Morgunblaðið - 25.09.1980, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1980
27
Teikning af Norræna húsinu í
Þórshöfn í Færeyjum.
Hornsteinn lagður að Nor-
ræna húsinu í Færeyjum
IIORNSTEINN að Norræna
húsinu í Færeyjum verður lagð-
ur í dag. fimmtudaK 25. sept-
ember kl. 11. Upphaflega átti
sú athöfn að fara fram sl.
þriðjudaK en var frestað. þar
sem ekki viðraði til fluKs til
Færeyja með gesti frá hinum
Norðurlöndunum.
Norræna húsið í Færeyjum
mun standa í útjaðri Þórshafnar
og er þaðan útsýni yfir allan
bæinn og Nolseyjarfjörðinn.
Húsið verður 2.500 fermetrar. I
því verða bæði stærri og minni
salir. Auk þess verða í húsinu
vinnustofur fyrir málara og
grafíklistamenn og bókasafn.
Norðurlandaráð átti hug-
myndina að byggingu hússins.
Norræna ráðherranefndin greið-
ir % hluta kostnaðarins en
Færeyingar sjálfir '/i hluta.
Norski arkitektinn Ola Steen
hannaði húsið en framkvæmdir
við bygginguna eru í höndum
færeyskra, norskra og danskra
fyrirtækja. Búist er við að húsið
verði tilbúið til notkunar árið
1982.
I tilefni lagningar hornsteins-
ins hófust norrænir menningar-
dagar í Færeyjum hinn 21.
september sl. en þeim lýkur 26.
september. Einn Islendingur
leggur fram skerf sinn til þess-
ara menningardaga, Ingveldur
Hjaltested söngkona.
i
Sigursæll Magnússon, eigandi veitingastaðarins Ártúns ásamt þrem
meðlimum í SATT. F.v. Guðjón Steinþórsson, Sigursæll Magnússon,
Ágúst Ragnarsson og Jón Steinþórsson.
Dansleikir fyrir
unglinga í Artúni
ALLMIKIL umra“ða hefur spunn-
ist um ólæti þau sem unglingar
hafa staðið fyrir í miðhæ Reykja-
vikur um helgar í sumar. Álíta
sumir að þetta sé upphafið að
mikilli skálmöld og kenna um
sívaxandi spillingu æskunnar.
Fæstir taka þó svo djúpt í árinni
og minnast hliðstæðra tiltekta úr
eigin ungda'mi. Þá eru margir
sem telja að ástandið geti átt sér
næsta cinfalda skýringu. Benda
þeir á að sá aldurshópur, sem
fjölmennastur er á „Hallæris-
planinu" um helgar, sé unglingar
á aldrinum sextán ára til tvítugs
og eigi þeir ekki í annað skjól að
vernda þar sem engir skemmti-
staðir eru þeim opnir. Telja þeir
að iétta mætti plágunni með þvi
að skapa þessu unga fólki að-
stöðu til dansleikjahalds á nokkr-
um stöðum í horginni.
Síðastliðinn föstudag var tekin
upp sú nýbreytni að haldinn var
dansleikur fyrir unglinga, sextán
ára og eldri í veitingastaðnum
Ártúni, Vagnhöfða 11. Það voru
SATT, Samtök alþýðutónskálda og
tónlistarmanna, ásamt Sigursæli
Magnússyni, eiganda Ártúns, sem
að þessum dansleik stóðu. Á
blaðamannafundi, sem þessir aðil-
ar héldu í vikunni, kom fram að
dansleikurinn hefði að öllu leyti
farið vel fram og var mikill hugur í
mönnum að þarna yrðu haldnir
dansleikir fyrir unglinga á hverj-
um föstudegi framvegis. í veitinga-
staðnum Ártúni er rúmgóður
danssalur og aðstaða til skemmt-
anahalds öll hin ákjósanlegasta.
Telja aðstandendur unglingadans-
leikja þar að ástæðan fyrir ólátun-
um í miðbænum sé fyrst og fremst
skortur á skemmtistöðum fyrir
unglinga hér í borginni og væri
vandaminnst að leysa vandann
með því að koma slíkum skemmti- .
stöðum upp.
Á unglingadansleikjunum þarna
eru að sjálfsögðu ekki vínveitingar,
sem eru drýgsta tekjulind al-
mennra dansstaða, og er því fyrir-
sjáanlegt að erfitt verður að fá þá
til að standa undir sér fjárhags-
lega Aðgangseyrir er þrjú þúsund
krónur og verður það fé, sem
þannig safnast, að standa undir
öllum útlögðum kostnaði. Fyrir-
sjáanlegt þykir að endar nái ekki
saman með þessum hætti — einka-
nlega vegna þess að greiða verður
tuttugu prósent söluskatt af öllu
sem inn kemur á þennan hátt.
Hafa forstöðumenn unglingadans-
leikja þarna því í hyggju að mælast
til að söluskatturinn verði lagður
niður og vænta sér góðra undir-
tekta af hálfu yfirvalda í því
sambandi.
