Morgunblaðið - 26.08.1980, Síða 26

Morgunblaðið - 26.08.1980, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1980 Liverpool tekið í bakaríió af kornungu liði Leicester — Fjögur lið efst og jöfn með 5 stig fallegu skallamarki. Charlie George skoraði sigurmarkið, einnig með skalla, á síðustu mínútu fyrri hálfleiks. í síðari hálfleik sótti lið Sunderland linnulítið, en vörn gestanna stóð af sér veðrið. Brighton festi fyrir skömmu kaup á Gordon Smith frá Glas- gow Rangers. Og kappinn skor- aði bæði mörk Brighton sem krækti í stig gegn Tottenham. Jafnt var í hálfleik, 1—1 og skoraði Garth Crookes mark Tottenham, fjórða mark hans í 3 leikjum. Glenn Hoddle náði síð- an forystunni aftur fyrir Totten- ham snemma í síðari hálfleik, en Smith átti síðasta orðið. Loks ber að geta leiks WBA og Wolves. Hann þótti lélegur, ein- kum af hálfu WBA. Andy Gray skoraði fyrir Úlfana á fyrstu mínútum leiksins, en rétt fyrir leikslok jafnaði Cirel Regis. Tveim dögum áður hafði Nott- ingham Forest boðið Albion eina milljón sterlingspunda fyrir Regis, félagið samþykkti eins og skot, en Regis vildi ekki fara. 2. deild: Bolton 4 (Kidd 3, Whatmore) — Newcastle 0 Bristol C. 0 — BristoJ Rov. 0 Cambridge 3 (Finney, Spriggs, Christie) — Watford 1 (Poskett) Grimsby 1 (Ford) — Wrexham 0 Luton 1 (Stein) — Derby 2 (Osgood, Swindlehurst) N. County 2 (Christie, McCul- loch) — Sheffield Wed. 0 Oldham 2 (Stainrod, Kowanecki) - Cardiff 0 Orient 1 (Bowles) — Blackburn 1 (Speight) Preston 0 — West Ham 0 QPR 0 — Swansea 0 Shrewsbury 2 (Atkins, Biggins) — Chelsea 2 (Walker, Fillery). - gg. fyrir leikslok. Á milli þess sem leikmenn Coventry skoruðu, sótti Arsenal grimmt og fjöldi góðra marktækifæra fór í súg- inn. Arsenal hefði betur haldið í Clive Allen, sem skoraði þrennu fyrir nýja félag sitt Crystal Palace á laugardaginn. Já, Allen var í miklu stuði í fjörugum leik Palace og Boro. Boro náði tvívegis forystunni í leiknum með mörkum Bill Ashcroft og Craig Johnstone, en Allen jafnaði jafnharðan. Siðan skoruðu Tony Sealy, Gerry Francis og Allen þriðja mark sitt. Boro hefur þar með fengið á Villa kom i heimsókn og komst í 2—0. Peter Withe, fyrrum mið- herji Newcastle, Forest og Wolv- es, skoraði sín fyrstu mörk fyrir Villa, eitt í hvorum hálfleik. Á 84. mínútu skoraði Dennis Tue- art úr víti fyrir Man. City, en engu að síður virtist liðinu ekki við bjargandi. En hrikalegt „grísmark" á síðustu mínútunni bjargaði andliti City. Bakvörður- inn Ray Ranson freistaði þess að skjóta af löngu færi. Skotið hefði verið vita meinlaust, ef varnar- maður Villa hefði ekki rekið tána í knöttinn og breytt stefnu hans. Og í netið fór knötturinn. Liverpool í basli Leikmenn Liverpool voru eitt- hvað miður sín á Filbert Street í Leicester. Hið kornunga lið Lei- cester var lengst af mun sterkari aðilinn á vellinum og í raun miklu betra liðið ef frá eru taldar fyrstu 15 mínútur leiks- ins, en þá sýndi Liverpool sínar bestu hliðar án þess þó að það endaði með marki. Leikmenn Leicester færðust mjög í aukana er leið á fyrri