Morgunblaðið - 18.09.1980, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 18.09.1980, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1980 Gleymið ekki börnunum Leikbrúðubíllinn í Bústaðahverfi Myndir og texti: Þórir S. Guðbergsson Sólin kom upp með pomp og pragt. Ok innan tiðar fór hún að leika sér við hvern vin sinn á fætur öðrum. t>eir komu i ákveðinni röð og kynntu sig með þvi að syngja söng: _Ég heiti óli rauði.. Ég heiti Gústi græni... Ég heiti Stjáni blái.. “ o.s.frv. Áhorfendur voru sem í öðrum heimi. Söngurinn skipaði háan sess i dagskránni. Áður en varði hafði Sigriður fengið 6 börn til að koma upp á pall og syngja. bau voru ekki öil jafn örugg og ófeimin. Það var heldur ekki ætlunin að leyfa «stjörnunum“ að hrífa hug áhorfenda. Ekki má gleyma þeim, sem hafa minni getu. en langar samt til að spreyta sig. Á ekki að reyna að gera öllum jafnhátt undir höfði? Sigriður Hannesdóttir bauð alla gesti velkomna, bæði börn og fullorðna. i upphafi samverunnar. Greinilegt var, að hér var kunnáttumanneskja á ferð og athygli barnanna beindist strax að orðum Sigriðar. Það vakti athygli okkar, að fjöldi mæðra og amma voru með börnunum að þessu sinni og setti það óneitanlega svip á félagsskapinn. Fullorðnir og börn eiga saman. Fyrsti dagskrárliðurinn var leikritið um prinsessuna, sem langaði til að eignast leikfélaga. Hún var ein á báti eins og kemur oft fyrir hjá börnum. Hún fann til einmanaleika og langaði þvi að eignast leikfélaga. Þar komu við sögu bæði kálfur og kýrin Skjalda og mitt i leiknum tóku allir undir og sungu hástöfum: „Nú skal syngja um kýrnar, sem baula oft i kór, þær gefa okkur mjólkina, svo öll við verðum stór.“ Hver sá tími sem varið er með börnum og fyrir börn er sáningartími, tími gagnkvæmrar gleði og endurnýjunar. Leik- brúðubíllinn var á ferð um gæsluvelli Reykjavikur í sumar eins og undanfarin sumur. Við heimsóttum þær stöllur, Sigríði Hannesdótt- ur og Helgu Stephensen, þegar leikbrúðubíllinn var við gæsluvöll- inn í Bústaðahverfi í sumar. Sigriður kynnti hvert atriðið á fætur öðru. Þess á milli lét hún krakkana syngja eða sagði þeim stutta sögu. Allur tækniútbúnað- ur var í góðu lagi og greinilegt, að hér var einnig æfður maður að verki, sem hafði skilning á þvi, hversu mikilvægt það er, að efni sem flutt er, komist almennilega til skila. Annars er allt unnið íyrir gýg. Að lokum birtist Helga Stephensen og kynnti leynigestinn fyrir glöðum og kátum áhorfendum. Leynigesturinn gægðist út fyrir tjaldið og börnin klöppuðu fyrir náunga, sem flestir eða allir könnuðust við — einum af skriplunum. Skriplarnir enduðu eðlilega með þvi að syngja og láta alla taka undir. Þakklátur hópur kvaddi leikbrúðubilinn, sem var að enda sumarstarf sitt um þetta leyti. Börnunum á gæsluvöllunum hafði ekki verið gleymt á þessu sumri. Þau fengu heimsókn af góðu fólki, sem vissi, að börn og fullorðnir eiga saman.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.