Morgunblaðið - 26.08.1980, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1980
43
Enn eitt járnbraut-
arslys í Svíþjóð
— 9 létust og 30 slösuöust
stokkhóimi. 25. ágúHt. ap. lega, þegar hraðlest íór út
NÍU manns létust og þrjá- aí sporinu norður af Stokk-
tíu særðust, sumir alvar- hólmi á sunnudag.
Fimmtíu drukkn-
uðu er fer ja fórst
Cuadad del Carmen. Meiico. 25. ág. AP.
KAFARAR hafa nú fundið lik
fimmtiu manna sem drukknuðu
þegar ferja fórst á Mexicoflóa,
um það bil hálfa milu undan
ströndinni.
Er búizt við að fleiri finnist
látnir, því að um hundrað manns
voru með ferjunni, sem tók um
150 manns hlaðin. Auk þess voru
á ferjunni nokkrir bílar. Vitað er
að 26 hafa komizt lífs af.
Ferjan var á leið frá Carmen-
eyju og Igauda til Yucatan-
skagans. Ekki er vitað að svo
stöddu um orsakir þess að ferjan
fórst, en hún var gömul og ekki
sögð upp á marga fiska.
Jarðskjálfti
í Kashmir
Nýja Delhi, 25. ágúst. AP.
STERKUR jarðskjálfti skók norð-
urhéraðið Kashmir í Indlandi í
dag. Biðu þrettán manns bana og
er ljóst að tugir slösuðust, að því er
indverska fréttastofan sagði frá
síðdegis. Nokkrir þeirra sem slös-
uðust eru í lífshættu.
Með lestinni voru fjögur
hundruð farþegar á leið frá
Narvik í Noregi til Stokk-
hólms. Lestin var á um 120
km hraða þegar sjö af þrett-
án vögnum lestarinnar
þeyttust út af sporinu. Svo
virðist sem slysið hafi orðið
af tæknilegum ástæðum að
sögn talsmanna Sænsku rík-
isjárnbrautanna. Þetta er
þriðja lestarslysið sem
manntjón hlýst af í Svíþjóð á
sumrinu.
í júní létust ellefu, þar af
nokkur börn, og 60 slösuðust
þegar árekstur varð milli
farþega- og flutningalestar
milli Falun og Borlange í
miðhluta Svíþjóðar. í sl. viku
slösuðust sextán manns þeg-
ar tvær farþegalestir rákust
á 120 km suðvestur af Stokk-
hólmi.
m
Samphan:
sem sóttu hann heim í bækistöð
Rauðra khmera í norðvesturhluta
Kambódíu. „Það er ekki nokkur
efi í mínum huga, að það að
horfast í augu við það, gæti eitt
orðið til bjargar þjóðinni. Fyrir
Kambódíumenn er kommúnism-
inn það sama og eymd og volæði.
Það sem þjóð mín reyndi með
Rauðu Khmerunum og nú með
ágangi Víetnama og bezt að horf-
ast í augu við það. Hann sagði, að
það væri rétt, að mörg og ljót verk
hefðu verið framin í valdatíð
þeirra og skýring hans á því var
sú að Jafna hefði þurft metin“.
..Kommúnism-
inn er dauður"
KHIEU Samphan, (yrrverandi
forsætisráðherra stjórnar Rauðu
khmeranna i Kambódiu, sagði i
viðtali við þrjá blaðamenn frá
Vesturlöndum. að hann iiti svo á
að kommúnisminn væri óhugs-
andi stjórnkerfi fyrir þjóð hans
og myndi viðurkenning þessarar
staðreyndar geta rutt brautina
til að þjóð hans sameinaðist i
baráttunni við Vietnamana.
