Morgunblaðið - 26.08.1980, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1980
+ Eiginkona mín, SIGRÍÐUR FRIÐFINNSDÓTTIR, Þúfubarói 9, Hafnarfiröi, lést sunnudaginn 24. ágúst í Borgarspítalanum. Fyrir hönd vandamanna, Gestur Árnason.
+ Moöir okkar, HERDÍS MAJA BRYNJÓLFSDÓTTIR, Stuölaseli 14, Reykjavík, lést í Landakotsspítala fimmtudaginn 21. ágúst. Magnús Ó. Valdimarsson, Sveínn Haukur Valdimarsson, Hrafn Valdimarsson, Kolbrún Valdimarsdóttir, Grímur Valdímarsson.
+ Móöir okkar, amma og tengdamóðir, ELÍSABET MARÍA SIGURBJÖRNSDÓTTIR (ELLA MÆJA) Lönguhlíó 23, lést í Landspítalanum 24. ágúst. Fyrir hönd vandamanna. Sigurbjörn Bernótusson, Sigríður Bernótusdóttir, Jórunn Bernótusdóttir, Þóra Bernótusdóttir, Anna Fríöa Bernótusdóttir, tengdabörn og barnabörn.
+ Maöurinn minn, SÆMUNDUR ÞÓRÐARSON, Hvassaleiti 10, lést í Borgarspítalanum 22. ágúst. Bergrós Jónsdóttir.
+ ASLAUG GUNNLAUSGDOTTIR, frá Skaröi í Gnúpverjarhreppi, Víöimel 60, Reykjavík, lést á Landspítalanum aö morgni 25. ágúst. Alexía M. Gunnarsdóttir, Valgeröur K. Gunnarsdóttir, Svava Gunnarsdóttir, Jóhannes M. Gunnarsson.
+ Elsku bróöir minn og fósturfaöir, HARALDUR LÍNDAL PÉTURSSON, Hverfisgötu 63, Reykjavík, lést í Borgarspítalanum laugardaginn 23. ágúst. Fyrir hönd vandamanna. Guörún Krrstín Pátursdóttir, Pétur Steingrímsson.
+ Elsku drengurinn okkar, SVEINBJÖRN, Dvergabakka 28, Reykjavík, lést af slysförum 24. ágúst. Jaröarförin auglýst st'öar. Friðrikka Eövaldsdóttir, Sveinbjörn Bjarnason, og bræóur hins látna.
+ Móöir mín og fósturmóöir, MATTHILDUR BJÖRNSDÓTTIR, frá Smáhömrum, veröur jarösunginafrá Dómkirkjunni miövikudaginn 27. ágúst kl. 13.30. Björn Jónsson, Aóalbjörg Thoroddsen.
+
Fósturfaöir minn og afi okkar,
ÞORMOOUR GUÐMUNDSSON,
Bórugötu 22,
sem andaöist 15. þ.m. veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju,
miövikudaginn 27. ágúst kl. 3 e.h.
Anna Norria,
Jónaa Áamundsson, Linda Bellera,
Joann Bellere, Anthony Bellere,
Gunnar Áatþórsson.
Minning:
Þorsteinn Björnsson
frá Hrólfsstöðum
Fæddur 24. marz 1889.
Dáinn 15. ágúst 1980.
Einn þeirra bæja, sem brosa við
mér, þegar huganum verður reik-
að um bernsku- og æskuslóðir, eru
Hrólfsstaðir 1 Blönduhlíð í Skaga-
firði. Það var ekki stór bær, en
einstaklega hýr og vinalegur. Tvö
hvítmáluð þil, dálítið sérstæð í
lögun, heilsuðu vegfaranda, sem
þar bar að garði.
Að Hrólfsstöðum bjó móður-
bróðir minn, Þorsteinn Björnsson,
sem nú hefur lokið nærfellt ald-
arlangri æviför, og kona hans
Margrét Rögnvaldsdóttir, ömmu-
systir mín í föðurætt.
