Morgunblaðið - 26.09.1980, Síða 16

Morgunblaðið - 26.09.1980, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1980 Hressingaleikfimi kvenna og karla Haustnámskeiö hefjast fimmtudaginn 2. október í leikfimisal Laugarnesskólans. Fjölbreyttar æfingar — músik — slökun. Veriö meö frá byrjun. Innritun og upplýsingar í síma 33290 kl. 10—4 daglega. Áslaug S. Gunnarsdóttir, íþróttakennari. Styrkið og fegrið líkamann Dömur og herrar! Ný 4ra vikna námskeid hefjast 29. sept. Leikfimi fyrir konur á öllum aldri. Hinir vinsælu HERRATIMAR í hádeginu. Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt jóga og megrandi æfingum. Sértímar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira. Sértímar fyrir eldri dömur og þær sem eru slæmar í baki eða þjást af vöövabólgum. Vigtun — mæling — sturtur — Ijós — gufuböð — kaffi Júdódeild Ármanns Ármúla 32. Innritun og upplýsingar alla virka daga frá kl. 13—22 í síma 83295. • •• *•’ #•••■ •••*> •••*> •••>■ •••*- •••«* ••*.- •••«■ •••*■ •••*- •••*■ •••«■ •••*- •••«* •••** •••*■ •••** ••«•■ •••*> •••*■ •••*- •••*■ •••*■ •••*> •••*■ ••«*• •••*- •••*« •••*■ •••*. ••«. • ••«*• ••*•- ••»*• •••*. •••*> •••*■ •••*. •••*■ •••*- •••* • ••* • ••* • ••* •••* •••« • ••* ••••• A atómöld . .• ..••• ■ *••• .*••• ■ *••• ■ *••• .*••• *••• • ••• **••• **••• **••• **••• ■*••• **••• **••• **••• ■ *••• **••• ■*••• **••• **••• -*••• *••• **••• ■ *••• ■ *••• ■*••• ■*••• .*••• B **••• • ••• • ••• •••• tollir ungt fólk í tískunni Þú finnur þaö nýjasta og besta hjá okkur. Líttu inn, þaö borgar sig. ■*••• ■*••• **••• ■•••• Opiö í kvöld til 10.00 o á morgun til hádegis. rr Löllir, *•••• *•••• Bíldshöfða 20 - S (91)81410-81199 *•••• Sýningahöllinni - Artúnshófða ‘ • Kjartan Jóhannsson: Um skattamál Einstæðir foreldrar verða að kæra álagninguna Skoðun mín er sú, að einstæðir foreldrar ásamt öldruðu fólki séu upp til hópa meðal hinna verst stæðu í þjóðfélagi okkar. Áætlanir um tekjur einstæðra foreldra gefa til kynna að um 40% þeirra hafi verið með árs- tekjur brúttó 1979 á bilinu 2—4 milljónir króna eða 167—333 þús. kr. á mánuði, og 82% þeirra hafi verið með lægri árstekjur en 5 millj. króna. Við þessar aðstæður vekur það sérstaka furðu að við seinustu ákvörðun um tekjuskattstiga skyldi skattstiginn vera hækkað- ur á stærsta hluta einstæðra foreldra. Þannig var skattstig- inn hækkaður á öllum einstæð- um foreldrum með eitt barn og brúttóárstekjur á bilinu 3—6 milljónir króna. Sömuleiðis var skattstiginn hækkaður á ein- stæðum foreldrum með 2 börn og árstekjur á bilinu 3—5 millj- ónir króna, nema ef annað hvort barnanna var yngra en 7 ára. Gerist þetta reyndar á sama tíma og heimiluð er allt að 10% hækkun útsvara og skattskylda meðlaga með börnunum aukin. Að vísu er þakkarvert að fyrri tillögur ríkisstjórnarinnar í þessum efnum náðu ekki fram að ganga, því að þá hefði tekju- skattur á þessum hópum orðið enn hærri, stundum allt upp í 80 þús. kr. hærri á hinar lægri tekjur. Við skattstigabreytinguna var afnumið það fyrirkomulag að einstæðir foreldrar nytu per- sónuafsláttar eins og hjón, eldra fyrirkomulagið hafði verið stutt þeim rökum, að