„Kommúnisminn er dauður,"
sagði Samphan við blaðamennina,
En í reynd var svo, að þegar
stjórnartíð Rauðu khmeranna
lauk höfðu hundruð þúsunda
manna verið myrtir. Hann sagði
að þau voðaverk sem hefðu verið
unnin í stjórnartíð Rauðu khmer-
anna — þeir segja að 250 þús.
manns hafi verið drepnir, stjórnin
í Hanoi hefur töiuna 3 milljónir
— réttlættu ekki að Víetnamar
legðu undir sig Kambódíu og
fengju að leika þar lausum hala
og útrýma kambódísku þjóðinni.
Bruninn í sovézka kjarnorku-
kafbátnum mikil ráðgáta
HLEYPT hefur verið af stokkunum umfangsmikilli athugun á því
hvað fór úrskeiðis um borð i sovézka kjarnorkukafbátnum, sem
laskaðist skammt undan ströndum Okinawa við Japan i siðustu
viku. Eldur kom upp um borð og a.m.k. niu úr áhöfninni fórust.
Sovézkur dráttarbátur kom á vettvang og dró kafbátinn áleiðis til
Vladivostock. Var þá m.a. siglt um landhelgi Japana við reiði
yfirvalda i Tókýó.
Sérfræðingar við stofnunina Nat-
ional Security Agency í Fort Meade
í Marylandfylki í Bandaríkjunum
heyrðu fyrstir neyðarkall frá kjarn-
orkukafbátnum, sem er 17 ára og af
gerðinni Echo 1. Sérfræðingarnir
viða nú að sér gögnum, m.a. ljós-
myndum frá gervihnöttum, til að
varpa ljósi á hvað gerðist er eldur
kom upp í kafbátnum.
Meðal spurninganna, sem Banda-
ríkjamenn vilja fá svör við, er sú
spurning hverra erinda kafbáturinn
var er eldurinn kom upp í honum, 60
sjómtlur austur af Okinawa. Einnig
hvort eldurinn hafi komið upp vegna
einhverra hönnunargalla í útbúnaði
bátsins og hvort einhver geislavirk
efni hafi sloppið út í umhverfið,
sjóinn eða andrúmsloftið, við slysið.
Loks leikur Bandaríkjamönnum for- .
vitni á að vita viðbrögð yfirstjórnar
sovézka hersins við slysinu, þ.e.
hvort atvikið sé litið háalvarlegum
augum í Kreml, eða hvort hér hafi
verið um smávægilega óheppni að
ræða, að mati Kremlverja.
Slysið um borð í kjarnorkubátn-
um er nánast í beinu framhaldi af
kafbátaóhöppum er hrellt hafa
Kremlverja frá lokum seinni heims-
styrjaldar, en á þessu tímabili hafa
Sovétmenn misst a.m.k. tólf kaf-
báta. Bandaríkjamenn hafa sýnt
sovézkum kafbátum töluverðan
áhuga, og reyndu t.d. að ná upp á
yfirborðið sovézkum kafbáti af Golf-
gerð er brotnaði í tvennt og sökk á
Kyrrahafi 1974. Lék Bandaríkja-
mönnum einkum forvitni á að ná
upp kjarnorkuvopnabúnaði kafbáts-
ins.
Tilraunir til að ná bátnum eða
vopnabúnaði hans upp á yfirborðið
mistókust, en kostnaðurinn af til-
raununum varð um 175 milljarðar
króna.
Smíðaöir í flýti?
Kjarnorkukafbáturinn, sem lask-
aðist við Okinawa, er einn fimm
kjarnorkuknúinna báta af gerðinni
Echo Mark 1, er Sovétmenn smíðuðu
í hálfgerðum flýti á árunum 1961—
62 til að geta skotið kjarnorkuvopn-
um neðansjávar á skotmörk í landi.
Vestrænir sérfræðingar hugðu bát-
ana fimm vera eins konar frumgerð-
ir, þvt i framhaldi af þeim hafa
Sovétmenn smíðað a.m.k. 29 full-
komnari kjarnorkukafbáta er kall-
aðir eru Echo 2. í hverjum þeirra
eru átta langdrægar eldflaugar bún-
ar kjarnaoddum.
