Morgunblaðið - 18.09.1980, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1980
47
Marteinn Geirsson fyrirliði Fram
varö jafn Sigurði í öðru sæti með
6,8 i meðaleinkunn í 18 leikjum.
Knatlspyrna
Trausti Haraldsson Fram leikmaður
íslandsmótsins í knattspyrnu 1980
ÍSLANDSMÓTINU í knattspyrnu er lokið og sigurvegari i stiga-
keppni Morgunblaðsins um leikmann íslandsmótsins hefur verið
valinn. Að þessu sinni varð keppnin milli leikmanna óvenju jöfn og
hörð. Og það var ekki fyrr en í siðustu umferð að úrslit urðu ljós hver
myndi hrcppa hinn eftirsótta titil. Það kom að þessu sinni i hlut
Trausta Haraldssonar varnarmannsins sterka úr Fram. Trausti lék
15 leiki í íslandsmótinu hlaut 104 stig eða 6,9 að meðaltali. Þcir
Marteinn Geirsson Fram og Sigurður Grétarsson Breiðabliki urðu
jafnir í öðru sæti með 6,8 i meðaleinkunn. Af þessu má sjá hversu jöfn
og spennandi keppnin var á milli leikmanna.
Eins og skýrt var í upphafi
mótsins varð leikmaður að leika
15 kappleiki í mótinu til þess að
vera gildur í keppninni um titilinn
leikmaður íslandsmótsins. Trausti
Haraldsson vinnur nú þennan titil
í fyrsta sinn og er hann vel að
honum kominn. Hann átti mjög
jafna leiki í Islandsmótinu með
liði sínu og aðeins einu sinni í 15
leikjum fékk hann einkunnina 6 í
öll hin skiptin fékk hann 7 í
einkunn. Trausti hefur undanfarin
ár verið fastur leikmaður í ís-
lenska landsliðinu í knattspyrnu
og ávallt sýnt mikinn baráttuvilja
og góða knattspyrnu. Morgunblað-
ið óskar Trausta Haraldssyni til
hamingju með titilinn leikmaður
Islandsmótsins í knattspyrnu árið
1980.
Markakóngur íslandsmótsins
varð eins og skýrt hefur verið frá
Matthías Hallgrímsson og mun
honum ásamt Trausta verða veitt
vegleg verðlaun frá Morgunblað-
inu í hófi síðar í haust. Hér á eftir
fer listi yfir efstu leikmenn í
einkunnargjöf Mbl. fyrir ís-
landsmótið í ár.
Trausti Haraldsson Fram 15 leikir 104 stig Meðal- einkunn 6,9
Sigurður Grétarsson UBK 16 lcikir 109 stig 6.8
Marteinn Geirsson Fram 18 leikir 124 stig 6,8
Magnús Bergs Val 16 leikir 114 stig 6,7
Guðmundur Þorbjörnsson Val 16 leikir 104 stig 6,5
Hcigi Bentsson UBK 14 leikir 91 stig 6,5
Dýri Guðmundsson Val 13 ieikir 84 stig 6,4
Ragnar Margeirsson ÍBK 17 leikir 109 stig 6,4
Einar Þórhallsson UBK 18 leikir 116 stig 6,4
Pétur Ormslev Fram 14 leikir 89 stig 6,3
(Sigurður Haraldsson Val lék 10 leiki, 68 stig, 6,8 eink.) - ÞR.
Sigurður Grétarsson hinn snjalli framlinumaður UBK varð i öðru sæti
með 6,8 i meðaleinkunn i 16 leikjum.
Trausti Haraldsson Fram hlaut
hæstu meðaleinkunn hjá Mbl. eða
6,9 í 15 leikjum sem hann lék i á
mótinu.