Morgunblaðið - 26.08.1980, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1980
Cyrus
stofna
London, 25. ágúst. AP.
CYRUS Reza, elzti sonur
fyrrverandi íranskeisara.
Reza ætlar að
útlagastjórn
Veður
Akureyrí 10 skýjaó
Amaterdam 18 heiðskírt
Aþena 36 heiöskírt
Barcetona 27 skýjaó
Berlin 16 skýjaó
BrUssel 22 heíóskirt
Chicago 33 heiðskírt
Denpasar 29 skýjaó
Dublín 17 heiöskírt
Feneyjar 23 hálfskýjaó
Frankfurt 17 skýjað
Fssreyjar 8 alskýjað
Genf 20 heióskírt
Helsinki 17 rigning
Hong Kong 32 heiðskírt
Jerúsalem 29 skýjaó
Jóhannesarborg 23 heióskírt
Kaupmannahöfn 15 skýjaó
Las Palmas 25 léttskýjaó
Lissabon 35 léttskýjað
London 23 heióskírt
Los Angeles 25 hálfskýjaó
Madrid 32 rigning
Mallorca 28 lóttskýjaó
Mexicoborg 24 skýjaó
Miami 30 heióskírt
Moskva 16 skýjaó
Nýja Delhi 36 rigning
New York 33 heióskírt
Oskt 17 skýjað
París 20skýjaó
Rio de Janeíro 28 skýjaó
Reykjavík 10. rígning
Rómaborg 28 heióskirt
San Francisco 21 skýjaó
Stokkhólmur 15 skýjaó
Tel Aviv 29 skýjaó
Tókýó 27 skýjaó
Vancouver 20 heióskírt
Vínarborg 16 skýjaó
hefur á prjónunum áform um
að koma á laggirnar útlaga-
stjórn sem vinni gegn stjórn
Khomeini erkiklerks. að því
er hrezka blaðið Daily Ex-
press sagði í dag.
Kvaðst blaðið hafa þetta
eftir „dyggum stuðnings-
mönnum" keisarafjölskyld-
unnar og var því bætt við að
fyrirhugað væri að halda
mikla hátíð á 21. afmæli Cyrus
Reza síðar á árinu þar sem
hann yrði lýstur nýr keisari
Irans. Myndi hinn nýi keisari
og stjórn hans svo róa að því
öllum árum að steypa Kho-
meini og vildarmönnum hans,
svo að Cyrus Reza gæti snúið
heim til Irans hið fyrsta.
Cyrus Reza
Loks hef jast réttar-
höld yfir Yakunin
Moskva. 25. áffÚHt. AP.
GLEB Yakunin, þekktur
rússneskur rétttrúnaðar-
prestur og andófsmaður, sem
var handtekinn í nóvember-
mánuði eftir að hafa í áratug
barizt fyrir því að trúfrelsi
fái að vera i Sovétríkjunum,
koin fyrir rétt í dag.
Vestrænum fréttamönnum
og stuðningsmönnum Yakun-
ins var bannað að vera við-
stöddum réttarhöldin og sögðu
starfsmenn að salurinn væri
þegar þéttskipaður. Konu
Yakunins, Iraida var leyft að
hlýða á málflutninginn og í
hádegisverðarhléi sagði hún
fréttamönnum að Yakunin
kynni að eiga yfir höfði sér sjö
ára fangelsi og fimm ára
útlegð. Hún sagði, að maður
hennar væri ákærður fyrir að
hafa ritað aðskiljanleg plögg
sem brytu í bága við það sem
flokkurinn teldi gott og gilt, og
væru öll skrif hans við það
miðuð að hann vildi að trú-
frelsi fengi að vera í landinu.
Times kom
ekki út í gær
London 25. ágúst — AP.
HIÐ fræga brezka blað The
Times kom ekki út á mánudag
og er þetta í fyrsta skipti sem
blaðamenn við The Times, sem
er 195 ára gamalt dagblað og
eitt hið virðulegasta á Bretlandi,
gera verkfall. Blaðið kom ekki
heldur út sl. laugardag og viku-
útgáfa þess, þar sem fjallað er
m.a. um bókmenntir og iistir
o.fl., hefur ekki verið unnin.
