Morgunblaðið - 18.09.1980, Síða 35

Morgunblaðið - 18.09.1980, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1980 35 Athugasemd í MORGUNBLAÐINU 16. sept. sl. birtist greinarstúfur eftir Hilmar Foss, þar sem fram kemur að Hilmar telur sig einan manna vita hver var vilji Mark heitins Wat- sons, er hann gaf íslendingum dýraspítala. Þessari fullyrðingu til staðfest- ingar birtir hann glefsur úr bréfi, sem hann segir hafa verið „síðustu orðsendingar til mín (Sigríðar Asgeirsdóttur)" frá Mark heitnum Watson. Þar sem Hilmar Foss fer hér með rangt mál óska ég eftir að fá að koma á framfæri leiðréttingu í blaðinu. Hið sanna er að síðasta bréf Marks til mín hljóðaði þannig: „London 24. janúar 1979. Kæra frú Sigríður Ásgeirsdóttir, þakka þér fyrir bréf þitt, sem ég fékk snemma í síðasta mánuði. Það gladdi mig mjög að heyra að smádýraspítalinn muni verða opnaður 1. janúar. Ég vona að allt takist á viðunandi hátt. Vinsam- legast láttu mig vita. Mínar bestu óskir fyrir árið 1979. Þinn einlæg- ur Mark Watson." Þessu til staðfestingar leyfi ég mér að láta fylgja ofannefnt bréf, á frummálinu. Ég vil engum getum leiða að því, hvað vakir fyrir Hilmari Foss með ofannefndri grein sinni, en eitt er víst, að þar heggur sá, er hlífa skyldi. Með þökk fyrir birtinguna. Sigríður Ásgeirs- dóttir hdl. Form. dýraverndun- arfél. Reykjavikur. 14 EATON PLACE LONDON SW1X 8AE c\ ,<j-e /Wo Cc ,t /t~ .« "" J- //L.a.y /,r * ÍL C .—»■>■>- A _ Á* — 7^ ■Xt.r ~4~í "2ÁrV* /v—d-r) Ástþór Ragnarsson iðnhönnuður: Víst er það einokun í Morgunblaðinu 6. sept. birtist grein eftir Ernu Ragnarsdóttur innanhússarkitekt, þar sem hún gagnrýnir réttilega þátttökuregl- ur í samkeppni um gangstéttar- biðskýli SVR. Samkeppnisnefnd A.í. og dómnefnd samkeppninnar, sem að meirihluta er skipuð arki- tektum, þótti þar nærri sér höggv- ið að vera taldir hlutdrægir eigin félögum, og birtust varnarskrif þeirra í Morgunblaðinu 13. sept. sl. I svari dómnefndar segir, að ákveðið hafi verið að efna til tveggja þrepa samkeppni: „... Fyrra þrepið var almenn hug- myndakeppni, opin öllum, og var skilafrestur til 15. apríl sl. Til- gangur hennar var að fá fram verulega góðar hugmyndir að gangstéttarbiðskýli, sem síðar væru lagðar til grundvallar við gerð útboðslýsingar fyrir þann hluta keppninnar, sem nú stendur yfir.“ Þá segir einnig í svari dóm- nefndar, að báðir hlutar þessarar samkeppni hafi verið kynntir í fjölmiðlum. Eftir því sem ég hef komizt næst var sú kynning eftir- farandi: I Þjóðviljanum þann 22. marz birtist frétt^þar^. sem sagt var frá tilgangi og fyrirkomulagi keppninnar svo og upphæð verð- launa (100, 75 og 50 þús. kr.). Þá kom smáfrétt í Tímanum' 27. marz. Þar segir, að dómnefndin hafi ákveðið að gefa farþegum SVR og öðrum Reykvíkingum tækifæri á því að segja álit sitt á því hvernig þeir álíti að biðskýli eigi að vera og hvaða hlutverki þau eigi að gegna. Þessar tvær fréttir kallar dómnefndin fjöl- miðlakynningu. Það er eftirtektarvert, að hinn almenni hugmyndasmiður (ef hann les Tímann eða Þjóðviljann) fær tæpar þrjár vikur til hug- myndasköpunar og á möguleika á í mesta lagi 100 þús. kr. verðlaun- um. Arkitektinn fær tíu vikur til að koma tillögum sínum á blað, tillögum, sem allt eins gætu verið frá einum eða fleiri hugmynda- smiðanna og á möguleika á „ekki lægri en 1.500 þús. kr. verðlaun- um“. í þessu s'ambandi vil ég benda á, að góð hugmynd er undirstaða góðrar hönnunar. Hug- myndin er í flestum tilfellum mun meira virði en teikning, sem unnin er á grundvelli hennar. Þá held ég, að það sé einsdæmi, að iðnhönnuð- ir, og hönnuðir yfirleitt, séu úti- lokaðir frá slíkri samkeppni, svo sem hér er gert af þröngsýni. Þó mun það vera að skapi margra félagsmanna A.í. vftfttWun er Innritunarsímar: ▼ «4750 kl 1D — 7 _ w 84750 kl. 10—7. 29505 kl. 10 — 7. 53158 kl. 1—6. Kenndir veröa: Barnadansar, yngst 3ja ára. Hjóna- og Diskódansar einstaklingsflokkar Jazz-dans Rock Stepp Konu beat 20 ára Samkvæmisdansar og eldri. Takið eftir: Nýjung frá Þýskalandi Fjörug og skemmtileg spor í Rocki. DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS <><)<► NY NILFISK Nú er sterka ryksugan ennþá sterkari. Nýr súper-mótor: áður óþekktur sogkraftur. Ný sogstilling: auðvelt að tempra kraftinn Nýr ennþá stærri pappírspoki með hraðfestingu. Ný kraftaukandi keiluslanga með nýrri festingu. Nýr vagn sameinar kosti hjóla og sleða. Auðlosaður í stigum SOGGETA I SÉRFLOKKI binslakur mólor, cfnisgxöi. mark- visst byggingarlag. afhragös sog- slykki já, livcrl smáatriói siuölar ao soggclu í scrflokki. fullkominni orkunýtingu. fyllsla nolagildi og d.cmalausri cndingu. GERIÐ SAMANBURÐ: Sjáið t.d. hvcrnig sl.cró, lögun og staðsctning nvja Nilfisk-risapokans tryggir óskerl sogafl þóll i hann safnisf. GÆÐI BORGA SIG: Nilfisk er vönduð og tæknilega ósvikin. gerð til að vinna siit verk fljótt og vel. ár eftir ár, með lág- marks truflunum og tilkostnaði. Varanleg: lil lengdar ódýrust. Afborgunarskilmálar. Traust þjónusta. 11 ETI I^T heimsins besta ryksuga Ægm l**l ^■1 IwW Stór orð, sem reynslan réttlætlr. MM ImJ | | |^\k FYRSTA FLOKKS FRÁ FÖNIX HÁTÚNI — SÍMI 24420

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.