Morgunblaðið - 25.09.1980, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1980
3
„Málverkið er orðið verk
- segir Pétur Friðrik um verk sitt, Landslag,
sem bjóða átti upp í kvöld eftir viðgerð
PETTA málverk er ekki leng-
ur eftir mig, það er orðið verk
allt annars manns eftir að búið
cr að mála yfir það allt með
öðrum litum.“ saiíði Pétur Frið-
rik listmálari i samtali við
Morgunblaðið í gær, um verk
sitt Landslag. sem er á skrá hjá
listaverkaupphoði Klaustur-
hóla í kvöld.
Pétur sagði, að í sumar hefði
Guðmundur í Klausturhólum
beðið sig um að gera við myndina,
en hún hafði íent í bruna og
bólgnað upp að hluta. Pétur
kvaðst vilja bíða eftir heimkomu
kunningja síns frá útlöndum, sem
þekkingu hefði á slíkum viðgerð-
um, áður en hann segði til um
hvort hann tæki að sér að gera
við verkið. Áður en til þess kæmi,
að af viðgerðinni yrði, fór Pétur
síðan úr bænum, og hafði ekki
samband við Guðmund áður. —
„Er ég kom aftur, frétti ég svo, að
Benedikt Gunnarsson hefði gert
við málverkið. Nú, er ég svo sá
það, kémur í ljós, að „viðgerðin“
hefur gert myndina að allt öðru
málverki", sagði Pétur.
Málverkið Landslag sagði Pét-
ur vera málað í Grafningi, líklega
árið 1944 eða 1945.
Guðmundur Axelsson í Klaust-
urhólum sagði í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi, að
hann vildi ekki tjá sig um málið
að öðru leyti en því, að Pétur
hefði lýst sig mjög óánægðan með
myndina, og yrði hún líklega
tekin út af söluskránni. — Áður
yrði hann þó að ráðfæra sig við
eigendur hennar, en myndina
kvaðst Guðmundur vera með í
umboðssölu.
„Ég mótmæli því, að verkið sé
orðið að nýju. I viðgerðinni fór ég
eins nærri frumverkinu og unnt
var,“ sagði Benedikt Gunnarsson
listmálari í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi, er hann var
spurður álits á viðgerðinni og
óánægju Péturs Friðriks. „Mál-
verkið var mjög bólgið og flagn-
að,“ sagði Benedikt ennfremur,
„og töluvert skemmt af sóti. En
litur springur við hita og því
þurfti víða að mála í. Það er hins
vegar rangt, að hér sé um nýtt
málverk að ræða. En viðgerð af
þessu tagi er ekki unnt að fram-
kvæma án þess að mála í verkið.
Myndin var illa farin, liturinn
víða orðinn eins og duft, er datt
af við minnstu snertingu. Stórir
fletir voru einnig flagnaðir af.
Viðgerðina gerði ég eftir bestu
samvisku. Hér var um að ræða að
dæma verkið til dauða eða að
reyna að bjarga því. Vinna mín
var viðleitni til björgunar.
Ég vil hins vegar taka fram, að
er ég tók verkið að mér, skildist
mér, að Pétur vildi sjálfur ekki
nærri koma, en úr því sem komið
er, tel ég rétt að taka það út af
uppboðsskránni," sagði Benedikt
að lokum.
annars mannsu
Pétur FriArik listmálari við mynd sína, Landslag. Myndin er tekin
er Pétur hélt sýningu á verkum sinum i Listamannaskálanum áriA
1946.
Reyndi að gera við það eftir bestu samvisku, segir Benedikt Gunnarsson
Jóhann Jónsson og Ástþór Jóhannsson.
Galleri Landlyst
opnar í Eyjum
GALLERI Landlyst hefur
opnað í Eyjum og er það hópur
áhugaljósmyndara sem stendur
að galleríinu, en Landlyst við
Strandveg er eitt af elztu hús-
um í Vestmannaeyjum, byggt á
síðustu öld. Vetrarstarfið í
Galleri Landlyst hófst með
’opnun málverkasýningar Ást-
þórs Jóhannssonar og Jóhanns
Jónssonar, en sýning þeirra
félaga verður opin fram á
sunnudagskvöld.
Langeygðir eftir
sjónarmiðum rík-
isstjórnarinnar
PRENTARAR og prentsmiðjueig-
endur munu hittast hjá Guðlaugi
Porvaldssyni ríkissáttasemjara i
dag ki. 8 til þess að ræða málin og
kl. 2 e.h. hefst sameiginlegur fund-
ur ASÍ og Vinnuveitendasambands
íslands. Verða þar ra‘ddar sameig-
inlegar kröfur sem varða félagsleg
og aimenn kjaraatriði og einnig
verður fundur, þar sem stefnt er að
þvi að ljúka sérkröfuviðræðum við
Verkamannasambandið.
bnMtpinn Pálssor., fr»iiikvs0ni(ia-
stjóri Vinnuveitendasambandsins,
sagði í samtali við Mbl. í gær, að
þeir væru orðnir langeygir eftir
viðræðum við ríkisstjórnina um
,">'><rsmálapakkans, en
efnisatrioi
hann kvað ríkisstjórnina naiu
greint frá því í síðustu viku, að það
væri vilji til viðtals við okkur vegna
atriða í félagsmálapakkanum, en
nefnd ríkisstjórnarinnar hefur unn-
ið að þeim málum.
„Við höfum áhyggjur af því,“
sagði Þorsteinn, „að sá dráttur, sem
orðinn er, tefji samningagerðina,
því kostnaðarþættir í félagsmála-
pakkanum geta haft áhrif á launa-
þáttinn í kjarasamningunum.
Dráttur viðræðunefndar ríkis-
stjórnarinnar við undirnefnd okkar
getur því tafið fyrir lokaþætti
verksins."
Tvær sölur
í Englandi
TVÖ fiskiskip lönduðu afla sínum
í Grimsby í gær. Fylkir NK seldi
— fvrir 29,7 milljónir,
41,8 toiiu +j. Hrafn
meðalverð 710 krónur.
Sveinbjarnarson seldi 7o,3 tornn
fyrir 41 milljón, meðalverð of?
krónur.
Lítiö gallaðar denimbuxur — Dömu- m
samfestingar — Bolir — Blússur — 1
Skyrtur — Herraföt — Stakar buxur
Skór — Ptaköt — Metravara — Plötur
— Kassettur — Rannilásar — Tvinni —
Bækur — Smábarnaföt f gjafasettum
o.fI. o.fl. Otrúlegt vöruúrval.
Opið
í dag frá 1—6.
Hú er hver ad verða síðastur.
Látiö ekki happ úr hendi sleppa.