Morgunblaðið - 18.09.1980, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1980
17
Jón Magnússon, formaður SUS:
Sjálfstæðisflokkurinn
er ekki einkafyrirtæki
í deilum þeim, sem risið hafa
meðal æðstu forystumanna Sjálf-
stæðisflokksins, vill það stundum
gleymast að allflestir sjálfstæð-
ismenn fylgja flokknum vegna
lífsskoðana sinna, en ekki af
fylgispekt við tiltekna forystu-
menn. Afstaða þeirra til einstakra
mála mótast því af þeim mark-
miðum sem þeir vilja berjast fyrir
í þjóðmálum.
Það er því rangt að halda því
fram að sjálfstæðismenn skiptist
annars vegar í Geirsmenn og hins
vegar í Gunnarsmenn. Báðir þess-
ir forystumenn eiga marga
áhrifamikla stuðriingsmenn, en
allur fjöldinn í flokknum vill fyrst
og fremst vinna að því að skapa
frið í flokknum og efla hann til
dáða á nýjan leik með eða án
Gunnars og Geirs eftir atvikum.
Skömmu eftir myndun ríkis-
stjórnar dr. Gunnars Thoroddsen
tók fjölmennur fundur ungra
sjálfstæðismanna eindregna af-
stöðu gegn ríkisstjórninni á mál-
efnalegum grundvelli vegna ým-
issa ákvæða í málefnasamningi
hennar sem að okkar mati braut í
bága við samþykktir og stefnu
ungra sjálfstæðismanna. Þarna
var tekin afstaða til málsmeðferð-
ar en ekki manna, þó að ýmsir létu
í veðri vaka að nú hefðu ungir
sjálfstæðismenn gengið á mála
hjá Geirsarminum í Sjálfstæðis-
flokknum.
Nú fyrir skömmu leyfði fram-
kvæmdastjórn SUS sér að koma á
framfæri sjónarmiðum sínum
varðandi ráðningu framkvæmda-
stjóra flokksins, þar sem gagn-
rýnd var málsmeðferð formanns
flokksins í því máli, þá bregður
Jón Magnússon.
svo við að hrópað er, atlaga af
hálfu Gunnarsmanna að Geir!
Þar sem mál þetta hefur fengið
takmarkaðri umfjöllun í Morgun-
blaðinu finnst mér eðlilegt að
benda á helstu sjónarmið sem
liggja að baki viðhorfum okkar í
þessu máli.
Það er ljóst að Sjálfstæðisflokk-
urinn á við mikla erfiðleika að
etja fjárhagslega, skipulagslega
og vegna innanflokksdeilna. Að
okkar mati var því nauðsynlegt að
leita eftir manni í starf fram-
kvæmdastjóra, sem hefði víðtæka
þekkingu og reynslu í fjármálum
og stjórnun og nyti stuðnings eða
hlutleysis stríðandi afla í flokkn-
um. I vor, þegar umfjöllun um
málið hófst, voru fáir trúaðir á að
slíkur maður væri fáanlegur til að
taka starfið að sér, en í júlí sl. kom
fram að Ragnar Kjartansson, sem
uppfyllir bæði framangreind skil-
yrði mjög vel, var reiðubúinn til
viðræðna um málið. Að mati
okkar, sem fjölluðum á þeim tíma
um málið í framkvæmdastjórn
SUS, var Ragnar óumdeilanlega
hæfasti og æskilegasti maðurinn
sem völ var á til framkvæmda-
stjórastarfa í Sjálfstæðisflokkn-
um við þær aðstæður sem nú
ríkja, því auk þess að uppfylla þau
starfsskilyrði, sem minnst var á
hér að framan, hefur hann ekki
skipað sér í fylkingu stríðandi afla
í flokknum. Við sáum því í Ragn-
ari sem framkvæmdastjóra mann,
sem gæti leyst brýnustu vanda-
málin á sviði fjármála og stjórn-
unar flokksins, auk þess sem hann
ætti alla möguleika á að efla
flokksstarfið og fá aftur til starfa
menn sem hafa horfið frá því
vegna innanflokksdeilna.
Það urðu okkur því mikil von-
brigði, þegar það var ljóst að
formaður Sjálfstæðisflokksins
hafði ekki áhuga á þessari lausn,
sem við . töldum, og teljum, að
hefði verið flokknum fyrir bestu,
en skv. viðtali við Ragnar í
Dagblaðinu þ. 13.9. sl. kemur það
greinilega fram að svo var ekki, en
þar segir Ragnar: „Ég lýsti mig
reiðubúinn til viðræðna um málið
að tilteknum skilyrðum uppfyllt-
um. Þeir, sem höfðu ráðningar-
málin á sinni könnu fyrir flokk-
inn, höfðu hins vegar ekki áhuga
á að ræða við mig og þar með var
málið úr sögunni."
