Morgunblaðið - 25.09.1980, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1980
Nemendur um skólabókamálið:
„Mótmælum harðlega
þessari svívirðu44
MBL. HEFUR borizt eftiríarandi
frá Landssambandi nemenda i
Siglufjörður:
Fyrsta flugað-
vörunarljósið
Siglufirði. 23. sopt.
í KVÖLD sáum við Siglfirðingar í
fyrsta skipti kveikt á flugaðvörun-
arljósi á staðnum. Ljósið er staðsett
á 47 metra háum skorsteini á
byggingu Síldarverksmiðju rikisins.
Vonandi er að flugmálastjórn láti
ekki sinn hlut eftir liggja og hefji
áframhaldandi lýsingu á flugvellin-
um- Matthías
Akranes:
mennta- og fjölbrautaskólum:
„Stjórnarfundur Landssam-
bands Mennta- og Fjölbrauta-
skólanema, haldinn í Menntaskól-
anum við Hamrahlíð, laugardag-
inn 20.09.’80 samþykkir einróma
eftirfarandi ályktun:
Fyrir hönd allra nemenda innan
L.M.F. mótmælir stjórn L.M.F.
harðlega þeirri svívirðu sem bóka-
útgefendur og bókasalar hafa
bundist samtökum um. Með því
samsæri sínu, að neita að selja
bókasölum framhaldsskólanna
kennslubækur á heildsöluverði,
vega þeir all harkalega að rótum
efnahagslegrar afkomu nemenda.
Hefur þessi ákvörðun þeirra í för
með sér stóra útgjaldaaukningu
auk allrar þeirrar fyrirhafnar sem
þetta fyrirkomulag hefur í för
með sér.
Leikhópurinn sem nú er á ferð um Evrópu með Stundarfrið eftir Guðmund Steinsson.
Þjóðleikhúsið:
\
í baráttu
í DAG frumsýnir Gamla bíó
nýja bandaríska kvikmynd,
í baráttu við kerfið (Hide in
Plain Sight).
Myndin er byggð á atburð-
um er urðu árið 1967 í
Buffalo í New York-fylki og
greinir frá samskiptum við
Mafíuna og baráttu manns
við að fá umgengnisrétt við
börn sín. Lendir hann í
baráttu sinni allmjög í
flækjum kerfisins. Leikstjóri
og aðalleikari er James
o
INNLENT
Gamla bíó:
Ofvitiim á fjalirnar á ný
Blandaður afli
hjá togurum
Akranesi. 23. scptemher.
TVEIR Akranestogarar lönduðu hér
í gær. Haraldur Böðvarsson 150
lestum og Óskar Magnússon 120
lestum. Aflinn var blandaður, en þó
mest karfi. Vélbáturinn Rán, sem er
á togveiðum, landaði hér einnig 20
lestum. Júlíus
Stjórn L.M.F. harmar mjög svo
þessa ákvörðun þeirra og vonar að
fyrrnefndir aðilar sjái að sér í
tíma, svo að bókasölur fram-
haldsskólanna geti tekið til starfa
nú strax um næstu áramót.
Væri það eflaust heppilegasta
lausnin að taka upp fyrra sam-
starf sem hefur reynst prýðilega
síðustu árin.
Stjórn Landssambands
mennta- og fjölbrautaskóla-
nema.“
Sýna Stundarfrið í Svíþjóð,
Júgóslavíu og Finnlandi
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ er nú á
leikför með leikritið Stund-
arfrið eftir Guðmund
Steinsson. Meðal annars
hefur verið komið við á
hinni merku leiklistarhátíð
BITEF í Júgóslavíu, og sýnt
var tvisvar í Þjóðleikhúsinu
í Belgrad. Vakti leikurinn
mikla athygli, og var að
margra dómi athyglisverð-
asta sýningin ásamt leik-
sýningu frá Dússeldorf í
Þýskalandi.
Þá voru atriði úr Stundar-
friði einnig sýnd í sjónvarpi í
Júgóslavíu. Þess má geta að
þetta er í annað skipti á
fáum árum sem íslensk leik-
rit vekja athygli á þessari
hátíð, en Þjóðleikhúsið sýndi
Inuk þar árið 1976.