einstætt foreldri gegndi t.d. hlutverki beggja for- eldra og hefði heimiliskostnað svipaðan og hjá hjónum. í þess stað voru barnabætur einstæðra foreldra hækkaðar. Einstæðir foreldrar hafa nú 505 þús. kr. í persónuafslátt og 280 þús. kr. í barnabætur með hverju barni. Hjón hafa hins vegar saman- lagðan persónuafslátt upp í 1010 þús. en barnabætur nema 150 þús. kr. með fyrsta barni og 215 þús. með hverju barni umfram eitt. Ýmsir hafa velt því fyrir sér, hvernig einstæðir foreldrar kæmu nú út í skatti, ef fyigt væri gamla laginu með gildandi tökum fyrir persónuafslátt og barnabætur. Af þessum tökum má auðveldlega ráða það, að miðað við þær gæfi gamla lagið hærri samanlagðan persónuaf- slátt og barnabætur hjá öllum einstæðum foreldrum nema þeim sem eiga 7 börn eða fleiri. Þá er nýja kerfið hagstæðara. í ljósi þeirrar hækkunar, sem orðið hefur á skattlagningu ein- stæðra foreldra er ekki að undra þótt margir þeirra kikni nú. Fjármálaráðherra hefur nýlega skipað nefnd til að athuga skattamál einstæðra foreldra að undangengnum fundi, sem fé- lagsskapur þeirra efndi til um skattamálin. Eftir venju er þó hætt við að dragast kunni, að fá niðurstöður til úrbóta út úr því nefndarstarfi. Á hinn bóginn er athyglisvert að ráðherra lét þess getið á fundinum, að þeir ein- stæðir foreldrar, sem kærðu útsvör sín með tilvísun í 27. gr. laga um tekjustofna sveitarfé- laga ættu góða möguleika á að fá lækkun, með sama hætti og dæmi voru um að menn hefðu fengið án umsóknar fyrir ári. í trausti þessar yfirlýsingar eiga einstæðir foreldrar þannig góða von í skjótvirkari lækkun en nefndarstarf er líklegt til að veita. Þótt ýmsum þyki kæru- leiðin ógeðfelld, verða þeir lík- lega að una því, úr því að ráðherrann hefur nú vísað veg- inn. Öflugt starf Skyggnismanna STARFSEMI Lionsklúbbsins Skyggnis í Rangárvallasýslu var mjög öflug á siðasta starfsári. Mæting á íundi klúbbsins var rúmlega niutfu prósent, umræður þar að jafnaði fjörugar og á köflum nokkuð heitar eins og tekið er til orða I ársskýrslu klúbbsins. Ýmsir góðir gestir sóttu fundi Skyggnis og fluttu þar framsögura-ður til fróðleiks og skemmtunar. Gjafir og stuðningur til líknar og framfaramála eru megin verkefni í störfum Lionsklúbbsins Skyggnis. Til fjáröflunar var m.a. farið í gulrófnaupptöku, seld blóm, jóla- dagatöl og fiskur. Þá stóð fjáröflun- arnefnd Skyggnis fyrir reglulegum kvikmyndasýningum í Hellubíói og voru þær aðalfjáröflun klúbbsins. A starfsárinu keypti klúbburinn augnskoðunartæki að upphæð kr. 2,5 millj. sem Heilsugæzlustöð Hellu- læknis var afhent að gjöf, auk hjartalínurits sem kostaði kr. 600 þús. Þá styrkti klúbburinn Tónlist- arskóla Rangárvallasýslu með fram- lagi að upphæð kr. 350 þúsund. Stjórn Lionsklúbbsins Skyggnis síð- asta starfsár skipuðu: Jón Oskarsson Hellu, formaður, Knútur Scheving Hellu, ritari og Sigurður Sigurðsson Skammbeinstöðum, gjaldkeri. For- maður fjáröflunarnefndar var Krist- inn Gunnarsson Hellu. Að loknu starfsári flytur stjórn Skyggnis beztu þakkir þeim fjölmörgu sem studdu klúbbinn í starfi. KréttalilkynninK.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.