Echo 1 kjarnorkubátarnir eru
hins vegar „aðeins” búnir tíu tund-
urskeytum hver. Sérfræðingar
segja, að þeir séu hluti af skipa-
sveitum er fylgjast með flugmóð-
urskipum óvinarins á Kyrrahafi og
á Indlandshafi.
Nýlegar upplýsingar sem birtar
hafa verið í Japan, benda til mikilla
umsvifa sovézkra skipasveita af
þessu tagi undan ströndum Okin-
awa, þar sem þær hafa fylgst með
ferðum bandarískra herskipa til og
frá Subicflóa á Filipseyjum, Yoko-
suka flotastöðinni suður af Tókýó og
til og frá höfuðstöðvum Kyrrahafs-
flota Bandaríkjamanna í Pearl Har-
bour. í þessum skipasveitum eru
venjulega tveir kafbátar, beitiskip
þrír tundurspillar, birgðaskip og
önnur hjálparskip. Þykir ekki ótrú-
legt að myndir frá gervihnöttum
eigi eftir að leiða í ljós að skip af
þessu tagi voru í grennd við kafbát-
inn er eldurinn kom upp. Þar sem
svoézkir dráttarbátar og kaupskip
voru í grenndinni hafði skipasveitin
ekki ástæðu til að sveima við
kafbátinn, hún hafði öðrum hnöpp-
um að hneppa, því bandaríska flug-
móðurskipið Midway og níu önnur
bandarísk herskip voru við æfingar
undan Yokosuka er atvikið átti sér
stað.
Echo 1 kafbátarnir eru knúnir
áfram af tveimur gufuhverflum, en
gufan er framleidd í einum kjarna-
ofni sem komið er fyrir miðskips.
Gasolíuknúin hjálparvél er um borð.
Úraníumstengur í kjarnaofninum
eru endurnýjaðar á tveggja ára
fresti í flotastöðinni í Vladivostock.
Eldur i rafbúnaöi
Ljósmyndir er Japanir tóku á
slysstað benda til þess að eldur hafi
komið upp í rafbúnaði kafbátsins, og
fjarskipti er bandarískir sérfræð-
ingar komust yfir virðast staðfesta
að svo hafi verið. Leikur grunur á,
að eldurinn hafi komið upp í rafbún-
aði í stjórnherbergi kjarnaofnsins,
og mennirnir níu er létust hafi
kafnað við slökkvistörf. Ekki hefur
fundizt nokkur vottur um að geisla-
virk efni hafi komizt út í umhverfið,
og þykir það benda til þess, að hið
margflókna öryggiskerfi sem tengt
er kjarnaofnum hafi komið í veg
fyrir að kjarnaofninn hafi bráðnað
og eða að geislavirk efni hafi lekið í
sjóinn.
Traustur öryggisbúnaður?
Þetta gefur sérfræðingum um
sovézkan sjóhernað, sem vita frekar
lítið um kjarnaofna sovézkra kaf-
báta, vísbendingu um, að öryggisút-
búnaður kjarnorkukafbátanna sé
þannig úr garði gerður, að starf-
ræksla þeirra sé tiltölulega áhættu-
lítil. Grunur hefur leikið á, að
bátarnir af Echo 1 gerð hafi verið
smíðaðir í það miklum flýti til að
vega upp á móti Pólaris kafbátunum
bandarísku, að frágangur kjarn-
orkubúnaðarins hafi verið hroð-
virknislegur og' beinlínis hættu-
legur. Einn sérfræðingur, banda-
rískur, hefur komizt svo að orði eftir
slysið, að það væri viss hugarléttir
að vita að Sovétmenn gerðu sína
kjarnorkukafbáta jafn örugga úr
garði og Bandaríkjamenn gerðu
sína.
Hvað gerðist?
