Morgunblaðið - 26.09.1980, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 26.09.1980, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1980 Pílagrímaflugið: Flugleiðaþotan farin frá Lux VÉL Flugleiða sem í fyrradag var látin bíða í Luxemhorg. áður en hún gæti hafið píla- KrímafluK. fór frá Lux klukk- an 16 í gær áleiðis suður á b<)KÍnn, að sögn Sveins Sæ- mundssonar. blaðafulltrúa Flugleiða. Attan flýgur til Lagos og hefst pílagrímaflugið þaðan, en á næstunni verður brottför flutt til Kanó, eins og ráðgert hafði verið. Norræn mennintíar- málaráðstefna: Indriði G. Þor- steinsson flytur erindi í DAG hefst í Gautaborg norræn menningarmálaráð- stefna. Matthías Á. Mathiesen, forseti Norðurlandaráðs, setur ráðstefnuna, en Árni Gunn- arsson, formaður menningar- málanefndar Norðurlandaráðs, stjórnar henni. Indriði G. Þorsteinsson, rithöfundur, mun flytja erindi á ráðstefnu þessari. Útifundur um Gervasoni STUÐNINGSNEFND Patrick Gervasonis hefur boðað til útifundar í dag, föstudag, á Lækjartorgi, kl. 16. Meðal ræðumanna verða Erna Ragn- arsdóttir, Guðmundur J. Guð- mundsson, Guðrún Helgadótt- ir, Haraldur Ólafsson og Jón Baldvin Hannibalsson. Tóbaki stolið í FYRRINÓTT var brotizt inn í strætisvagnabiðskýlið við Laugarásveg og stolið miklu magni af tóbaki, 30—40 lengj- um. Söluverðmætið er um 400 þúsund krónur. Þjófurinn er ófundinn en eitthvað mun hafa fundizt af sígarettupökkum í nálægum götum. Henri VoiIIery, sendiherra. við skrifborð sitt í sendiráði Frakka í Reykjavík. Myndina tók Ólafur K. Magnússon. árið 1955. Henri Voillery fyrrum sendi- herra látinn HENRI Voillery. fyrrum sendiherra Frakka á íslandi. lést í fyrradag. á 86. aldurs- ári. Hann var búsettur hér á landi i rúma tvo áratugi og var fulltrúi frjálsra Frakka við lýðveldisstofnunina hér, árið 1944. Henri Voillery var sendi- herra Frakklands hár á árun- um 1947 til 1959. Útför hans er ráðgerð á morgun, laugardag. Utanáskrift fjölskyldu Voill- erys er: La Forge Bouilland 21420 Savigny Les Beaune. Lítil loðnuveiði LITLAR fréttir eru af loðnuveiði þessa dagana, enda hefur veðrið verið erfitt viðureignar á miðun- um norður í hafi síðustu daga. Á miðvikudagskvöld tilkynnti Júpiter um 500 tonna afla til Loðnunefnd- ar og aðfaranótt fimmtu- dags tilkynnti Skarðsvík um 200 tonn. Meðfylgjandi mynd tók Tómas Helgason á miðunum á þriðjudag. Prentaraverk- fall skollið á Ríkisábyrgðarmálið gætí komið til kasta Alþingis - segir Svavar Gestsson „MÉR sýnist að þetta mál sé af þeirri stærðargráðu, að það gcti komið til kasta Alþingis,“ sagði Svavar Gestsson félagsmálaráðherra. er Mbl. spurði hann um afstöðu Alþýðubandalagsins til óskar Flugleiða um 6 milljarða króna rikisábyrgð. „Þetta er órætt mál hjá okkur ríkisábyrgðarbeiðnarinnar. Því er og það á eftir að kanna eignastöðu ekkert hægt að segja á þessu fyrirtækisins í botn með tilliti til stigi,“ sagði Svavar. Ólafur Jóhannesson til Washington og Norfolk ÓLAFUR Jóhannesson utanríkisráðherra var væntanlegur til Washington í dag frá New York, en frá Washington heldur utanríkisráðherra svo til Norfolk. þar sem eru höfuðstöðvar yfirmanns Atlantshafsflotastjórnar NATO, en uridir hans stjórn heyra varnarliðið á Keflavíkurflugvelli og framkvæmd- ir í tengslum við það. Ólafur Jóhannesson hefur set- ið allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York og flutti þar ræðu á mánudaginn. Hann hefur þar m.a. hitt að máli Edmund Muskie, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, og í Washington