Geir Hallgrímsson hafði alfarið
með ráðningu framkvæmdastjóra
að gera og mér er fullkunnugt um
að fjölmargir urðu til þess auk
mín að leggja að honum að ráða
ÚT ER komin hjá Almenna bókafé-
laginu ný frönsk málfræði, sem
Emil H. Eyjólfsson. háskólakenn-
ari. hefur búið i hendur islenzkum
notendum. Bókin er upphaflcga
unnin i Vestur-Þýzkalandi og er
miðuð við Etudes Francaises Cours
Intensif, sem frönskunemendur
kannast við. Þetta er fyrri hluti
málfræðinnar og kemur annar
hluti innan skamms.
Þessi málfræði er í senn mjög svo
auðveld í notkun, þar sem öll atriði
eru skipulega sett upp með töflum,
Ragnar í starfið, en á því var ekki
áhugi eins og fram kemur í
viðtalinu við Ragnar. Það er því
alröng fullyrðing sem komið hefur
fram í Dagblaðinu, að Ragnar
væri sérstakur kandidat SUS og
Gunnars Thoroddsen. Staðreyndin
er sú að fjölmargir áhrifamenn í
flokknum lögðu á það mikla
áherslu að hann yrði ráðinn.
Ég hef vakið á því athygli, að
það sé alvarlegur hlutur ef það
ástand á að skapast í flokknum, að
eingöngu menn handgengnir for-
ystumönnum flokksins séu taldir
hæfir til trúnaðarstarfa fyrir
hann. Með slíkum vinnubrögðum
verður Sjálfstæðisflokkurinn ekki
stór og sterkur flokkur til lengdar.
í Sjálfstæðisflokknum eru mörg
og mismunandi sjónarmið til
manna og málefna og það hlýtur
ávallt að vera hlutverk forystu-
manna hans að leita þeirra leiða
sem sameina flokksmenn. Enginn
forystumaður flokksins hefur leyfi
til að líta á flokkinn sem einkafyr-
irtæki sitt, en flokkurinn er sam-
eign okkar allra sem myndum
hann og allt sjálfstæðisfólk á rétt
á því að skoðanir þess séu virtar,
óháð því hvort þær falla saman
við skoðanir þeirra, sem ráða í
flokknum í hvert skipti.
Reykjavík, 15.9 1980,
lituðum flötum og uppdráttum, og
auk þess er hún mjög rækileg og
þægileg að fletta upp í henni.
Málfræðihugtök öll eru bæði á
íslenzku og frönsku. Þó bókin sé
miðuð við ákveðna kennslubók er
hún hentug hverjum þeim sem
fræðast vill um frönsk málfræðiat-
riði.
Bókin er 71 bls. að stærð og unnin
í Prentstofu G. Benediktssonar og í
Speyer am Rhein í Vestur-Þýzka-
landi.
AB gefur út nýja
franska málfræðibók
Stúdentakór-
inn í Lundi heim-
sækir Island
ÞESSA dagana er á tónleikaferð
um ísland stúdentakór háskólans
í Lundi. Þetta er fyrsta heimsókn
kórsins til tslands.
Stúdentakórinn kom til Iands-
ins 14. þessa mánaðar og hefur
þegar haldið tónleika i Iláteigs-
kirkju og Skálholtskirkju. báða
til minningar um dr. Róbert A.
Ottósson, og einnig hefur kórinn
sungið f Vfkurröst á Dalvík og i
gærkvöldi i Akureyrarkirkju.
A efnisskrá kórsins eru m.a.
íslenzk tónverk: íslenzkur kirkju-
söngur frá miðöldum, Þorlákstíðir,
tónverk eftir dr. Róbert A. Ottós-
son og Pál P. Pálsson.
í för með kórnum er próf. Gösta
Holm norrænufræðingur, sem
mikið hefur unnið að sænsk-
íslenzkri orðabók og hélt Gösta
Holm fyrirlestur um það starf sitt
í Háskóla íslands á þriðjudags-
morgun. Auk þess fluttu fyrir-
lestra þeir Dr. Folke Bohlin í
guðfræðideild og dr. Stig Persson í
læknadeild.
Á föstudagskvöld heldur kórinn
almenna tónleika i hátíðarsal
Menntaskólans við Hamrahlíð. Og
laugardaginn, 20. september held-
ur píanóleikari kórsins píanó-1
tónleika í Norræna húsinu klukkan
17. Lýkur þá heimsókn stúdenta-
kórs háskólans í Lundi til íslands.
Kynntu þér f jölþætt notagildi lausblaðabókanna frá Múlalundi. Þær eru
níðsterkar og endast árum saman. Ótal mismunandi gerðir og stærðir,
fyrir mismundi þarfir.
Vinnubækur fyrir skóla. Verðlistar og allskyns upplýsingabækur fyrir
fyrirtæki. Ljósmyndaalbúm, jafnvel myntalbúm. Bjóðum líka
plasthulstur innan í bækurnar til þessara nota. Bjóðum gyllingu eða
áprentun ef óskað er. Verðið er lágt og möguleikamir óteljandi. ®
Hafið samband við sölumann. ji
Múlalundur
Ármúla 34 - Símar 38400 og 38401 - 105 Reykjavík
Lausblaðabækur
sem halda fast utan um hlutina