því fékk Daði annað
tækifæri og var þá eins og við
manninn mælt, knötturinn lá í
netinu.
Sem fyrr segir, var þetta frekar
bragðdaufur leikur, lítið krydd.
Valsmenn höfðu greinilega yfir-
burði, en geta samt leikið mörgum
sinnum betur. Þeir náðu þokka-
legum samleiksköflum öðru hvoru
og mörk þeirra voru falleg. Guð-
mundur Þorbjörnsson var þeirra
bestur, en Matti, Hemmi, Magnús
og Magni áttu allir góða spretti.
Aðrir voru traustir. Hjá Þrótti var
það helst Páll Ólafsson sem eitt-
hvað kvað að. Það kom hins vegar
ekkert út úr tilþrifum hans.
í STUTTU MÁLI:
Laugardalsvöllur, 1. deild. Val-
ur—Þróttur 2—1 (1—0)
Valsmenn héldu sínu striki
MÖRK VALS: Magnús Bergs (41.)
og Hermann Gunnarsson (67.)
MARK ÞRÓTTAR: Daði Harðar-
son úr víti (89.).
Valsmenn hrepptu tvö ákaf-
lega auðtekin stig gegn áhuga-
lausu liði Þróttar á Laugardals-
vellinum i gærkvöidi. Skoruðu
Valsmenn tvivegis, en Þróttarar
löguðu stöðuna með marki úr
tvitekinni vitaspyrnu á siðustu
minútu leiksins. í slökum leik
átti Þróttur aldrei möguleika.
Fyrri hálfleikur var lengst af
með ólíkindum tíðindalítill og það
var ekki fyrr en á 30. mínútu, að
Valur - n 4
Þróttur 1
fréttamenn sáu ástæðu til að lyfta
penna. Þá fékk Albert Guðmunds-
son góða sendingu inn fyrir vörn
Þróttar, en skot hans fór fram hjá
markinu. Síðan liðu tíu mínútur
án þess að nokkuð drægi til
tíðinda, en þá greikkaði atburða-
rásin líka heldur betur sporin.
Páll Ólafsson fékk skyndilega
besta færi Þróttar, en skaut fram
hjá af stuttu færi. Þess í stað voru
það Valsmenn sem skoruðu og það
gerði Magnús Bergs aðeins mínútu
síðar.
Hann fékk þá gullfallega
sendingu frá Matthiasi beint á
kollinn og skallaði glæsilega í
netið. í næstu sóknarlotu munaði
ekki miklu að Valur bætti við
marki, þrumuskot Alberts fór þá
naumlega fram hjá.
Síðari hálfleikur var jafn þóf-
kenndur og sá fyrri. Engu að síður
bættu Valsmenn við marki og var
• Páll Pálmason varði viti gegn ÍBK.
Aðeins 5 mínútum síðar svöruðu
Eyjamenn fyrir sig þegar Ómar
Jóhannsson skoraði laglegt mark
eftir ágætan samleik Eyjamanna.
Það sem eftir lifði af leiknum
skiptust liðin á að sækja og skall
nokkrum sinnum hurð nærri hæl-
um, en hvorugu liðinu tókst að
bæta um betur, þannig að sættast
varð á skiptan hlut og bæði liðin
verða því enn að berjast í fallbar-
áttunni, nokkuð sem fáir hefðu
gert ráð fyrir i upphafi mótsins.
Liðin.
S'íns og áður sagði var Ragnar
—— - - - —n,r.
Margeirsson besti maour Vðliui
ins, en auk hans áttu ágætan leik
þeir Ómar Ingvarsson og Þor-
steinn Bjarnason í liði Í.B.K. í liði
Í.B.V. var Páll Pálmason bestur en
auk hans áttu Ómar Jóhannsson
og Sighvatur Bjarnason ágætan
leik.
Gul spjöld fengu: Þórður Hall-
grímsson, Kári Gunnlaugsson,
Ömar Jóhannsson og Sighvatur
Bjarnason.
FF.
það var dæmt af. Síðustu 15
mínútur hálfleiksins sóttu Kefl-
víkingar mun meira og á 38. mín.
gaf Ómar Ingvarsson boltann
fyrir markið á Ragnar Margeirs-
son, sem skoraði af öryggi með
föstu skoti — 1-0 Keflavík í vil.
Strax u 1 211 síðari hálfleiks
fengu Keflvíkingar gott færi á að
auka forystu sína, þegar Ragnari
Margeirssyni var brugðið innan
vítateigs eftir mjög gott upphlaup
Keflvíkinga. Ágætur dómari leiks-
ins Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
dæmdi umsvifalaust vítaspyrnu,
sem Gísli Eyjólfsson fram-
kvæmdi, en skaut í stöng. Dómar-
anum fannst eitthvað athugavert
við spyrnuna, þannig að Keflvík-
ingar fengu annan möguleika,
Gísli tók spyrnuna aftur, en nú
varði Páll Pálmason glæsilega í
horn.
IBK
ÍBV
Á laugardag fór fram í Kefla-
vik leikur Í.B.K og Í.B.V. í 1.
deiid íslandsmótsins i knatt-
spyrnu. Leikurinn var f jörugur á
köflum. en bar þess þó merki, að
bæði liðin berjast nú harðri
baráttu fyrir tiiveru sinni i 1.
deild. Leikurinn á laugardag var
dálitið sveiflukenndur. bæði liðin
áttu ágæta spretti, en í heiid má
þó segja að Keflvikingar hafi
verið nær sigri, þeir áttu mun
hættulegri tækifæri. en þar átti
stærstan hlut að máli besti mað-
ur vaiiarins, efnile*i fram‘
herji Keflvikinga Ragnar Mar-
geirason.
Gangur leiksins var hins vegar
sá að þegar á 5. mm. leiksins
komst Ragnar Margeirsson í gott
færi inn i vítateig Eyjamanna, en
Páll Pálmason markvörður hirti
boltann af tám Ragnars.
Á 15. mín. fékk Kári Þorleifsson
svipað tækifæri við hitt markið,
en Þorsteinn Bjarnason bjargaði í
horn.
Á 30. mín skorar Sigurlás Þor-
leifsson mark fyrir Eyjamenn, en
það, eins og það fyrra, gujlfallegt. SPJÖLD: Hermann og Óttar
Hermann Gunnarsson hafði kom- Sveins. — gg.
Elnkunnagiðfln
_____...__________________________________—'
Lið Vals: Sigurður Haraldsson 6, óttar Sveinsson 6, Grimur
Sæmundsen 5, Matthias Hallgrimsson 7, Dýri Guðmundsson 6, Sævar
Jónsson 5, Magni Pétursson 6. Magnús Bergs 6, Albert Guðmundsson
4, Guðmundur Þorbjörnsson 7, Hörður Júliusson 4, Hermann
Gunnarsson (vm.) 7.
Lið Þróttar: Jón Þorbjörnsson 6. Rúnar Sverrisson 5, Daði
Harðarson 4, Ottó Hreinsson 5, Sverrir Einarsson 5, Jóhann
Hreiðarsson 5, Nikulás Jónsson 4, Páli ólafsson 6, Baldur Hannesson
5, Ágúst Hauksson 5, Halldór Arason 4, Sigurkarl Aðalsteinsson (vm)
4.
Dómari: Ingi Jónsson 6.
Fallbaráttan í fyrirrúmi
er ÍBK og ÍBV skildu jöfn