ræðir Ólafur við Warren Christopher aðstoðarut- anríkisráðherra og einnig við starfsmenn varnarmálaráðu- neytisins. Frá Washington fer Ólafur á mánudag til Norfolk og verður þar í tvo daga, en til New York fer hann aftur á miðvikudag. Endurráðning flugfreyja: LÍTIÐ miðaði i kjaradeilu bóka- gerðarmanna og Félags islenzka prentiðnaðarins i gær, þrátt fyrir alllangan sáttafund. sem hófst klukkan 08 i gærmorgun og stóð fram undir klukkan 16. Aftur var boðaður fundur klukk- an 21, en þegar Morgunblaðið fór í prentun í gærkveldi, var vafi á að af þeim fundi yrði og talið liklegt að honum yrði frestað þar til i dag. Á miðnætti skall á verkfall bókagerðarmanna i dag- blaðaprentsmiðjum. Svo sem fram kemur á blaðsíðu 26 í Morgunblaðinu í dag, mót- mælti Vísir í gær við prentarafé- lagið og Grafiska sveinafélagið „pólitísku ofbeldi", sem Vísir taídi sig beittan, þar sem meinað var um prentun blaðs, sem tilbúið var í prentun í gær, áður en verkfallið skall á. Hins vegar mun Þjóðvilj- anum hafa verið heimiíað að prenta sérstakt blað, sem þeir gefa út, en vegna mótmæla Vís- ismanna varð heldur ekki af þeirri útgáfu. Morgunblaðið spurði Magnús Einar Sigurðsson, talsmann bóka- gerðarmanna, um þetta atriði. Hann kvaðst ekki vera mjög kunnugur þessu máli, þar sem um hafi verið að ræða innanhússdeilu Pétur Friðrik: í Blaðaprenti. Hins vegar hafi Vísir viljað prenta Helgarblað Vísis, sem kemur venjulega út á föstudögum. Blað Þjóðviljans hafi verið sérútgáfa undir nafninu „Hús og híbýli" og hafi bókagerð- armenn ekkert séð athugavert við útkomu þess. Það blað hafi verið fullbúið til prentunar í gær. Hins vegar kvað hann niðurstöðuna hafa orðið þá, að hvorugt blaðið hafi fengizt prentað. Gjafir til Strandar- kirkju og Rauða krossins RITSTJÓRA Morgunblaðsins hafa borist gjafir frá „B.M.“, krónur eitt hundrað þúsund til Strandarkirkju í Selvogi og sama upphæð til Rauða kross- ins. — Framlögum þessum verður komið til réttra aðila, en Morgunblaðið viil beina því til þeirra, er vilja láta fé renna til líknar- og góðgerðarmála, að þeir komi framlögum sínum til réttra aðila. Ummæli Benedikts ekki rétt PÉTUR Friðrik, listmálari. kom að máli við Morgunblaðið í gær vegna ummæla Benedikts Gunn- arssonar, listmálara. í frétt hlaðsins um viðgerð á málverki hans, Landslags, á vegum Guð- mundar Axelssonar í Klaustur- hólum. Pétur Friðrik sagði, að hann hefði ásamt öðrum skoðað mál- verkið hjá Guðmundi, áður en viðgerð fór fram, og það væri alls ekki rétt hjá Benedikt, að mál- verkið hafi verið mjög bólgið og stórir fletir flagnaðir af. Ekkert sót hefði verið að sjá á mál- verkinu, þótt Benedikt haldi öðru fram. Pétur Friðrik kvað hins vegar litlar bólur hafa verið á mál- verkinu, sem myndast hefðu við hita, og sprungu við viðkomu, en flestar hefðu verið á stærð við eldspýtuhaus. Þá kvað Pétur ekki rétt, að hann hefði ekki viljað koma nærri viðgerðinni sjálfur. Heldur þvert á móti hefði hann lofað Guðmundi að gera við málverkið, ef har.n fengi leyfi eigendanna til þess. Hann kvaðst hafa verið heima næsta hálfa mánuðinn, en þá farið út á land til að mála. Guðmundur hefði ekki hringt áður en hann fór. Pétur Friðrik kvaðst að lokum vilja láta þess getið, að viðgerð málverka sé mjög vandasöm og aðeins á færi sérfræðinga. „Starfsaldur ræður mestu“ - segir Erling Aspelund í FRÉTTATILKYNNINGU frá Flugleiðum í gær vegna endur- ráðninga flugíeyja segir: „Þegar fyrir lá að fækka yrði flugfreyjum eins og reyndar fólki úr öðrum starfshópum