Þorsteinn fæddist að Bergs-
stöðum í Svarvárdal í A-Húna-
vatnssýslu hinn 24. marz árið
1889. Foreldrar hans voru sr.
Björn Jónsson, sem þá var prestur
þar og kona hans, Guðfinna Jens-
dóttir.
Hann var þriðji elstur af 11
börnum þeirra hjóna. Af þeim eru
nú 5 á lífi. Sama ár og Þorsteinn
fæddist fluttu foreldrar hans að
Miklabæ í Blönduhlíð, þar sem sr.
Björn hafði þá fengið veitingu
fyrir Miklabæjarprestakalli. Þar
þjónaði hann upp frá því alla sína
prestskapartíð og gegndi próf-
astsstörfum mörg síðustu árin.
Á Miklabæ ólst Þorsteinn upp í
hinum fjölmenna systkinahópi.
Ungur að árum fór hann að leggja
fram liðsemd sína við margþætt
búskaparstörf á stóru heimili og
reyndist hann frá upphafi liðtæk-
ur og traustur við allt það, sem
hann tók sér fyrir hendur.
Þegar Þorsteinn var 10 ára
gamall, veiktist hann hastarlega
af fótarmeini, og var talið, að um
beinhimnubólgu væri að ræða.
Van hann fluttur til Akureyrar á
kviktrjám og dvaldist hann þar
sumarlangt á sjúkrahúsi undir
handleiðslu Guðmundar Hannes-
sonar læknis. Þar náði hann
nokkrum bata, en þó bar hann
augljós merki þessa sjúkdóms upp
frá því. Fóturinn var styttri og
alla tíð var Þorsteinn áberandi
mikið haltur og langt fram á
fullorðinsár var hann oft þjáður í
fætinum. En hann lét þessa erfið-
leika ekki á sig frá. Hann gekk að
öllum störfum sem fullfrískur
væri og var hann um langt árabil
hægri hönd föður síns við búskap-
inn, fjárgæslu á vetrum en hey-
skap á sumrin.
Þorsteinn fór aldrei í skóla, en
lærði hjá föður sínum, og reyndist
það nám honum notadrjúgt nesti á
lífsleiðinni. Hann var prýðisvel
gefinn, víðlesinn, fróður og minn-
ugur. Hann var ritfær vel, hafði
einstaklega létta og skemmtiiega
frásagnargáfu og auk þess var
hann talsvert hægmæltur, þótt
hann léti ekki mikið á þeim
hæfileika sínum bera.
Hinn 11. júní 1912 gekk Þor-
steinn að eiga eftirlifandi eigin-
konu sína, Margréti Rögnvalds-
dóttur frá Réttarholti í Blöndu-
hlíð. Þau hófu búskap að Hrólfs-
stöðum, sem er næsti bær norðan
við Miklabæ, og jörðina keypti
Þorsteinn skömmu síðar. Að
Hrólfsstöðum bjuggu þau hjónin
góðu búi, allt til ársins 1944. Þá
gerðist Þorsteinn brúarvörður við
Ytri-Héraðsvaðsvatnabrúna og ár
dvöldu þau hjónin jafnan yfir
sumarið. Fyrstu árin höfðu þau
einhvern búskap að Hrólfsstöðum
ásamt hinu nýja starfi, en hættu
honum fljótlega og dvöldu oft
vetrarlangt hjá dætrum sínum
hér syðra.
Þau eignuðust 3 dætur, sem
allar eru á lífi. Elst er María
búsett í Reykjavík. Maður hennar
var Friðjón Stefánsson rithöfund-
ur. Hann lést árið 1970. Þá er
Birna, nú búsett í Hafnarfirði,
áður á Breiðdalsvík. Hún var gift
Sigurði Magnússyni. Hann lést á
síðasta ári. Yngst er Guðrún,
búsett í Hafnarfirði, gift Hinrik
Albertssyni.