hálfleik og nokkr- um sinnum hafði mark Liverpool sloppið með skrekkinn áður en að Andy Peake skoraði loks fyrra mark Leicester. Það kom á 43. mínútu og var stórglæsilegt. Leicester fékk aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig Liverpool, knettinum var rennt til Peake, sem sendi knöttinn í netið með þrumufleyg. • Peter Shilton hélt Forest á floti með snilldarmarkvörslu á iaugardaginn. varla með í siðari hálfleik. Vörn liðsins stóð lengi vel fyrir sínu og Leicester fékk ekki mörg opin færi. Tíu mínútum fyrir leikslok, hikstaði þó vélin, miðvörðurinn Alan Hansen skallaði þá beint fyrir fæturnar á Martin Hender- son sem þakkað pent fyrir með glæsimarki. sig 8 mörk í útileikjum sínum tveim til þessa. Lítið eitt biluð vörnin á því heimili greinilega. Forest var heppið að hafa heim með sér stig frá Everton. Heimaliðið sótti nær látlaust og lék svo vel í fyrri hálfleik, að áhorfendur risu úr sætum og klöppuðu er leikmenn skokkuðu Leeds vaknaði heldur betur til lífsins og vann verðskuldaðan sigur á Norwich. Paul Hart kom Leeds yfir á 6. mínútu, er hann fylgdi vel eftir aukaspyrnu Trev- or Cherry. Markvörður Norwich hálfvarði skot Cherry og Hart potaði knettinum í autt markið. Þannig stóð í hálfleik. Arthur Graham skoraði annað mark Varalið MU heppið Það vantaði sex fastamenn í lið Manchester Utd, sem sótti Birmingham heim. Engu að síð- ur átti MU nokkuð í leiknum. Keith Bertchin, hinn sterki mið- herji Birmingham, var heldur betur í sviðsljósinu, hann átti nefnilega í leiknum hörkuskalla bæði í þverslá á eigin marki og marki andstæðinganna. Auk þess fékk hann besta færi leiks- ins er hann slapp einn síns liðs inn fyrir vörn MU seint í fyrri hálfleik. Kevin Moran elti hann uppi og skellti honum flötum aftan frá einum meter fyrir utan teig. Moran fékk að sjálfsögðu að líta á gula spjaldið, en meiddist auk þess svo illa við þetta tækifæri, að hann lék ekkert með í síðari hálfleik. Vítt og breitt Coventry gerði heldur betur góð kaup í Gerry Daly, en kappinn var allt í öllu hjá Coventry er liðið sigraði Arsenal 3—1. Daly skoraði að vísu ekki sjálfur og Coventry hafði enga yfirburði í leiknum. En Daly er klókur leikmaður og hann var að baki marka Coventry, sem öll komu í síðari hálfleik. Garry Thompson, Mike English og Garry Gillespie skoruðu mörkin, en Frank Stapelton potaði eina marki Arsenal tveimur mínútum • Ray Clemmence lék sinn 600 leik. út af í hálfleik. Hefur annað eins ekki gerst á Goodison Park í háa herrans tíð. Þrívegis hélt Peter Shilton Forest á floti með snilld- armarkvörslu og framherjar Everton brenndu auk þess nokkrum sinnum klaufalega af. Sama var uppi á teningnum í síðari hálfleik, þó jafnaðist leik- urinn þá lítið eitt. Manchester City stefndi bein- ustu leið í þriðja tap sitt í jafnmörgum leikjum, er Aston að áður en að leikhléið rann upp. Alan Brazil (14) og Eric Gates (40) skoruðu mörkin. Ipswich freistaði þess í síðari hálfleik að halda fengnum hlut, en slíkt er of hættulegt. Enda fór svo, að Stoke jafnaði áður en yfir lauk, þar