Leikhópurinn er nú kom-
inn til Finnlands, og í gær-
kvöldi var sýning í Svenska
Teatern í Helsinki. Þá verð-
ur einnig sýnt í Stokkhólmi,
en heim verður haldið mánu-
dagipn 29. þessa mánaðar.
Þessi mynd er tekin í Ileilsuhælinu i Hveragerði þegar afmælis þess var minnst og má sjá hér hluta gesta.
Ljósm. Mbl. Siifrún.
Náttúrulækningafélagið minn-
ist tveggja merkisafmæla
HveraRerAi. 23. sept. 1980.
Náttúru)a‘kningafélag Íslands
hélt hátiðlega upp á tvö merkisaf-
mæli sl. laugardag. Var þcss
minnst, að nú eru liðin 25 ár frá
því að Ileilsuhadið í Hveragerði
tók til staría, en það hóf störf 24.
júlí 1955. Einnig var þess minnst.
að 110 ár eru liðin frá fa>ðingu
Jónasar Kristjánssonar læknis.
sem var aðalhvatamaður að stofn-
un NLFÍ og fyrsti forseti þess.
Framkvæmdastjórar Heilsuhæl-
isins hafa frá upphafi verið þrír,
fyrstur var Sigurjón Danivalsson,
þá Árni Ásbjarnarson, sem gegndi
starfinu í mörg ár. Núverandi
framkvæmdastjóri er Friðgeir Ingi-
mundarson og gaf hann góðfúslega
þær upplýsingar, sem fara hér á
eftir.
Þegar Heilsuhælið tók til starfa
hafði það rúm fyrir 40 sjúklinga, en
í dag eru þau 154, en þyrftu að vera
miklu fleiri, ef anna ætti eftir-
spurn, sem er mjög mikil.
Árið 1976 var hafist handa við
byggingu nýrrar álmu við Heilsu-
hælið og er unnið við hana eftir því
sem efni leyfa.
Björn L. Jónsson var yfirlæknir
hælisins frá 1965 til ’79, en hann
lést á sl. ári. Vann hann NLFÍ
mikið starf, var m.a. ritstjóri
Heilsuverndarblaðs félagsins. Við
yfirlæknisstöðunni tók Isak Hall-
grímsson, sérfræðingur í orku-
lækningum. Aðstoðarlæknir er Þór-
hallur B. Ólafsson, sem áður var
héraðslæknir í Hveragerði.
Starfsfólkið er nú 64 manns í
fullu starfi og 10 til 20 í hlutastörf-
um. Á hælinu er myndarlegt bóka-
safn og síðustu árin hefur þar verið
rekin verslun með náttúrulækn-
ingavörum o.fl. Þá má geta þess að
Heilsuhælið rekur sína eigin
garðyrkjustöð og er þar eingöngu
ræktað með lífrænum efnum. Lóð
hælisins er á sumrin blómum prýdd
og umgengni öll til mikillar fyrir-
myndar.
Sigrún
„OFVITINN“ eftir Þórberg í
íeikKerð Kjartans Ragnars-
sonar verður tekinn til sýn-
inga að nýju og er sú hin
fyrsta í kvöld. fimmtudag og
er það raunar 101. sýning
leiksins frá því að hann var
lcikinn í fyrsta skipti.
Mbl. leít inn hjá Leikfélag-
inu á dögunum, þar sem verið
var að æfa Ofvitann upp eftir
sumarhlé. Kjartan Ragnars-
son leikstýrir sjálfur verkinu,
Atli Heimir samdi tónlist og
við kerf ið
Steinþór Sigurðsson sá um
leikmyndir. Margir leikarar
koma fram í leikritinu, en
þeir Jón Hjartarson og Emil
Gunnar Guðmundsson fara
með hlutverk Þórbergs á að-
skiljanlegum aldursstigum.
í næstu viku verður svo
annað leikverk frá fyrra ári
tekið til sýninga. Það er
„Rommí“ og í æfingu er
barnaleikrit, söngleikur o.fl.
og er ljóst að mikið líf er að
færast í starfsemina og
listsköpunina hjá L.R.
Loikararnir i hádegispásu frá Ofvitaæfingu
Úr mvndinni „í baráttu við kerf-
ið“ sem Gamla bíó frumsýnir í
dag.