Blaðamenn greiddu í sl. viku
atkvæði með því að fara í verkfall
þegar framkvæmdastjórn blaðs-
ins neitaði að hækka laun
blaðamanna um 21 prósent, en
hlutlaus sáttasemjari hafði lagt
til þá hækkun.
Framkvæmdastjórn blaðsins
kveður það óhugsandi að greiða
slíka hækkun þar sem blaðið sé
enn ekki búið að rétta við eftir þá
ellefu mánaða stöðvun, sem varð
á útgáfu þess á sl. ári.
Israelar hóta
Sýrlendingum
Tel Aviv 25. áifúst. AP.
ÍSRAELSKA stjórnin sendi Sýr-
lendingum harðyrta viðvörun
Þetta gerðist
Olíumálaráðherra
Kína vikið frá
Peking 25. ágÚHt. AP.
KÍNVERSKA stjórnin vék í
dag úr starfi Song Zhenming,
olíumálaráðherra, eftir að
hann hafði sætt gagnrýni fyrir
mistök sem urðu við olíubor-
pall og kostaði það atvik 72
menn lífið.
Song tók brottvísun sinni að sögn
kínversku fréttastofunnar af rósemd
og játaði ábyrgð sína. Þjóðþingið
mun síðan væntanlega staðfesta
brottvísun ráðherrans. Þetta atvik
gerðist 25. nóvember sl. út af
Tianjin, en ekki var greint frá því
opinberlega fyrr en í sl. mánuði.
Song var gagnrýndur um helgina
fyrir að falsa skýrslur og frásagnir
af atburði þessum og reyna að koma
í veg fyrir að málið væri rannsakað.
Rannsóknarmenn segja að olíubor-
pallurinn hafi verið dreginn af stað
til lands, þrátt fyrir aftakaveður og
án þess að viðhlítandi öryggisráð-
stafanir væru gerðar.
1978 — Albino Luciani, kardi-
náli í Feneyjum kjörinn páfi og
tekur sér nafnið Jóhannes Páll.
Hann andast 34 dögum síðar.
1976 — Bernharður prins í
Hollandi segir af sér öllum
ábyrgðarstörfum vegna þess að
hollenzka stjórnin hefur gagn-
rýnt samskipti hans við Lock-
heed-samsteypuna.
1971 — Júlíana Hollands-
drottning fer í heimsókn til
Indónesíu sem hafði verið holl-
enzk nýlenda um aldír.
1964 — Ródesía bannar starf-
semi allra þjóðernishreyfinga.
1945 — Japanir fara um borð í
bandaríska orrustuskipið Miss-
ouri til að taka við
uppgjafarskilmálum í seinni
heimsstyrjöldinni.
1921 — Mathias Erzberger,
fjármálaráðherra Þýzkalands
ráðinn af dögum.
1896 — Andspyrnustarfsemi
hefst á Filippseyjum gegn
Spánverjum.
1847 — Líbería lýst sjálfstætt
ríki.
55 f. Kr — Júlíus Sesar gerir
innrás í Bretland.
Afmæii: Sir Robert Walpole,
enskur stjórnmálamaður,
(1676—1745) — Albert, eigin-
maður Viktoríu drottningar
(1819-1861).
Andlát. 1278 Ottocar II kon-
ungur af Bæheimi, féll í
orrustu — 1850 Loðvík Filipp-
us Frakkakonungur — 1900
Friedrich Nietzsche heimspek-
ingur — 1910 William James,
sálfræðingur — 1974 Charles
Lindbergh, flugkappi.
Innlent. 1896 Mikill jarð-
skjálfti veldur stjórtjóni á Suð-
urlandi — 1929 Islenzkur leið-
angur kemur með lifandi sauð-
naut frá Grænlandi — 1%2 d.
Vilhjálmur Stefánsson land-
könnuður.
Orð dagsins: Sá sem lifir
aðeins í voninni, mun deyja úr
örvæntingu — ítalskur máls-
háttur.
dag þar sem hún kvaðst ekki
myndu þola að Sýrlendingar ryfu
lofthelgi Suður-Líbanons, en þar
skutu ísraelar niður sýrlenzka
MIG þotu á sunnudagskvöld. Að
sögn var kyrrt á landamærum
ísraels og Líbanons í kvöld,
mánudag, þó að töluverð spenna
sé þar.