En ýmsum spurningum er enn
ósvarað, og verður áfram reynt að
grafast fyrir um hvað gerðist um
borð í kafbátnum sovézka. Ein
þeirra er hvers vegna skipherrann
bað brezkt kaupskip að koma skila-
boðum um brunann til sendiráðs
Sovétríkjanna í Tókýó. Varð raf-
magnsbilunin það mikil, að hin
langdrægu fjarskiptatæki bátsins
urðu óvirk?
Þannig hugsa vestrænir sérfræðingar sér atburöina um borð í sovézka
kjarnorkukafbátnum.
Og hvers vegna klæddist hluti
áhafnarinnar hlífðarbúnaöi við
geislavirkni? Særðust þeir bruna-
sárum? Urðu þeir fyrir geislun? Var
hér um bragð af hálfu skipherrans
að ræða, til að trufla áhafnir á
þyrlum japanska sjóhersins er tóku
ljósmyndir af kafbátnum í sífellu?
Allavega skutu kafbátsmenn leift-
urljósum að þyrlunum, að því er
virtist til að rugla ljósmyndara í
riminu.
Enginn leki á
geislavirkum efnum?
Skýrt hefur verið frá því af
opinberri hálfu í Japan, að fyrstu
athuganir bendi ekki til þess að
geislavirk efni frá kafbátnum hafi
lekið í sjóinn. Enn er þó beðið eftir
niðurstöðum nákvæmrar rannsókn-
ar á þessu.
Hverjar sem niðurstöður jap-
anskra og bandarískra aðila á brun-
anum í sovézka kjarnorkukafbátn-
um verða, mun athyglin í auknum
mæli beinast að öryggi kjarnorku-
kafbáta.
Kjarnorkukafbátar eru búnir
kjarnaofni, sem er keimlikur ofnin-
um er bilaði í raforkuverinu á
Þriggjamílueyju í Bandaríkjunum í
fyrra. Fræðilegur möguleiki er, að
sögn sérfræðinga, að kjarnaofninn
geti „bráðnað" og að við það leki
hvítglóandi og hrikalega geislavirkt
kjarnorkueldsneyti út í hafið.
Að því er bezt er vitað, hefur
aldrei skapast ástand þar sem hætta
á slíkri bræðslu vofði yfir. Kælivatni
er stöðugt dælt um kjarnaofninn
með útbúnaði, sem tengdur er bæði
gufuhverflunum og hjálparvélunum,
og ef kafbáturinn verður alveg
vélvana, eins og sá sovézki, er enn
möguleiki á að loka kjarnaofninum
með því að slaka sérstökum „stilli-
stöngum" niður í miðju ofnsins.
Eldhætta i einangrun
Sérfræðingar segja að helzt sé
hætta á útbreiðslu elds í eldri
kafbátum um einangrun á gufupíp-
um. Einangrunin er „gífurlega um-
fangsmikir þar sem yfirhituð gufa
fer um þær frá kjarnaofninum að
hverflunum, sem knýja skipið
áfram. Þessi einangrun verður olíu-
mettuð með tímanum, þar sem
leiðslurnar liggja um hjálparvéla-
húsið. Kvikni eldur í einangruninni
logar hann lengi „eins og kveikur í
lampa“. Myndast þá kæfandi reykur
og illmögulegt er að ráða niðurlög-
um elds af þessu tagi. Líkur eru
taldar á, að áhafnarmennirnir níu
hafi látist við að reyna að ráða
niðurlögum elds af þessu tagi. Ótrú-
legt þykir allavega að þeir hafi orðið
fyrir geislun, og að geislavirk efni
hafi lekið út, jafnvel þótt sézt hafi
til áhafnarinnar sprauta sjó yfir
dekk kafbátsins. Talið er öílu lík-
legra að þeir hafi gert það til að
„kæla“ skrokk skipsins eftir mikinn
eldsvoða innanskips.
( Þýtt og cndursagt).