var á ferðinni Lee Chapman. TOTTENHAM, Ipswich, Southampton og Aston Villa tróna nú á toppi 1. deildarinnar i ensku knattspyrnunni, en óliklegt er annað en röðin breytist eitthvað, það eru jú 39 umferðir eftir. Dvöl Sunderland á toppinum var ekki löng, liðið tapaði heima fyrir Southampton á laugardaginn i hörkuleik. Slök byrjun meistara- liðsins Liverpool og Manchester Utd, sem hafnaði í öðru sæti, kemur nokkuð á óvart. Það er kannski ekki eins furðulegt með MU, því i jafnteflisleiknum gegn Birmingham lék liðið án sex fastamanna. Liverpool mætti Leicester hins vegar með allar sínar stjörnur, en allt kom fyrir ekki, fréttamenn BBC lýstu yfir að Liverpool hefði ekki leikið jafn illa i mörg ár. Það verður þó ekki af liði Leicester skafið, að það lék mjög vel gegn Liverpool og sigurinn var fyllilega sanngjarn. En við skulum renna yfir úrslit leikja í 1. deild áður en lengra er haldið. Leeds fljótlega í síðari hálfleik og engu skipti þó að Justin Fashanu minnkaði muninn, Terry Connor bætti snarlega við þriðja marki Leeds. Clive Woods átti síðan lokaorðið í leiknum er hann skoraði annað mark Nor- wich. Hollenski leikmaðurinn hjá Stoke, Loek Ursem, skoraði frá- bært mark fyrir lið sitt strax á 6. mínútu gegn Ipswich. Engu að síður var Ipswich betra liðið og náði forystunni mjög verðskuld- Yfir 40.000 manns tróðu sér á Roker Park leikvanginn þar sem Sunderland og Southampton kepptui. Leikurinn þótti frábær, einkum í fyrri hálfleik. Chris Nicholl náði forystu fyrir Sout- hampton á 10. mínútu, en fáein- um mínútum síðar jafnaði Sam Allardyce fyrir Sunderland með Birmingham — Man. Utd. 0—0 Coventry — Arsenal 3—1 Palace — Middlesbr. 5—2 Everton — Forest 0—0 Leicester — Liverpool 2—0 Man. City — Aston Villa 2—2 Norwich — Leeds 2—3 Stoke — Ipswich 2—2 Sunderland — Southamptonl—2 Tottenham — Brighton 2—2 WBA - Wolves 1-1 Leik þessum var lýst i BBC- útvarpinu og mátti glöggt heyra á lýsingunni, að Liverpool var • Peter Withe skoraði tvívegis fyrir Villa. 1 1. DEILD Tottenham 3 2 10 8 5 5 Ipxwich 3 2 10 5 2 5 Southampton 3 2 10 5 2 5 Aston VilU 3 2 10 5 3 5 Sunderlmnd 3 2 0 18 3 4 Mnneh. Unlted 3 1113 1 3 Hirminttham 3 1114 3 3 Liverpool 3 1113 2 3 Brighton 3 1114 4 3 Coventry 3 1114 4 3 Arsenal 3 1113 4 3 Everton 3 1112 3 3 Nott. Foreat 3 1112 3 3 Wolves 3 1112 3 3 Norwieh 3 1 0 2 7 5 2 Leieeater 3 1 0 2 2 2 2 Cr. Palaee 3 1 0 2 8 9 2 Weat Bromwich 3 0 2 112 2 Middleabr. 3 1 0 2 5 8 2 Leeda 3 1 0 2 4 7 2 Stoke 3 0 2 13 7 2 Maneh. City 3 0 12 2 8 1 2. DEILD Notta County 3 2 10 5 2 5 Blackburn 3 2 10 4 2 5 Orient 3 1 2 0 5 2 4 Cambridge 3 2 0 16 4 4 Oldham 3 2 0 13 1 4 Luton 3 2 0 14 3 4 Grimaby 3 1 2 0 2 1 4 Derby 3 2 0 15 6 4 Bolton 3 1115 2 3 QPB 3 1114 1 3 Swansea 3 1113 3 3 Bristol 3 0 3 0 2 2 3 Shedield Wed. 3 1112 2 3 Preaton 3 0 3 0 1 1 3 Chelsea 3 0 2 16 7 2 Shrewsbury 3 0 2 14 5 2 WestHam 3 0 2 12 3 2 Watlord 3 1 0 2 3 5 2 CardiK 3 1 0 2 2 4 2 Briatol Rovera 3 0 2 115 2 Wreiham 3 0 12 2 4 1 Neweaatle 3 0 12 17 1

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.