Stórskotaliðsárásir Palestínu-
skæruliða í Suður-Líbanon og yfir
landamærin voru þá liðnar hjá og
ísraelar hótuðu öllu illu ef þær
yrðu hafnar á ný.
Loftbardagi sá milli tsraela og
Sýrlendinga sem brauzt út í gær,
með fyrrgreindum afleiðingum,
var sá fyrsti síðan í september í
fyrra. ísraelar gerðu nokkrar at-
lögur að borginni Sidon og sömu-
leiðis á skæruliðabúðir.
í ísraelskum blöðum í morgun
er lögð áherzla á vilja ísraela til
að draga úr spennu í þessum hluta
heims, og bent á að ekki hafi verið
svarað eldflaugaárásum PLO-
manna á norðurhluta Galileu á
föstudagskvöldið.
Skýrsla um aðgerðirnar í íran:
Mistök og skipulagsleysi urðu
til að björgunin fór út um þúfur
W&Hhinjfton, 25. ágÚHt. AP.
BANDARÍKJASTJÓRN hefur
birt skýrslu um aðgerðir þeirra í
fran, þegar stóð til að reyna að
bjarga gíslunum í bandaríska
sendiráðinu i Teheran. Er niður-
staða rannsóknar manna sú i
stuttu máli að orsök þess að þær
lánuðust ekki hafi verið ófull-
nægjandi tækjakostur og skipu-
lagsleysi.
Segir í skýrslunni að nauðsyn-
legt hefði verið að hafa að
minnsta kosti tvær þyrlur til
viðbótar við þær átta sem sendar
voru. Þá segir að ráðleysi og
stjórnleysi hafi komið upp þegar
vélarnar voru komnar í írönsku
eyðimörkina og svo hafi virzt sem
enginn hafi vitað hver stjórnaði
hverju, né frá hverjum ætti
yfirleitt að taka skipanir um
hvað ætti að gera.
í skýrslunni er gefið i skyn, að
varnarmálaráðherra Bandaríkj-
anna, Harold Brown, hafi tekið of
djúpt í árinni þegar hann sagði
að aðgerðin hefði verið „mjög vel
undirbúin". Aftur á móti kemst
rannsóknarnefndin að þeirri
niðurstöðu að björgunaraðgerðin
hafi átt rétt á sér og hafi um
sumt boðið upp á möguleika til að
bjarga gíslunum úr sendiráðinu.
Hins vegar hafi aðgerðinni fylgt
ólán frá byrjun og ekki verði
neinum kennt um þau óhöpp sem
urðu, þegar þyrlurnar biluðu og
síðan um slysið sem kostaði níu
mannslíf.
Parrot
látinn
ParÍ8, 25. á$fúst. AP.
ANDRE Parrot, hinn frægi
franski fornleifafræðingur, lézt i
dag, 79 ára gamall.
Parrot stjórnaði uppgreftri sem
ieiddi í ljós siðmenninguna i
Mesópótamíu sem var þar 3000
árum fyrir Krist. Stóð hann að
uppgreftri Mari 1933, höfuðborgar
Akkadheimsveldisins.
Hann hlaut margskonar viður-
kenningar fyrir vísindastörf sín.
Árið 1968 var hann skipaður
forstjóri Louvresafnsins í París og
gegndi því í fjögur ár, að hann lét
af starfi fyrir aldurs sakir. Hann
var heiðursprófessor og doktor við
ýmsa háskóla.
r
1
40 létust
sprengingum
Madran, Indlandi, 25. ájcÚHt. AP.
AÐ MINNSTA kosti fjörutíu
manns biðu bana og öllu fleiri
slösuðust þegar sprengingar urðu
í verzlun í Tamil Nadu-ríki, en
verzlunin hafði ekki leyfi til að
verzla með sprengiefni, að sögn
AP-fréttastofunnar. Sagði að 31
maður hefði látið lífið samstundis
en hinir hefðu dáið á leið í
sjúkrahús. Eigandi verzlunarinn-
ar mun hafa sloppið óskaddaður
og er hans nú leitað.