innan Flugleiða var fjórum eftirlits- flugfreyjum falið að útfylla lista þar sem ráða mætti af starfshæfni og þjónustu flugfreyjanna við far- þega. Listarnir voru afhentir eftir- litsflugfreyjum, sem síðan fylltu inná þá einkunnir eftir ákveðnu kerfi. Listarnir voru ómerktir. Starfsmannahald, farþegaþjón- ustudeild og flugrekstrardeild unnu síðan sameiginlega úr listun- um. Þar að auki var farið yfir starfsferil viðkomandi flygfreyja, farið var yfir upplýsingar frá farþegum sem félaginu hafa borist á undanförnum árum o.s.frv. Við gerð lista með 68 flugfreyjum, sem félagið vill ráða að nýju, réði starfsaldur mestu. Þegar svo stendur á sem nú hjá Flugleiðum er ekki mögulegt að fara eingöngu eftir starfsaldri. Fólki fækkar verulega hjá fyrir- tækinu. Störf, sem áður voru unnin af tveim eða þrem, lenda nú hjá einum starfsmanni. Þetta á sér stað bæði í skrifstofum félagsins og öðrum vinnustöðum. Starfsald- urslistar eru hvergi viðteknir nema í sambandi við flugmenn. Þar eru þeir samningsatriði. Hjá flugfreyjum eru hins vegar ekki gildandi starfsaldurslistar fremur en hjá öðru starfsfólki félagsins að flugmönnum undanskildum sem að framan getur. Erling Aspelund Már Gunnarsson Hans Indriðason." „í þeirri endurráðningu, sem við gerum ráð fyrir ræður starfsaldur- inn að mestu leyti,“ sagði Erling Aspelund, framkvæmdastjóri stjórnunarsviðs Flugleiða, í sam- tali við Mbl. í gær, „og m.a. til þess að koma til móts við stjórn Flug- freyjufélagsins var ekki miðað við endurráðningu úr þeim hópi 40 flugfreyja sem hætta störfum 1. okt. nk. Við teljum okkur koma verulega til móts við stjórn Flug- freyjufélagsins með því að starfs- aldur ræður að mestu leyti og elsta flugfreyjan á endurráðningarlist- anum er 59 ára gömul, en sú yngsta 30 ára. Þá höfum við boðið viðræður um hlutastörf og launa- laus leyfi og einnig að Flugfreyju- félagið hafi áhrif á viðbótarráðn- ingar ef til kemur auk þeirra 68 flugfreyja sem miðað er við, en stjórn Flugfreyjufélagsins hefur ekki viljað ræða þetta, né taka upp samvinnu í þessum efnum, heldur staðið fast á sínu sem hinu eina rétta.“ 100 flugfreyjur vilja kanna möguleika á hlutastörfum: „Mikil mótspyrna hjá stjórn Flugfreyjufélagsins“ - segir Anna Kristjánsdóttir flugfreyja „ÞAÐ ERU 98 flugfreyjur hjá Flugleiðum sem hafa skrifað sig á lista nýlega þar sem óskað er eftir því að könnun verði gerð á möguleikum hlutastarfa hjá Flugleiðum fyrir flugfreyjur." sagði Anna Kristjáns- dóttir flugfreyja í samtali við Mbl. í gær, „og það eru fleiri flugfreyjur sem vilja kanna þetta mál til hlítar þótt þær hafi ekki fengið listann í hendur.“ „Okkur finnst tími til kominn," sagði Anna, „að við fáum þessa möguleika inn í okkar samninga eins og önnur stéttarfélög og þetta gæti komið sér vel, m.a. af því að flugfreyjustarfið er með erfiðari störfum. En hins vegar hefur þessi vilji flugfreyja til að kanna málið mætt mikilli mótspyrnu hjá stjórn Flugfreyjufélagsins. Fyrir einu ári var þetta mál kveðið í kútinn hjá stjórninni og í síðustu viku tókst þeim ekki að fella afgreiðslu málsins en fengu því frestað um óákveðinn tíma. Flugleiðir hafa boðið viðræður um hlutastörf, en stjórnin hefur ekki viljað ræða það þótt búið sé að samþykkja að málið verði kannað. Þær hafa m.a., sagt að þetta myndi eyðileggja stéttarfé- lagið, en þó hafa þær ekki rætt málið við Flugleiðir. Ég tel þó ljóst að þessi möguleiki gæti verið hagur beggja, flugfreyja og félags-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.