Morgunblaðið - 18.09.1980, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1980
Samkeppnin í
flugheiminum
kyns útgjaldahækkanir fyrir fjöl-
skyldurnar, sem verða að halda
áfram að verja fjármunum í
nauðsynjavarning, en skera niður
kostnað við orlof og ferðalög. Því
er talið að sólarlandaferðir frá
Danmörku hafi dregist saman um
allt að 30% í sumar miðað við
fyrri sumur. Þá hafa ferðir
Bandaríkjamanna til Evrópu stór-
um dregist saman, en þær voru
vaxandi allt fram til ársins 1978.
Fjöldauppsagnir og
samdráttur
Öll þessi ólga í flugmálum
heimsins hefur komið niður á
starfsmönnum i þessari atvinnu-
grejn. Talið er að starfsmönnum
bandarískra flugfélaga muni á
þessu ári fækka um 10.000 og er
þar byggt á ástandi í dag og spám
út árið. Talan er frá Sambandi
bandarískra flugfélaga, sem spáir
einnig lakari afkomu flugfélag-
anna á þessu ári en nokkru sinni
fyrr í sögu flugsins. Bandarísk
flugfélög hafa orðið að selja flug-
vélar og byggingar til að lagfæra
rekstrarfjárstöðu sína og þannig
hefur t.d. Braniff International
ráðgert að selja um 30 flugvélar,
sem er um 25% flugflotans. Er
söluverðið talið verða um 180
milljónir dala og ættu að grynnka
á yfir 700 milljón dala skuld
félagsins. Þá er Pan American
tilneytt til að selja skrifstofubygg-
ingu sína í New York á 400
milljónir Bandaríkjadala og sagt
var nýlega upp kringum 3.500
starfsmönnum. Þannig mætti
lengi halda áfram að rekja rauna-
sögu flugfélaga og erfiðleika
þeirra.
En þrátt fyrir þetta allt og þrátt
fyrir það hversu illa horfir nú í
ferða- og flugmálum heimsins
halda menn því fram að brátt
stytti upp. Talað er um að hér
verði ekki um langa kreppu að
ræða og í hinum stóra flugheimi
gera menn sér vonir um að úr
þessu rætist á næsta ári. Þá hafi
menn jafnað sig nokkuð á hraðri
hækkun flugfargjalda og annarri
dýrtíð, séu tilbúnir til að safna á
ný fyrir langferðum og muni þá
heldur fjölga flugfarþegum á ný.
En eins og nú er í pottinn búið
glíma mörg flugfélög við sparnað-
ar- og samdráttaraðgerðir, sem
vonandi linnir.
Árið 1965 kom fyrsta Fokker F-27-vélin til landsins og hafa þær reynst mjög vel við hinar erfiöu aöstæður
innanlandsflugsins. Myndin er tekin þegar Fokker-vél kom fyrst til ísafjarðar.
Unniö að viögerð DC-4 Skymaster-vélarinnar Heklu é Reykjavíkurflugvelli. Myndin var tekin um 1950.
við önnur lönd bæði í vestri og
austri og mun það verða höfuð-
markmið okkar við þessa breyttu
skipan mála. Þá ber að leggja
áherslu á aukningu ferða erlendra
ferðamanna til landsins þar eð
mjög erfitt er að halda uppi
nægjanlegri tíðni ferða án þess að
til komi erlendir ferðamenn. Það
gerir smæð hins íslenska markað-
ar.“
Engum blöðum er um það að
fletta að samdráttaraðgerðir
Flugleiða hafa verið umdeildar og
verða sjálfsagt lengi enn. Komið
er að lokum hins íslenska flug-
ævintýris eins og það hefur verið
undanfarin ár, og á það bæði við
um áræði Loftleiðamanna og
Flugfélags íslands. Á þeim grunni
er frumherjar félaganna lögðu
reis Flugleiðir og hafa starfað þar
allt að 1.700 manns þegar flest
hefur verið á góðu árunum. Lengi
var talan milli 13 og 14 hundruð
starfsmenn, en nú er útlit fyrir að
hún verði milli 850 og 900.
Fleiri erlenda
ferðamenn
Seint í ágústmánuði flutti Sig-
urður Helgason, forstjóri Flug-
leiða, erindi á fundi Rotaryklúbbs
Austurbæjar og ræddi þar um
stöðu flugs á alþjóðavettvangi.
Lokaorð hans fjölluðu um Flug-
leiðir og sagði hann þá: „Eins og
mönnum er kunnugt, höfum við
hér á íslandi ekki farið varhluta
af þessu ástandi og hefur nú sú
ákvörðun verið tekin af stjórn
Flugleiða, að draga verulega úr
Atlantshafsflugi félagsins. Það
hefur verið rekið með stórfelldum
halla og er útilokað að halda
slíkum hallarekstri áfram. Þessi
samdráttur er óhjákvæmilegur, en
því miður ekki um annað að ræða
eins og málum er nú háttað. Að
sjálfsögðu verður lögð öll áhersla
á að tryggja samgöngur íslands
Flugleiðir stórt
nafn í Luxemborg
Luxemborgarmenn hafa gegn-
um árin haft mikinn hag af veru
Flugleiða þar í landi. Hefur far-
þegum verið beint þangað í stór-
um stíl og í kringum þá byggst
upp atvinna, hótel og annað í
kringum móttöku ferðamanna.
Ekki er því óeðlilegt að yfirvöld
þar vilji leggja nokkuð af mörkum
til að Flugleiðir haldi stöðu sinni.
Flugleiðir hafa í 25 ár verið stórt
nafn þar í landi og þykir mönnum
leitt að horfa e.t.v. fram á það, að
félagið hverfi þaðan. En hvernig
þeim málum lyktar er ekki ljóst á
þessu stigi, viðræður milli ríkis-
stjórna landanna standa nú yfir
og þær skera væntanlega úr um
hvort aðilar vilja styðja og styrkja
Flugleiðir til að halda áfram
Atlantshafsfluginu eða ekki.
HL/JT
Flugbjörgunarsveitin kringum 1948.
Blindflugsskéli var starfræktur á Reykjavíkurflugvelli fré 1. október 1947 og flugmönnum Loftleiða og
Flugfélags íslands kennt að ftjúga með aöstoð mælitækja. Hér er Eric Cooney að þjélfa Hörð Sigurjónsaon
sem þé var ftugmaður Flugfélags íslands.
m M
Fyrsta vél Flugfélags íslands á Akureyrarpolli. Vélin var keypt fyrri
hluta érs 1938.
Næst í sunnudagsblaði
Staða Flugleiða
og framtíðin
Fjallað veröur um erfiðleika Flugleiða { framhaldi af tapinu é
Atiantshafsfluginu og viðbrögöin við því, minnst é vandamél
tlugmanna og samskipti Flugleiða og Arnarflugs