Morgunblaðið - 26.08.1980, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1980
41
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
I0100KL /10— 11
FRÁ MÁNUDEGI
j^í/JAJmo^-aa'n it
• Yfirgangur og
hávaðamengun
Fyrir tæpu ári hreyfði ég við
því í grein í Morgunblaðinu, hví-
líkum yfirgangi og hávaðamengun
stafaði af sumum tískuverzlunum
hér í Reykjavík, bæði utan húss og
innan. Þetta umtal fékk ekki
miklar undirtektir þá. Nú hefur
K.J., lof sé honum eða henni, tekið
í sama streng. Ég vona að þeir
verði sem flestir og hafi þeir þökk
fyrir.
Það er sannarlega heilbrigðis-
ráðstöfun, að draga úr hávaða-
mengun landsmanna á einkaheim-
ilum, á vinnustöðum, í verzlunum,
í almenningsvögnum, á strætum
úti og á skemmtistöðum, þ.e.a.s.
alls staðar. Og svo er það fjár-
hagslegur ávinningur að auki, því
að áreiðanlega myndi stórum
fækka gestum taugahælanna og
færri börn þurfa „sálfræðilega
meðferð".
í kaupstað hérlendis hóf tísku-
verzlun bæjarins (ég er síður en
svo á móti tískuverzlunum, frem-
ur er ég a.m.k. andlegur
áhangandi tískunnar á hverjum
tíma) að slá um sig með ógur-
legum glym, sem fyllti eyru bæj-
arbúa. Einn þeirra snéri sér strax
til heilbrigðisnefndar staðarins,
sem kvað niður ófögnuðinn með
öllu samkvæmt heilbrigðislöggjöf.
Ætli slíkt varnarlið sé til í
Reykjavík? Ef svo er ætti það að
drífa sig á vettvang, því nóg er að
starfa. Ef svo er ekki er brýn þörf
þar á.
Húsmóðir í miðbænum.
• Öst er öst
og vest er vest
og aldrig mödes
de tvende
Einhvern tíma lærði ég þessa
vísu. Hún kom í hug mér meðan ég
var að lesa í Morgunblaðinu pistla
eftir „Reykvíking" um norðan-
sunnanvörur. Vísan þessi gæti
sem best verið hans „sálarmubla",
því hann fjargviðrast um „sunn-
anvörur" sem bannvöru fyrir
norðan og „norðanvöru", sem ætti
þá að vera bannvara fyrir sunnan.
Þær fái þannig aldrei að mætast í
verslunum.
Það eru annars meiri ósköpin,
sem geta farið af stað af jafn litlu
tilefni og því að fá ekki vöru með
tilteknu vörumerki að sunnan í
verslun á Akureyri. Þar með
upphefst þessi líka dómadags af-
skiptasemi „Reykvíkings" af versl-
unarháttum norðan- og sunnan-
manna.
Ef Akureyringar eða Reykvík-
ingar geta fengið góða vöru, sem
framleidd er á staðnum, hvers
vegna ættu þeir þá að flytja sömu
vöru fyrir dýra dóma norður að
sunnan og suður að norðan? Það
kostar mikið að flytja vöruna milli
landshluta og kostnaðurinn leggst
á vöruna. Þetta veit „Reykvíking-
ur“ líklega ekki enda býr hann á
miðsvæði íslenskrar verslunar og
þekkir ekki flutningskostnaðinn
utan þess. Það er vissulega nauð-
synlegt og sjálfsagt að hafa gott
og fjölbreytt vöruval í verslunum.
En ef það væri slíkt sáluhjálpar-
atriði, sem „Reykvíkingur" vill
vera láta, þá væri sannarlega
bágborin sálarheilsa manna alla
„hringleiðina". Svo er þó ekki sem
betur fer, svo að honum er óhætt
að leggja frá sér áhyggjur sínar og
afskiptasemi af sunnan-norðan og
norðan-sunnan vörum.
Það er varla eyðandi orðum að
kaupfélagssálsýki „Reykvíkings".