Unglingadansleikirnir í Ártúni
eru haldnir á föstudagskvöldum
frá kl. 22 til 02 og eru því nokkrir
erfiðleikar fyrir unglingana að
komast heim að loknum dansleik.
Síðasta föstudag var vandamálið
leyst með því að fá strætisvagna
Reykjavíkur til að aka þeim áleiðis
heim að dansleiknum loknum en
óráðið er hvernig þessu verður
háttað í framtíðinni.
Fundur í kvöld
um aukna tíðni
umferðarslysa
FRÆÐSLUFUNDUR um umferð-
armál og umferðarslys verður
haldinn í kvbld klukkan 20.30 í
Norræna húsinu á vegum land-
læknisemhættisins, Laknafélags
íslands og ALFA-nefndarinnar.
Efni fundarins er aukin tíðni
umferðarslysa hér á landi. Frið-
jón Þórðarson dómsmálaráð-
herra flytur inngangsorð, og
Rune Andreasson ráðgjafi Al-
þjóðaheilbrigðisstofnunarinnar
flytur erindi.
Þá verða hringborðsumræður
og fyrirspurnum svarað. Þátttak-
endur verða: Skúli Johnsen borg-
arlæknir, Óli H. Þórðarson fram-
kvæmdastjóri Umferðarráðs,
Óskar Ólason yfirlögregluþjónn,
Ómar Ragnarsson fréttamaður,
Haraldur Henrýsson borgardóm-
ari, Leifur Jónsson læknir, slysa-
deild Borgarspítalans. Fundar-
stjóri Ólafur Ólafsson landlæknir.
Fjós- og
hlöðubruni
Miðhúsum. 23. sept.
UM KL. 9 i morgun hrann fjós
og hlaða til kaldra kola á
hænum Mýrartungu í Rcyk-
hólasveit hjá þeim hjónum
Guðjóni B. Gunnarssyni og
Margréti Ágústsdóttur. Kýr
voru allar úti.
Eldurinn kom upp í mjólkur-
húsi og breiddist óðfluga út.
Kom slökkviliðið frá Reykhól-
um og gat það varið íbúðarhús-
ið, en þá voru rúður byrjaðar að
springa og viður að sviðna á
þeirri hlið sem að fjósinu sneri,
svo ekki mátti tæpara standa.
Fjósið tók 16 kýr og hey er
mikið skemmt af eldi og vatni.
Einnig eyðilögðust mjaltavélar
og mjólkurtankur. Sveinn
Almennur fyrirlestur
um Mössbauer-hrif
DR. HUGO Keller. University of
Illinois, Urbana og University of
Zúrieh talar um Mössbauer-hrif
og hagnýtingu þeirra föstudag-
inn 26. september kl. 16:30 i stofu
158 í húsi verkfræði- og raunvís-
indadeildar við Iljarðarhaga.
Rudolph Mösserbauer varð
fyrstur til þess, árið 1958, að
uppgötva tilveru gammageislunar
án bakslagsorku. Þessi uppgötvun
hefur síðan verið tengd nafni hans
og kölluð Mössbauer-hrif. Þetta
færði vísindaheiminum nýja að-
ferð til rannsókna á innri gerð
efnisins og hlaut hann eðlisfræði-
verðlaun Nobels árið 1961. Möss-
bauer-tæknin hefur síðan verið
notuð með miklum árangri innan
eðlisfræði og lífeðlisfræði svo að
nokkur dæmi séu nefnd.
Dr. Keller mun í fyrirlestri
sínum fjalla mjög almennt um
eðlisfræðilega undirstöðu þessa
fyrirbæris og lýsa nokkrum dæm-
um um hagnýtingu þess við rann-
sóknir á ýmsum sviðum náttúru-
vísinda.
Eðlisfra'ðifélag íslands.
Eðlisfra'ðiskor Háskólans.
Tískusýning
að Hótel Loftleiðum
alla föstudaga kl. 12.30—13.00
Þaö nýjasta á hverjum tíma af hinum glæsilega íslenska
ullar- og skinnafatnaði ásamt fögrum skartgripum verður
kynnt í Blómasal á vegum islensks heimilisiðnaðar og
Rammagerðarinnar. Modelsamtökin sýna.
Víkingaskipið vinsæla bíður ykkar hlaðið gómsætum réttum
kalda borösins auk úrvals heitra rétta.
Guöni Þ. Guðmundsson flytur alþjóðlega
LDI tónlist, gestum til ánægju. IQJ
matarins
meéfallegum
hnífapörum sem
fara vel í hendi
Gense hnífapörin eru þróun áratuga fram-
leióslu. Þau standast ítrustu kröfur sem
gerðar eru á heimsmarkaðinum.
KRISTJÓD
SIGGEIRSSOn HF.
LAUGAVEG113.
SMIOJUSTlG 6, SÍMI 25870