Hjónaband þeirra Þorsteins og
Margrétar var með fádæmum
fagurt og farsælt. Þau voru svo
einstaklega samhent og samstillt í
smáu og stóru. Mér er til efs, að
þeim hafi nokkru sinni orðið
sundurorða á allri þeirra löngu
samleiðartíð. Það var líka alltaf
svo hlýtt og bjart í návist þeirra,
hvort sem það var heima á
Hrólfsstöðum eða í skúrnum við
Héraðsvatnabrúna. Bæði voru þau
gestrisin og góð heim að sækja.
Enda munu þeir margir, ekki síst
meðal eldri Skagfirðinga, sem
minnast með miklum hlýjhug og
einlægu þakklæti ógleymanlegra
stunda í samfélagi Hrólfsstaðar-
hjónanna.
+
Faöir okkar, tengdafaöir og afi,
ODDUR ÓLAFSSON,
Heiöargeröi 6,
Akraneai,
er lést af slysförum hinn 22. ágúst, veröur jarösunginn frá
Akraneskirkju fimmtudaginn 28. ágúst kl. 11.15.
Jarösett veröur í Hafnarfjaröarkirkjugaröi.
Erla Oddsdóttir, Sveínn Jónsson,
Ágúst Oddsson, Elín Magnúsdóttir,
Ólafur Oddsson, Þórdís Njálsdóttir
og barnabörn.
+
Eiginmaður minn, faóir okkar og tengdafaðir,
MAGNÚS ARNFINNSSON,
Ljósheimum 22, Reykjavík,
sem lóst 16. ágúst sl. veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju í dag
26. ágúst kl. 3 e.h.
Guörún Laxdal Jóhannesdóttir,
Ingvi Magnússon, Herdís Berndsen,
Jóhanna Sæmundsdóttir, Árni Guömundsson.
+
Eiginmaöur minn og bróöir okkar,
M.A. ÓSKAR V. HALLGRÍMSSON,
lézt 13. ágúst 1980. Útförin hefur þegar fariö fram. Öllum sem hlut
eiga aö máli færum viö innilegar þakkir fyrlr vinsemd og hlýhug.
Hallbera Þorsteinsdóttir,
María V. Hallgrímsdóttir,
Anna Hallgrímsdóttir.
+
Þökkum innilega samúö og vinarhug viö andlát og útför elginkonu
minnar, móöur, tengdamóöur og ömmu,
SIGRÍÐAR FRIORIKSDÓTTUR,
Stefán Ágúst Kristjánsson,
Annella Stefánsdóttir, Magnús Ólafsson,
Friörik D. Stefánsson, Ólafía Sveinsdóttir
og barnabörn.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö vió andlát og útför eiginkonu
minnar, móöur okkar, tengdamóöur og ömmu.
RAKELAR KÁRADÓTTUR,
Njörvasundi 23,
Þorkell Sigurósson,
Siguröur Þorkelsson, Matthildur M. Gisladóttir,
Karl Þór Þorkelsson Sigrún R. Eymundsdóttir
og barnabörn.
+
Hjartans þakkir sendum viö þeim fjölmörgu einstaklingum og
félagssamtökum um land allt sem auösýndu okkur samúö og
vinarhug viö fráfall elskulegs eiginmanns og fööur okkar,
PÉTURS JÓHANNSSONAR,
skipstjóra á Bíldudal,
hinn 25. febrúar sl.
Sérstakar þakkir fyrir ræktarsemi viö minningu hans færum viö
rækjusjómönnum á Bíldudal, Lionsklúbbum Bíldudals og Tálkna-
fjaröar og 20 ára nemendum Stýrimannaskóla íslands, er
útskrifuöust 1960.
Guö blessi ykkur öll. Sigríöur Pálsdóttir og
börn Bildudal.