Hún er eins og hver önnur um-
gangspest í kvikmyndum og dag-
blaðaþáttum um þessar mundir og
læknast af sjálfu sér þegar tímar
líða.
Húsmóðir i miðbænum.
• Lagfærið
Austurbrún
Maður á Austurbrún
hringdi.
Mig langar að koma fram
fyrirspurn til gatnamálastjóra
Reykjavíkur. Fólkið hérna við
Austurbrúnina vill gjarnan láta
skattana sína ganga í nýja gang-
stétt á Austurbrún. Maður sér sér
varla fært að ganga hérna fyrir
pollum o.fl. Þetta er nú sérstak-
lega áberandi við strætisvagna-
biðskýlin.
Svo langar mig að spyrja Svav-
ar Gestsson hvort ellilífeyrir
hækki í samanburði við fram-
færsluvísitölu?
• Leið 14
stoppi
annarsstaðar
Reið kona hringdi.
Hún vildi koma þeirri spurn-
ingu á framfæri til strætisvagna-
forstjóra af hverju strætisvagna-
leiðir númer 13 og 14 þyrftu
endilega að stansa á sömu biðskýl-
um á Kringlumýrarbrautinni.
Þegar maður er orðinn gamall á
maður vont með að hlaupa á eftir
vögnunum, og það væri til mikilla
bóta ef að 14 gæti t.d. stoppað
einni stoppustöð ofar.
• Áfram óli
á þessari braut
Mína hringdi.
Það hreif mig alveg að heyra í
honum Óla H. Þórðar sl. sunnu-
dag. Ég hef svo mikla ánægju af
þessum þáttum sem heita Syrpa.
Gæti útvarpið ekki úthlutað Óla
fleiri þáttum? Það væri áreiðan-
lega spor í rétta átt. Og óli áfram
á þessari braut.
SKÁK
Umsjón: Margeir Pétursson
í undanrásum skákþings Len-
ingrad í ár kom þessi staða upp í
skák meistaranna Ioffe, sem hafði
hvítt og átti leik, og Reshko.
27. HxdG!! (Hótar 28. Dh8 mát)
exd6, 28. DxdG og svartur gafst
upp, því mátinu á h8 verður ekki
l,..-ðað til lengdar.
HÖGNI HREKKVÍSI
"úertA Eí 6ftbu»a8«tt,fföwehœ Oól'ia‘..HAnn LÆroe
wbMjto 6T6UA OÚL'io OG LA06NARGOALD -.
PERMA — DRI
utanhússlímmálning —14 ára ending og reynsla.
Málning hinna vandlátu
Sig. Pálsson, byggm., Kambsv. 32, S-34472.
J
Nýtt — Nýtt
Nýtt pils og blússur frá Sviss, Svíþjóð, Þýskalandi
og ítalíu.
Glugginn,
Laugavegi 49.
Útsala
Kjólar frá 12.000.-. Nýtt og fjölbreytt úrval af
kvöldkjólum í öllum stæröum, hagstætt verð. Trimm-
gallar frá kr. 12.000.-. Dömupeysur frá kr. 2.000.-.
Urval af ódýrum skólapeysum. Mussur frá kr.
8.000.-. Jakkapeysur og vesti í úrvali.
Verksmiðjusalan Brautarholti 22,
inngangur frá Nóatúni.
HEBA heldur '
við heilsunni
Nýtt námskeið hefst 1. september.
Dag- og kvöldtímar tvisvar eöa fjórum
sinnum í viku.
Megrunarkúrar — Nuddkúrar
Sértímar fyrir Þær sem Þurfa að léttast um 10 kg.
eda meira, fjórum sinnum f viku.
Leikfimi — Sauna — Ljós — Megrun
— Nudd — Hvíld — Kaffi — o.fl.
Innritun í síma 42360 — 40935 —
41569.
Verið meö frá byrjun.
Heilsuræktin Heba,
Auðbrekku 53, Kópavogi.
Okkur
vantar
duglegar
stúlkur og
stráka
Vesturbær:
Hjaröarhagi II
Austurbær:
Samtún
Hringið í síma
35408 I
Htogwiftliiftift )